Morgunblaðið - 18.12.1977, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1977
89
félk f
fréttum
Merkilegur fornleifafundur
+ Þetta er ekki fílsungi
heldur mammútur. Hann
fannst í Síberíu og er álit-
inn vera 700 til 10.000 ára
gamall. Dýrið hefur varð-
veitst ótrúlega vel en senni-
lega hefur frost aldrei farið
úr honum síðann hann
drapst.
Visindamenn segja þennan
fornleifafund ákaflega merki-
legan, því aðeins einu sinni
áður hefur fundist svo vel
varðveitt mammútdýr. Það
var árið 1799, en áður en
vísindamenn gætu rannsak-
að hann voru hundar búnir
að éta hann.
+ Söngvarinn Nat Russel sem nú
hefur dvaliö í Danmörku 1 19 ár
segist vera feginn að hann hefur
aldrei sótt um danskan ríkisborg-
ararétt, því nú er hann um það bil
að fara til USA til að syngja.
Hann hefur ótakmarkað dvalar-
leyfi í Danmörku og bandariskt
vegabréf svo hann getur dvalið f
hvoru landinu sem er eftir eigin
ósk. Ástæðan fyrir för hans til
USA nú er sú að góður vinur hans
hefur iagt allmikla fjárhæð i að
gefa út plötu sem Nat Russel hef-
ur sungið inn á, og á hún að
kynna söngvaran áður en hann
k'emur sjálfur f eigin persónu.
+ Bernadette Peters er
f jölhæf leikkona sem getur
bæði sungið og dansað, og
hún á eitt sameiginlegt
með leikkonum þöglu
myndanna. Hún getur
grátið eftir pöntun. Vinir
hennar kalla hana „tára-
stúlkuna“ en þá hlær
Bernadette svo tárin
streyma niður kinnarnar.
Víða mðtti sjá margra kílómetra langar lestir af drátta
vélum.
+ Eins og kunnugt
er af fréttum fjöl-
miðla efndu bænd-
ur í Bandaríkjunum
til mikils mótmæla-
aksturs á dráttar-
vélum fyrir stuttu
siðan. Mótmæla-
akstur þessi var far-
inn til að vekja at-
hygli á lágu verði á
landbúnaðarvörum
sem bændur eru
mjög óánægðir
með. Á þjóðvegum
víðs vegar um
Bandaríkin mátti
sjá langar lestir af
dráttarvélum
streyma til stjórnar-
stöðva í landinu
m.a. til þinghússins
i Washington
Ein þeirra sem tóku þátt í mótmælaakstrinum var Gloria
Carter Spann, systir Carters forseta.
MaðMíomil
V o
1 I r 3
J pr? -Œ'ir1