Morgunblaðið - 18.12.1977, Side 31
— Minning
Bergöveinn
Framhald af bls. 87
bankanum. Helga Lísbet, gift Elí-
asi Kristjánssyni, búsett í Reykja-'
vik. Bragi tæknifræðingur,
kvæntur Þorbjörgu Jenny Ölafs-
dóttur búsett í Reykjavik. Barna-
börnin eru 8.
Frá prófborðinu vorið 1933 með
fullkomin vélstjóraréttindi ræóur
Bergsveinn sig á skipið Fjölni frá
Þingeyri til síldveiða um sumarið.
Að þeim veiðum loknum, um
haustið ræður hann sig til Skipa-
útgerðar rikisins, á varðskipið
Þór (II). Þá sá skipaútgerðin
jafnframt um rekstur varðskip-
anna. Á varðskipum er Berg-
sveinn til ársins 1946, en þá fer
hann yfir á m/s Esju og er hann
siðan á strandferðarskipum þang-
að til hann hættir og fer í land
árió 1974. Astæðulaust er hér að
telja upp öil skipin sem hann var
á, mörg síðustu árin sem yfirvél-
stjóri, en þau skip voru um 10
talsins, varðskip og strandferóa-
skip. Varðskipið Þór (II) var
byggður sem togari með gufuvél.
A stríðsárunum var hann leigður
til fiskflutninga. Yfirmennirnir
fylgdu skipinu eftir. Aðallega var
siglt til Fleetwood, og voru þetta
erfiðar og hættulegar ferðir. Ekki
mátti sigla með Ijósum og ekki
nota loftskeyti af ótta við kafbát-
ana. Þetta muna sjómannsheimil-
in þar sem fjölskyldan beið í
fréttaleysinu, vonaði og bað.
Sjómenn segjast aldrei lenda í
vondum veðrum. Nei, aldeilis
ekki. Þeir kalla allt slíkt bara
„brælu.“ Þannig var það lfka með
Bergsvein, þrátt fyrir öll árin „á
ströndinni." Ein slík bræla geym-
ist þó á filmum. Víða á heimilum
eru myndir til frá þeim atburði. I
bókinni Vestmannaeyjar byggð
og eldgos stendur þetta: „Arið
1963 gerði aftaka suðaustan veður
með stórstraumsflóði og sáu
menn þá fossa vestur af Yzta-
kletti. Strandferðaskipið Hekla
slitnaði frá Básaskersbryggju og
komst fyrir snarræði og dirfsku
út úr höfninni. Mátti vart þar
tæpara standa.“ Hópur manna var
á Skansinum og fylgdist með þess-
um hildarleik með öndina í háls-
inum, þegar sára litlu munaði að
brotsjórinn kastaði skipinu utaní
bergið. í brúnni var þá Guðmund-
ur Guðjónsson skipstjóri en Berg-
sveinn í vélarrúmi. Þarna mátti
ekki tæpara standa. Þannig liðu
árin við störfin — í blíðu og
stríðu.
Bergsveinn var meðalmaður á
hæð, myndarlegur á velli. Hann
var laglegur maður. En hann var
líka vel gefinn, fróður og víðles-
inn. Hann hugsaði mikið um þjóð-
mál almennt. A Isafjarðarárunum
tók hann mikinn þátt í félagsmál-
um. Var t.d. kjörinn varabæjar-
fulltrúi 11. jan. 1930. Þá var hann
í Karlakór Isafjarðar, en Berg-
sveinn hafði djúpa, mjúka og fall-
ega bassarödd og var tónviss.
Hann naut Ifka þess að taka lagið
í vinahóp.
Strandferðirnar buðu uppá að
hitta marga og kynnast iífi fólks-
ins vftt um landið. Hann þekkti
því fjölmarga og varð mjög vin-
sæll maður.
Strandamaðurinn í Bergsveini
var oftlega ekki í sátt við fram-
ferði fólksins. Fannst það ekki
kunna að meta velgengni og hag-
sæld. Erfiðleikar og allt að því
skortur væri nauðsyn til þess að
fólk áttaði sig, þannig væri land-
inn. Bergsveinn bjó alltaf að
fyrstu gerð. Virðing fyrir verð-
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1977
95
mætum og sannkölluð auðmýkt í
meðlæti voru sterkir þættir í
skapgerð hans.
Hann var afburða góður sögu-
maóur, orðsnjall i besta lagi, og
gletnin oft ofarlega. Þá átti hann
oft til að leika með frásögninni,
þá var hlegið og mikið hlegið. Þá
þótti Bergsveini gaman að vera
til, þannig verður hann mér minn-
isstæður þegar fram líða stundir.
Um þetta leyti árs fyrir jól var
það oft að Bergsveinn lét úr höfn
með vörur og glaðning til fólksins
út á landsbyggðinni. Að þessu
Sinni var honum fyrirhugað ann-
að ferðalag. Það ferðalag óttaðist
hann ekki, þeirri umbreytingu
kveið hann ekki. Sjómennirnir
eiga sitt trúartraust ög þurfa á því
að halda á móti hamförum náttúr-
unnar. — Vinirnir allir þakka
Bergsveini samfylgdina. Utför
hans fer fram frá Dómkirkjunni á
morgun, mánudag. Blessuð sé
minning hans. Frú Valgerði,
börnum þeirra og skylduliði öllu,
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Sigurður Sigurgeirsson.
Kiwanismenn gáfu vél í bátinn
Sunnudaginn 11. des.
afhenti kiwanis-
klúbburinn Boði f
Grindavík björgunar-
sveitinni Þorbirni 28
hestafla utanborðsmót-
or af Yamha-gerð að
gjöf. Mótor þessi er
ætlaður til notkunar á
Zodiac-bát, sem sveitin
fékk að gjöf um síðustu
áramót.
Nu fram að jólum
verður kiwanisklúbbur-
inn Boði með jólatrés-
sölu í nýju kirkjubygg-
ingunni, og eru þar
jafnframt á boðstólum
margs konar jólaskreyt-
ingar, greni, o.m.fl. og
aka félagarnir trjánum
heim ef þess er óskað.
Á myndinni sést Eyjólfur Guðmundsson, forseti kiwanisklúbbsins Boða, af-
henda Gunnari Tómassyni, formanni björgunarsveitarinnar Þorbjarnar, utan-
borðsmótorinn.