Alþýðublaðið - 24.01.1931, Side 3

Alþýðublaðið - 24.01.1931, Side 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 * Odýra vikan. Öll okkar þekta góða metravara á að seljast í hvelli afaródýrt. Nærföt, vinnuföt og sterku peysurnar drengja frá 2,70, karlmanns frá 5,85. Dívanteppi öll við innkaups- verði. Kven-regnfrakkar frá 22 kr. Nú verður veru- lega ^ódýit hjá G E O R G. Vörubúðln. Laagaeegi 53. Sftni 87©. Jafnaðarmeim í Unoverjalandl. Eins og kunnugt er ríkir nokk- urs konar fasistastjórn í Ung- verjalandi, og er landstjórinn Horty næstum einvaldur. Hefir fundafrelsi verið mjög skert og skoðana- og mál-frelsi sett margs konar takmörk. Jafnaðarmenn hafa pví haft mjög slæma að- stöðu til að starfa þar. — Úrslit bæjarstjórnarkosninga, er nýlega fóru fram í Buda-Pest, höfuð- horg Ungverjalands, sýna þó mikla aukningu á fylgi jafnað- armanna. Fengu þeir 72 593 at- 'kvæði, eða 27 »/0 greiddra at- kvæða. Er þetta gífurleg aukning frá síðustu kosningum. Bdssar og Danir. Verzlun Dana við Sovét-Rúss- land eykst með hverju ári, sem ijður. Var verzlun þeirra um 20 millj. króna sl. ár. Þó töpuðu Danir verzlun við Rússa, er nam um 30 milljónum króna, vegna þess, að þeir gátu ekki gefið þeim nægan greiðslufrest. Rúss- ar þurfa margt að kaupa, og gætu Iskndingar náð þar mark- aði fyrir ýmsar afurðir sínar, ef heimskulegar hugmyndir þröng- sýnna afturhaldsmanna stæöu ekki í vegi fyrir því. Af Laispnesi. Þórshöfn, FB., 23. jan. Undanfarnar vikur hefir verið hér ágæt tíð og í nærsveitunum. Er hinn mikli snjór, sem kom hér í nóvember, löngu horfinn. AJautt má heita í lágsveitum, en allmikill snjór til heiða. Alment munu bændur hafa geftð sauðfé sáralítið og hestar ganga víðast hvar sjálíala. — Hettusótt gengux enn hér í sveitum, en er jafnvæg og áður. Um síðastliðin áramót voru sameinuð samvinnufélögin Kaup- félag Langnesinga og Kaupfélag -ÞistilfjarðiaT. Framkvæmdarstjóri kaupfélagsins var Guðmundur Vilhjálmsson á Syðra Lóni, en framkvæmdarstjóri pöhtunarfé- lagsins ' Kristján Þórarinsson, Holti í Þistiifirði. Sögðu þeir báðir af sér störfum á siðastliðnu vori Við hinu nýja félagi, sem framvegis ber nafnið Kaupfélag Langnesinga, tekur ungur maður austan af Borgarfirði, Karl Hjálmarsson að nafni, hinn álit- iegasti maðfur. Viðtæki útvarps hafa verið sett upp á einum hæ í Þistilfirði ný- lega. Heyrist á það ágætlega til margra erlendra stöðva, en Reykjavíkurstöðiin hefir heyrst misjainlega, þó oftast ágætlega. GjaLciprot í ÞijzkaLandi. Árið 1930 voru gjaldþrot í Þýzkalandi 15 200 eða 2000 fleiri en árið 19^9. (U. P. — FB.) KnattspyrnuféLag Reykjavíkur. Æfingar á morgun, sunnudag, verða: Kl. IOV2: Fiímledkar karla (samæfing fyrir 1., 2. og 3. flokk). Kl. 2. e. h.: Hlaupaæfing. Ef ekki viörar vel verður æft innan húss. Kl. 3 æfir 1. fl. kvenna og kl. 4 er samæfing hjá 2. og 3. fl. kvenna. Hjálprœdisherinn: Samkomur á morgun: Helgunaaisamkoma kl. IOV2 árd. H. Andrésen lautn. stjómar. Sunnudagaskóli kl. 2. Hljómleikasamkoma á Vífilstöð- um kl. 4Ve- Gestur Árskóg en- sajn stjórnar. Hjálpræðissamiroma ,kl. 8 síðd. A. Olsen ka:pt. stjórnar. Allir velkomnir. Samgðiigiiif £11 Anstfjarðau Norðfiírði, FB., 21. jan. Alls staðar hér eystra er mjög megn óánægja út af fækkun á viðkomum EimskipafélagSiSikip- anna til Austfjarða og hafa bæði Austfjarðablöðin flutt ádeálu- greinar á félagsstjórnina. 1 gær- kveldi samþykti bæjarstjómin hér með öllum atkvæðum eftirfarandii áskorun ' til Eimskipafélagsins: „Bæjarstjórn Neskaupstaðar lýsir yfir megnri óánægju með samgöngur Eimskipafélagsskip- anna við Austurland * yfirleitt og Norðfjörð sérstaklega. Það, sem bæjarstjórnin eink- im ábéiur, er, ad viðkomum skipa félagsins er fækkað stórlega á allar Austfjarðahafnir frá þvi sem var síðasta ár, ad tilhögun sú, sem ráðgerð var 1929. af Jóni Þorlákssyni að tekin yrði upp með samgöngur mMli Reykjavik- ur og Austfjarða eftir að „Detíi- foss“ tæki til starfa, hefir ekki verið framkvæmd, ad Eimsldpa- félagsskipin eru þráfaldlega lát- in fara fram hjá NorcSirði, er þau fara um Austfirði, og að Norðfjörður er ekki tekinn á á- ætlun, þótt skipin eigi ledð' hér fram hjá, en reynslan hefir sýnt, að undantekningarlítið verða þau að koma hingað vegna farþegá eða flutnings, er þau fara um Austfirði. — Þar sem þess hefir atanent verið vænst, að Eimskipa- félagið myndi reyna að bæta samgöngurnar vib Austfirði eins og aðra landshluta, en nú er fcomiið í ljós, að litlar likur eru til þess að svo verði, þegar sam- göngurnar versna er skipum fé- lagsins fjölgar, þá skorar bæjar- stjórnin á stjórn Etanskipafélags- ins að hirta opinberlega ástæður sínar fyrir framangreindum at- riðum; til þess að Austfirðingar geti með tilstyrk ríkisins, er- lendra skipafélaga eða með öðr- um hætti gert ráðstafanir til bættra samgangna við Austur- land, jregar sýnilegt er a'ð Eim- skipafélag íslands er neytt til að afskifta Austurland siglingum skipa sinna, að láta skip nú í hverri ferð, sem þau koma til Austfjarða á þessu ári, hafa við- kornu á Noröfiröi, og auglýsa þetta opinberlega nú, þegar.“ NB. Afrit af skeyti þessu sendi Fréttastofan framkvæmdastjóra Eimskipafélags Islands, og hefir Fréttastofan fengið eftirfarandj umsögn stjórnar Eimskipafélags tslands: „Út af samþykt . bæjarstjórnar Neskaupstaöar 20. þ. m. vill stjórn Eimskipafélags ' íslands taka þetta fram: Hiinar tíðu fer'ðir skipa félags- ins sí'ðastliðið ár milii Reykja- víkur og Auistfjarða sunnanlands og hinar mjög auknu siglingar milli Austfjaröa og útlanda voru gerðar sem tilraun. Reynslan sýndi, að vöru- og fólks-flutning- ar til Austfjarða og þaðan vori* ekki nálægt því svo miklir, að þeir gætu borið uppi svo miklar ferðir, sem Austfjörðum voru þá ætlaðar, svo að félagið stórtapaði á þeim beint og óbeint, meðal annars vegna þess, að vörur og fólks-flutningar milli Reykjavíkur og útlanda hnrfu mjög mikið frá skipum félagsins vegna viökomu skipanna á Austfjörðum. Fjár- hagur félagsiins þolir hins vegar ekki að það orsaki sér fyrirsjá- anlegt stórtjón í þessu efni. Nú er einnig þess að gæta, að áður en áætlun Eimskipafélagsskip- anna fyrir yfirstandandi ár var samin, átti útgerðarstjóri félags- ins tal við herra Pálma Loftsson, útgerðarstjóra ríkisskipanna, sexn upplýsti, að ferðrun rtkisskipanna fram og afíur milli Reykjavikur og Austfjarða yrði mikið fjölgað á þessu ári', og af þeim ástæðum viirtist minni nauúsyn á, að Eim- skipafélagið héidi uppi tíðibn ferðum milli Reykjavíkur og Austfjarða. í þessu smnbandi má henda á, að árið 1930 fórú rík- iisskipin 20 ferðir um Austfirði (frá Reykjavik eða til Reykja- vikux), en yfirstandandi ár verða 32 ferðir. Á hinn bóginn hefir útgerðar- stjóri Eimskipafélagsins þegar með bréfi dags. 17. þ. m. tilkynt afgreiðslumanni félagsins á Norðfirðí, að skip 1 félagsioss kæmu váð á Norðfirði í þedm ferðurn, sem komdð verður við á Seytisfirði. Verður ráðstöfun þessi auglýst í blöðunum „Jafn- aðarmanninum" á Norðfirði, „Austfirðingi" á Seyðisfirði og í Reykjaxnkurbiöðunum. Eimskipa- félagið óskar 'að upplýsa, að vör- ur til AustfjarÖa frá Hamborg og Hull, sem sendar eru á gegn- umgangandd farmskírteinum með skipum félagsins, sem ekki hafa. viðkomu á Austfjörðum, cerða framvegis sem hingað tll sendar til ákvörðunarstaðar á Austur- landi án aukafarangjalds og án umhleðslukostnaðar.‘ ‘ Um áágÍM® ^egfusso frraj HLác Jl ú D í RV/T11KYN N í K C h R UNNUR nr. 38. Fundur á morg- un kl. 10 f. h. FRAMTÍÐIN. Ftmdur á mánud, Str. Guðrún Lárusdóttiir í Ásf. annast hagnefndaratr. — Stúk- an Esja á að heimsækja. SVAVA. Fundur á sunnudag, Smára- og dýra-sögur. Komið öll, sem voruð á jólatrésskemt- uninni. Næturlæknir •er í nótt Ósltar Þórðarson, Ás- valiagötu 10 A, simi 2235, og aðra nótt Kari Jónsson, Grúndarstíg 11, sírni 2020.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.