Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JULI 1978 27 EUsabet Sigfúsdótt- ir—Minningarorð Fædd 20. júní 1891 Dáin 6. júní 1978 Elísabet fæddist að Arnartungu á Snæfellsnesi. Foreldrar hennar voru Sigfús Bergmann Guðmunds- son og Elísabet Felixdóttir. Bar dóttirin nafn hennar. Skömmu eftir aldamót átti hún heima um tíma á Litlu-Ásgeirsá í Víðidal hjá þeim mætu hjónum Guðrúnu Grímsdóttur og Eggerti Elíeserssyni, en honum var Elísa- bet náskyld. Þaðan fluttist hún með þeim að Ytri-Völlum skammt frá Hvammstanga. Á því myndar- heimili var hún til 17 ára aldurs, er hún fluttist til annars ágæts frændfólks síns að Marðarnúpi í Vatnsdal, Björns föður Guðmund- ar landlæknis og Þorbjargar konu hans. Mörg sveitaheimili voru fyrrum uppvaxandi fólki drjúgur æskulýðsskóli. Má því segja, að Elísabet færi því næst sem þrosk- uð stúlka í einn skólann enn en það var Kvennaskólinn á Blönduósi. Því næst lá leiðin suður til Reykjavíkur og þaðan til Kaup- mannahafnar að læra hjúkrun, og var óneitanlega í nokkuð ráðist á þeim árum, skömmu eftir fyrri heimsstyrjöld. í gáfnafari hennar og innsta eðli var rótfest löngunin til að leggja sig fram öðrum til hjálpar og námið sóttist vel. Allt vildi hún vinna á einn veg, fyrr og síðar: Eins vel og unnt var. Hún var starfskona mikil og kunni alls ekki að hlífa sér. Erfið höfuðveiki batt að lokum enda á námið. Eftir að heim kom til Reykjavíkur lærði AF GEFNU tilcíni skal það enn ítrekað. að minningar- greinar. sem birtast skulu í Mbl.. og greinarhöfundar óska að birtist í blaðinu útfarardag. verða að berast með nægum fyrirvara og eigi síðar en árdegis tveim dögum fyrir birtingar dag. hún klæðskeraiðn hjá Árna og Bjarna. Framúrskarandi smekk- vísi, nákvæmni og vandvirkni hennar var annáluð og var hún oft nefnd saumakona af Guðs náð, — svo vel þóttu flíkurnar fara, bæði nýjar og samdar upp úr þeim eldri, — og er mörgum minnisstætt. Þessa list Elísabetar setja vinir hennar í órofa samband við þann innsta þátt í eðli hennar að leggja sig alla fram til vandaðrar breytni í hverju einu í daglegu lífi. Hún gat sameinað fagurlega þann eiginleika að vera hlédræg en um leið með opinn hug og hjarta gagnvart svo mörgu samferða- fólki, sem hún fúslega rétti hjálparhönd á einhvern hátt, eftir því sem færi gafst. Eiginmaður Elísabetar, Jón Hjálmarsson frá Stakkadal ná- lægt Aðalvík var lengi vélstjóri á togurum, en einnig á miliilanda- skipum. Hann fórst með togaran- um Ólafi í óveðri 2. nóv. 1938, — af kunnugum talinn mjög góður og gegn í sínu starfi. Kona sjómanns, sem er mjög að heiman, tekur að sér mikilsvert hlutverk, að annast ein hús og heimili — en vita mann sinn oft í hættu staddan — og að standa ein að uppeldi barnanna að mestum hluta. Slíkar konur skilja betur hver aðra en almennt gerist, og leita þess vegna sameiginlegs félagsskapar til þess bæði að bera hver annarrar byrðar og gleðjast sameiginlega. Elísabet var nú fyrir stuttu gerð heiðursfélagi í Keðjunni, félagi vélstjórakvenna, og var hún ein af stofnendum félagsins. Hlutverk sjómannskonunnar Elísabetar Sigfúsdóttur þyngist mjög eftir fráfall eiginmanns, þegar byrðin leggst öll á herðar hennar, móðurinnar, ekki síst þegar við bætist missir annars sonar og langvinn veikindi hins. En við þessi kjör sýndi Elísabet hvað í henni bjó, eða öllu heldur, að sá er sterkur, sem oss styður. Líf hennar og allur hugsunarhátt- ur var borinn uppi af óbilugri kristinni trú, „sem engin þrenging kunni buga“. Og er þá þess að geta, að hún var starfandi félagi í Kristniboðsfélagi kvenna í Reykjavík í marga áratugi, og virt og elskuð þar sem annars staðar. Mörg undanfarin ár dvaldi Elísabet í skjóli dóttur sinnar Unnar, og eiginmanns hennar, Úlfars Þórðarsonar læknis, og naut ástríkis þeirra og aðhlynn- ingar, enda var henni það heimili mjög kært. Blessuð sé minning Elísabetar Sigfúsdóttur. Helgi Tryggvason ORDSENDING í — ' ysr* Salg & Service lll Brovt eigenda Fáist næg þátttaka, þá er væntan- legur hingað norskur sértræðingur frá Bröyt verksmiðjunum með þjónustubif- reið. Mun hann ferðast um landið ásamt viðgerðarmanni frá Velti h.f. Þeir munu meta ástand þeirra véla sem óskað er eftir. Yfirfara og stilla vökvakerfið auk 50—90 annarra atriða. Fast gjald er fyrir athugunina. í þjónustubifreiðinni verða allir helstu varahlutir. Þeir sem ætla að not- færa sér þessa þjónustu, skrifi eða hringi til Veltis h.f., Suðúrlandsbraut 16, Rvk. s. 35200, fyrlr 15. júlí 1978. Verð án söluskatts og varahluta er: 2 BRÖYT X BRÖYT X B BRÖYT X 3-x30-x4 kr. 70.000- kr. 80.000- kr. 100.000- Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200 o> <3 5 Ég óska eftir Broyt yfirferð og Nafn stillingu. Látið Broytbílinn koma við hjá mér. Heimilisfang Sími Vinnustaður VANTAR ÞIG VINNU (n VANTAR ÞIG FÓLK í ÞÚ AUGLÝSIR L M ÁLLT LAND ÞEGAR ÞL AL'G- LÝSIR í MORGLN’BLAÐINl er komið út Til tízkublaösins Líf Ármúla 18 105 Reykjavík, s. 82300 - 82302 Nafn: Oska eftir askrift Heimilisfang: — 2.-6. tbl. kr. 3390 — 3.-6. tbl. kr. 2945 simi: TÍZKUBLAÐIÐ LÍF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.