Alþýðublaðið - 28.11.1958, Qupperneq 12
u og russnesKa
arboinvörpu
Víðfæk slarfsetni iiskileifar og veiði-
EINS OG KUNNUGT : er,
lnefur Alþingi veift á untlan-
förnum árum fjármagn ti)
fiskileitar og veiðitilrauna.
Framkvæmd leiðangra og til-
rauna, sem gerðar liafa verið
fyrir þetta fé, hafa til þessa
verið í höndum ýmissa aðila.
í júlíbyrjun s.l. sumar skip-
aði svo Sjávarútvegsmálaráðu-
-néytið nefnd til þess að hafa
með höndum framkvæmdir á
fiskileit og veiðitilraunum, I
nefnd þessari eiga sæti Illugi
Gðumundsso, skipstjóri, sem
jafnframt er formaður nefnd-
arinnar, Jakob Jakobsson fiski
fræðingur og Ingvar Vílhjálms
son forstjóri, en varamenn
þeirra eru Dr. Jakob Magnús-
son og Sæmundur Auðunsson
forstjóri.
KARFALEITARLEfÐ-
ANGUR.
Nefndin tók þegar til starfa.
Fyrsta verkefni hennar var að
skipuleggja og hrinda af stað
karfaleitarleiðangri, og hafa
verið farnir tveir slíkir leið-
angrar £ ár. Að athuguðu máli
var ákveðið að kanna svæðið
tdð austurströnd Labrador
(Hamiltonbanka) og Nýfundna
land. Fyrri leiðangurinn var
farinn dagana 18. júlí til 2, ág-
úst. Leitað var í austurhalla
Hamiltonbanka allt suður fyr-
ir ál þann, sem er NA af sund-
irm milli Nýfundnalands og
Labrador (Belle-Isle-sund).
Karfa varð alls staðar vart á
leitarsvæðinu. Á Hamilton-
banka var magnið ekki mjög-
mikið. en hins vegar fékkst
ágætur karfaafii á horni sunn-
an við áðurnefndan ál, sem Is-
lendingar hafa nú nefnt Sund-
ál.
Seinni leiðangurinn var far-
inn dagana 15. sept. til 28. sept.
í þeim leiðangri var léitað
meðfram útkantinum sunnan;
Sundáls allt suður á 51°23’N.
Á þessu leitarsvæði fékkst góð
karfaveiði á 40 sm. svæði, en
þó mest á norðurenda lágs
hryggjar, sem þar er. Veiði-
svæði þessu var gefið nafnið
Ritubanki. Milli Sundáls og
Ritubanka eru um 80 sm. Sund
álsveiðisvæðið er um 120—130
sm. undan landi en Ritubanki
um 170—180 sm.
UPPGRIPA AFLI.
Á báðum þessum veiðisvæð-
um hefur íslenzki togaraflot-
inn síðan haft uppgrip afia, ein
og kunnugt er. Fullyrða má, að
þessi nýju mið hafa komið að
mjög miklum notum, því karfa
sókn hefur- aldrei verið meiri
en í ár, en veiðarnar sialdan
rýrari á öðrum miðum. Hafa
nú aflast á þessum miðum a.
m.k. 55 þús. tonn.
Stjórn þessara leiðangra önn
uðust dr, Jakob Magnússon og
Sæmundur Auðunsson.
Annað aðalverkefni nefnd-
arinnar var að skipuleggja
síldarleit við SV-land í haust.
Til þeirrar leitar var v/s Fann-
ey leigð. Síðan um miðjan sept
Framhald á 3. síðu..
Launabætur rík-
isstarfsmanna
afgreiddar
ÞINGSALYKTUNARTIL-
LAGAN um launabætur opin-
berra starfsmanna var ofgreidd
í sameinuðu þingi í gær með
samhljóða atkvæðum við-
staddra aiþingismanna.
Fjárveitinganefnd fjallaði.
um málið og varð sammála um
að mæla með samþykkt þings-
álvktunartillögunnar. Hafði
formaður hennar, Karl Guð-
jónsson, framsögu í málinu og.
rakti aðdraganda og efni þings-
ályktunartillögunnar. Að ræðu
hans lokinni var þingsályktun-
artiliagan samþykkt með 34
samhljóða atkvæðum. Hefur
mál þetta þar með verið af-
greitt til ríkisstjórnarinnar og
kemur launahækkun opinberra
starfsmanna til framkvæmda
nú um mánaðamótin, en hún
miðast við 1. september.
39. árg. — Föstudagur 28. nóv. 1958 — 271. tbl.
Álþýðuflokksfélag Keflavíkur vi
breyfirtgu á kjördæmaskipulaginu
Ragnar Guðieifsson endurkjörinn
formaður félagsins.
AÐALFUNDUR Alþýðu-
fiokksfélags Keflavíkur var
lialdinn nýlega. Var Ragnar
Guðleifsson endurkjörinn for-
ivsaður félagsins, Funduriim
gerði ályktun í kjördæmamál-
iirnu. ‘
I stjórn voru kosnir;
Ragnar Guðleifsson, form.,
Ólafur Björnsson,
Hafsteinn Guðmundsson,
Björgvin Árnason, .
Ásgeir Einarsson.
Varamenn:
Eiríkur Friðriksson,
Guðmundur Guðjónsson,
Guðni Þorvaldsson,
Einar Ólafsson.
Eftirfarandi var samþykkt:
Aðalfundur Aiþýðuflokksfé-
lags Keflavíkur haldinn 21.
móv, skorar á ráðherra Al-
þýðufiokksins, að þeir hlut-
ist til um, að efnt verði fyrir-
heit stjórnarsáttmálans um
Inreytingar á giidandi kjör-
dæmaskipun. Við þær breyt-
ingar verði það höfuð sjónar-
niið ráðandi, að sem mestur
jöfnuður náist milli stjórn-
málaflokkanna miðað við at-
kvæðamagn þeirra.
Framhald á 11- «úðu.
Kennarafélag
Kvennaskolans
motmælir lóðar-
sviptingu.
BÆJARRÁÐ hefur nú sam-
þykkt tillögu frá samvinnu-
nefnd um skipulagsmál, að aft-
urkalla fyrirheit um skóialóð
handa Kvennaskólanum á
horni Suðurgötu og Hjarðar-
liaga. Telur nefndin áð um-
rædd lóð komi ekki til greina
af umferða- og skipulagsástæð
um.
Kennarafélag Kvennaskól-
ans hefur ritað bæjarráði
Reykjavíkur bréf þar sem það
mótmælir harðlega lóðarsvift-
ingunni, Tekur Kennarafélag-
ið fram, að staður sá, sem búið
var að ákveða skólanum, sé
hinn ákjósanlegasti og skír-
skotar til umsagnar nefndar-
innar dags. 24. okt. um sam-
þykkt bæjarráðs þar að lút-
andi.
Að endingu tekur Kennara-
félagið þar fram í bréfi sínu,
að lóðarsviftingin brjóti al-
gjörlega í bága við gefin fyrir-
heit og telur að um samnings-
rof gagnvart Kvennaskólanum
sé að ræða verði hann sviftur
lóðinni.
SPILAKVÖLÐ ALÞÝÐUFLOKKSFELAGSIMS
f Kvöld kl. 8,30 heldur spilakeppni Alþýðuflokksfélaganna ;i-
fram í Iðnó. Kristján Guðmundsson frá Eyrarbakka flytur á-
varp. Mynd þessi gefux- góða hugmynd uin fjölmemiið, sem vsr
á síðasta spilakvöldi. Engiim vafi er á því, að jafn fjölmennt
verður í kvöld.
Hið nýja sklp Eimskips, Sel
foss, kemur hingað í dag
SELFOSS, hið nýja og glæsi-
lega skáp Eimskipafélags Is-
lands, er væntanlegur til
Reykjavíkur í dag. Skipið kem
ur á ytri höfnina um kl. 11 f.h.
og er væntanlegt að bryggju
um kl. 15.
Mþýðuflokksfólk,
Kópavogl!
Aiþýðuflokksfólk í Kópa-
vogi er minnt á fund Al-
þýðuflokksfélagsins í kvöld
ld. 9 í Alþýðuhúsinu við
Kársnesbraut. Kjörnir verða
fulltrúar á flokksþing Al-
þýðufiokksins. Fjölmennið
stúndvíslega.
Þittg BSRB setl
19. ÞING Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja verður
sett í Melaskólanum í Revkja-
vík í dag kl. 5 e.h.
DRENGiAHOPUR RÆNIR VERZLUN
UNDANFARIN ÁR hefur
borið á því hér í bænum, að
unglingar stunduðu búða-
hnupl fyrir hátíðarnar. Mann-
margt er þá jafnan í búðum
og á götum, einkum síðdegis
virka daga og því hafa smá-
þjófar oft sloppið með nokk-
urn feng,
Ástæða er til að ætla að
slíkur faraidur sé í uppsigl-
ingu nú sem endranær á þess
um tímla árs. Til sönnunar er
atvik, sem skeði í verzlun við
Hverfisgötuna í fyrradag:
Síðdegis í fyrradag kom
hópur drengja inn í verzlun,
þar sem aðeins ein stúlka
vinnur við afgreiðslu.
Drengirnir dreyfðu sér um
búðina og höfðu hönd á ýms-
um hlutum, en afgreiðslu-
stúlkan var að afgreiða við-
skiptavini.
Er hún hafði lokið af-
greiðslu þeirra, snéri hún sér
að drengjunum og spurði,
hvað þeim þóknaðist.
Drengirnir svöruðu því
engu, en upphófu ærsl og
gauragang. Hlupu urn búðina
með ópum og óhljóðum, og
snéru við varningi sem á vegi
þeirra varð. Þegar stúlkan
loksins hafði komið öl-lum
drengjunum út og fór að lag-
færa það sem aflaga hafði
farið, veitti hún því atliygli
að peningaskúffa var opin. Er
betur var að gáð, kom í Ijós
að næstum allir peningar sem
í skúffunni voru c.a. 1500 kr.
vorxi horfnar. Er svipast var
um eftir drengjunum, voru
þeir hvergi sjáanlegii', höfðu
forðað sér með fenginn. Þyk-
ir einsýnt að hér hafi verið
um skipulagðan þjófnað að
ræða, einkum þar sem nokkra
sérkunnáttu þurfti til þess að
opna peningaskúffuna.
Selfoss er sem kunnugt er
byggður í Álaborg. Þaðan fc '
hann til Kaupmannahafna r ■;
Hamborgar tii þess að t /.i
vörur og er skipið nú fiíBies!-
að með c.a. 2900 lestir.
í heimleið fór skipið aftr" t'I
Danmerkur þar sem hr: v -
prófun á því fuillestuðu ft: '
fram. Reyndist ganghraöir i
15.15 hnútar á klst. en gr
hraði þess fyrir lestun va:
15.38 hnútar. Samkvæmt np-
lýsingum sem blaðið fékk í
gærkvöldi hjá Eggert P. Briim
fulltrúa Eimskipafélag'sins, he':
ur Selfoss fengið risjuveður A
heimleiðinni, en haldið samt
ganghraða mjög vel, gengið
um 15 hnúta á klukkustund.
mwwwwwwwwwwi
í FRAMHALDI af frctt
sem hirtist í blaðinu í
gær um slagsmál við
höfnina, er þess að geta,
að málsaðilar sættust á
skrifstofu Sakadómara í
fyrrakvöld. Árásarmað-
ur viðurkenndi að hafa 5»
barið hinn fimm högg og §
að áverkar á andliti háris í£
væru eftir sig. Sá sem
fyrir árásinni varð gerði §
kröfu um fimm hundruö o
króna skaðabætur. Árás- £
armaður féllst á kröfuna, 3»
fannst 'hún róttmæt og 5»
eru menn þar með sáttir. ^
IMWWWWWVWVWWWW