Morgunblaðið - 29.05.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ1979 23
j.deild í kvöld:
Nýr grasvöllur
í gagnið
FJÓRIR leikir fara í kvöld fram í 1. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu og ber þar helst að geta Ieiks ÍBV og ÍBK, en hann fer
fram á nýjum grasvelli í Heigafellsdal. Leikir kvöldsins eru:
Laugardalsvöllur: Víkingur—Þróttur kl. 20. Dómari: Guðm
Haraldss.
Helgafellsvöliur: ÍBV—ÍBK kl.20.00. Dómari: Þorvarður Björnss.
Akranesvöllur: ÍA —KA kl. 20.00. Dómari: Kjartan ólafsson.
Hvaleyrarholtsv.: Ilaukar—KR kl. 20.00. Dómari: Hreiðar Jónsson.
Englendingar
sigruðu
ENGLENDINGAR sigruðu í keppni bresku landsliðanna í
knattspyrnu með því að vinna sigur á Skotum á Wembley-leikvang-
inum í Lundúnum um helgina. Skotum hefur vegnað mjög illa upp
á sfðkastið og þeim nægði ekki að ná forystu f leiknum,
Englendingar svöruðu með 3 mörkum og unnu 3—1.
Skotar byrjuðu mun betur og það var ekki ósanngjarnt þegar
John Wark skoraði eftir undirbúning Jordan Dalghlish. Nokkru
sfðar jafnaði Peter Barnes með fyrsta marki sfnu f landsleik. í
sfðari hálfleik náðu Englendingar betri tökum á leiknum og þá
bættu þeir Steve Coppell og Kevin Keegan mörkum við. Kom mark
Coppels eftir gróf mistök markvarðarins George Woods, sem
þarna lék sinn fyrsta landsleik.
Um helgina léku einnig Wales og Norður írland. Jafntefli varð
1 — 1, Robbie James skoraði mark Wales, en Derek Spence skoraði
fyrir íra. Engiendiiu;ar hlutu 5 stig í keppninni, Wales 4 stig,
Skotar 2 og Norður Irar 1 stig.
Naumt hjá Schekter
MONTE Carlo kappaksturinn frægi varð sögulegur þetta árið, þar
sem 16 af 20 keppendum luku ekki kepni vegna slysa eða bilana á
ökutækjum. Meðal þeirra sem urðu að hætta keppni voru Nicki
Lauda sem varð að hætta eftir 21 hring af 76, og James Hunt sem
skreiddist aðeins 4 hringi.
Það var Jody Schekter sem sigraði naumlega að þessu sinni,
aðeins fáeinum metrum á undan hinum Iftt þekkta Clay Regazonni
frá Sviss. Um tfma á sfðasta hringnum var aðeins örfárra
sentimetra bil milli ökutækja þeirra Rcgazonni og Schekter. Tími
Schekter var 1:55:22,48 klukkustundir, tími Regazonni var
1:55:22,92.
í þriðja sætinu hafnaði Carlos Reuteman frá Argentínu og John
Watson varð fjórði og sfðasti örkuþórinn til að ijúka ferðalaginu.
Uppgjörinu lauk
sem jafntefli
ÍTALIR og Argentfnumenn léku sýnlngarleik f Rómarborg um
helgina. Á sfðustu HM keppni sem fram fór f Argentínu sfðasta
sumar léku þessar þjóðir og þá sigruðu ítalir óvænt. Reiknuðu þá
margir með þvf að ftalir myndu gera stóra hluti f keppninni, en svo
fór ekki og kenndu þeir gjarnan dómurunum um. Leikurinn f Róm
þótti frábær og honum lauk með sanngjörnu jafntefli, 2—2.
Fyrsta markið var skorað á 7. mfnútu og var þar útherjinn
Valencia að verki. ítalir jöfnuðu á 26. mfnútu með þrumuskoti
Franco Causio. Á 53. mfnútu náðu ítalir síðan forystu með marki
Paolo Rossi, en aðeins mfnútu sfðar var dæmd furðuleg vftaspyrna
á ítali sem Passarella jafnaði úr af öryggi. Eftir það var það
snilldarmarkvarsla sem einkum varð til þess að staðan breyttist
ekkert.
Þrjú mót í röö
og hola í höggi
GOLFMÓT fara nú fram um hverja helgi, stór og smá, víðs vegar
um landið. Ekki er ætlunin að telja upp úrslit í þeim öllum. en
okkur þykir það í frásögur færandi, að í Nesklúbbnum hefur sami
maður unnið þrjú sfðustu mót, sem hann hefur tekið þátt í. Sá er
Friðþjófur Helgason. hann vann veitingabikarinn sfðastiiðið haust
og byrjaði sfðan sumarið á að vinna Krfukeppnina á Nesinu. Á
fimmtudag var hann enn á ferðinni og vann þá örugglega
forkeppni Bubnov-keppninnar á undan þeim efnilega Magnúsi
Stefánssyni.
Þá bar það til tföinda á Nesvellinum á fimmtudaginn, að Jón
Sigurðsson bakari með meiru fór holu í höggi á þriðju braut. Eftir
nokkra leit utan brautar fannst boltinn í holunni og eðlilega
kaliaði það á tilheyrandi fagnaðarlæti. _ xí:
Sigurvegararnir f þotukeppninni f golfi, sem fram fór á Hvaleyrarholtsvelli um helgina. Frá vinstri:
Jón Friðriksson GK, Friðþjófur Helgason NK, Gunnlaugur Jóhannesson NK, Guðmundur W.
Vilhjálmsson, sem afhenti verðlaunin fyrir hönd Flugleiða, Sigurjón Gfslason GK, Hannes Eyvindsson,
Jón H. Guðlaugsson NK.
Sigurjón sigraði
í þotukeppninni
SIGURJÓN R. Gfslason golf-
klúbbnum Keili sigraði f fyrsta
golfmóti sumarsins sem gaf stig
til landsliðs þotukeppni Flug-
leiða sem fram fór á golfvelli
Keilis á Hvaleyrarholti. Lék
Sigurjón holurnar 36 á 154
höggum. Það var góður sfðari
dagur sem gerði útslagið hjá
Sigurjóni en þá lék hann 36
holur á 73 höggum (36—37).
Annar varð íslandsmeistarinn
Hannes Eyvindsson á 156 högg-
um og þriðji Jón Guðlaugsson á
157 höggum.
Reyndar þurfti bráðabana til
þess að skera út um úrslit í 3. til
4. sæti milli þeirra Jóns og
óskars Sæmundssonar og sigr-
aði Jón. í keppni með forgjöf
sigraði Gunnlaugur II. Jóhann-
esson NK, lék á 142 höggum
nettó, annar varð Friðþjófur
Helgason á 142 höggum og
þriðji Jón Friðþjófsson á 144
höggum.
Stig til landsliðs hlutu 12
efstu menn. Sigurjón hlaut 28,5
stig, Hannes 25,5 stig og Jón og
Óskar hlutu 21 hvor.
Keppnin tókst mjög vel, rúm-
lega 100 þátttakendur mættu til
leiks, og fór keppnin fram í
blíðskaparveðri.
Röð efstu manna í mótinu
varð þessi:
1. Sigurjón GÍHlawon, GK 81:73=154
2. Ilannes Eyvindsson. GR 79:77=156
3. -4. Jón H. Guðlauifsson, NK 80:77=157
3.—4. óskar Sæmundsson. GR 77:80=157
5. Sveinn SÍRurberKsson. GK 81:78=159
6. -7. Gunnl. Jóhannesson. NK 79:81=160
6.-7. Óli Laxdal. GR 79:81=160
8. Júlíus R. Júlíusson. GK 77:85=162
9. —12. ómar örn Ra^nars.. GL 83:80=163
9.—12. Einar Þórisson. GR 81:82=163
9.-12. Gísli Siifurósson. GK 82:81=163
9. —12. Jón Gunnarsson. GA 82:81=163
13.—14. Sijf. Ilafsteinsson. GR 84:81=165
13.—14. Eiríkur Jónsson, GR 84:81=165
15.-17. Hálfdón Karlsson. GK 82:84=166
15.-17. ólafur Skúlason, GR 81:85=166
15.-17. Páll Ketilsson. GS 81:85=166
18.—19. Hilmar Björjcvinss.. GS 86:81=167
18.-19. Sveinbj. Björnsson, GK 82:85=167
20. Sigurður Sijcurósson. GS 85:83=168
-þr.
Öruggt hjá UBK
Elías
meistari
ELÍAS Sveinsson FH varö ís-
landsmeistari í tugþraut Meistara-
móts íslands sem fram fór á
Laugardalsvellinum á sunnudag og
mánudag. Árangur Elíasar var all-
góöur. Fyrri daginn náöi hann
3,677 stigum, og var árangur hans
sem hór segir: 100 m 11,0 sek.,
langstökk 6,43 m, kúla 14,06 m,
hástökk 1,88 m, 400 m 52,7 sek.
Seinni dagur: 110 grind 15,6 sek.,
kringla 43,02 m, stangarstökk 4,00
m, spjótkast 59,58 m og 1500 m
hlaup 4,43,00 mín., samanlagöur
stigafjöldi Elíasar var 7177 stig.
Annar í tugþrautinni var Þorsteinn
Þórsson og setti hann nýtt
unglingamet, 6,775 stig, sem er
mjög góður árangur.
Náöi Þorsteinn lágmarki fyrir
Evrópumót unglinga sem fram fer í
Póllandi í haust. Þriöji varö svo
Óskar Thorarensen með 6,139 stig.
í fimmtarþraut kvenna sigraöi
Helga Halldórsdóttir KR, hlaut
3,336 stig, sem er nýtt meyjamet.
þr.
BREIÐABLIK yfirsteig erfiða
hindrun á leið sinni f 1. deild á
ný er liðið lagði FH að velli á
Kaplakrikavellinum í gær-
kvöldi. Sigur UBK, 3—2, var
mjög sanngjarn, liðið lék betri
knattspyrnu og átti hættulegri
færi en heimaliðið, sem var um
of í háloftunum með spyrnur
sfnar, hvort heldur um var að
ræða sendingar á samherja eða
markskot. Staðan f hálfleik var
2-2.
Leikurinn hófst mjög undar-
lega, Blikarnir léku knettinum á
milli sín og leituðu að smugum,
en tvívegis á fyrsta korterinu
komust FH-ingar fram yfir
miðju og í bæði skiptin komu
þeir knettinum allar götur inn í
mark UBK. Fyrst var það Óttar
Sveinsson, sem skoraði af stuttu
færi, eftir að Sveinn markvörður
hafði misst frá sér fasta fyrir-
gjöf Janusar Guðlaugssonar.
Síðan skoraði Þórir Jónsson
gullfallegt mark með hörkuskoti
utan úr vítateig á 14. mínútu.
Blikarnir létu ekki merkið
falla þrátt fyrir mótlætið og
þeim tókst að jafna fyrir hlé,
Ingólfur Ingólfsson skoraði
fyrsta mark UBK á 34. mínútu.
Kom markið eftir snjalla sókn-
arlotu. Vignir Baldursson, sem
jafnframt var besti maður UBK,
skoraði jöfnunarmarkið síðan á
42. mínútu með góðu skoti.
UBK-menn voru síðan óheppnir
að ná ekki forystu þegar Sigurð-
ur Grétarsson skaut naumlega
yfir úr aukaspyrnu. Þriðja og
sigurmark UBK skoraði Ingólfur
á 48. mínútu af stuttu færi eftir
snjallan samleik Sigurðar og
Hákonar.
FH-ingar komu nokkuð inn í
myndina eftir markið og í einni
rimmu var bjargað af línu UBK
fjórum sinnum í röð. Ekki bætti
úr skák, að Sveinn virtist óör-
uggur í markinu, var hættan
jafnan mest við mark FH, þegar
Blikarnir óðu fram í hraðaupp-
hlaupum. Áður en yfir lauk,
hefðu þeir Vignir, Hákön og
Sigurjón allir getað bætt mörk-
um við.
Rangers tók bikar-
inn
Glasgow Rangers varð skoskur bikarmeistari eftir þriðju
viðureign sína við Hibernian í gærkvöldi. Fyrri leikjunum tveim
lauk án þess að mark væri skorað. Nú vann Rangers 3—2 eftir
framlengdan leik. Það var sjálfsmark Arthur Graham sem færði
Rangers sigurinn á 16 mfnútu framlengingarinnar.
Staðan eftir venjulegan leiktíma var 2—2. Tony Higgs kom Hibs
í 1—0 á 16 mínútu, en Derek Johnstone kom Rangers yfir með
mörkum á 42. og 61. mfnútu. Allisdair McCleod jafnaði síðan úr
víti rétt fyrir leikslok og var þá framlengt með fyrrgreindum endi.