Morgunblaðið - 29.05.1979, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAI1979
37
Marteinn Olafsson
—Minningarorð
í dag verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni Marteinn Olafsson
frá Garðbæ í Höfnum er lést að
morgni 21. maí í Landspítalanum.
Hann var fæddur 22. júlí 1896 í
Garðbæ og var sonur hjónanna
Gróu Þorkelsdóttur og Ólafs Ein-
arssonar er þar bjuggu og var
næst yngstur sjö systkina, sem öll
eru látin að undantekinni einni
systur sem nú dvelst á Sólvangi í
Hafnarfirði.
Marteinn ólst upp í þessum
stóra systkinahópi þar sem leikur
og glaðværð ríktu samhliða vinnu.
Snemma fóru þeir bræður að
stunda sjóróðra með föður sínum,
sem gerði út áraskip úr Höfnum
samhliða búskapnum og var þá
fremur spurt um dugnað en aldur.
Gera má ráð fyrir því að Marteinn
hafi ekki verið gamall þegar hann
fór fyrst í róður og sjóinn stundaði
hann allt fram til um 1930, að
hann hóf að vinna ýmis verslun-
arstörf og var meðal annars lengi
hjá Verslun 0. Ellingsen í Reykja-
vík.
í kringum 1950 réðst hann til
starfa hjá Landssímanum og vann
ýmist við viðgerðarvinnu á síma-
lögnum út um land eða við störf
hér í bænum, en síðustu árin vann
hann við birgðageymslu Bæjar-
símans, allt fram til þess að
heilsan brást og mat hann það
mikils að fá að starfa meðan
kraftar og heilsa entust.
Marteinn kvæntist 25. septem-
ber 1926 Guðbjörgu Kristjánsdótt-
ur frá stóra Knarrarnesi á Vatns-
leysuströnd en hún lést 31. ágúst
síðastliðinn og var það honum
mikill söknuður eftir tæplega
fimmtíu og tveggja ára hjóna-
band. Þau hófu búskap í Hafnar-
firði en fluttust að tveim árum
liðnum til Reykjavíkur og bjuggu
þar upp frá því.
Þeim varð tveggja barna auðið,
Kristjáns Grétars bifreiðastjóra,
fæddur 1928, og Katrínar, hús-
móður, fædd 1930, auk þeirra ólu
þau upp fósturson, Stefán flugvél-
stjóra, fæddan 1937.
Þegar minnast skal í örfáum
orðum manns eins og Marteins er
erfitt að gera upp við sig á hvað
skal minnst og hverju sleppt svo
margir kostir prýddu hann og það
væri honum síst að skapi að um
hann væri ritað langt mál svo
hógvær og lítillátur sem hann var.
Hann var gæddur mjög miklu
jafnaðargeði en hafði þó létta lund
og gat brugðið á spaugsemi og
glens ef svo bar undir. Hann
kastaði þá jafnvel fram vísu því
hagmæltur var hann með ágætum
þótt hann flíkaði þeim hæfileika
sínum ekki fremur en öðrum.
Hann var góður söngmaður og
hafði gaman af söng og er mér
sagt að mikið hafi verið sungið á
Óli Þór Ólafsson
prentari
Hinn 20. maí s.l. lést Óli Þór
Ólafsson prentari, Hátúni 10A,
Reykjavík, eftir langa og stranga
sjúkdómslegu. Óli var fæddur í
Reykjavík 15. júní 1917, elstur
fjögurra bræðra. Foreldrar Óla
voru hjónin Arnbjörg Stefáns-
dóttir og Ólafur S.H. Jóhannsson
verkamaður. Þau hjón slitu sam-
vistum.
Seinna giftist Arnbjörg hinum
mikla mannkosta manni Jóni
Hafliðasyni er reyndist reyndist
Óla eins og bezti faðir, svo og þeim
bræðrum öllum.
Óli hóf prentnám í Prentsmiðj-
unni Eddu árið 1934 og lauk því
1939, ennfremur sveinsprófi í
setningu sama ár. Að loknu prent-
námi vann Óli hjá Prentsmiðjunni
Gutenberg, Víkingsprenti og
Prentsmiðju Þjóðviljans. Hann
hafði stundað bifreiðaakstur á
Bifreiðastöðinni Bifröst með sínu
prentnámi, því lærlingskaupið var
ekki hátt á þeim árum.
Árið 1947 verður Óli fyrir veik-
indum er urðu til þess að hann
varð að snúa sér að bifreiðaakstri
eingöngu, hann ók hjá Bifreiða-
stöðinni Bifröst þar til hann flutt-
ist yfir á Hreyfil sem og hans
félagar er Bifröst lagðist niður. Á
Hreyfli ók hann þar til fyrir 5
árum eða þar um bil en þá fékk
hann annan sjúkdóm er var þess
valdandi að hann varð að leggja
niður aksturinn.
Hinn 12. maí 1945 giftist Óli
Ingibjörgu Skarphéðinsdóttur frá
Hróastöðum í Axarfirði, dóttur
Gerðar Jónsdóttur og Skarphéðins
Sigvaldasonar bónda á Hróastöð-
um. Eina dóttur áttu þau,
Arnbjörgu, fædda 17. okt. 1945, nú
húsfrú í Reykjavík, gift Sveinbirni
Kristjánssyni húsasmiðameistara.
Ingibjörg lést 28. október 1971, en
þau höfðu slitið samvistum árið
1963.
-Minning
Barnabörnin voru orðin fjögur,
Ingibjörg Linda fædd 25. apríl
1971, Unnur Erla fædd 3. júlí 1973,
Anna Þórey fædd 8. nóvember
1974 og Elín Ríta fædd 28. febrúar
1978.
Það er mikill missir fyrir litlu
telpurnar að sjá á bak afa sínum
sem hélt svo mikið upp á þær, en
Óli var óvenju barngóður maður.
Hún litla dóttir mín sem leit á Óla
eins og nokkurskonar afa, því Óli
var alla tíð eins og einn af
fjölskyldunni okkar, hefur ekki
fyrirgefið Guði ennþá fyrir að
taka hann Óla hennar frá henni.
Það myndast geysilegt tómarúm,
þegar maður sér á bak sínum
tryggasta og bezta vini, það er
eins og maður skilji það ekki strax
og sé lengi að venjast því. — Að
maður fái ekki að heyra hlátra-
sköllin glymja um íbúðina. Að
maður sjái ekki þetta hlýlega bros
sem kom svo innilega fram í
augnkrókunum, því enginn hló
innilegra en Óli. Engan var þægi-
legra að umgangast en hann,
skapið var svo ljúft að hann
haggaðist aldrei, og hann gat gert
grín að öllum hlutum.
Hann sóttist aldrei eftir auð-
sæld, var nægjusamur og var
hamingjusamur þannig. Þrekið,
sem hann bjó yfir í sínum veikind-
um, var einstakt eins og hann var
orðinn illa farinn líkamlega, and-
inn var alltaf jafn frjór, hann var
alltaf tilbúinn að brosa og sló upp
í grín sínum veikindum og hafði
ferskan hugsunarhátt fram á síð-
ustu stundu.
Ég held að enginn hafi kynnst
eins vel og ég hvað bjó í hugar-
fylgsnum Öla, skoðunum hans á
lífinu og tilverunni og mannfólk-
inu í þeirri margbreytilegu mynd
sem það er, því Óli vann hjá mér
um árabil, þannig að við eyddum
ekki einungis kvöldunum og helg-
unum saman heldur dögunum
æskuheimili hans og síðar þegar
fjölskyldan kom samán.
Góðsemi og gjafmildi var hon-
um ríkulega í blóð borin og
veraldarauður skipti hann harla
litlu máli og gat hann gefið frá sér
allt ef það gat orðið öðrum til
velfarnaðar. Hann var mjög vel
hagur og hafði fallega rithönd og
var sama hvað hann tók sér fyrir
hendur, öllu skilaði hann jafn vel
frá sér af samviskusemi og snyrti-
mennsku og bar heimili þeirra
hjóna því glöggt vitni. Um velferð
fjölskyldunnar og heimilisins voru
þau hjónin mjög samhent.
Hjálpsemi Marteins er mér
sérstaklega ofarlega í huga og
naut ég hennar ekki síður en aðrir
og gott var að leita ráða hans og
hjálpar eftir að ég tengdist fjöl-
skyldunni ungur og óreyndur og
fór ég aldrei bónleiður til búðar.
Að eðlisfari var hann dulur
maður um sína hagi og bar ekki
tilfinningar sínar á torg og lítið
gefinn fyrir að rætt væri um hans
hagi og líðan, allt átti að snúast
um aðra.
Fyrir fimm árum veiktist Mart-
einn alvarlega og var að mestu
bundinn við hjólastól og hjálpsemi
fjölskyldu hans og. hjúkrunarfólks
upp frá því. Aldrei heyrðist frá
honum æðruorð þó þetta ylli
miklum breytingum á högum
hans. Hann var ætíð mjög þakk-
látur öllum þeim sem gerðu
eitthvað fyrir hann og veit ég að
mér er óhætt fyrir hans hönd að
færa þeim læknum og hjúkrunar-
fólki er stunduðu hann bæði í
Landspítalanum og í Hátúni 10B,
þar sem hann dvaldi um lengri og
skemmri tíma, nú síðustu árin,
hans innilegustu þakkir.
Nú þegar leiðir skilja og hann
fer til endurfunda við eiginkonu
sína skilur hann eftir drjúgan sjóð
ljúfra endurminninga um elsku-
legan föður, tengdaföður og afa.
Guð blessi hann og okkur minn-
inguna um þennan látna heiðurs-
mann.
Jón óskarsson.
líka. Hann fitjaði oft upp á því
hversu mikið hann hlakkaði til að
flytja í nýja húsið hjá dóttur sinni
og tengdasyni sem þau eru að
byggja í Bláskógum en þar var
honum ætlaður hluti af neðri
hæðinni. Þá væri hann hjá
dótturinni, eina barninu hans, og
litlu telpunum fjórum. Engir stig-
ar til að príla upp, engar lyftur til
að hossast í, einungis að ganga út í
garðinn og njóta sólarinnar og
náttúrunnar og allra þeirra dás-
emda sem lífið í sínum ferskleika
hafði upp á að bjóða. Við viljum
stundum gleyma því í hraða nú-
tímans að njóta líðandi stundar,
við skiljum þar fyrst er við miss-
um einhvern sem við elskum, því
lífið og náttúran í kring um okkur
er það dásamlegasta sem við
eigum í samvinnu með ástinni á
mannfólkinu og með síðfræðinni í
okkar lifnaðarháttum sem trúin
kennir okkur.
Að lokum vottum við hjónin,
móður Óla , Arnbjörgu, og manni
hennar, Jóni, dótturinni
Arnbjörgu og manni hennar
Sveinbirni, og dætrum þeirra,
bræðrum Óla, Gunnari og Erni,
sem nú standa eftir tveir af
bræðrunum fjórum, svo og öllum
vinum og vandamönnum okkar
dýpstu og innilegustu samúð.
Jón Rúnar Oddgeirsson.
Róbert Sigurðsson, lengst til hægri. syóir gestum eitt svefnherbergið á cldri
deild. Ljósm. Mbl. R.A.X.
Upptökuheimili sameinuð í uppeldisstofnun;
Sex þroskaheftum böm-
um gefinn kostur á vistun
Upptökuheimilið við Dyngjuveg
(Vöggustofa Thorvaldsenfélagsins)
og Upptökuheimilið við Dalbraut
hafa verið samcinuð f citt heimili,
sem ber heitið Uppeldisstofnunin við
Dalbraut. Sú nýbreytni cr fyrirhug-
uð. að á heimilinu geti dvalist 6
þroskaheft börn og er markmiðið að
létta á heimilum þessara barna og
gefa aðstandendum þeirra mögul-
eika á frfi og hvfld.
f tilcfni af þcssari brcytingu var
boðað til kynningarfundar á heimil-
inu þar sem endurbætt húsakynni
þess voru sýnd blaðamönnum og
áhugafólki um þessi málefni.
Breytingarnar teiknaði Guðmundur
Kr. Guðmundsson arkitekt. Þær miða
fyrst og fermst að því að auka fjölda
barna með því að nýta betur sal
(matsal, sem ætlaður er fyrir 40
manns), ganga og innréttingu nýrra
herbergja fyrir yngri deild.
Gerður Steinþórsdóttir formaður
Félagsmálaráðs Reykjavíkuborgar
kynnti starfsemina og sagði m.a., að
nýting heimilanna hefði verið misjöfn
og lítil og því verið tekin sú ákvörðun
að endurskipuleggja starfsemina.
Heimilið skiptist í tvær deildir,
yngri deild fyrir tíu böm á aldrinum
0—4 ára, og eldri deild fyrir 16 börn á
aldrinum 4—12 ára. Þroskaheftu
börnin skiptast á deildir eftir aldri.
Landssamtökin Þroskahjálp aðstoð-
uðu við undirbúning þessarar nýju
starfsemi. Margrét Margeirsdóttir
fulltrúi samtakanna kvaddi sér hljóðs
á fundinum og sagði, að hér væri verið
að fara út á nýja braut, sem áreiðan-
lega ætti eftir að hjálpa til við þroska
og uppeldi þroskaheftra. Hún óskaði
forstöðumanni og starfsliði heimilis-
ins velfarnaðar og sagði þeim óskum
fylgja sú fullvissa, að á heimilinu
fengi hið bezta í mannlegu eðli notið
sín.
Forstöðumaður heimilisins, Róbert
Sigurðsson, gekk með gestum um
heimilið og sýndi þær breytingar sem
gerðar hafa verið. Á eldri deild eru sex
svefnherbergi, sem hvert er ætlað
1—4 börnum. Auk j>ess er leikherbergi
og setustofa. Börnin hafa einnig
aðgang að leikherbergjum. Á yngri
deild eru tvö svefnherbergi, hvert
ætlað fimm börnum. Þau hafa einnig
leikherbergi og leikskólaaðstöðu. Að
sögn Róberts var aðaláherzlan lögð á
að gera húsnæðið sem heimilislegast
og val húsgagna og búnaðar miðað við
það.
Auk Róberts starfar við heimilið
Aðalbjörg Valberg sem aðstoðarmað-
ur, fóstrur eru í 4Vz starfi, þroska-
þjálfar í 4Vz starfi og níu Sóknar-
stúlkur, auk starfsfólks í eldhúsi,
þvottahúsi og við ræstingar.
SHAKESPEARE sportveiðarfæri eru löngu orðin lands-
þekkt á islandi.
Urvalið gerir sportveiðimönnum kleift að nota SHAKE-
SPEARE frá unga aldri fram á hátind veiði-
mennskunnar.
Gæðin eru óumdeilanleg, hvort sem um hjól, stengur
línur eða annað er að ræða.
SHAKESPEARE fæst í næstu sportvöruverslun —
viðgerða og varahlutaþjónusta.
Taktu SHAKESPEARE með í næstu veiðiferð og njöttu
ánægjunnar.
þeir eru að fá 'ann á