Morgunblaðið - 29.05.1979, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAI1979
Flugslysid í Chicago
„Fjárinn,, hrópaði
flugstjórinn — síðan
rofnaði sambandið
Aðeins nokkrum sekúndum eftir flugtak. DC-10 þotan hefur misst hreyfilinn og er tekin að snúast.
Sekúndubrotum sfðar féll hún til jarðar og gffurlegar eldtungur risu upp. Áhugaljósmyndari náði myndum af
hinum örlagarfku sekúndum.
að geta flogið á tveimur hreyfl-
um,“ sögðu talsmenn McDonnell
Douglas verksmiðjanna.
Ekki flugstjóra
að kenna
„Enn er ekkert sem bendir til að
orsakir siyssins megi rekja tii
mistaka flugstjóra," sagði Bob
Buckborn, talsmaður rannsóknar-
nefndarinnar, sem rannsakar
slysið. í flugtaki var allt með
eðlilegum hætti. Vélin fór út á
brautarenda. Fékk leyfi flugturns
til að hefja flugtak. Hún fór af
stað með eðlilegum hætti og náði
eðlilegum hraða til flugtaks.
„Fjárinn" hrópaði flugstjórinn
skyndiiega, og allt samband rofn-
aði við vélina. Flugturninn kallaði
til véiarinnar þar eð flugumsjón-
armaður tók eftir að eitthvað var
að. En ekkert svar barst frá
vélinni. Hún hóf sig til flugs,
hreyfillinn losnaði, vélin snerist
og hrapaði stjórnlaus til jarðar.
Hún hafði þá náð 70 metra hæð.
Allt samband
rofnaði
Björgunarmenn fundu svörtu
kassana fljótlega. Það hefur vakið
athygli, að allt tal dó út eftir að
flugstjórinn hafði hrópað upp yfir
sig. Rafmagn til kassans með
talinu rofnaði af ástæðum sem
enn eru ókunnar. Bandaríska flug-
málaeftirlitið tilkynnti í gær, að
eftir klukkan sjö í fyrramálið yrði
engri DC-10 þotu leyft að fara í
loftið fyrr en eftir rannsókn.
Lík hroða-
lega leikin
Sérfræðingar víða að úr Banda-
ríkjunum eru nú komin til
Chicago til að bera kennsl á líkin
en sum þeirra eru svo illa leikin
eftir hitann, sem myndaðist, að
svo kann að fara að aldrei verði
hægt að bera kennsl á þau.
„Venjulega er í svona tilvikum
hægt að bera kennsl á líkin með
því að kanna fingraför, tennur eða
fatnað. En það er bara stundum
ekkert eftir," sagði einn lækn-
anna. I sumum tilvikum var ekki
urmull eftir af tönnunum í fórnar-
lömbum þessa hræðilega flug-
slyss. Líkamshlutar lágu á víð og
dreif og læknar áttu í miklum
erfiðleikum með að átta sig á af
hvaða líki hver þeirra var. í dag
hafði ekki enn verið búið að finna
alla þá er fórust. Páll páfi sendi
samúðarskeyti í dag, og ættingjar
hinna látnu voru farnir að
streyma til Chicago. Þá er óttast
að tala látinna kunni að hækka.
Elwood Driver, varaformaður
rannsóknarnefndar flugmála-
stjórnarinnar, sagði að barnaföt
hefðu fundist innan um brakið.
„Svo kann að vera að kornabörn
hafi verið meðal farþega þó að við
vitum það ekki með vissu og að
ekki hafi verið vitað um þau í
véiinni," sagði hann.
Vélin í klössun
i marz
DC-10 þotan sem fórst við
Chicago fór í vikuskoðun í marz í
Tulsa í Oklahoma. Nú eru um 275
DC-10 þotur í notkun í heiminum í
dag. Þar af eiga Flugleiðir eina
þotu. Alls á 41 flugfélag þoturnar.
Hlíf á aftur-
hreyfli SAS-
þotu datt af
SAS-flugfélagið tilkynnti í dag,
að 17. apríl síðastliðinn hefði hlíf
fyrir afturhreyfli DC-10 þotu fall-
ið af. Um borð í þotunni voru um
200 manns. Olíuþrýstingur féll og
þotunni var skipað að lenda en þá
var hún komin yfir A-Þýzkaland.
SAS-flugfélagið sem á fimm
DC-10 þotur tók fram, að ekki
hefði verið bráð hætta á ferðum.
Talsmaður félagsins tilkynnti, að
allar fimm vélar félagsins færu
þegar í stað í skoðun. Hið sama
tilkynnti belgíska flugfélagið
Sabena og brezku flugfélögin
Caledonian Airways og Laker
Airways.
Niðurstöður ekki
að vænta strax
Svörtu kassarnir í DC-þotunni
sem fórst í Chicago voru þegar í
stað sendir til Washington til
rannsóknar. Ekki er búist við að
endanlegar niðurstöður liggi fyrir
strax. „Við verðum að komast að
raun um af hverju þotan hrapaði
til jarðar. Þó svo að hreyfill
þotunnar hafi fallið er ekki þar
með sagt að þotan hafi hrapað
þess vegna," sagði Elwood Driver.
ChicaKu. 28. maí. — AP. Reuter.
„FJÁRINN“ hrópaði flugstjóri DC-10 þotunnar frá
American Airlines upp yfir sig. Síðan rofnaði allt
samhand við þotuna. Einn af þremur hreyflum þotunn-
ar losnaði frá vængnum, þotan snerist í loftinu og féll
til jarðar. Skall niður á akri, um hálfa mflu frá
flugbrautinni. Gífurlegar eldtungur risu upp. Versta
flugslys í sögu Bandaríkjanna var staðreynd. Alls létust
273 manns, þar af tveir á jörðu niðri þegar þeir urðu
fyrir hlutum úr þotunni sem þeyttust um stórt svæði.
Flug 191 frá Chicago til Los Ángeles hafði endað í
harmleik. dauða fólks sem flest var á leið í frí til hinnar
sólríku Kaliforníu.
Rannsókn á slysinu við O’Hare-
flugvöll í Chicago er þegar í
fullum gangi. Skömmu eftir flug-
tak þotunnar féll einn af hreyflum
hennar til jarðar. Hún tók að
snúast stjórnlaust út á þá hlið,
sem hreyfiliinn hafði verið, og féll
síðan til jarðar. Einn af fimm
þriggja tommu boltum, sem halda
hreyflinum við vænginn, fannst
síðar á flugbrautinni. Málmþreyta
hafði komið fram í honum og
þetta varð nóg til þess að hreyfill-
inn féll af þotunni.
„Skil ekki af
hverju hún
hrapaði...“
„Ég skil ekki af herju þotan
hrapaði. Þó hún hafi misst einn
hreyfil sinn þá hefði það ekki átt
að koma að sök, hún hefði ekki átt
að hrapa til jarðar. í raun hefði
átt að vera auðveldara að stjórna
þotunni þegar hreyfillinn fór af en
ef hann hefði bara bilað, drepið á
sér. Því að hreyfillinn íþyngdi ekki
vængnum," sagði Edward Biel-
inski, flugstjóri hjá American
Airlines. Hann var áður aðstoðar-
flugmaður flugstjórans sem
stjórnaði þotunni í flugtakinu
afdrifaríka. Og sérfræðingar
segja, að þó að þotan hafi misst
einn hreyfil þá hefði það ekki átt
að koma að sök. Raunar er ráð
fyrir því gert, að falli hreyfill af
þá falli hann yfir væng þotunnar
og eigi ekki að snerta hana. Og það
gerðist einmitt í Chicago. Hreyf-
illinn féll af, síðan upp fyrir
vænginn. Tilgátur eru uppi um, að
þegar hreyfillinn hafi fallið af og
yfir vænginn þá hafi hann slegist
utan í viðkvæma stýrishluta á
vængnum. Því hafi vélin tekið að
snúast og flugstjórinn misst vald
á vélinni. Þotan var í aðeins 70
metra hæð þegar hún tók að
hallast og féll til jarðar. „Vélin á
Hreyfillinn úr DC-10 flugvélinni sem fórst í Chicago.