Morgunblaðið - 29.05.1979, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAI 1979
47
Dakar, 28. maí. Reuter. AP
Björgunarsveitum hefur
mistekizt að finna minnsta
snefil af herflugvélinni
sem fórst úti fyrir strönd-
um Senegal með forsætis-
ráðherra Márítaníu og ell-
efu aðra menn innanborðs.
Hagþróunarráðherra
Máritaníu, Ahmed Salem
Ould Sidi ofursti, hefur
verið útnefndur forsætis-
ráðherra til bráðabirgða
og fjörutíu daga þjóðar-
sorg fyrirskipuð í landinu.
Flugvélar og skip leituðu án
árangurs í gær eftir að tveggja
hreyfla vél af gerðinni de
Havilland steyptist í hafið í
miklu roki. Tilkynnt var um lát
forsætisráðherrans, Ahmed Ould
Bouceif, í höfuðborg Máritaníu,
Nouakchott, í gærkvöld og var
enn fremur greint frá nöfnum
hinna fórnarlambanna. Meðal
þeirra voru nýskipaður
sendiherra landsins í París,
yfirmaður í hernum, ráðgjafi og
tveir blaðamenn.
Bouceif, fjörutíu og fimm ára
að aldri, hrifsaði völd af Salek
forsætisráðherra hinn sjötta
apríl sl. Hann var hlynntur
nánum tengslum við Morokkó og
var miklu harðhentari en fyrir-
rennari hans í viðskiptum
skæruliða Polisaríó sem berst
fyrir sjálfstæði Vestur-Sahara.
Þetta gerðist
1974 — ísraelsmenn og Sýrlend-
ingar samþykkja aðskilnað herja
á Golan-hæðum eftir friðarferð
Henry Kissingers.
1972 — Nixon og Brezhnev undir-
rita yfirlýsingu um friðsamlega
sambúð. /
1970 — Aramburu hershöfð-
ingja, fv. forseta Argentínu,
rænt í Buenos Aires
1966 — Búddanunna brennur
sig til bana í Hue, Suður-Víet-
nam.
1958 — Charles de Gaulle
myndar þjóðaröryggisstjórn í
Frakklandi.
1953 — Sir Edmund Hillary og
Tensing klífa Mount Everest
fyrstir manna.
1943 — Bandarikjamenn sigra
Japani í orrustunni um Attu.
1941 — Bretar hörfa frá Krít.
1940 — Brottflutningurinn frá
Dunkerque hefst.
Samið um EBE—
aðild Grikklands
Aþenu, 28. maí. Reuter.
KONSTANTÍN Kara-
manlis forsætisráðherra
ritaði formlega undir inn-
göngusamning við Efna-
hagsbandalagið er leiðir
til þess, að Grikkland
verður 10. aðildarriki
Efnahagsbandalagsins
1981.
Karamanlis sagði við
undirritunina, að hann
væri sannfærður um að
framtíð Grikklands væri
samofin örlögum Evrópu.
„Grikkir koma til liðs við
ykkur í baráttunni fyrir
mótun nýrrar Evrópu sem
mun breyta örlögum
heimsálfu okkar og
kannski heimsins,“ sagði
Karamanlis.
Valery Giscard d’Estaing
Frakklandsforseti undirritaði
samninginn fyrir hönd bandalags-
ins. Viðstaddir undirritunina voru
einnig forsætisráðherrar Belgíu,
Eldtungur rfsa upp, hltinn sem myndaðist var gffuriegur og engin von til
að nokkur hefði getað komist lffs af. Mörg lfkanna eru svo illa farin að
talið er, að aidrei verði hægt að bera kennsl á þau. Enn hafa ekki öll lfk
komið f leitirnar.
Leidtogi hrapar
med f ylgdarlidi
Veður
Akureyri 5 skýjað
Amsterdam 18 skýjað
Apena 30 lóttskýjað
Barcelona 22 heióskírt
Berlín 19 skýjaó
Brussel 17 sólskin
Chicago 18 léttskýjað
Frankfurt 15 rigning
Genf 18 mistur
Helaínki 17 léttskýjað
Jerúsalem 26 sólskin
Jóhannesarborg 17 sólskin
Kaupmannahöfn 19 rigning
Liasabon 19 lóttskýjaó
London 15 skýjaó
Los Angelea 20 skýjaó
Madrid 21 sólskin
Malaga 21 alskýjaö
Mallorca 24 léttskýjað
Miami 27 skýjaó
Moskva 26 léttskýjaó
New York 21 skýjaó
Óaló 13 skýjaó
Parfs 18 sólskin
Reykjavík 8 skúr
Rio De Janeiro 30 skýjaó
Rómaborg 30 léttskýjaó
Stokkhólmur 16 sólskin
Tel Aviv 25 sólskin
Tókýó 28 léttskýjað
Vancouver 15 léttskýjaó
Vinarborg 23 skýjaó.
1765 — Pétur II. sonarsonur
Péturs mikla, verður Rússakeis-
ari.
1692 — Brezkur floti sigrar
franska sjóherinn við La Hogue
og kemur í veg fyrir tilraun til
innrásar í Englandi.
1660 — Innreið Karls II i Lond-
on
1453 — Tyrkir taka Konstantín-
ópel: Miðöldum lýkur.
Afmæli. Patrick Henry,
bandarískur stjórnmálaleiðtogi
(1736-1799) - G.K. Chesterton,
brezkur rithöfundur (1874—
1936) — Isaac Albeniz, spænskt
tónskáld (1860-1909) - John F.
Kennedy, bandarískur forseti
(1917-1963) - Bob Hope,
bandarískur gamanleikari
(1903---).
Andlát. Bartolomeu Diaz,
landkönnuður, 1500 — George
Rakoczky, prins af Transylvaníu,
1660 — Sir Humphrey Davy,
visindamaður, 1829.
Innlent. Réttarbót Hákonar
konungs 1306 — Afnám heitdags
1744 — Jón Ólafsson skrifar
nýja skammargrein um lands-
höfðingja og er stefnt 1873 —
Flugvélin „Súlan" kemur 1928 —
Auglýsingastofu útvarpsins lok-
að með innsigli tollstjóra 1962 —
Reistur minnisvarði um Bjarna
Benediktsson, eiginkonu og dótt-
urson á Þingvöllum J971 — f. dr.
Finnur Jónsson 1858 — d. Árni
Gíslason á Hlíðarenda 1587 — f.
Ólafur Johnson 1881 — d. Gísli
Brynjólfsson skáld 1873.
Orð dagsins. Varizt reiði þol-
inrqóðs manns — John Dryden,
enskt skáld (1631—1700).
Italíu, Irlands og Luxemborgar og
utanríkisráðherrar Bretlands,
Danmerkur, Hollands og
V estur-Þýzkalands.
Tveir helztu andstöðuflokkar
stjórnarinnar, Panhellenska
sósíalistahreyfingin undir forystu
Andreas Papandreou og gríski
kommúnistaflokkurinn, sem fylgir
Rússum að málum, neituðu að
taka þátt í athöfninni.
Karamanlis undirritaði einnig
samninginn um aukaaðild Grikkja
að EBE þegar hann var forsætis-
ráðherra 1961 og hann telur nýja
samninginn kóróna áralanga bar-
áttu fyrir því að sameina
Grikkland og Evrópu.
Krœsileg eggjahrœra
Beasain, Spáni, 28. maí. Reuter.
ÍBÚAR í bænum Beasain í
Baskahéruðum tóku í dag á
leigu krana til að snúa við
risaomelettu, sjö hundruð og
fimmtíu kíló að þyngd. Tilgang-
urinn með eggjahrærunni var
að setja heimsmet.
Áður höfðu íbúarnir freistað
þess að útbúa tonnþunga eggja-
hræru, en undirstaðan brast
með þeim afleiðingum að tvö
hundruð kfló fóru til spillis.
Innihald réttarins var steikt á
pönnu, tveir metrar að flatar-
máli: sjö hundruð og fimmtíu
kíló af kartöflum, fimmþúsund
og fjörtíu egg, fimmtíu kíló af
lauk og tíu kíló af salti.
Nú bíða menn þess að einhver
gárungurinn setji annað heims-
met og sporðrenni eggjahrær-
Lík Dóru Bloch fimdið?
Lundúnum — 28. maí — AP
YFIRVÖLD í Úganda telja að
fundið sé í námunda við Kampala
lík Doru Bioch. sem hvarf úr
sjúkrahúsi í borginni þegar þota
frá Air France var á valdi
flugræningja á Entebbe—flugv-
elli fyrir nærfellt þremur árum.
Víst er talið að þý Idi Amins hafi
myrt Doru Bloch, en sonur henn-
ar er nú á leið til Úganda til að
reyna að bera kennsl á líkið.
Mágur Doru Bloch. Mendel
Bloch, sagði í viðtali við fréttam-
enn í dag, að líkur væru taldar á
því að líkið væri ekki torkennil-
egra en svo að slá mætti föstu,
hvort það væri af Doru Bloch eða
ekki.
Þegar Dora Bloch endaði ævi
sína var hún haldin bakveiki,
sem ætti að hafa skilið eftir sig
merki, sem enn ætti að vera hægt
að greina á beinum hennar.
S vartur f or-
seti í Rhódesíu
Saliwbury, 28. maí. AP.
JOSIAH Zion Gumede var í dag
kosinn forseti Rhódesíu og er
fyrsti blökkumaðurinn sem gegn-
ir embættinu. Hann vinnur
embættiseið á morgun og fyrsta
embættisverk hans verður að fela
Abel Muzorewa biskupi myndun
ríkisstjórnar.
Jafnframt höfnuðu í dag tveir
minnstu þingflokkarnir, flokkar
Ndabaningi Sithole og Kayisa
Ndiweni ættarhöfðingja fjórum
ráðherraembættum sem þeim ber.
Flokkur Sithole sagði ennfremur,
að 12 þingmenn hans mundu ekki
taka sæti á þingi.
Sithole hefur haldið því fram,
að misferli hafi átt sér stað í
kosningunum í síðasta mánuði og
mun reyna að fá dómstóla til að
ógilda úrslitin.
Fangaskipti Kín-
ver ja og Vietnama
Tókyo, 28. ma(. AP:
KÍNVERJAR og Víetnamar
skiptust í dag á föngum í
annað sinn síðan Kínverjar
réðust inn í Víetnam í
febrúar og marz. Víetnamar
slepptu 20 veikum og
særðum Kínverjum og Kín-
verjar slepptu 118
Víetnömum.
Fyrir einni viku slepptu Kín-
verjar 120 Víetnömum og
Víetnamar slepptu 43 Kínverjum.
Samningsaðilar urðu ásáttir um
að sleppa alls 1,638 Víetnömum og
237 Kínverjum fimm sinnum fyrir
22. júní. Næstu fangaskipti fara
fram 5. júní og þá verður sleppt
587 Víetnömum og 53 Kínverjum.
Handteknir 6 eftir
landtöku flóttafólks
Hong Kong, 28. maí. Reuter.
LÖGREGLA sem rannsakar land-
töku áhafnarlauss flutningaskips
með fjórtán hundruð víetnamska
flóttamenn í Hong Kong á laugar-
dag hefur handtekið sex menn
grunaða um að vera viðriðnir
atburðinn.
Flutningaskipið, átta hundruð
tonn og skráð í Panama, sigldi
upp ( fjöruna á einni Hong
Kong-eyjanna. Skipstjórinn og sjö
manna áhöfn skipsins yfirgaf
skipið á fleka kvöldið áður. Einn
þeirra, sem handteknir voru, er
grunaður um að vera úr áhöfn-
inni.
Lögregla telur, að skipið sé í eigu
fyrirtækis í Hong Kong og að áhöfn
þess sé kínversk þrátt fyrir að það
sé skráð í Panama. Skipið hefur
þótt grunsamlegt um skeið og er
meðal annars á lista rannsóknar-
lögreglu um „flækingsfleytur" sem
talið er að komi við sögu í hinum
mjög svo arðbæru flóttamanna-
viðskiptum. Farþegar skipsins hafa
skýrt frá því, að þeir hafi greitt um
fjögur þúsund dollara hver til þess
að komast frá Víetnam.
Fjöldi flóttamanna í Hong Kong
nemur nú þrjátíu og sjö þúsundum
og náði streymið hámarki í síðustu
viku með sjö þúsund flóttamönn-
um, sem er það mesta á jafn
skömmum tíma síðan Víetnam
stríðinu lauk fyrir fjórum árum.