Tíminn - 22.06.1965, Síða 1
HANDBÓK
VERZLUNAR MATslNA
A’SKRIFTARSÍWII
16688 «6688 16688
136. tbl. — Þriðjudagur 22. júní 1965 — 49. árg.
HANDBOK
VERZLUNAR MANN A
ÁSKRIFTARSb/-'.
16688 16688 166B3
Hömlur Stofnlánadeildar land-
búnaðar í lánamálum óþolandi
EJ-Reykjavík, mánudag.
Aðalfundi Stéttarsambands bænda lauk kl. 4 s.l. nótt á
Eiðum, en þetta var í fyrsta sinn, sem aðalfundurinn var
haldinn á Austfjörðum. Fundurinn átaldl harðlega þá stefnu,
sem stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins hefur tekið upp
í lánamálum, sem fundurinn telur að virki sem hem'ill á alla
uppbyggingu og tækniþróun atvinnuvegarins. Bendir fundur-
inn á ýmsar takmarkanir á lánveitingum, sem hann telur al-
gerlega óþolandi, og skoraði hann á stjórn sambandsins að
beita sér fyrír því, að þessum nýju hömlum verði aflétt.
Séð yfir fundarsalinn í Eiðaskóla.
Hér birtast álytanir fundarins
um lánamál, en nokkrar aðrar
ályktanir fundarins birtast annars
staðar í blaðinu.
Eftirfarandi tillögur voru sam-
þykktar samhljóða:
„Aðalfuridur Stéttarsambands
bænda 1965 átelur harðlega þá
stefnu, sem .stjórn Stofnlánadeild'
ar landbúnaðarins hefur tekið
upp í lánamálum, og verkar sem
hemill á aíla uppbyggingu og
tækniþróun atvinnuvegarins.
Nú er bændum neitað um lán
á sama ári, nema til þess, sem
stofnlánadeildin kallar eins fram-
kvæmd, þ.e. til dæmis annað-
hvort fjóss eða hlöðu, þótt sam-
(Ljósm.: Sigurjón Jónsson). stæðar byggingar séu, og áskilji
VERÐLAGSGRUNDVELL-
INUM VERÐI SAGT UPP
EJ-Reykjavík, mánudag.
Aðalfundur Stéttarsambands
bænda, sem lauk í nótt á Eiðum,
taldi það óviðunandi ástand, að
bændastéttin skuli ár eftir ár vera
langlægst launaða stétt þjóðfélags-
ins, eins og opinberar hagskýrslur
sýna. Taldi fundurinn rétt að segja
upp gildandi verðlagsgrundvelli
landbúnaðarafurða og fól stjórn
sambandsins að taka endanlega
ákvörðun um það í samráði við
fulltrúa bænda í sexmannanefnd.
Ennfremur benti fundurinn á ýms
ar lagfæringar, sem hann taldi að
gera þyrftu á verðlagsgrundvellin-
um.
Hér á eftir koma samþykktir
fundarins um verðlagsmál, og
einnig ályktanir um bjargráð
vegna kalskemmda, um stóriðju-
málið og fleiri mál.
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda, haldinn að Eiðum 20. júní
1965, telur það ástand óviðunandi,
að bændastéttin skuli ár eftir ár
vera langlægst launaða stétt þjóð-
félagsins, eins og opinberar hag-
skýrslur sýna. Því telur fundurinn
rétt að segja upp gildandi verð-
lagsgrundvelli landbúnaðarafurða,
en felur stjórn Stéttarsambandsins
að taka endanlega ákvörðun um
það í samráði við fulltrúa bænda í
sexmannanefnd.
Við uppbyggingu næsta verðlags
grundvallar verði unnið að eftir-
farandi lagfæringum:
1. Fjárfestingarmannvirki land-
búnaðarins verði afskrifuð sam-
kvæmt fullu kostnaðarverði, svip-
að og heimilt er í útgerð og iðnaði.
2. Vextir og allur vinnukostnað-
ur verði tekinn inn í verðlags-
grundvöll.
3. Landbúnaðarvörur verði
vaxtafærðar til framleiðenda strax
og þær eru afhentar til sölumeð-
ferðar.
4. Hækkaður verði vaxta- og
geymslukostnaður á kjöti, sem
reiknaður hefur verið mánaðar-
lega.
5. Leitað verði eftir þvi að fá
lækkanir á verði aðkeyptra rekstr-
ar- og fjárfestingarvara í því skyni
að lækka framleiðslukostnað.
6. Hlutur sauðfjárræktarinnar
verði bættur með sérstöku tilliti
til aukins útflutnings.
7. Tekið verði til athugunar
hvort ekki sé rétt að stofnsetja
sérstök verðlags- og viðmiðunarbú
undir opinberu eftirliti til þess að
Framhald á 15. sfðu
A NDSP YRNUHRE YFING
GEGN HERRÁBIALSÍR
NTB-Algeirsborg, 21. júní.
Lögreglu- og hersveitir tóku í
dag algerlcga á sitt vald miðborg
Algelrsborgar eftir að miklar mót
mælaaðgerðir höfðu farið þar
fram svo klukkustundum skipti,
vegna Þess að Ben Bella var
steypt af stóli. Hcrmenn með
stálhjálma og vélbyssur um
kringdu háskólahverfið og flest-
um búðum í miðborginni var
lokað.
Bendir margt tii þess, að verið
sé að skipuleggja andspyrnuhreyf
ingu gegn hinni nýju stjórn og til
styrktar Ben Bella.
Mikið fólksstreymi var til mið-
borgarinnar snemma í dag og
heyrðust þá nokkur skot, en tal
íð er, að aðeins hafi verið um að
ræða aðvörunarskot, og ekkert
bendir til að um vopnaða viður-
eign skjólstæðinga Ben Bella og
hersveita Boumdienne hafi verið
að ræða.
Fréttamenn segja, að mikið sé 1
.. ./
nú um símahringingar og önnur
skilaboð, þar sem menn séu hvattír
til að mæta á ákveðna staði og
taka þátt i mótmælaaðgerðum
gegn stjórninni.
Telja menn, að þetta bendi til
þess, að hafinn sé víðtækur und
irbúningur að stofnun andspyrnu
hreyfingar gegn herráðinu, sem
nú hefur tekið við völdum.
Enn líggja ekki fyrir neinar upp
lýsingar um afdrif Ben Bella sem
Framhald á 15. síðu.
sér rétt til að lána síðan aðeins
% af því, sem áður hefur verið
venja. Aðalfundurinn telur þessar
takmarkanir á lánveitingum alger-
lega óþolandi og skorar á stjórn
Stofnlánadeildarinnar og landbún-
aðarráðherra að þessum nýju
hömlum verði aflétt. Þá telur
fundurinn að þær tafir, sem orðið
hafa á því að lánsbeiðnum bænda
hafi verið svarað, séu algerlega
óviðunandi."
„Fundurinn vísar til ályktana
þeirra, sem samþykktar voru á
aðalfundi Stéttarsambandsins
1964 um lánamál, og felur stjórn
sambandsins að vinna áfram að
framgangi þeirra. Fundurinn legg-
ur ríka áherzlu á hina brýnu
nauðsyn, að Veðdeild Búnaðar-
bankans verði efld svo að henni
sé gert mögulegt að veita lán til
jarðakaupa sem nemi að minnsta
kosti helmingi af eðlilegu kaup-
verði jarða. Lánstími verði 40—50
ár með 4% vöxtum."
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1965 skorar á stjóm sam-
'bandsins að vinna að því við
lánastofnanir að þeim bændum,
sem erfiðast eiga með að standa í
skilum með vexti og afborganir
af af áhvílandi lánum, sé veittur
frestur með þessar greiðslur með-
an þeir skapa sér betri búskapar-
aðstöðu.
Ennfremur felur fundurinn
stjórn sambandsins að vinna að
því við lánastofnanir landbúnað-
arins, að menn, sem eru að hefja
búskap, hafa oflítil bú eða skortir
fé til annarra nauðsynja búsins,
eigi kost á lánum, sem séu afborg-
unarlaus fyrstu árin."
Eins og áður segir, var þetta
fyrsti aðalfundur Stéttarsambands
ins, sem haldinn var á Austur-
landi. Mættir voru tveir fulltrúar
úr öllum sýslum, og einn úr Vest-
mannaeyjum, einnig framkvæmda
stjóri Stéttarsambandsins og er-
indreki þess, framleiðsluráðsmenn
og framkvæmdastj óri framleiðslu-
ráðs, landbúnaðarmálaráðherra,
formaður Búnaðarfélags fslands,
landnámsstjóri og fleiri gestir,
þar á meðal allmargir bændur úr
nágrenninu.
Fundurinn hófst kl. 10 árdegis
á laugardag, eins og frá segir f
TÍMANUM á sunnudaginn. Fund-
arstjóri var kjörinn Bjarni Hall-
dórsson, Uppsölum, en til vara
Vilhjálmur Hjálmarsson, Brekku,
Framh á bls. 2.