Morgunblaðið - 17.06.1979, Síða 2

Morgunblaðið - 17.06.1979, Síða 2
34 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1979 Agnar Þórðarson: EFtir aö hafa verið nokkra daga í Varsjá fer myndin af borginni smám saman að skýrast fyrir manni. Hún skiptist að megin- hluta í gömlu hverfin og nýju hverfin. Ég fékk inni á Hótel Bristol, sem er í gamla hlutanum, þaðan er ekki langt niður að Vistala, sem fellur lygn og skolug milli grænna bakka tilsýndar, því að laufmikil tré breiða úr sér á árbökkunum beggja vegna. Hótel Bristol er ekki eitt af dýru hótelunum, en það hefur þekkt glæsta tíð og má muna fífil sinn fegri. Herbergi með baði kostar 780 slotys á dag, þá er innifalinn morgunverður. A stóru hótelunum eins og Hótel Victory og Hótel Forum eru gistiherbergi miklu dýrari. Ég gisti á einu slíku hóteli í Poznan fyrir 1200 slotys á dag. Opinbert gengi slotys, gjaldmiðils Pólverja er eitthvað um 30 á móti einum bandarískum dollar, svo að miklum eldmóði á næsta aratug eftir stríðslok. Pólverji sem er á ferð með mer um hverfið hefur sitthvað út á þá endurbyggingu að setja, hún hafi að ýmsu leyti verið of flausturs- lega unnin, en ekki er hægt annað en dást að slíku afreki. Upp við húsveggi kringum torg- ið eru víða sýningar á málverkum og teikningum til sölu handa ferðamönnum ásamt ýmiss konar öðrum gripum, á miðju torginu eru veitingaskálar og þyrping af borðum í kringum þá með sólhlíf- um, því að hitinn er mikill, yfir þrjátíu stig í skugga, og svo hefur það verið undanfarna^ daga. Við fáum okkur svaladrykki, ég sítrónublöndu, en félagi minn Coca cola, sem er orðinn mjög eftirsóttur drykkur hér. Virðuleg- ur maður á svörtum lafajakka með fölnaða nelliku í hnappagati leikur á lírukassa, ofan á lírukass- anum er páfagaukur í búri til að laða að börn. Tónar berast út yfir torgið, dúfur eru á flögri og á snöpum eftir brauðmolum af borð- um gesta. I hitanum er fólkið léttklætt og ber minna á fátækt- arblænum sem er þó yfir öllu rauðleit saftblanda áþekk þeirri, sem höfð var út á grjónagraut þegar ég var krakki. Maturinn smakkast okkur vel. Það er héri í brúnni' sveppasósu með ávöxtum í rjómaís sem eftir- rétt. Með þessu fáum við flösku af rúmensku rauðvíni. Ég geri upp reikninginn við stúlkuna, máltíðin kostar fyrir okkur báða 1200 slotys. Það væri dýrt fyrir venjulegan Pólverja þar sem mánaðarlaun hans eru um 5000 slotys að meðaltali. Þar af þarf hann e.t.v. að borga fjórðung- inn í húsaleigu. Annars er ekki auðveldara að gera sér grein fyrir efnahagsmálum í Póllandi frekar en í öðrum löndum, þar sem hagfræðingar leika sér að tölum, þegar þar viðbætast svo marx- leniniskar kennisetningar. Félagi minn býr í tveggja herbergja íbúð sem hann er búinn að eiga í nokkur ár. Hann er menntamaður og hefur um 6000 slotys á mánuði, vinnutíminn er frá klukkan hálf- átta á morgnana til hálffjögur eða fjögur alla virka daga nema fjórða hvern laugardag. Auk þess fær hann 26 daga sumarfrí. Ég kveð félaga minn en hann varar mig við rússneskum skriðdrekum á leið minni til Varsjár? Jú, ég hafði gert það. Hann sagði mér, að það væri keppikefli Pólverja að koma á sósíalisma eftir sínu höfði, en ekki erlendri fyrirmynd. í Póllandi sagði hann að væri mikið um smáverksmiðjur í einka- eign og gæfu margar af sér góðan arð, þrátt fyrir háa skatta, sér- staklega varð honum tíðrætt um ágóða gróðarhúsaeigenda, en þeir viðskipti, en félagi minn stuggar þeim burt. Talið hefur borist að leikriti Samuels Becketts, Beðið eftir Godot, sem félagi minn hefur séð á leiksviði. — Það er alveg eins með okkur og með flækingana í því leikriti, segir hann, þeir eru alltaf að bíða eftir Godot, en hann kemur ekki. — En páfinn kemur, segi ég. — Já, hann kemur, en hvað getur hann sagt okkur. Hann mun blessa fólkið og segja því að Guð hafi ekki gleymt því, en stað- reyndunum verður ekki haggað. Herskarar Guðs eru á himnum, ekki á jörðunni, enda hafa her- skarar sjaldan fært Pólverjunum annað en hörmungar og þjáning- ar. Flækingarnir í leikriti Becketts voru oft komnir að því að örvænta og minnstu munaði, að þeir hengdu sig í angist sinni, en þeir gáfu samt ekki upp alla von. Það kom nýr dagur og jafnvel laufblað á ömurlega hrísluna á sviðinu. Eitt lítið blað getur vakið mikla von. Þegar ég geng yfir torgið á leið minni heim á hótelið eru smiðir að vinna á palli fyrir framan eina höfuðkirkjuna á mörkum gamla borgarhlutans, þar sem á að messa við komu páfa. Hamars- högg heyrast í næturkyrrðinni. Þó er næstum engin umferð og fátt eitt af fólki á ferli. Sigmundur BEÐIÐ EFTIR PÁFA ' 'i‘ : ■ > í* \ w f-:r’- Við markaðstorgið í gamla borgarhlutanum. Gamli borgarhlutinn séður handan yfir Vistala. herbergi á slíku hóteli kostar minnst 40 dollara á dag eftir því. En það fer ekki framhjá neinum ferðamanni í Póllandi að mikið er sóst eftir því að kaupa erlendan gjaldeyri, var mér víða boðið 120—140 slotys fyrir einn dollar. En þar sem slík viðskipti eru ekki lögleg fylgir þeim nokkur áhætta og geta haft óþægilegar afleiðing- ar í för með sér. A hótelum, á ferðaskrifstofum og víðar verða menn að leggja fram skilríki um lögmæt gjaldeyrisviðskipti þegar menn gera upp reikningana, en á veitingahúsum og víða annars staðar verður slíku eftirliti ekki við komið. Á leið minni frá hótelinu á markaðstorgið í gamla borgar- hlutanum eru margar kirkjur, og þar hefur verið unnið sleitulaust undanfarna daga. Margar hendur hafa verið á lofti að hreinsa, þvo, sópa og fægja, koparskraut kirkn- anna glóði i sólskininu eins og skíragull, arnarmerki Póllands og merki páfa hafa verið sett upp framan á kirkjurnar, sums staðar mynd af Hans Heilagleika sjálfum og borðar í fánalitum Póllands, hvítir og rauðir ásamt litum Vatikansins, hvítir, gulir og bláir skreyta þær að framan eða drúpa af kirkjuturnunum. Fólk stendur í hópum fyrir utan kirkjurnar og les um tilhögun heimsóknarinnar langþráðu. Fyrir innan ómar söngur, þó það sé rúmhelgur dagur. Við markaðstorgið standa göm- ul hús á alla vegu, en þau hafa raunar öll verið endurbyggð síðan stríðinu lauk. Hermenn Hitlers lögðu í rúst hvert einasta hús og allt borgarhverfið. Á myndum frá þeim tíma er ekki annað að sjá en hálfhrunda veggi, gapandi rústir og húsabrak og hauga af múr- steinum. Pólverjar endurreistu nákvæmlega gömlu hverfin af þjóðlífinu, þar við bætist að um þessar mundir er hér mikið af aðkomufólki vegna heimsóknar páfa en þó ekki áberandi frá Vestur-Evrópu. Seinna um daginn förum við á veitingahús og fáum okkur að borða. Mér hefur verið sagt að það sé kjötskortur í borginni og víða eru biðraðir fólks fyrir utan versl- anir. Á Hótel Bristol er ekki hægt að fá beikon, þó það standi á matseðlinum, og hef ég því orðið að láta mér nægja að fá tvö egg í stað þess. Víða á götum úti er selt græn- meti og þar ber mest á alls konar káli, kartöflum, radísum, gúrkum og sveppum. Pólverjar virðast éta ein ósköp af sveppum og kunna að matreiða þá vel. Á götuhornum eru menn með smá handvagna, sem þeir selja svaladrykki úr. Það er oftast því að vera seint á ferli í gamla borgarhlutanum, þar sé mikið um þjófnað og önnur myrkraverk. Það var farið að skyggja. Ég hef farið í kirkju og hlýtt á sálma- söng. Mikill fjöldi var þar fyrir og tók virkan þátt í bænargjörð með signingum og söng. Frammi við anddyrið eru seldar veifur með litum Póllands og Vatikansins. Þær eru keyptar stríðum straumum, þó að stjórnvöld hafi bannað að setja þær upp opinberlega. Ég kaupi mér eina til minja. Á smá veitingastað tekur Pól- verji mig tali. Hann tjáir mér hann sé verkfræðingur í bíla- verksmiðju. Við förum að ræða stjórnarfarið, sem hann er frekar hlynntur, en segir þó, að enginn Pólverji geti lokað augunum fyrir þeirri staðreynd, að þeir séu her- setin þjóð. Hafi ég ekki tekið eftir fái líka að kenna á sköttunum. Aftur á móti eru launamenn skattfrjálsir, jafnvel háttsettir embættismenn með 6—7 föld laun meðaltekjumanns. Var hann óá- nægður með það fyrirkomulag. Sjálfseignarbændur sagði hann mér væru líka margir í landinu og seldu afurðir sínar á frjálsum markaði. En afkoman hjá þeim væri ekki öfundsverð, þeir nytu engrar fyrirgreiðslu hjá ríkinu og yrðu að lifa á framleiðslu sinni styrkjalaust og að verulegu leyti í andstöðu við ríkisvaldið. Þó gæf- ust þeir ekki upp, en þrjóskuðust áfram við frumstæðan búskap sinn með úrelt amboð og hesta í stað traktora samyrkjubúanna. Félagi minn býðst til að fara með mér á ýmsa smástaði í hverfinu. Víða er drykkjuskapur þá orðinn áberandi og ýmsir láta í ljós áhuga á að eiga við mig kóngur þriðji stendur á hárri súlu við torgið og lyftir krossi til himins. Ég hafði séð hann langt að nokkrum dögum áður þegar ég gekk niður við Vistala. Þessi stytta er Pólverjum mikið tákn og táknin eru mörg í sögu Póllands, tákn um von og langa biðlund. Á leið minni gegnum lystigarð rétt við Hótel Bristol voru gang- stígir þaktir hvítu blómstri ávaxtatrjáa, sem hafði fallið til jarðar undanfarna daga. Skart sumarsins hefur verið mikið og heillandi þessa heitu daga í Varsjá — en það hefur stutta viðstöðu og fellur til jarðar fyrr en varir. Og þannig líða þessir dagar, sem beðið er eftir páfa, sonar Póllands æðsta manns kirkju Krists, hann er skart hinna heitu daga sem kemur og fer. Varsjá, 1. júní 1979. Tvö ný frímerki jíSLAND 170 Tvö ný frímerki koma út 3. júlí með myndum af Ingibjörgu H. Bjarnason og Torfhildi Hólm. Merkin eru 80 og 170 króna virði en Þröstur Magnússon teiknaði þau. Ingibjörg H. Bjarnason skóla- stjóri og alþingismaður fæddist 14. desember 1867 á Þingeyri við Dýrafjörð. Foreldrar hennar voru Hákon Bjarnason kaup- maður og kona hans Jóhanna Kristín Þorleifsdóttir. Hún stundaði nám í Kvennaskólanum í Reykjavík og lauk þaðan prófi 1882. Hún stundaði framhalds- nám í Kaupmannahöfn um skeið og kynnti sér síðar skólahald í Þýskalandi og Sviss. Ingibjörg var kennari við Kvennaskólann í Reykjavík og skólastjóri varð hún 1906 og gegndi því til ævi- loka, 30. október 1941. Hún varð fyrsta íslenska konan sem sat á Álþingi en þar sat hún 1923-1930. Torfhildur Hólm skáldkona var fædd 2. febrúar 1845 á Kálfafellsstað í Austur Skafta- fellssýslu. Foreldrar • hennar voru Þorsteinn Einarss'on prest- ur þar og kona hans Guðríður Torfadóttir. Hún var við nám í Reykjavík og Kaupmannahöfn og giftist 1874 Jakobi Hólm verslunarstjóra á Skagaströnd. Torfhildur dvaldi í Kanada í 13 ár en eftir heimkomuna gaf hún út ársritið „Draupni“ og barna- blaðið „Tíbrá“, svo og mánaðar- blaðið „Dvöl“. Hún skrásetti munnmælasögur eftir vesturför- unum „Þjóðsögur og sagnir“. Torfhildur helgaði sig sagnagerð og varð fyrst íslenskra kvenna að rita sögulegar skáldsögur og er jafnframt fyrsta konan sem hafði ritstörf að atvinnu. Hún andaðist 14. nóvember 1918.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.