Morgunblaðið - 17.06.1979, Side 7

Morgunblaðið - 17.06.1979, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1979 39 ari er alvefí nauðsynlegt að drekka mikið, auk þess sem heitt te er aldrei illa liðið þegar sest er niður eftir erfiðan dag. Vegna hinna miklu kulda sem gjarnan eru á þessum slóðum er nauðsynlegt að búa sig alveg sérstaklega vel. Auk hins hefðbundna fatnaðar svo sem ullarnærfata, ullarpeysa og vindfata verður hver maður að hafa með sér alklæðnað úr dúni, þ.e.a.s. dúnúlpu, dúnbux- ur, dúnvettlinga og dúnsokka til að hafa í tjaldinu á kvöldin. Svo er að sjálfsögðu nauð- synlegt að vera með beztu gerð af dúnsvefnpokum og einangr- unardýnur undir. Þá verða menn með sinn klifurbúnað, s.s. mannbrodda, tvær ísaxir, snjóankeri, örygg- islása, ísskrúfur, líflínu, sér- stök lífbelti til að binda línuna í, auk sérstakra fjallaskíða, sem eru útbúin með bindingum sem einnig eru gerðar fyrir fjallgönguskó. Ilver hefur undirbúningur- inn verið í vetur? „Við höfum haldið allnokkr- ar sanieiginlegar æfingar þar sem gengið hefur verið á helztu fjöll á Suð-Vesturlandi, s.s. Eyjafjallajökul, Tindafjalla- jökul, Skarðsheiði, Botnsúlur, auk þess sem hver um sig hefur æft sig á skíðum og haldið þrekinu við t.d. með því að synda hlaupa og hjóla eftir að snjóa leysti. Svo búa menn auðvitað að fyrri reynslu." Er ekki hætta á að menn verði fyrir ahrifum hinnar svonefndu háfjallaveiki, þ.c. lungna- eða heilabjúgs? „Auðvitað er sá möguleiki fyrir hendi, það er ekki mjög óalgengt að menn fái þennan kvilla á McKinley. Eina ráðið til að varna því að fá veikina er hreinlega að fara rólega yfir og aðlagast hæðinni hverju sinni og má segja að líkurnar á því að menn sýkist séu hverfandi ef rétt er að farið. Ef hins vegar svo illa vildi til að einhver úr hópnum fengi kvill- ann erum við með sérstök þagræsilyf sem gefin eru í slíkum tilfellum, en kvillinn lýsir sér þannig að vökvi sest inn á lungu eða heila.“ Ilverjar eru líkurnar á því að ykkur takist að sigra fjall- ið? „Við erum auðvitað mjög bjartsýnir í upphafi ferðar á að okkur takist þetta, en auðvitað geta veður og annað slíkt hamlað því. Það má eiginlega segja að spurningin sé fyrst og fremst sú hvort við fáum skaplegt veður til að komast upp,“ sögðu þeir félagarnir að lokum. — sb. Vönduð og traustbyggð sumarhús, þaulreynd við íslenska staöhætti. Þak-sumarhús hafa á undanförnum árum risiö víösvegar um land, ýmist í eigu einstaklinga eöa félaga. Meöal kaupenda okkar eru Bandalag háskólamanna, Starfsmannafélag Landhelgisgæzlunnar, Verkstjórafélag íslands, Golfklúbbur Vest- mannaeyja, Menntaskólinn á Akureyri og Félag Flugumferðarstjóra, auk fjölda einstaklinga. Þak-sumarhús eru framleidd í tveimur stæröum 36 fm og 46 fm. Þau fást afhent á mismunandi byggingarstigum, meö breytingum eftir óskum kaupenda. Eigum enn óráðstafað örfáum húsum fyrir sumariö. ÞAK h.f. sími 53473 Heimasímar sölumanna: 53931 og 72019.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.