Morgunblaðið - 30.06.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.06.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 1979 3 „Ekki fýsilegt fyrir grös að kíkja upp úr jörðinni” Iskyggilegar horf ur með hey- skap og sprettu Grímstungu á FJUllum, 29. ]únf VEÐUR skánaði nokkuð um far- daga, en enn sem komið er hefur þó enginn hiti verið og horfur eru ískyggilegar hvað varðar sprettu og heyskap. Jörðin hefur verið blaut og köld, hiti hefur hæst komizt í 15 stig yfir hádag- inn í júnímánuði, en gjarnan verið um frostmark á nóttunni. í vetur fraus hér í 40—50 ára gömlum lögnum og hefur það ekki gerzt áður hér. Klaki var mikill í jörðu og ég man ekki eftir að hann hafi áður verið eins djúpt í jörðu og nú f vor. Eftir svona harðan vetur og vor vonaðist maður eftir góðu sumri, en lítið útlit er fyrir að svo verði. Holssandur er enn ófær og við þurftum t.d. að fá áburð frá Húsavík, en ekki frá Kópaskeri, sem er okkar helzti verzlunarstað- ur. Það er allt u.þ.b. mánuði seinna en í venjulegu ári og okkur Sárafáir bændur hafa enn byrjað slátt og reikna má með að vfðast þykir það hart ef við komumst hvar verði heyskapurinn um mánuði seinni en í eðlilegu ári. Eins og ekki í okkar aðalkaupstað nema viðrað hefur, veitir ekki af að vera vel dúðaður við bústörfin. þrjá mánuði á þessu ári. Einn byrjaður slátt undir Eyjafjöllum Borgareyri. V-Eyjafjallahreppi. 29. júní. ÞAÐ ER tæplega hægt að segja nokkuð gott um tíðarfarið og ástandið hér um slóðir. Sums staðar er enn tii í því að kýr séu í húsum og gripir, sem hafa verið settir út fyrir tún tolla illa því úthagi er illa sprottinn. Sláttur er byrjaður á Þorvaldseyri, en það er algjör undantekning. Hjá okkur er mjög kalsamt í þeirri norðanátt, sem hefur ríkt, en hins vegar skjólsælla austar og betur sprottið í sveitinni. í góðu ári hefur á þessum tíma oft verið búið að slá talsvert en ég gæti trúað að sláttur yrði í heild; ina mánuði seinna en venjulega. í fyrrinótt fór hitinn niður í 2 stig á mælum og má því ætla að niður við jörð hafi hiti verið um frost- mark. Það er því ekki fýsilegt fyrir grösin að kíkja upp úr jörðinni. — Markús. Enn snjóar í íjöll nyrðra Ba\ nöfúaströnd, 29. júní. EFTIR síðustu mánaðamót komu nokkrir dagar, sem lofuðu sumri, en sú von brást að mestu þvf sfðan hefur snjóað niður í sjó og verið kuldatfð. í nótt snjóaði f fjöll. Spretta er mjög hæg, t.d. í Austur-Fljótum koma tún undan snjónum alveg hvft og dauð. Ástandið er því mjög slæmt á þessum slóðum, en í innhéraði Skagafjarðar er það eitthvað betra. Sprettan er þó 3—4 vikum síðar á ferðinni en síðastliðið ár. Ekki er alls staðar búið að láta niður í kartöflugarða vegna bleytu og klaka. Verið er að byggja brú á Grafará innan við Hofsós og fer þorpið þá að nokkru leyti úr beinu vegasambandi vegna þess að vegurinn liggur þá nokkru fyrir ofan bæinn. Byrjað er að fullgera veginn yfir Hegranes á Siglufjarð- arvegi, sem er nauðsynleg vega- bót. Lítið er um afla hjá smærri bátum á Skagafirði, en togarar afla sæmilega svo atvinna er næg í frystihúsum. — Björn Leó E. Löve, fulltrúi FÍB, afhendir Tómasi Árnasyni fjármálaráðherra mótmælaskjal samstarfsnefnd- ar bifreiðaeigenda. „Stærri hluti bensín- verðsins í vegasjóð” FULLTRÚAR samstarfsnefnd- ar bifreiðaeiganda gengu f gær á fund Tómasar Árnasonar fjármálaráðherra og afhentu honum mótmælaskjal. í skjali þessu segir að hinar miklu olíuhækkanir hafi leitt nær óleysanlegan vanda yfir heim- inn og er þar gagnrýnd sú stefna sem rfkissjóður virðist fylgja, að gera sér þetta ástand að tekjulind með fullri skatt- lagningu olíuvara. Þó hafi bif reiðaeigendur fullan skilning á tekjuöflunarþörf rfkissjóðs, en telji skattlagningu rfkisins á bensfn og olfur óeðlilega, svo sem sjá megi á minnkandi hlutdeild vegagjalds f bensfn- verði. Samstarfsnefndin segir nú svo komið, að vegagjald nemi aðeins 41,4% allra þeirra tekna, sem rfkissjóður hefur af hverjum bensfnlftra, hins vegar hafi vegagjaldið numið 73,1% af bensfntekjum rfkissjóðs árið 1972. Samstarfsnefndin telur að ráðamönnum sé ekki ljós sá þjóðhagslegi sparnaður sem sé af varanlegri vegagerð, bæði með tilliti til orkusparnaðar og minna viðhalds vega, að ógleymdum þeim stuðningi, sem varanleg vegagerð er við atvinnu lífið um land allt. Því krefjast bifreiðaeigendur þess að orku verð til þeirra hækki ekki að óþörfu og að vegagjald verði ákveðið'hlutfall tekna ríkissjóðs af olíu og bensínverði og nemi ekki minna en sjötíu hundraðs- hlutum. Fyrir hönd samstarfsnefndar- innar afhenti Leó E. Löve, full- trúi FÍB., ráðherra mótmæla skjalið og ræddi þessi mál nokk- uð. I máli hans kom m.a. fram að þetta væri í fyrsta skipti sem hinir ýmsu hagsmunahópar bif reiðaeigenda sameinuðust og stæðu einhuga að baki ákveðnu málefni. Hann sagði ekki óeðli legt að bensínverð væri hátt, að því tilskildu að hátt hlutfall bensínverðs rynni í vegasjóð og kæmi því bifreiðaeigendum til góða. Brýna nauðsyn taldi hann á að leggja varanlegt slitlag á hina íslensku vegi og sagði að kostnaður við þá lagningu myndi borga sig upp fyrir ríkissjóð á 5—6 árum. Hagnaður bifreið- aeigenda yrði þó mun meiri, eða 4—5 sinnum meiri en ríkissjóðs og væri þetta því allra hagur. VEGGJALD SEM HUNDRAOSHLUTI AF HEILDARTEKJUM RÍKISSJÓOS AF BENSÍNSÖLU. 1979 er midad vid verd i júni Tafla þessi . sýnir hlutfall vegagjaids af heildartekjum af bensínsölu. Eins og sjá má fer hlutur vegagjalds sífellt minnkandi. að eiga. Ríkissjóður hefði skuld- að stórfé um síðustu áramót og væri á heljarþröm. Sagði hann erfitt að afla meiri tekna, hins vegar taldi hann fulla þörf á að endurskoða þá skipan sem væri á skiptingu tekna ríkissjóðs af olíuvörum. Sagði hann að þessi mál yrðu tekin til athugunar, en lofaði ekki skjótum úrbótum. í ráði væri að hraða ýmsum þeim framkvæmdum sem orðið gætu til þess að spara innflutning á olíuvörum. Að lokum lofaði ráðherrann því að reynt yrði að taka eðlilegt tillit til þessa brýna hagsmunamáls bifreiðaeigenda. Einnig gat hann f>ess að vænt- anlega yrðu seldir 125 milljón lítrar af bensíni á árinu en sú sala þýddi 18 milljarða tekjur til ríkissjóðs. Til vegamála legði ríkið í heild 13 milljarða, en það bæri að athuga að ríkið hefði 18 milljarða tekjur einungis af bensínsölu, þar væru aðrar tekj- ur af olíusölu ekki meðtaldar. Því væri óeðlilega litlum hluta olíuverðs varið til þarfa bifreiða eigenda og því væri brýnt að breyting yrði á. Tómas Árnason fjármálaráð herra taldi erfitt við þetta mál

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.