Morgunblaðið - 30.06.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ1979
5
Nefndin mun fara utan til við-
ræðna verði það nauðsynlegt
sagði Svavar Gestsson á blaðamannafundi í gær
ogkvaðsteinnigíhugaað farasjálfur
efþaðyrði talið nauðsynlegt
—Nýja olíunefndin skipuð í
gær að tillögu Geirs Hallgrímssonar
Frá blaðamannafundi Svavars Gestssonar við- Ljósm: rax.
skiptaráðherra í Arnarhvoli í gær. Með ráðherr-
anum á f undinum voru þeir Magnús Torfi
ólafsson blaðafulitrúi ríkisstjórnarinnar og
Ingi R. Heigason hæstaréttarlögmaður, formað-
ur olíunefndarinnar sem skipuð var hinn 19.
maí sl.
Svavar Gestsson viðskipta-
ráðherra boðaði í gær til bðaða-
mannafundar, þar sem hann
skýrði frá skipun sérstakrar
könnunarnefndar til þess að
athuga þegar í stað þá við-
skiptakosti sem kunna að
standa til boða í olíukaupum
erlendis frá. Nefnd þessi er
skipuð samkvæmt tillögu sem
Geir Hallgrímsson formaður
sjálfstæðisflokksins, setti fram
í bréfi til Ólafs Jóhannessonar
forsætisráðherra, sl. föstudag.
Eins og Morgunblaðið skýrði
frá í gær verður Jóhannes
Nordal Seðiabankastjóri
formaður nefndarinnar, og er
hann skipaður án tilnefningar.
Aðrir í nefndinni eru Björgvin
Vilmundarson bankastjóri,
tilnefndur af Alþýðuflokknum,
Ingi R. Helgason hæsta-
réttarlögmaður, tilnefndur af
Alþýðubandalaginu, Kristján
Ragnarsson formaður L.Í.Ú.,
tilnefndur af Sjálfstæðisflokkn-
um og Valur Arnþórsson
kaupfélagsstjóri, tilnefndur af
Framsóknarflokknum.
í tilkynningu frá ríkisstjórn-
inni um nefndarskipunina, sem
Svavar Gestsson birti á blaða-
mannafundinum, segir að ríkis-
stjórnin muni veita nefndinni
alla þá aðstoð sem nauðsynleg
kann að reynast til þess að
verkefninu verði lokið á sem
skemmstum tíma, og að þess sé
vænst að nefndin skili ríkis-
stjórninni fyrsta áliti fyrir 31.
ágúst næstkomandi. í fréttatil-
kynningunni segir ennfremur, að
„í áliti sínu skal nefndin gera
sem gleggsta grein fyrir við-
skiptakostum þeim sem aðgengi-
legastir kunna að vera í þessum
efnum með tilliti til
a) að þjóðin geti treyst á viðun-
andi öryggi við innflutning
erlendra orkugjafa á næstu
árum og
b) að verðlag og öll kjör olíuinn-
flutningsins séu sem hag-
kvæmust."
A blaðamannafundinum
kvaðst viðskiptaráðherra vilja
leggja á það sérstaka áherslu, að
nefndin kannaði alla þá mögu-
leika sem fyrir hendi kunna að
vera. Ríkisstjórnin myndi veita
nefndinni allan nauðsynlegan
stuðning, og sagði hann að ef það
reyndist að mati nefndarinnar
nauðsynlegt að ferðast til olíu-
söluríkja til viðræðna, þá myndi
nefndin takast slík ferðalög á
hendur. Það yrði á valdi nefnd-
arinnar og ríkisstjórnarinnar að
meta það í sameiningu hvort slík
ferðalög yrðu nauðsynleg. Á
blaðamannafundinum var ráð-
herrann einnig að því spurður,
hvort hann myndi taka sér ferð
á hendur til Sovétríkjanna eða
annarra oliúsöluríkja til við-
ræðna um olíukaup Islendinga,
ef nefndin teldi það nauðsynlegt.
Kvaðst ráðherrann einnig
myndu vega það og meta sjálfur,
hvort hann færi í slík ferðalög.
Ráðherrann sagði, að þær við-
ræður sem að undanförnu hafa
farið fram á milli viðskiptaráðu-
neytisins og sovéska sendiráðs-
ins í Reykjavík, hefðu eingöngu
verið um að flýta viðræðum, og
einnig hefði það verið tekið fram
af hálfu ráðuneytisins, að óskir
um að viðræðurnar yrðu fyrr,
stöfuðu af því að við sem þjóð
með langtímaviðskiptasamning,
höfum á vissan hátt rétt á því
við þessr aðstæður, að óska eftir
því að verðviðmiðunin á olíu-
kaupum okkar verði endurmetin.
Sagði Svavar því að fyrrnefndar
viðræður hefðu ekki snúist efnis-
lega um breytt kjör íslendingum
til handa, heldur númer eitt um
breytta dagsetningu nýrra við-
ræðna um viðskipti landanna.
Sagði hann Sovétmenn hafa
tekið mjög dræmt í þær hug-
myndir.
Um viðræður sínar og norska
viðskiptaráðherrans, Hallvard
Bakke, sagði Svavar Gestsson:
„Hann tók almennt jákvætt í
okkar hugmyndir og óskir, en
hann lagði hins vegar á það
mikla áhersu að Norðmenn væru
ekki aflögufærir eins og er, og
hefðu heldur ekki verið." Sagði
Svavar að sér skildist að mögu-
leikar Norðmanna á þessu sviði
væru bundnir við þann árangur
sem kynni að nást við boranir á
Statfjordsvæðinu, og færi hugs-
anlega að skila einhverju á
síðari hluta næsta árs hið fyrsta.
Sagði hann að Norðmenn sjálfir
tækju aðeins um 5% af heildar-
olíuframleiðslu sinni, en annað
færi um hendur alþjóðlegra olíu-
félaga. Ef norska ríkisstjórnin
vildi bæta við þetta magn, þá
yrði hún að fara í gegnum þessi
olíufélög, sem aðstoðað hafa við
boranirnar á Egofisksvæðinu.
Kvaðst hann vilja leggja á það
áherslu, að undirtektir norska
ráðherrans hefðu verið ákaflega
jákvæðar, en vert væri að hafa
það í huga, við hvaða aðstæður
Norðmenn hefðu ráðist í þessar
risavöxnu framkvæmdir, og þá
um leið að þeir hafa takmarkaða
möguleika til að segja fyrir um
oliúusöluna frá Egofisksvæðinu.
Sagði Svavar að bæði Svíar og
Danir hafi leitað eftir sérstökum
kjörum á olíukaupum frá
Noregi, en án árangurs. Þar væri
ekki um að kenna stirfni norskra
yfirvalda, heldur væri um að
ræða þá samninga sem þau
hefðu gert við þá aðila sem
leituðu að olíunni. Að öðru leyti
sagðist ráðherrann ekki vilja
fjölyrða um viðræður sínar við
Bakke, enda hefði verið gefin út
sérstök fréttatilkynning um þær
viðræður.
Svavar sagði einnig, að um
leið og hann væri því hlynntur
að allir olíukaupamöguleikar
yrðu kannaðir, þá væri hann því
algjörlega andvígur að rifta
þeim samningum sem við núna
höfum við Sovétmenn. Það
mætti ekki gera án þess að
annað væri áður tryggt að
minnsta kosti. Það væri stór-
háskalegt og vítavert, gripu
stjórnvöld til slíkra ráðstafana.
Á fundinum sagði Svavar
Gestsson viðskiptaráðherra, að
alls ekki hefði verið minnst á
Jan Mayen-málið í viðræðum
hans við Hallvard Bakke, og
slíkt ætti alls ekki að ræða þegar
umræður ættu sér stað um olíu-
kaup. Ráðherrann var einnig að
þvi spurður, hvort hann teldi
útflutning okkar til Sovétríkj-
anna hættu búna ef við hættum
að kaupa olíu af Sovétmönnum.
Svavar Gestsson svaraði: „Ég vil
ekkert um það mál segja, málið
hefur ekki verið rætt, og ég hef
ekki eins og þið vitið tekið þátt í
viðskiptaviðræðum við Sovét-
menn.“
Fram kom á fundinum, að ekki
er ætlunin að olíunefndin sem
ríkisstjórnin skipaði hinn 19.
maí láti af störfum. Henni er
ætlað að starfa áfram að rann-
sókn á öllum helstu þáttum
olíuverslunar og olíunotkunar í
landinu, eins og ráð var fyrir
gert í skipunarbréfi hennar.
Formaður þeirrar nefndar
verður eftir sem áður Ingi R.
Helgason. Upplýsti hann á fund-
inum, að nefndin hefði haldið
allmarga fundi, og myndi á
næstunni skila ríkisstjórninni
skýrslu um störf sín til þessa.
Á blaðamannafundinum
ræddi viðskiptaráðherra einnig
almennt um olíumál í heiminum,
og sagði að hin alvarlega olíu-
kreppa væri alþjóðleg, og væri
horfur þar allt annað en bjartar.
Sagði hann að alþjóðlega olíu-
ráðið gerði ráð fyrir því, að árið
2000 myndi skorta um 28
milljónir tunna af olíu á dag.
Yrði það þrátt fyrir tólfföldun á
kjarnorkunýtingu, tvöföldun á
kolanotkun og þó að
Saudi-Arabar myndu stórauka
framleiðslu sína. Sagði hann því
hrikalega framtíð blasa við í
þessum efnum, og hefðu öll
iðnríkin þegar skipulagt orku-
sparnað. Minnti ráðherrann í því
sambandi á orkusparnaðartil-
lögur þær sem ríkisstjórnin
hefur nýlega kynnt. Þá sagði
Svavar, að orkukreppa sú sem
við íslendingar stæðum nú
frammi fyrir, rynni raunveru-
lega saman við síðustu kreppu
sem snerti okkur. Árið 1974
hefði verið tekið svokallað olíu-
lán, að upphæð 10 milljarðar
króna, og einmitt nú í ár ætti að
greiða fyrstu afborgunina af því.
Næmi sú upphæð 3 milljörðum
króna, og gerði vandann ekki
minni. Sagði ráðherrann að
skapa yrði þjóðarsamstöðu til að
leysa þessi vandamál, og til þess
hefði þessi nefnd með aðild allra
stjórnmálaflokkanna verið skip-
uð. Kvaðst hann fagna öllum
góðum hugmyndum og öllu
frumkvæði er kæmi fram til að
leysa þann mikla vanda sem nú
blasir við í olíumálum.
30 ÁRA ÞJÓNUSTA
SENDIBÍLASTÖDIN H.F.
B0RGARTÚNI21
1949
1979