Morgunblaðið - 30.06.1979, Page 8

Morgunblaðið - 30.06.1979, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 1979 Háskóli f slands: 256kandídatar brautskráðir ÞRÍTUGASTA og fjórða starfs- ári Tónlistarskólans á Akureyri lauk með skólaslitum f Akureyr- arkirkju 19. mai síðastliðinn. Við það tækifæri léku blásarasveit og strengjasveit skólans. Alls stunduðu 430 nemendur nám í skólanum nú í vetur og voru kennarar 21. Reglulegir tónleikar voru haldnir á hverjum laugardegi auk jóla- og vortónleika. Hljómsveit skólans tók þátt í flutningi á Gloria eftir Vivaldi ásamt Passíukórnum fyrir jól, einnig í flutningi Te Deum eftir Charpentier með Samkór Dalvík- ur, og síðast stóð hljómsveitin ásamt Sinfóníuhljómsveit Reykja- víkur að tónleikum áhugamanna- sveitarinnar í Reykjavík og á Akureyri í byrjun júní. Efnt var til píanónámskeiðs fyrir kennara og nemendur í febrúar, en leiðbeinandi var Martin Berkofsky. Á árinu voru þreytt 551 próf, þar af 262 tón- og hljómfræðipróf og 289 hljóðfæra- og söngpróf. Fyrstu stúdentarnir á tónlistar- kjörsviði útskrifuðust að þessu sinni, en þeir hafa numið tónlist- argreinarnar við Tónlistarskól- ann, og heita: Gyða Þ. Halldórs- dóttir með aðalhljóðfæri orgel, Hulda Fjóla Hilmarsdóttir með aðalhljóðfæri fiðlu og Magna Guðmundsdóttir með aðalhljóð- færi fiðlu. Áttunda stigi í píanó- leik luku, Örn Magnússon og Sólveig Jónsdóttir, en sem liður í því prófi þurftu þau að leika á sjálfstæðum tónleikum. Gyða Þ. Halldórsdóttir og Örn Magnússon hlutu fjárstyrk úr Minningarsjóði Þorgerðar S. Eiríksdóttur, sam- tals að upphæð kr. 400.000. Þess- um sjóði er ætlað það hlutverk að styrkja álitlega nemendur frá skólanum til framhaldsnáms, og byggist tekjuöflun sjóðsins á sölu minningarkorta og á framlögum á minningartónleikum. Mikil þrengsli há nú starfi skólans, þ.s. nemendum hefur fjölgað um helming á 8 árum, án þess að skólinn eignaðist viðbótar- húsnæði. Engin bráða- birgðalög á næsta leiti ÓLAFUR Jóhannesson forsætis- ráðherra kvaðst ekki vita til þess að neinar efnahagsráðstafanir yrðu gefnar út fyrir mánaðamót- in, en ráðherrar hafa áður skýrt frá því að brýnt væri að gefa út bráðabirgðalög, er miðuðu að því að afla fjár fyrir ríkissjóð vegna olíuvandans. Þá hafði Morgunblaðið af því spurnir að ríkisstjórnin myndi að öllum líkindum ekki samþykkja neinar nýjar álögur, fyrr en í fyrsta lagi í ágúst. MYNDAMÓT HF. PRENTMYNDAOERÐ AÐALSTRÆTI S SlMAR: 17IS2-17355 AFHENDING prófskírteina til kandídata frá Háskóla íslands fer fram í dag, laugardag klukk- an 14.00. Athöfnin þefst með því að Sigurður Snorrason, Manuela Wiesler og Hafsteinn Guðmunds- son flytja tónlist eftir Mozart. Rektor háskólans, Guðlaugur borvaldsson, flytur ávarp og deildarforsetar afhenda prófskír- teini. Háskólakórinn syngur nokkur lög, stjórnandi frú Rut Magnússon. Að þessu sinni verða braut- skráðir 256 kandídatar og skiptast þeir þannig: Embættispróf í guð- fræði 6, B.A.-próf í kristnum fræðum 1, embættispróf í læknis- fræði 45, aðstoðarlyfjafræðings- próf 5 , B.S.-próf í hjúkrunarfræði 13, embættispróf í lögfræði 26, kandídatspróf í viðskiptafræði 27, kandídatspróf í íslenskum bók- menntum 1, B.A.-próf í heimspeki- deild 37, próf í íslensku fyrir erlenda stúdenta 4, lokapróf í byggingarverkfræði 22, lokapróf í vélaverkfræði 7, lokapróf í raf- magnsverkfræði 7, fyrrihlutapróf í efnaverkfræði 1, B.S.-próf í raungreinum 37, kandídatspróf í tannlækningum 4, B.óf í félagsvís- indadeild 9. Ljónm. Eðv. SÍKurudrsson. Stúdentar á tónlistarkjörsviði frá M.A. sem numu tónlistargreinarnar við Tóniistarskóla Akureyrar. Talið írá vinstri: Sólveig Jónsdóttir, Magna Guðmundsdóttir. Örn Magnússon, Gyða Þ. Halldórsdóttir og Hulda Fjóla Ililmarsdóttir. GtlÐSPJALL DAGSINS: Lúk. 15.: Hinn týndi sauð- ur. LITUR DAGSINS: Grænn. Litur vaxtar og þroska. DOMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Sr. Þórir Stephensen. ÁRBAE JARPREST AK ALL: Guðsþjónusta í satnaðarheimili Ár- bæjarsóknar kl. 11 árd. Sr. Guð- mundur Þorsteinsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Guðsþjónusta í Breiöholtsskóla kl. 11. Sr. Jón Bjarman. BUSTADAKIRKJA: Messa kl. 11. Organleikari Guðni Þ. Guðmunds- son. Sr. Ólafur Skúlason. HALLGRÍMSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriöjudagur: Fyrir- bænaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. LANDSPÍTALINN: Guösþjónusta kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Norski unglingakórinn Young Spiration syngur við messuna. Organisti dr. Orthulf Prunner. Sr. Arngrímur Jónsson. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11 árd., (altaris- ganga). Fermdur veröur Björn Fjal- ar Sigurðsson. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSPREST AKALL: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Jón Stefánsson. Sr. Árelíus Níelsson. Sóknarnefndin. LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Ingólfur Guðmundsson messar. Þriðjudagur 3. júlí: Bæna- guðsþjónusta kl. 18. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Guösþjónusta kl. 11. Orgel og kórstjórn Reynir Jónas- son. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs- son. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Messa kl. 2. Organisti Sigurður ísólfsson. Prestur sr. Kristján Róbertsson. GRUND, elli- og hjúkrunarheimili: Messa kl. 10 árd. Séra Jón Kr. ísfeld messar. ÚTVARPSMESSAN á sunnudagsmorguninn er frá ísafjarðar- kirkju, tekin upp s.l. þriðjudag við upphaf prestastefnunnar. Sér Pétur Sigurgeirsson vígslubiskup prédikar. en Vestfjarða- klerkar: Séra Jakob Hjálmarsson fsafirði, séra Valdimar Hreiðarsson á Reykhólum, séra Lárus Þ. Guðmundsson prófastur í Holti Önundarfirði og Séra Gunnar Björnsson Bolungarvík, þjóna fyrir altari. Kirkjukór ísafjarðarkirkju leiðir söng, organleikari Kjartan Sigurjónsson. Sungin verður Hátíðarsöngur séra Bjarna Þorsteinssonar, felldur að röðun sfgildrar messu. — Þessir sálmar verða sungnir: í nýju sálma- ( gj. Sálmabókinni: bókinni: 243 335 21 225 288 240 26 ekki til 602 26 DOMKIRKJA KRISTS KONUNGS Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síðd. Alla virka daga er lágmessa kl. 6 síðd., nema á laugardögum, þá kl. 2 síöd. FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl. 11 árd. HJÁLPRÆÐISHERINN: Bæn kl. 20 og almenn samkoma kl. 20.30. — Ræöumaöur Ingfrid de Jager. KAPELLA ST. Jósefssystra í Garðabaa: Hámessa kl. 2 síöd. KAPELLAN í St. Jósefsspítala í Hafnarfiröi: Messa kl. 10 árd. KARMELKLAUSTUR Hafnarfirði: Hámessa kl. 8.30 árd. Virka daga er messa kl. 8 árd. KEFLAVÍKURPREST AK ALL: Guðsþjónusta kl. 11 árd. Séra Þorvaldur Karl Helgason messar. — Organisti Helgi Bragason. Kór Innri Njarövíkurkirkju syngur. Ein- söngvari Guömundur Sigurösson. Sóknarprestur. NJ ARÐVÍ KURPREST AK ALL: Guðsþjónusta kl. 2 síðd. í Innri-Njarövíkurkirkju. Eínsöngur Guðm. Sigurösson. — Organisti Helgi Bragason. Sóknarprestur. GRINDARVÍKURKIRKJA: Messa kl. 11 árd. Sóknarprestur. AKRANESKIRKJÁ: Messa kl. 10.30 árd. Messa dvalarheimilinu að Höfða kl. 2 síðd. Séra Björn Jónsson. KÁLFATJARNARKIRKJA: Kirkju- dagur safnaöarins. Guösþjónusta kl. 2 e.h. Biskup íslands, herra Sigurbjörn Einarsson, prédikar. Kór Kálfatjarnarkirkju syngur. Ein- söngur Ragnheiður Guðmunds- dóttir. Organisti Jón Guönason. Sóknarnefnd. Skólaslit Tónlist- arskóla Akureyrar ,, V atnsliturinn er eftirlæti mitt” Jakob Hafstein sýnir í Casa N ova „VATNSLITURINN er eftirlæti mitt. Á þessari sýningu eru 60 myndir og þær eru allar unnar með vatnslitum," sagði Jakob Hafstein sem opnar málverkasýningu í Casa Nova laugardaginn 30. júní. „Vatnsliturinn er ákaflega lyriskur — hann er svo tær og léttur, jafnvel þó ,að maður reyni að mála sem sterkast. Fallegustu myndir Ásgríms heitins Jónssonar eru málaðar með vatnslitum, enda var hann meistari með þá. SenniLega var hann einn mesti og besti vatnslitamálari í heimi. Eg var svo gæfusamur að komast í kennslu hjá Ásgrími með vatnsliti og það voru miklar gleðistundir. Færni á myndlistarsviðinu þroskast og fram í andlátið og þá ekki hvað síst meðferð vatnslita. Eg hef áður haldið sýningar kostur. Ég er Guðna Guð með eintómum vatnslitamynd- um og fengið hrós — jafnvel frá hinum vandlátu gagnrýnendum fjölmiðlanna, sem yfirleitt hafa látið umsagnir um sýningar mínar liggja í láginni. En sú þögn hefur ekki dregið úr mér kjarkinn, — heldur þvert á móti. Ætli sýningar mínar fari ekki er mundssyni rektor ákaflega þakklátur fyrir að lána mér þessa sýningaraðstöðu. Kjarvalsstaði hef ég ekki beðið um sem sýningarstað síðan has arinn varð í febrúar 1975. Þá komu 7800 manns á sýningu mína og 68 myndir seldust. Andstæðingar mínir á myndlist- Jakob Hafstein með eina af myndum sínum, sem hann sýnir í Casa Nova. (Ljósm. Mbl. ól.K.M.) að nálgast 20, bæði hér í Reykja vík og víða úti um land. Það felst mikil uppörvun í því þegar ég finn að fólk vill skoða og eiga myndir eftir mig. Nú er ég að vinna að olíumálverkum, pastel- og tússmyndum. Hvernig það gengur er ráðgáta í dag. Ef sumarið verður gott þá gengur þetta — annars verður erfitt að ná árangri. Ég er fyrst og fremst lands lagsmálari. Ég elska náttúruna og þrái að ganga á vit hennar. Þess vegna eru veiðiferðirnar oft á tíðum einnig málaraferðir. Þetta tvennt fer ákaflega vel saman. Casa Nova er skemmtilegur sýningarstaður þar sem fólk getur skoðað myndirnar eins og heima í stofu, — það er mikill arsviðinu reklameruðu mig svo hressilega upp þá og síðan hefi ég verið þeim ákaflega þakklát- ur. Ég vildi óska að menn tileink- uðu sér að reyna að kunna að meta myndlist — á hvaða sviði sem er. Umfram allt eiga mynd listarmenn ekki að reyna að hafa vit fyrir fólki eða reyna að kenna því að meta list og segja við það: Þetta er gott og þetta er lélegt. Hver og einn verður að ráða sér sjálfur í þeim efnum. Þessi eru mín viðhorf og þau breytast ekki.“ Sýning Jakobs er í Casa Nova í húsakynnum Menntaskólans í Reykjavík og verður opin dag lega frá kl. 14 til 22 til 8. júlí. Myndirnar eru málaðar á síð- ustu 2 árum og eru allar til sölu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.