Morgunblaðið - 30.06.1979, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JtJNÍ 1979
Hin nýja Piper Tomahawk flugvél og flugskýli Flugfélags Sauðárkróks. Ljósm.Tómas Helgason
Mikil] flugáhugi
á Sauðárkróki
Skagfirðingar hafa á undan-
förnum árum sýnt flugfþrótt-
inni geysimikinn áhuga og hafa
félagssamtök þar að lútandi
starfað um árabil. Má þar
nefna Svifflugfélag Sauðár-
króks, sem stofnað var árið
1952 og á reyndar ennþá tvær
svifflugur, er geymdar eru á
Akureyri. Árið 1978 var stofn-
aður Flugklúbbur Sauðárkróks
en hann gekkst fyrir myndar-
legum flugdegi á Sauðárkróki
ásamt Flugmálafélagi íslands
s.l. sumar og er áformað að
halda annan slíkan í júlí f
sumar.
Á Sauðárkróki er 2014 m löng
malarflugbraut og aöll aðstaða
til flugiðkana hin ákjósanleg-
asta. Nú síðast var stofnað
hlutafélagið Flugfélag Sauðar-
króks og hittum við að máli
Hauk Stefánsson sem er formað-
ur félagsins og inntum hann
frétta:
Hvenær var Flugfélag Sauð-
árkróks stofnað og af hverjum?
Það var hinn 22. apríl 1978 og
að því stóðu 37 einstaklingar
flestir frá Sauðárkróki en auk
þessa á Flugklúbbur Sauðar-
króks þátt í því.
Hver er tilgangur félagsins
og hvað hafið þið gert til þess
að stuðla að framgangi þess?
Tilgangurinn með stofnun fé-
lagsins er að kaupa og reka
flugvélar til kennslu og síðar
e.t.v. leiguflugs. Fljótlega eftir
TF-SKA á flugi yfir Sauðár-
króki. Ljósm.Tómas Hclgason
stofnun þess voru fest kaup á
nýrri kennsluflugvél frá Banda-
ríkjunum og kom hún í septem-
berbyrjun 1978. Var þá þegar
hafist handa um flugkennslu, en
kennari var ráðinn Haraldur
Baldursson frá Reykjavík. Síðla
í september hófst síðan bókleg
kennsla í samvinnu við Náms-
flokka Sauðárkróks til undir-
búnings fyrir einkaflugmanns-
próf, en námskeið þetta sátu 18
nemendur. Því lauk um miðjan
desember með tveggja daga
prófum sem tekin voru samtímis
flugskólanum í Reykjavík. í vet-
ur hefur síðan verið kennt á
flugvélina, eftir því sem hægt
hefur verið, en slæmt veðurfar
hefur hamlað kennslunni nokk-
uð. S.l. sumar var hafist handa
um að reisa 200 m2 flugskýli og
tókst það fyrir veturinn og gjör-
breytti aðstöðu okkar hér og
innan skamms verður settur
niður 12.000 lítra geymir við
flugvélastæðið fyrir flugvélaben-
sín, og leysir það stórt vandamál
hjá okkur.
Umsjón: JÓN
GRÍMSSON
Er grundvöllur fyrir flug-
rekstri í atvinnuskyni á Sauðár-
króki, t.d. leiguflugi?
Þetta er erfið spurning að
svara, en þó tel ég að grundvöll-
ur fyrir slíkum rekstri sé fyrir
hendi þó í smáum stíl sé. Við
höfum fengið þó nokkuð af fyrir-
spurnum um leiguflug héðan og
alltaf er nokkuð um sjúkraflug
svo líklegt er að hægt væri að
byrja í smáum stíl og auka þá
reksturinn ef með þarf.
Hver eru framtíðaráform fé-
lagsins?
Eins og sakir standa er helsta
verkefnið áframhaldandi
kennsla og geri ég ráð fyrir að
félagið þurfi að eignast aðra
flugvél mjög fljótlega, sem yrði
þá frekar notuð til sólóflugs, og
þá ef til vill fjögurra sæta.
Árangurinn af flugkennslunni er
þegar farinn að koma í ljós, og
þessa dagana er að koma til
Sauðárkróks fjögurra sæta vél
sem þrír nemendur hafa fest
kaup á í Svíþjóð og má þ.a.l.
búast við að fjórar flugvélar
verði á Króknum í sumar. Allt
þetta hefði ekki verið mögulegt
ef félagið hefði ekki notið sér-
staks velvilja og skilnings, jafnt
á Sauðárkróki sem annars stað-
ar.
Kennslu-
flugvélar
Ný Cessna 152 á Broma flugvelli í Stokkhólmi. Ljósm. J. Gr.
Snemma á dögum fluglistar-
innar tóku menn að smíða flug-
vélar er svo til eingöngu voru
ætlaðar til kennslu- og æfinga-
flugs. Þessar vélar höfðu það
flestallar sameiginlegt, að þær
voru auðveldar í meðförum fyrir
byrjendur svo og ódýrar í
rekstri. Það þýddi að þær yrðu
að vera búnar litlum og spar-
neytnum hreyfli jafnfram því að
hafa tiltölulega stóran væng og
stjórnfleti, til þess að þær létu
betur að stjórn í höndum
óreyndra manna. Eftir því sem
árin liðu og flugið varð almenn-
ingseign jókst þörfin fyrir
kennsluflugvélar mjög og eru
þær í dag algengustu gerðir
flugvéla nær hvert sem augum
er litið. Margir hafa haldið á
lofti þeirri skoðun að flugnám sé
hættuspil vegna þess að slys á
kennsluflugvélum séu tiltölulega
algeng, en staðreyndin er sú að
kennsluflugvélar eru það margar
að slysatíðnin í flugkennslu er
hverfandi lág.
Algengasta kennsluflugvél í
heiminum í dag er Cessna
150/152 sem jafnframt er al-
gengasta kennsluflugvél á ís-
landi. Byrjað var að framleiða
þessar vélar í lok sjötta áratugs-
ins og hafa. þær haldist nær
óbreyttar til dagsins í dag. Ár-
gerð 1977 kom með fyrstu um-
talsverðu breytingunum, þar eð
skipt var um hreyfil í vélinni og
settur Avco Lycoming 0—235
112 hö. í stað hins gamla Tele-
dyne Continental 0—200 100 hö.
Breyting þessi var fyrst og
fremst gerð vegna þess að nýtt
flugvélabensín hafði rutt sér til
rúms, en gamli hreyfillinn þoldi
einfaldlega ekki nýja drykkinn.
Piper verksmiðjurnar í
Bandaríkjunum gerðu garðinn
frægan með framleiðslu sinni á
Piper Cub kennsluvélum á árun-
um frá 1940—50. Cubinn var og
er ein vinsælasta smáflugvél í
heimi ásamt Piper Super Cub
sem enn er framleidd við góðan
orðstír. Eftir að hætt var fram-
leiðslu á Piper Cub fóru Piper út
í gerð Piper Colt en sú vél naut
ekki nærri eins mikilla vinsælda
og hin fyrri. Framleiðsla á
kennsluflugvélum hjá Piper hef-
ur æ síðan legið að mestu í
láginni þar til framleiðsla á
Piper Tomahawk hófst í fyrra-
vetur. Við smíði þessarar vélar
er tekið tillit til þeirra höfuð-
kosta kennsluflugvéla er getið er
um í upphafi þessa spjalls, en
auk þess er tekið mið af sjónar-
miðum flugkennaranna sjálfra,
að sögn talsmanna Piper fyrir-
tækisins. Má þar aðallega marka
aukið rými í stjórnklefa og betra
útsýni. Þessi tvö atriði í saman-
burði við Cessna 150/152 slá
hinni síðarnefndu algerlega við.
Annar samanburður orkar tví-
mælis og verður ekki lagður
dómur á það á þessum vettvangi
en ýmsir aðilar hafa bent á
yfirburði Cessna 150/152 í ýms-
um flugraunum.
Þegar hafa verið framleiddar
yfir 1000 Piper Tomahawk vélar.
Tvær hafa verið keyptar til
íslands, til Sauðarkróks og Ak-
ureyrar. Nokkrar Cessna
150/152 eru í pöntun til íslands
og má segja að samkeppni þess-
ara tveggja flugvélategunda
aukist hröðum skrefum jafnt hér
á landi sem annars staðar.