Morgunblaðið - 30.06.1979, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ1979
11
„Sjálfsagt að setja
síðasta söludag á
kayíardósirnar,,
— segir Þorsteinn Jónsson hjá Arctic hf.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti:
Nemendur verða 300 fleiri
næsta vetur en var í vor
„ÉG VEIT því miður ekki ná-
kvæmlega í hver ju þessar athuga-
semdir Neytendasamtakanna og
Rannsóknastofnunar fiskiðnað-
arins felast, því fulltrúar þessara
aðila hafa ekki séð ástæðu til að
hafa samband við fyrirtæki okk-
ar og kannski ekki ástæða til.
Þær fréttir, sem ég hef haft af
þessu eru því af afspurn,“ sagði
Þorsteinn Jónsson, verksmiðju-
stjóri hjá Fiskiðjunni Arctic h.f.
á Akranesi. „Hitt er annað mál
að mér skilst að þetta sé út af
merkingum á kavíarglösunum og
þar á ég við dagsetningu á
framleiðsludegi og síðasta sölu-
degi. Framleiðsludagurinn er á
öllum glösunum hjá okkur en
síðasti söludagur ekki og það er
réttmæt athugasemd að sjálfsagt
FÍ á Baulu
ogumKrísu-
víkurbjarg
Á sunnudag verða tvær göngu-
ferðir á vegum Ferðafélags
íslands. í þá fyrri verður lagt
af stað kl. 09.00 og gengið á
Baulu í Borgarfirði. Baula er
934 m á hæð og blasir við
sjónum þeirra, sem aka veginn
um Norðurárdal eða yfir
Bröttubrekku. Af Baulu er
mikið og gott útsýni yfir meg-
inhluta Borgarfjarðarhéraðs,
til jökla og allt norður yfir
byggðir Dalasýslu, svo eitthvað
sé nefnt.
Bergið í fjallinu er líparít og
er Baula gott dæmi um lögun
fjalla úr þeirri bergtegund.
Sú þjóðsag'a er um fjallið að
uppi á tindinum sé tjörn og í
henni óskasteinn. Steinninn
flýtur upp einu sinni á ári, og
heppnist manni að ná haldi á
steininum, fær hann ósk sína
uppfyllta. Ekki er kunnugt um
neinn, sem hefur séð tjörnina,
eða hreppt óskasteininn.
Gangan á fjallið tekur um 5
klst. fram og aftur.
Síðari ferðin hefst kl. 13.00
og verður gengið um Krísuvík-
urbjarg, en það er þekkt fyrir
fjölbreytt fuglalíf. Þar m.a.
margt annað að skoða, s.s.
Ögmundarhraun, en það mun
hafa runnið um 1340 í miklu
gosi, sem þá varð og getið er
um í samtímaheimildum. Þetta
er róleg gönguferð og við hæfi
allrar fjölskyldunnar.
(Fréttatilk. frá FÍ)
ætti sú dagsetning einnig að vera
á dósunum.“
„Varðandi þetta glas frá 1977 þá
veit ég ekki af hverju það er á
markaðnum í dag, því við fram-
leiðum aldrei kavíar nema eftir
pöntunum, geymsluþolið er það
lítið. Og er þá yfirleitt miðað við 6
til 8 mánaða geymsluþol varðandi
ógerilsneyddan kavíar. Þegar við
höfum framleitt kavíarinn þá er
hann sendur til Rannsóknastofn-
unar fiskiðnaðarins og þar tekur
það 21 dag að fá niðurstöðu úr
sýnum og fyrr getum við ekki sett
kavíarinn á markað. Þessi 21
dagur og framleiðslutíminn er því
eini tíminn sem kavíarinn stoppar
í verksmiðjunni.
Eg geri fastlega ráð fyrir að
ástæðu þess að fyrrnefnd dós frá
1977 er á markaði nú megi rekja
til þess að hún og kannski fleiri
dósir frá sama tíma hafi verið
lengur í sölumeðferð eftir að hún
fór frá okkur heldur en geymslu-
þol hennar leyfði. Þessi kavíardós
hefði átt að vera seld fyrir löngu
eins og framleiðsludagsetningin
gefur til kynna," sagði Þorsteinn
að lokum.
Frá Jan Erik Laure, fréttaritara
MorKunblaÖHÍna í Ósló.
FYRIRTÆKJASAMSTEYPAN
Nork Hydro var snemma árs
1975 í sambandi við íslendinga
til könnunar á möguleikum á
olíusölu. Áhugi Norðmanna á því
að seija olfu til íslands dofnaði þó
og kom aldrei til samningavið-
ræðna vegna olíuviðskipta, að því
er Morgunblaðinu er tjáð.
Á árinu 1975 átti Norsk Hydro
60% eignaraðild að olíuhreinsun-
arstöðinni miklu við Mongstad í
námunda við Bergen, en stöðin tók
til starfa sumarið 1975. Þá átti
Norsk Hydro 2,5 milljónir tonna
þeirra 4 milljóna tonna, sem
hreinsaðar voru í Mongstad. Um
þetta leyti hafði Norsk Hydro
umráð yfir umframmagni á olíu-
vörum og leitaði markaðs fyrir
þær.
— Ég get staðfest, að árið 1975
áttum við viðræður við mörg
önnur ríki til að kanna hvar til
greina kæmi að selja olíu okkar.
Eg legg áherzlu á að aldrei kom til
AFHENDING prófskírteina til
kandídata fer fram við athöfn í
Háskólabíói á laugardaginn.
Athöfnin hefst með því, að Sigurð-
ur Snorrason, Manuela Wiesler og
Hafsteinn Guðmundsson flytja
tónlist eftir Mozart. Rektor há-
skólans, prófessor Guðlaugur
Þorvaldsson flytur ávarp, og
Nemendur Fjölbrautaskólans í
Breiðholti verða væntanlega 300
fleiri næsta vetur en þeir voru á
síðastliðnu námsári, að því er
Guðmundur Sveinsson skóla-
meistari tjáði Morgunblaðinu í
gær. í fyrra voru nemendur
skólans um 1050, en verða senni-
lega milli 13 og 14 hundruð
næsta vetur.
Að sögn Guðmundar er nægi-
legt húsrými fyrir hendi fyrir
beinna samningaviðræðna við ís-
lendinga, segir blaðafulltrúi
Norsk Hydro, Jon Storækre, í
samtali við Morgunblaðið.
Blaðið hefur það eftir heimild-
armönnum sínum, að ástæðan
fyrir því að Norsk Hydro hafi ekki
tekið þann kost að selja olíuna til
íslands sé sú, að olíuþörf íslend-
inga hafi verið of lítil til þess að
fyrirtækinu, sem á þessum tíma
var að hasla sér völl sem nokkurs
konar olíuveldi, þætti taka því að
veðja á ísland í því sambandi. Lítil
ástæða var til að ætla að sala
þangað mundi aukast á næstu
árum, og þannig hafi íslenzki
markaðurinn ekki verið nógu álit-
legur. Síðar sneri Norsk Hydro sér
að danska og sænska markaðnum.
Hydro hefur nú komið sér upp
eigin sölukerfi í Danmörku og
rekur þar meðal annars bensín-
stöðvar, sem bera nafnið Vik-
ing-olje. Þá selur Hydro verulegt
magn olíu til húsahitunar í Dan-
mörku. í Svíþjóð selur fyrirtækið
hinsvegar tiltölulega lítið af ben-
deildarforsetar afhenda prófskír-
teini. Háskólakórinn syngur nokk-
ur lög, stjórnandi frú Rut Magn-
ússon.
Að þessu sinni verða braut-
skráðir 256 kandídatar og skiptast
þeir þannig: Embættispróf í guð-
fræði 6, B.A.-próf í kristnum
fræðum 1, embættispróf í læknis-
fræði 45, aðstoðarlyfjafræðings-
próf 5, B.S.-próf í hjúkrunarfræði
13, embættispróf í lögfræði 26,
kandídatspróf í viðskiptafræði 27,
kandídatspróf í íslenskum bók-
menntum 1, kandídatspróf í sagn-
fræði 3, kandídatspróf í ensku 1,
B.A.-próf í heimspekideild 37, próf
í íslensku fyrir erlenda stúdenta 4,
lokapróf í byggingarverkfræði 22,
lokapróf í vélaverkfræði 7, loka-
próf í rafmagnsverkfræði 7, fyrri-
hlutapróf í efnaverkfræði 1, B.S.-
próf í raungreinum 37, kandídats-
próf í tannlækningum 4, B.A.-próf
í félagsvísindadeild 9.
kennsluna, og eru í skólanum milli
50 og 60 skólastofur. Til að mæta
hinni miklu fjölgun-nemenda sem
verða mun næsta vetur koma í
gagnið sex kennslustofur, en þær
voru í fyrra lánaðar Hólabrekku-
skóla. Skólinn á hins vegar við
nokkur vandræði að glíma í hús-
næðismálum, þar sem enn er ekki
byrjað á framkvæmdum við
E-álmu skólans, stjórnunarálm-
una. Þar verða til húsa lestrarsal-
síni, en þeim mun meira af olíu til
húsahitunar. Þannig hafa Dan-
mörk og Síþjóð verið mun álitlegri
markaðssvæði en ísland og því
hefur Norsk Hydro ekki haft
áhuga á að selja olíu til íslands.
í dag, 28. júní, birtast í Morgun-
blaðinu viðtöl við tvo framleiðend-
ur lagmetis, þá Kristján Jónsson
og Sverri Matthíasson. Tilefnið
var blaðamannafundur Neytenda-
samtakanna, þar sem var m.a.
fjallað um skýrslu Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins um þrjú
sýni af innlendu lagmeti.
Eftirfarandi athugasemdir við
viðtölin óskast birt í Morgunblað-
inu eins fljótt og kostur er:
Kristján Jónsson heldur því
fram, að í reglugerð frá árinu 1976
sé kveðið á um eftirlit með fram-
leiðslu lagmetisverksmiðja og sé
þetta eftirlit í höndum Heil-
brigðiseftirlitsins og Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins. Hafi
blaðamaður Morgunblaðsins haft
ummælin rétt eftir Kristjáni er
ástæða til að ætla, að Kristján
hafi ruglað saman tveimur reglu-
gerðum frá árinu 1976. Önnur
fjallar um „tilbúning og dreifingu
matvæla og annarra neyslu- og
nauðsynjavara" en hin um „fram-
leiðslu, eftirlit og útflutning á
lagmeti". I þeirri fyrri er Heil-
brigðiseftirlit ríkisins helsti fram-
kvæmdaraðili, en á þeirri síðari
eiga Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins og Framleiðslueftirlit
sjávarafurða að sjá um fram-
kvæmd. Fyrri reglugerðin fjallar
eingöngu um matvæli og neyslu-
vörur innanlands en sú síðari
eingöngu um lagmeti úr sjávaraf-
urðum, sem er flutt út.
Rannsóknastofnunin tekur því
engan þátt í eftirliti á matvælum
á innlendum markaði, en rannsak-
ar auðvitað einstök sýni sem send
eru til hennar. Þetta hlýtur
Kristjáni Jónssyni að vera ljóst
ir, bókasafn, vinnuaðstaða fyrir
kennara, skrifstofur, þjónustu-
aðstaða og fleira, og sagði Guð-
mundur Sveinsson að lögð væri
talsverð áhersla á að fá þessa
álmu í gagnið. Kvaðst hann raun-
ar ekki vera úrkula vonar um að
byrjað yrði á framkvæmdum á
þessu ári, jafnvel að grafið yrði
fyrir álmunni og steypt botnplata.
Sagði hann fjármagn hins vegar
vera af skornum skammti, en
kostnaður við byggingu þessarar
E-álmu mun vera áætlaður einn
milljaður króna. Stjórnunarálman
verður all stór, eða 11 hundruð
fermetrar, á þremur hæðum, sam-
tals 3300 fermetrar að stærð.
Jafnhliða stjórnunarálmunni á að
rísa skólasmiðja, en það er skáli,
1050 fermetrar að stærð. Þegar er
ein slík skólasmiðja fyrir hendi,
en þær eiga að verða þrjár þegar
allt verður komið í kring. í
skólasmiðjunum eru ýmis verk-
stæði og aðstaða fyrir nemendur
skólans á verknámsbrautum.
því hann tók þátt í gerð reglugerð-
ar um framleiðslu, eftirlit og
útflutning á lagmeti.
Kristján segir ennfremur, að
hann hafi ekki séð umsögn Rann-
sóknarstofnunarinnar um gaffal-
bitadósina. Neytendasamtökin
sendu sýnin í rannsókn. Þau
greiða kostnað af henni skv. gjald-
skrá og eiga því niðurstöðurnar.
Kristján á hins vegar niðurstöður
athugana, sem stofnunin gerði í
janúar síðastliðnum, þar sem m.a.
voru skoðaðar 25 dósir af fram-
leiðslu 26. október 1978.
Sverrir Matthíasson, forstjóri
Eldeyjarrækjunnar s.f. harmar að
ekki va: haft samband við hann,
og gat áann af þeim sökum ekki
hagað framleiðslu sinni eftir
ströngustu kröfum. Hann kveðst
ekki hafa fengið nein svör vegna
sýna, sem hann sendi Rannsókna-
stofnuninni í febrúar s.l. því er til
að svara, að hann hlýtur að vera
búinn að gléyma samtali okkar í
mars, þar sem honum var bent á
að alltof mikið natríum benSóat
(rotvarnarefni) hefði mælst í sjó-
laxi frá fyrirtæki hans. Honum
var einnig bent á, að merking
dósanna var röng að ýmsu leyti og
í trássi við reglugerð nr. 250 frá
1976. Honum var síðar send
skýrsla um saltmælingu, gerla-
talningu og vigt á þeim dósum,
sem stofnunin fékk. Fyrirtæki,
sem vill framleiða eftir ströngustu
kröfum þarf þó varla bréf frá
ríkisstofnun til þess að sjá þegar
fiskmagn í dósum þess er aðeins
þriðjungur af rúmmáli þeirra.
Jón Ögmundsson,
Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins.
/ GALLERÍ Háhól á Akureyri
verður ( dag, laugardag, klukk-
an 15 opnuð málverkasýning,
þar sem sýndar verða myndir
eftir Jónas Guðmundsson. Að
sögn Jónasar er meginuppistað-
an í þessari sýningu þau verk,
sem voru á sýningunni í Nor-
ræna húsinu fyrir um mánuði
síðan. AIIs verða um 40 myndir á
sýningunni í Háhól. Sýningin
verður opin 20—22 á virkum
dögum, en 15—22 á laugardög-
um og sunnudögum.
Islandsmarkaðurinn of
lítill fy rir N orsk Hy dro
256 kandídatar braut-
skráðir frá Háskólanum
Eftirlit með innlendu lagmeti:
Athugasemd
— frá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins