Morgunblaðið - 30.06.1979, Page 13

Morgunblaðið - 30.06.1979, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 1979 13 um. En skömmu síðar stytti upp og brátt var komið glaða sólskin. Veiði- menn voru að vonum ekki allskostar ánægðir með þessi veðrabrigði því veiðivonin minnkaði að sama skapi. Fyrir utan veiðihúsið hitti Mbl. Magnús Valdimarsson veiðivörð oog spurði hann um veiðina að undan- förnu og framtíðarhorfur. „Veiðin hefur verið í algeru lág- marki frá byrjun og er mjög lítill lax genginn í ána. Veiði hófst sem kunnugt er þann 10. júní og hefur verið mjög treg það sem af er. Um 30 laxar hafa veiðst hingað til en á sama tíma í fyrra höfðu 72 laxar komið á land. Nú eru komnir 20 fiskar upp fyrir teljarann en voru 200 fyrir ári og má því segja að hann sé mjög seint á ferðinni núna. Erfitt er að nefna eina ákveðna ástæðu fyrir þessu, menn telja að annað hvort áin eða sjórinn sé kaldari en vanalega og laxinn sé því seinna á ferðinni nú en endranær." — Hvar í ánni hafa þessir fiskar veiðst? „Aðallega neðarlega í ánni, þó hafa tveir fiskar komið upp úr þrepunum, sem eru veiðistaðir ofan við félagsheimili rafveitunnar. Einn og einn fiskur hefur sést ofarlega í ánni en ekki svo neinu nemi, hann er aðallega hér niður frá.“ í þann mund bar að þaulkunnugan mann og annálaða aflakló. Færði hann þær fregnir, að mikil ganga væri í ánni og fullt af fiski á breiðunni neðan við brúna. Taldi hann horfurnar með glæsilegasta móti og merkilegt væri ef ekki veiddist vel á næstunni. Taldi hann sig hafa séð stórlaxa innan um, en þeir eru sem kunnugt er fremur sjaldséðir í Elliðaánum. Við þessar óvæntu fréttir hýrnaði yfir veiði- verði og blaðamanni og brugðu þeir við hart og héldu niður að brú. Var þá rýnt í hylinn, en vegna glampans á vatninu gekk þeim illa að sjá alla laxamergðina, enda illa búnir til augnanna. Var þá haldið upp að fossi og spjallað við menn sem þar voru að veiðum, en þar voru þeir feðgar Þorkell Þórðarson og Þorður Þör- kelsson sem veitt hafa í Elliðaánum árum saman. Mbl. spurði Þórð að því hvernig gengið hefði þá um daginn. „Það hefur gengið vel hjá okkur, við höfum fengið tvo fiska núna eftir hádegið. Annar tók í fossinum sjálf- um en hinn á breiðunni fyrir neðan hann og báðir tóku þeir maðk. Þeir eru af þessari venjulegu Elliðaáa- stærð, 5 — 6 pund, en feitir og fallegir fiskar. Við höfum orðið varir við töluvert af fiski á breiðunni og hann er örugglega að ganga í ána nú.“ — Hvernig gekk veiðin í morgun? „Það var dræmt, aðeins einn fisk- ur kom upp fyrir hádegið, hins vegar hafa fjórir veiðst nú seinnipartinn. Annars er ekki að undra þó illa gangi, því óvenju lítið er af fiski í ánni. Við feðgarnir megum hins vegar vel við una, við höfum þó allavega orðið varir, því deginum er bjargað, fái maður fisk,“ sagði Þórð- ur Þorkelsson og hélt til veiða á ný. — ój. Agnid borid á borð íyrir spegiifagran lónbúann — að veiðum í Laxá í Kjós. Ljósm. Mbl. RAX. gjöful svo og Lækjarbreiðan að ógleymdum Kvíslarfossi sem er einn besti veiðistaðurinn og sá helsti um þessar mundir. Besta veiðisvæðið núna nær frá Lækjarbreiðu að Foss- breiðu, þar hefur allur fiskurinn veiðst. Þó ber að geta þess að einn lax í Pokafossi lét ginnast af girni- legri beitu, en Pokafoss er veiðistað- ur ofarlega í ánni. Þetta er eini laxinn sem veiðst hefur svo ofarlega en hann náðist þann 13. júní.“ — Hvaða beita hefur mest verið notuð? „Maðkurinn hefur verið vinsælast- ur að undanförnu, þó hefur lítið eitt veiðst á flugu. Hins vegar verður brátt breyting þar á því útlending- arnir koma um mánaðamótin, en þeim er aðeins heimilað að veiða á flugu. Þó að þeir noti einungis fluguna veiða þeir síst minna en íslendingarnir, sem margir hverjir eru hrifnastir af maðkinum." — Hvernig hefur viðrað til veiða síðustu daga? „Það hefur verið nokkuð gott veiðiveður, skýjað og gengið á með rigningu, en því skammrifi fyrlgir þó sá böggull að áin vex töluvert og gerir því veiðina örðugri. Einnig hefur áin verið nokkuð köld og tel ég Ánægðir veiðimenn, þeir Guðjón Ó. Jónsson og Bjarni Kristófers- son. með afla morgunsins. það aðalástæðuna fyrir því að ekki er meira gengið af laxi en raun ber vitni. Hins vegar hefur áin hlýnað síðustu daga og útlitið vænlegt." Elliðaárnar: „Veiðin í algeru lág- marki“ Er að Elliðaánum kom var skýjað og dumbungur og gekk á með skúr- 'jippiM Ha. er óklárt? Guðjón ó. Jónsson að veiðum í Miðfelisfljóti í Laxá í Leirársveit í „góðu veðri". dumhungi og rigningarsudda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.