Morgunblaðið - 30.06.1979, Side 15

Morgunblaðið - 30.06.1979, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ1979 15 Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON kvæmu stigi og eru margar skoð- anir uppi hvað gera skuli svo sem allir vita. Persónulega finnst mér húsaröð þessi mjög falleg a.m.k. sá hluti sem að Lækjargötu snýr, en þó gæti ég vel fallist á að upp risi á staðnum ný húsaröð í nokkuð stærra umfangi en mjög í stíl við þá gömlu. Yrði það íslenzk byggingarlist byggð á danskri hefð. Breikkun Lækjargötunnar hafði á sínum tíma mjög slæm áhrif til hins verra á heildarmynd götunnar og hún bíður þess aldrei bætur, einkum eftir að væn sneið var tekin af Stjórnarráðsblettin- um. Kannski muna ekki allir eftir Menntaskólalóðinni eins og hún var og hét þá er fyrst var farið að raska Lækjargötu, né eftir ske- leggri baráttu Boga Ólafssonar yfirkennara skólans á móti fram- kvæmdunum. Til voru menn og þar á meðal var ég, sem báru jafn mikla virðingu fyrir þessum lóð- um og menn bera fyrir Austurvelli og Arnarhólstúni í dag. Þær juku hvor á sinn hátt stórlega á reisn húsanna. I dag finnst mér Lækjar- gatan öll líkust halaklipptum hundi og húsin við hana fá aldrei sömu reisn og fyrr í mínum augum. Þetta álit mitt mátti vel koma fram hér og þó tel ég mig með einlægustu húsafriðunar- mönnum hérlendis. Það má greinilega sjá það á myndverkum Magnúsar Tómas- sonar, að hér var gott efni á ferð sem fljótlega myndi taka mikl- um breytingum, spursmálið hef- ur einungis verið hvers eðlis þær yrðu og í hvaða átt listamaður markaði sér stefnu á hæðina. Hér var um alls konar tilraunir með efniviðinn að ræða og mað- ur sér skýrt á vinnubrögðunum hinn hikandi og óráðna unga mann. Myndirnar eru þó merkilega samstæðar svo að maður freist- ast jafnvel til að álykta, að Magnús hafi verið nokkuð inn- hverfur og feiminn í þann tíma, — lifað í eigin heimi og verið hrifinn af einum listamanni í einu, en síður leitað fanga í allar áttir eins og margir hrifnæmir ungir menn gera á þessum aldri. Pastelmyndirnar á sýningunni eru öllu aðgengilegri sökum hinnar fögru áferðar litanna en hins vegar finnst mér meiri veigur í hinum betri olíumál- verkum. Meira af veruleikanum sjálfum, hráum og köldum, en minna af dreymni og rómantík líkt og í pastellitunum. Magnús mun að sögn hafa fundið þessar myndir sínar í gamalli möppu og látið sér detta í hug að sýna þær í sínu rétta og upprunalega umhverfi. Það var vel til fundið og mættu fleiri myndlistarmenn leita í fórum sínum að gömlu myndum, þar er falinn þó nokkur fróðleikur um viðkomandi og menn kynnast þeim frá öðrum og upprunalegri hliðum. Á slíkt upplýsinga- streymi vel við yngri kynslóðir, sem eingöngu þekkja myndir frá síðustu árum og eiga þess lítinn eða engan kost að kynnast myndlistarmönnunum frá öðr- um hliðum. Gerla — Það skal fúslega viðurkenn- ast, að sá er hér ritar var nokkuð svartsýnn er hann arkaði á sýn- ingu Guðrúnar Erlu Geirsdóttur (Gerlu) í matstofunni „Á næstu grösum". Eftir myndum í blöðun- um að dæma var ekki heldur ástæða til bjartsýni, því að hlut- irnir á myndunum minntu sterk- lega á það senj t.d. Claes Olden- burg var að gera fyrir 15 árum og Kveðja til Jóns Helgasonar prófessors á áttræðisafmæli hans meir. Það kom líka á daginn, að hugmyndirnar eru mjög keimlíkar margar hverjar en Gerla setur þær í aðrar umbúðir. Gamalt vín á nýjum belgjum mætti gjarnan orða það. En það sem athygli vekur er að listakonan gerir þetta vel og af mikilli einlægni og sumar myndir hennar nálgast það að vera glettilega fyndnar t.d. mynd- verkið „Kvöld í París" og „Aperative". Gerla virðist mjög hrifgjörn og þannig var umhverf- isverk hennar á Kvennasýning- unni í Ásmundarsal að hluta til mjög í anda E. Kienholz, svo sem hann vann fyrir 10—15 árum, á móti komu svo hollenzk áhrif. Það er auðvitað ekki annað en heil- brigt er ungt fólk yerður fyrir áhrifum og sé tekið mið af því, hve alúðlega listakonan vinnur úr viðfangsefnum sínum má búast við sterkari og persónulegri hlut- um frá hennar hendi í framtíð- inni. Sigrún Eldjárn í Stúdentakjallaranum stendur þessa dagana yfir sýning á teikn- ingum og grafík eftir Sigrúnu Eldjárn. Sigrún er þegar orðin allþekkt fyrir mjög snortrar myndskreytingar í bækur og þátt- töku á samsýningum. Hún á mjög auðvelt með að teikna og ná þá skýrum og einföldum árangri, á stundum á þann veg að manni finnst þetta einum of skynsam- legt, slétt og fellt. Einhvern veg- inn vantaði baráttuna, slagsmálin við efniviðinn, sem ósjaldan lýkur eðlilega með herfilegum mistökum gerandans. Það virðist liggja í eðli Sigrúnar að mistakast sjaldan og ég get hér trútt um talað því að ég fylgdist vel með vinnubrögðum hennar í Myndlista- og handíða- skóla Islands, er hún stundaði nám þar. Síðan hefur leið Sigrúnar legið til Póllands og dvölin þar virðist í alla staði hafa haft góð áhrif á hana. Nýjustu myndir hennar bera .vott um meiri aga og auknar kröfur til þróttmikillar útfærslu. Einkum vöktu teikningar hennar óskipta athygli mína, hvort heldur í svart-hvítu eða í lit. Ég nefni hér nokkrar er höfðuðu sterkt til mín, „Brunahæna" (2), „Rennilás" (3), sem sennilega er listrænasta myndin á sýningunni og „Galli" (5). Mér þykir einsýnt af þessari sýningu að Sigrún hefði gott af því að einbeita sér að teikningunni um stund, jafnvel á kostnað graf- ík-listarinnar, — eða t.d. vinna í fleiri tegundum grafík en málm- grafíkinni. Bragi Ásgeirsson. Árið 1946 fór ég til Kaupmanna- hafnar til framhaldsnáms í verk- fræði. Á þeim árum var sú borg ekki svo syndum spillt sem hún er í dag, enda höfðu Danir ekki fundið upp pornóið, sem tröllríður þar húsum nú á tímum. Engu að síður þótti það nokkur trygging að magur námsmaður (þetta með líkamsburðina var staðreynd þá) hefði eitthvert gott athvarf, og voru ýmis spjót höfð úti til að koma slíku athvarfi á, og þar á meðal íslendinga í borginni. Frændi minn góður skrapp með mér í Árnasafn og kynnti mig þar fyrir stórum manni og góðlegum, sem reyndi heilmikið til að sýnast fráhrindandi. Sá skrápur var ekki þykkari en svo, að alls staðar skein góðmennskan þar í gegn. Hann taldi að ég mætti svo sem koma heim til hans, en ekki væri víst, að neitt væri þar að borða, sem bjóða mætti gestum, og hnussaði við. Strax um kvöldið fór ég með frænda mínum heim til hans á Kjærstrupveg 33 í Valby. Var mér þar tekið eins og ég hefði verið alinn upp með fjölskyldunni og komst þar á mikill vinskapur. Auk Jóns voru á heimilinu kona hans Þórunn Björnsdóttir, kona í aigerum sérflokki, og börnin Helgi, sem er á líku reki og ég, og Solveig, sem er nokkuð yngri. Birni, syni þeirra hjóna, hafði ég kynnzt sem bekkjarbróður mínum í menntaskóla, en hann var að vísu í máladeild, sem við stærðfræði- deildarstúdentar virtum svona rétt mátulega mikils. Leiðir okkar Helga lágu mikið saman, og mátti stundum heyra mikinn hávaða úr garðinum á Kjærstrupvegi, þegar krokket var leikið þar af mikilli innlifun. Mátti þá stundum heyra gelt í hundum nágrannans, og stundum einnig í honum sjálfum, þótt hann virtist vera mikið prúðmenni eins og Dana er yfirleitt siður. I garði Jóns var man ég stórt kirsuberjatré, og vorum við Helgi ólatir að príla upp það. Á vissum árstímum var þar mikið um ber og vorum við velkomnir að tína þau og éta, svo sem okkur lysti, en ekki nýttust slík ber húsmóðurinni. Aldrei kom orð um það. Einn var sá aðili á heimilinu, sem ekki hefur verið nefndur. Var það heimiliskötturinn. Jón sýndi honum ótakmarkaða blíðu og virð- ingu, og var hvort tveggja ríku- lega endurgoldið af kattarins hálfu. Náttúra katta kemur fram í því, að þeir verða ellidauðir fyrr en mannskepnan, og dó hann. Syrgði heimilisfólk allt hann mjög, og tók enginn gleði sína aftur fyrr en stúdent og heimilis- vinur kom með bröndóttan kettl- ing, sem þegar fékk nafnið Brand- ur Árnason, en Árni hét gefand- inn. Af ferfættum skepnum þykir Jóni mest koma til kattarins, og hefur hann ort um hann mörg kvæði og dýrt kvefin á stundum. Það hafa mér sagv. fróðir menn, þar eð ég hef afar lítið vit á kvæðum, að ekki séu í þeim gallar á bragarhætti, enda hefur Jóni ekki áskotnast neitt af þeim miði, sem myndaðist við flótta Bölverks til Ásgarðs, en sá mjöður er mikið nýttur sem stendur af alis kyns Keflavíkurflugvöllur: Nýi flugtuminn opnaður á mánudag NÝI flugturninn á Keflavíkur- flugvelli verður formlega opnað- ur á mánudag af þeim Benedikt Gröndal utanríkisráðherra og Richard A. Ericson sendiherra Bandarikjanna á íslandi. Kostn- aður við byggingu flugturnsins nemur um hálfum öðrum mill- jarði króna. skáldum, sem ekki kunna að yrkja rímað, en skáldskapur þeirra er kenndur við leir. Heimili Jóns og Þórunnar var öllum opið og allir voru þar velkomnir. Þegar námi mínu var lokið, reyndum við Jón að reikna út, hve oft ég hefði rekizt þar inn á námstímanum. Reyndist það hafa verið um 400 sinnum á 2% ári eða samkvæmt vísindakenningum stærðfræðinnar 9 daga af hverjum 20, svo að ekki var óvild húsráð- enda í minn garð fyrir að fara. Sagði Þórunn mér mörgum ár- um seinna, að henni hefði alltaf fundizt ég vera að koma, þegar hún heyrði skelli í mótorhjóli úti á götu, en slíkt eintak hafði ég undir höndum á lærdómsárunum í Kaupmannahöfn, og reyndar ekki af hávaðaminnsta tagi. Ég þykist geta trútt um taíað, að alíur var heimilisbragur á Kjærstrupvegi hinn íslenzkasti. Öíl var gestrisni í hefðbundnum, íslenzkum stíl, allt málfar var með sýnu íslenzkari hætti en hér heima og umtal um alla menn einkenndist af góðvild í þeirra garð. Aldrei var orði hallað til neinna, og geri ég þó ráð fyrir að hugsun til manna hafi verið nokk- uð misjöfn. Oft var gestkvæmt á heimili þeirra, svo sem sjá má af mynd, einni af afar mörgum, sem teknar voru á heimilinu þessi árin. Mér hefur orðið nokkuð tíðrætt um heimilisbraginn hjá Þórunni og Jóni á námsárum mínum, en Jón hefur einnig gert fleira en sinna heimili sínu. Hann hefur verið virtasti meistari í íslenzkum handritarannsóknum í hartnær hálfa öld, og er þá mikið sagt. Eitt sinn sýndi hann mér gömul hand- rit í Árnasafni, og voru þau gulnuð mjög. Benti ég honum á, að unnt mundi að ljósmynda þau með litsíu og prófaði það með gulum „filter". Myndin, sem kom út, var skýrari en handritið, og varð það til þess að Jón sneri sér til lögreglunnar í Kaupmannahöfn og fékk þá til að koma sér til hjálpar í að lesgreina handritin, sem sum voru orðin harla bágborin. Árang- urinn er alkunnur. Einni hlið Jóns kynntist ég ekki á námsárum mínum. Þá var ekki til sjónvarp, en fyrir nokkrum árum var Jón valinn til að vera dómari í sjónvarpskeppni einni mikilli í Stokkhólmi. Vakti hann þar mikla gleði Skandinava sem einstök stjarna í sjónvarpinu og hafa þó nokkrir nefnt þetta við mig að fyrra bragði og það árum eftir þann atburð. Jón vinur minn: Ég þakka þér og þínum alla velvild í minn garð allt frá fyrstu tíð og finnst mér, að líf mitt væri sýnu fátæklegra, ef ég hefði farið á mis við vináttu ykkar, sem mér áskotnaðist ger- samlega óverðskuldað. Ég vil óska þér og þínu fólki öllu gæfu og gengis um ókominn tíma. Sveinn Torfi Sveinsson útgeröarmenn ! Höfum veriö beönir aö útvega erlendu útgerö- arfélagi nokkur notuö togveióiskip. Skipin þurfa aö vora úr stáli i góðu standi, mesta iengd 20—30,5 m, þ.e. innan við 100 fet og aðalvél ekkt yfir 500 hö. Upplýsingar í síina 19711, kvöld- og helgarsími 74156. Guðmundur Karlsson, Austurstræti 17, 5. h. Harald Theodorsson frá Svíþjóö flytur erindi meö litskyggnum, sem nefnist Áret runt i Gagnef í fyrirlestrasal Norræna hússins sunnudaginn 1. júlí 1979 kl. 16:00. Veriö velkomin Norrænahúsið Sýningin Myndir frá íslandi er opin í sýningarsölum hússins daglega kl. 14—19. Sýningunni lýkur 8. júlí. NORRTNA HUSIO POHjOLAN TAIO NORDENS HU5 Magnús Tómasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.