Morgunblaðið - 30.06.1979, Page 18

Morgunblaðið - 30.06.1979, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ1979 á hættu að persónuleg viðhorf hans séu túlkuð sem stefna ríkisstjórnar. Hann tekur því í ríkara mæli en ella þá áhættu að verða að segja af sér embætti, ef sjónarmið hans verða undir. Breyttir tímar Tilgerð og tvískinnungur hef- ur verið býsna þrálátt einkenni stjórnmálalífs hér á landi. Meðal aðildarflokka að ríkisstjórn hef- ur ágreiningur lengst af verið „tabu“. Honum skyldi ráðið til lykta fyrir læátum dyrum. Til almennings mátti helst ekki berrast annað en samhljómur radda, vitnisburður samstöðunn- ar, sem oft var þó reyndar alls ekki fyrir hendi. Síðustu vikurn- ar fyrir kosningar hófst loks um raupsemi ráðherra Magnús H. Magnússon félagsmálaráðherra: Nokkur orð í grein eftir Vilmund Gylfa son, sem birtist í Dagblaðinu í síðustu viku um farmannadeil- una og gerðardómslögin svonefndu segir hann m.a. að „kjánalegir ráðherrar hafi stór- spillt fyrir í þessari vinnudeilu" og að „sífellt verið að gjamma á lagasetningu". Við Vilmundur áskiljum okkur að sjálfsögðu báðir fullan rétt til að hafa andstæðar skoðanir á einstökum málum og lýsa þeim skoðanamun. Eg tel þó betur fara á því að þau skoðanaskipti séu málefnaleg og skattyrðalaus, a.m.k. þegar vettvangur /þeirra eru síður dagblaðanna. Við eig- um annan umræðuvettvang þar sem skárra er að brúka köpur- yrðin. Ákveðin efnisatriði máls- ins verðskulda hins vegar um- fjöllun og þá ekki síst fyrir það, að þau virðast orðin einhvers konar tugga, sem hver tekur upp eftir Öðrum, allt frafleikmönnum að vestan, sem stunda lögskýr- ingu í frístundum, til alvarleg- ustu flokksformanna. Viðhorf til fjölmiðlunar Eitt þeirra mála sem nýskip- aður ráðherra hlýtur að íhuga og taka afstöðu til eru væntanleg samskipti við fjölmiðla. Þótt mikill fjöldi mála, sem koma til umfjöllunar í ríkisstjórn og ráðu neytum, sé eðli mals samkvæmt trúnaðarmál eru þó hin málin einnig fjölmörg þar sem ráð herra hefur um það nokkurt val, hvort og hvernig hann tjáir sig um þau opinberlega. Það val er alfarið einstaklingsbundið. Sé horft um öxl má ljóst vera, að í þessu efni hafa einstakir menn markað sér ólíka stefnu. Fjöldi ráðherra hafa valið þann kost- inn að tjá sig helst ekki opinber- lega um neitt dægurmál nema þá helst á þann veg, sem hver og einn gat skilið að eigin vild. Það er öruggast og vandaminnst. Aðrir ráðherrar hafa verið til- tölulega opinskáir og hreinskipt- ir við fjölmiðla. Þann kostinn valdi ég þótt hann sé vandasamari en jafn framt áhættusamari. Hann er vandasamastur vegna þess að mörk nauðsynlegs trúnaðar eru oft óljós og matskennd. En hann er jafnframt áhættusamur því ráðherra, sem lýsir opinberlega viðhorfi sínu til mikilsverðra pólitískra ágreiningsmála á það upprifjun ágreiningsefna, síð- búin og ruglingsleg. Af þessu leiddi oftast það, að mat kjós- andans varð handahófskennt og réðist meira af áróðursmætti stjórnmálaflokkanna en réttri vitneskju um málefnin og við- horf einstakra flokka og manna. Sömu lögmál giltu að mestu um ágreiningsmál innan stjórnmála- eða þingflokka. Á þessu varð mikil breyting fyrir síðustu kosningar. Þjóð málaumræðan varð opnari og opinskárri. Hér kunna að hafa komið til áhrif hinnar svonefndu rannsóknarblaðamennsku en öllu fremur þó sókn margra ungra manna fram í víglínu stjórnmálanna, manna sem höfnuðu alfarið gamla laumu pokahættinum. Fyrir þann hóp er Vilmundur vissulega röggsamur fulltrúi. Þetta breytti stjórnmála starfseminni og bætti hana raunar á ýmsan hátt. Nú eru bókanir ráðherra á ríkisstjórn- arfundum birtar í fjölmiðlum. Áður hefði slíku sennilega verið jafnað við landráð. Ágreiningur stjórnarflokkanna er rakinn og tíundaður í hverju máli. Fólk kynnist ekki aðeins viðhorfum ríkisstjórnar og einstakra aðild- arflokka hennar. Það fær ítar- lega frásögn af viðhorfum ein stakra sotfnana, jafnvel ein stakra manna innan hvers flokks. Það lætur t.d. stundum nærri að segja megi að Alþýðu flokkurinn haldi nú sína þing- flokksfundi á síðum dagblað- anna. Þótt þessi nýja stefna þurfi að slípast, og verða til muna mál- efnalegri, er það mín skoðun að hún geti með tímanum orðið til bóta. Að blindingsleikur stjórnmála manna við kjósendur hafi gengið sér til húðar. Litaskiptin margfrægu fratsvörtu til hvíts og hvítu til svarts við hverja nýja stjórnarmyndun séu ó samboðin kjósendum, og beinlín- is skaðleg allri stjórnmálastarf semi. Afstaða mín til fjölmiðla tekur að sjálfsögðu mið af þess- um almennu viðhorfum. Er verkíall einkamál? I umræðu um afskipti mín og annarra af verkfalli farmanna er grundvallaratriðið það, hvort verkfall sé, a.m.k. á ákveðnum stigum þess, einkamál deiluað- ila. Einskonar feimnismál, sem lúti tilfinningalegum lögmálum fremur en rökrænum. hafi slíka sérstöðu meðal annarra við- fangsefna þjóðarinnar í efna Amnesty International: Öflugt starf ís- landsdeildar í 4 starfshópum íslandsdeild Amnesty International var á ferðinni í Austurstræti í gær og dreifði þar félagsriti deildarinnar ásamt með bæklingnum: „Týndu börnin í ArgentínuÞar í landi kemur það sem sagt fyrir að kornabörnin eru líka handtekin þegar foreldrarnir eru settir undir lás og slá vegna stjórnmálaskoðana sinna. (Ljósm. Ól.K.M.). AÐALFUNDUR íslandsdeildar Amnesty International fyrir árið 1979 var haldinn 12. júní sl. Á vegum deildarinnar starfa nú fjórir starfshópar. Tveir hóp- ar beita sér fyrst og fremst fyrir frelsi svonefndra samvizkufanga, þ.e. manna, sem fangelsaðir hafa verið fyrir stjórnmála- eða trúar- skoðanir sfnar, eða vegna kyn- þáttar, kynferðis, þjóðernis eða tungu sinnar. Hafa hóparnir á iiðnu starfsári unnið fyrir slfka fanga í Sovétríkjunum, Taiwan, Rhodesfu, Argentínu, Júgóslavfu og Malasfu. Þrír þeirra voru látnir lausir á árinu, einn f Sovétríkjunum og tveir í Rhodesfu, en annar þeirra hefur nú verið handtekinn á ný. Þriðji hópurinn hefur unnið að svo- nefndum skyndiaðgerðum, þ.e. þátttöku f samræmdum alþjóð- legum bréfaskriftum vegna 130 fanga í ýmsum löndum. Fjórði hópurinn hefur unnið að bréfa- skriftum og öðrum aðgerðum vegna mannréttindabrota f til- teknum löndum, Rúmenfu, Eþíópfu, Argentfnu og Taiwan. I tilefni 30 ára afmælis mann- réttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna var af hálfu íslands- deildar Amnesty International sent bréf til utanríkisráðherra íslands og hvatt til þess, að íslendingar staðfestu og lögfestu hið fyrsta allar þær alþjóðasam- þykktir, sem gerðar hafa verið á grundvelli mannréttindayfirlýs- ingarinnar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Deildin tók þátt í alþjóðlegum mótmælaaðgerðum vegna lífláts- dóma byltingardómstóla í íran og tilraunum til að fá þyrmt lífi Zulfikars Aii Bhuttos, fyrrum forsætisráðherra Pakistans og manna þeirra, sem með honum voru dæmdir, — ennfremur að- gerðum vegna fangelsana og of- sókna á hendur forystumönnum verkalýðsfélaga í Túnis og vegna fanga í Uruguay. Mjög ítarlegar breytingar voru gerðar á lögum deildarinnar á þessum fundi, margar þeirra með hliðsjón af samræmingu á lögum allra landsdeilda Amnesty Inter- national. Samkvæmt tilmælum fram- kvæmdastjórnar alþjóðasamtak- anna hefur stjórn íslandsdeildar- innar auglýst meðal félagsmanna starf framkvæmdastjóra aðal- bækistöðva samtakanna í Lundún- um, en núverandi framkvæmda- stjóri, Martin Ennals, lætur af störfum á miðju næsta ári. Starfið hefur verið auglýst í öllum lands- deildum og nokkrum útbreiddustu dagblöðum heimsins, en gert er ráð fyrir að umsóknum sé skilað til aðalskrifstofu Amnesty Inter- nationai í Lundúnum fyrir 1. júlí. Framkvæmdastjóri aðalstöðvanna er helzti fulltrúi Amnesty Inter- national í samskiptum við ríkis- stjórnir og alþjóðasamtök og vegna eðlis samtakanna og þeirrar áherzlu, sem þau leggja' pólitískt hlutleysi og jafnvægi, koma um- sækjendur frá smáþjóðum ekkert síður til greina í starfið en um- sækjendur frá hinum stærri þjóð- um. Stjórn íslandsdeildar Amnesty International skipa nú: Margrét R. Bjarnason, formaður, Sigurður Magnússon, varaformaður, Erika Urbancic, ritari, Friðrik Páll Jóns- son, gjaldkeri og Anna Atladóttir, skjalavörður. Formenn starfshópa eru: Bergljót Guðmundsdóttir, Linda Jóhannesson og Þórir Ibsen. (Fréttatilkynning) Martin Ennals framkvæmdarstjóri Amnesty International, en hann lætur af því starfi á miðju næsta ári og hefur starf framkvæmdastjórans verið auglýst laust til umsóknar um allan heim. Myndin er tekin á fundi með fréttamönnum eftir að Amnesty International hafði verið veitt friðarverðlaun Nóbels 1977.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.