Morgunblaðið - 30.06.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ1979
19
hagsmálum, að á því megi tæp-
ast hafa skoðun, en gera í öllu
falli ekki uppiskátt um hana.
Þetta er kjarni málsins en
ekki hvernig einstök ummæli
voru orðuð og hafa síðar verið
túlkuð. Ég læt því nægja að
staðhæfa, án þess að rekja það
nánar, að ályktanir um ögranir
eða geip eru langt umfram það
sem ummæli mín gáfu tilefni til.
En aftur að kjarnanum. Er
verkfall einkamál fárra, sem
öðrum kemur ekki við? Á ég þá
að sjálfsögðu ekki við verkfalls
réttinn sem slíkan heldur beit-
ingu hans. Þannig kann þetta að
vera stöku sinnum.
En miklu oftar snertir beiting
verkfallsréttarins aðra og víð-
tækari hagsmuni, misjafnlega
víðtæka þó, eftir því hvaða
aðstæður ríkja í þjóðfélaginu
hverju sinni.
Verkfallsbeiting getur ógnað
og jafnvel brotið niður áform í
verðlags- og efnahagsmálum,
sem meirihluti þjóðarinnar hef-
ur greitt um atkvæði í almenn-
um þingkosningum og falið til-
teknum stjórnmálamönnum að
framkvæma.
Verkfallsbeiting getur ógnað
stefnumótun stjórnvalda og
launþegahreyfingarinnar í kaup-
lagsmálum svo sem um aukinn
launajöfnuð. Hún getur knúið
fram skiptingu fjármuna, sem
ekki eru tiltækir í þjóðfélaginu.
Er þó alkunna að slíkt leiðir
umsvifalaust til vaxandi verð-
bólgu með aukinni eignatil
færslu frá sparifjáreigendum til
skuldara og annarri efnahags
legri rangsleitni. Verkfallsbeit-
ing getur beinlínis höggvið að
rótum þess, sem sjálfstæði og
tilvera þjóðarinnar grundvallast
á, þeirri megin nauðsyn að
efnahagskerfi hennar liðist ekki
sundur.
Þegar einhverjar slíkar afleið-
ingar verkfalls eru nærtækar, og
þess mátti sjá merki í farmannh
deilunni, er verkfallið ekki leng-
ur einkamál fárra. Það er meiri
háttar efnahagslegt vandamál
sem þjóðin á óskert tilkall til að
fá vitneskju um, ekki síður en
olíukreppu, harðindi eða afla
brest.
Vitneskju sem einnig nær til
þess, hvert sé viðhorf þeirra
manna til vandans, sem þjóðin
og Alþingi hafa kjörið til að
-framkvæma og bera ábyrgð á
ákveðinni stefnu í kaupgjalds-
og verðlagsmálum.
Manna sem er beinlínis skylt
að fjalla um og hafa skoðun á
þeim málaflokki, sem vinnumál
og kjaradeilur heyra til, og sem
þjóðin á að verja eða hafna í
næstu kosningum.
Frjálsir
kjarasamningar
Ég er sammála því áliti
margra flokksbræðra minna, að
kjarasamningar þurfi að geta
orðið frjálsir. En jafnframt er
það sannfæring mín, að slíkri
skipan verði ekki komið á í einni
svipan og undirbúningslaust. Til
þess hafa aðild og inngrip
stjórnvalda verið of margvísleg
um of langan tíma. Það tekur
tíma að venja sig af slíku.
Jafnframt þarf að skýra og
endurskoða ýmsar leikreglur.
Slíkt er sannarlega vandaverk,
sem ekki má flana að. Menn
verða að skilja og viðurkenna að
í þessu efni er við ákveðinn
vanda að etja og fallast á að ráða
á honum bót af varfærni en með
opnum huga og gagnkvæmum
trúnaði.
Þetta kanna að vera eitt
ábyrgðarmesta og mikilvægasta
verkefnið, sem nú bíður úrlausn-
ar stjórnmálamanna og fulltrúa
hagsmunasamtaka.
Hraunhitaveita
Athugasemd vid frétt
í fréttatíma útvarps, 11. þ.m.,
var gerð nokkur grein fyrir hita-
veitu í Vestmannaeyjum,
hraun-hitaveitu. Hitinn úr nýja
hrauninu er nýttur í vaxandi mæli
sem hitagjafi fyrir Vestmanneyja-
kaupstað. Nafngreindir voru
menn, sem talið var að væru
upphafsmenn þessarar nýtingar
hitans. Eigi var þar nefnt nafn
Sveinbjarnar Jónssonar
byggingarmeistara, fyrrverandi
forstjóra Ofnasmiðjunnar h.f. Ég
tel mér skylt að bæta hér um.
Áður en nokkur hafði minnst á
möguleika af þessu tagi, að því er
ég bezt veit, eða gert könnun á
þeim möguleikum, sem í þessari
notkun kynni að felast, hafði
Sveinbjörn rætt þessi mál nokkr-
um sinnum við undirritaðan og
hann var þá þegar byrjaður til-
raunir, sem nú hafa leitt til
farsællar notkunar þessa orku-
gjafa. Hönnun hitakerfis og út-
færsla á þeirri hugmynd að hér
væri til nokkurs að vinna var í
sínum tíma falin Raunvísinda-
stofnun Háskólans til úrvinnslu.
Þeirra þáttur er í engu vanmetinn
þó upphaf mannsins sé að réttu
getið.
Jóhann Jakobsson
efnaverkfr.
Opinberri heimsókn Hans Blix lokið:
Dvelur fram á miðviku-
dag á Skriðuklaustri
OPINBERRI heimsókn
Hans Blix, utanríkisráð-
herra Svíþjóðar, til íslands
lauk í Reykjavík í gær.
Hans tílix.
í gærmorgun heimsótti
sænski utanríkisráðherrann
handritastofnunina, ræddi
við Ólaf Jóhannesson for-
sætisráðherra í ráðherra-
bústaðnum og heimsótti for-
seta Islands Kristján Eld-
járn á Bessastöðum. Um
hádegisbilið hélt hann flug-
leiðis austur á land, en Hans
Blix mun dveljast ásamt Evu
konu sinni og tveimur sonum
þeirra nokkra daga á Skriðu-
klaustri í húsi því sem Gunn-
ar Gunnarsson rithöfundur
bjó í.
Utan heldur Hans Blix
síðan á miðvikudag í næstu
viku.
Birgir
ísl. Gunnarsson:
Brosað í laumi
í þessari viku tilkynnti ríkis-
stjórnin með pomp og pragt, að
hún hefði að tillögu iðnaðarráð-.
herra samþykkt sérstaka áætlun
um orkusparnað, hagkvæmri
orkunýtingu og hraðari fram-
kvæmdir í orkumálum. Allt er
það góðra gjalda vert, enda
vafalaust allir sammála um, að í
sem ríkustum mæli beri að
stefna að notkun innlendra
orkugjafa, þ.e. rafmagn úr ís-
lenzkum fallvötnum og hitaorku
frá hinum mörgu jarðhitasvæð-
um landsins. Olíuverð hefur
verið á uppleið undanfarin ár, þó
að keyrt hafi um þverbak nú
síðustu mánuði og því sjálfsagt
að reyna að draga úr olíunotkun.
Ósk um frestun
Hrauneyjar-
fossvirkjunar
I þessu sambandi er vert að
rifja upp, að það eru ekki margir
mánuðir síðan sami iðnaðarráð-
herra gekk hart að Landsvirkjun
til að reyna að fá fyrirtækið til
að draga úr framkvæmdahraða
við Hrauneyjarfossvirkjun og
seinka því um eitt ár, að virkjun-
in yrði tilbúin. Þann 14. septem-
ber s.l. ritaði iðnaðarráðherra
bréf til Landsvirkjunar, þar sem
segir m.a.:
„... óskar ráðuneytið eftir því,
að Landsvirkjun endurskoði
framkvæmdaáætlun um Hraun-
eyjarfoss með það í huga, að
fyrri vélasamstæðan yrði tekin í
rekstur ári síðar en áformað
hefur verið, þ.e. reist á árinu
1982 og síðari vélasamstæðan
ekki fyrr en markaðsaðstæður
hefjast miðað við landskerfið í
heild e.t.v. 1984—85.“
Stjórn Landsvirkj-
unar neitaði
Bréf ráðherra var tekið fyrir í
stjórn Landsvirkjunar og var
stjórnin sammála um, að ekki
kæmi til mála að verða við
þessari ósk ráðherra. Var ráð-
herra send ítarleg greinargerð af
þessu tilefni, þar sem m.a. kem-
ur fram, að hætta yrði á raf-
magnsskorti veturinn 1981/82, ef
gangsetningu fyrri vélasam-
stæðu væri frestað um ár. Skorti
yrði að mæta með vinnslu elds-
neytisstöðva (með olíu) eða
skömmtun. Gæti þetta leitt til
mikilla erfiðleika á Vestfjörðum
og Norður- og Austurlandi. Taldi
stjórnin því, að undir öllum
kringumstæðum yrði að haga
framkvæmdum í ár á þann veg,
að fyrsti hluti virkjunarinnar
yrði tilbúinn til framleiðslu
haustið 1981.
Hvalfjarðarlínu
frestað?
Vegna mikils þrýstings frá
ráðherra um að draga úr fram-
kvæmdahraða, taldi stjórnin
koma til greina að fresta lagn-
ingu háspennulínu frá Sigöldu
og Hrauneyjarfossi í Hvalfjörð,
þannig að hún yrði tengd haustið
1982 í stað haustsins 1981, eins
og áður hafði verið ákveðið.
Ráðherra ritaði þá enn bréf
með ósk um, að framkvæmdir
yrðu enn minnkaðar á þessu
sumri, en þó ekki það mikið að
hætta væri á, að ekki mætti
hefja framleiðslu haustið 1981.
Eftir atvikum féllst stjórn
Landsvirkjunar á það.
Stefna ráðherra
hefði leitt til
vandræða
Af þessu er ljóst, að hefði
stefna iðnaðarráðherra orðið
ofan á s.l. haust hefði Hrauneyj-
arfossvirkjun ekki getað hafið
framleiðslu rafmagns fyrr en
haustið 1982 og það getað leitt til
mikilla vandræða, m.a. stórauk-
innar olíunotkunar veturinn
1981/82.
Hefði stjórn Landsvirkjunar
ekki verið svona föst fyrir og
hefði hún ekki hafnað upphaf-
legri ósk ráðherra, þá væru
menn núna búnir að missa af því
tækifæri að fá virkjunina í gang
haustið 1981, þar sem fram-
kvæmir í sumar skera úr um að
gangsetning verði möguleg
haustið 1981.
Þessi saga er hér rifjuð upp til
að skýra, hversvegna sumir
brosa nú í laumi, þegar blý-
sperrtir ráðherrar kynna með
miklu yfirlæti sérstakar aðgerð-
ir til að hraða framkvæmdum í
orkumálum. Með greininni birt-
ist mynd af framkvæmdum við
Hrauneyjarfoss með þessum
taxta:
Á s.l. hausti vildi iðnaðarráð-
herra fresta Hrauneyjarfoss-
virkjun um eitt ár. Stjórn
Landsvirkjunar neitaði. Nú
stærir ráðherrann sig af sér-
stökum aðgerðum til að flýta
framkvæmdum í orkumálum.
Þrastarungi á
miðstödvarofni
Ólaísfirði 29. júní rúman vikutíma varð hann var
Á DÖGUNUM fann ungur við hreyfingu á ofninum. Skurn-
drengur hér á Ólafsfirði, Fylkir in var að brotna og ungi að
Þór Guðmundsson, egg í yfir- skríða í heiminn. Unginn lifir
gefnu þrastarhreiðri. Fylkir tók enn, er orðinn þriggja daga
eggið með sér heim og setti það í gamall þegar þetta er skrifað og
bómull á miðstöðvarofn. Eftir dafnar vel. - Jakob.
Þrastarunginn teygir sig eftir einhverju matarkyns úr bómullar-
hreiðri sfnu._____________________________(ljósm. Jakob)
Hver fékk
glæsibif-
reið í happ-
drætti S VFÍ
DREGIÐ hefur verið í
Ilappdrætti Slysavarna-
félags íslands 1979 og
komu vinningar á eftirtal-
in númer.
19351 Chevrolet Malibu Classic
Station Wagon 1979.
26893 Veturgamall hestur.
2881 Binatone sjónvarpsspil.
26899 Binatone sjónvarpsspil.
36993 Binatone sjónvarpsspil.
Vinninganna sé vitjað á skrif-
stofu SVFÍ á Grandagarði.
Upplýsingar í síma 27123 (sím-
svari) utan skrifstofutíma. Slysa-
varnafélag íslands færir öllum
beztu þakkir fyrir veittan stuðn-
ing.
(Fréttatilkynning frá SVFÍ.).
M'OI.YSIM. XSIMINX KR: £'
22480
Jtlot0unbl«í>it>
0)