Morgunblaðið - 30.06.1979, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 1979
Gaddafi hótar að hætta
olíusölu — en enginn
tekur hann trúanlegan
DamaskuN. 29. júní. AP, Reuter
GADDAFI þjóðhöfðingi í Libyu
sagði í viðtali scm var birt við hann
í dag, að hann hefði ákveðið að
stöðva olíuútflutning frá Libyu að
minnsta kosti í tvö ár og ef til vill
lengur. Hann sagði að svo mjög yrði
dregið úr framleiðslu að aðeins
dygði til innanlandsþarfa. Gaddafi
sagði þetta í viðtali við A1 Mostakb-
alm. arabiskt vikurit sem er gefið út
í París.
Akureyri 6 skýjaó
Amsterdam 22 skýjaó
Apena 35 bjart
Barcelona 25 lóttskýjað
Berlín 23 skýjað
BrUssel 22 rigning
Chicago 29 rigning
Denpasar, Bali 28 skýjað
Feneyjar 27 léttskýjaö
Frankturt 24 skýjað
Genf 27 sól
Helsinki 18 skýjað
Hong Kong 29 rigning
Jerúsalem 26 rigning
Jóhannesarb. 18 sól
Kaupmannah. 19 rigning
Las Palmas 22 léttskýjað
Lissabon 28 sól
London 21 skýjað
Los Angeles 33 bjart
Madrid 27 bjart
Majorka 30 léttskýjað
Maiaga 30 skýjað
Miamí 29 skýjað
Montreal 26 skýjað
Moskva 25 bjart
Nýja Delhi 41 bjart
New York 25 skýjað
Ósló 17 léttskýjað
París 24 skýjað
Reykjavík 8 léttskýjað
Rio de Janeiro 24 skýjað
Rómaborg 29 bjart
San Francisco 15 skýjað
Stokkhólmur 18 skýjað
Teheran 36 skýjað
Tel Aviv 28 sól
Tókíó 27 rigning
Vancouver 25 skýjað
Vínarborg 24 skýjað
Gaddafi lét þessa ákvörðun sína í
ljós í viðtali á mánudag, en hann
tilgreindi ekki nákvæmlega hvenaer
hann myndi hætta olíusölunni. Hann
sagði að þetta myndi koma Libyu
sjálfri bezt, að geyma olíu í iðrum
landsins fremur en lenda í útistöðum
við Bandaríkin og önnur iðnríki.
Gaddafi sagðist vera orðinn löngu
leiður á öllu tali og skrifi um olíumál
og olíuframleiðsluríkin væru að
ósekju látin sæta ábyrgð fyrir verð-
bólgu í löndum í heiminum, en þeir
ábyrgu væru í rauninni alþjóðleg
olíufélög og umfram allt Bandaríkin,
og þau bæru ábyrgð á falli dollarans
gagnvart öðrum gjaldmiðlum, þar af
leiddi að Bandaríkjamenn hefðu
valdið olíuframleiðsluríkjum óbæt-
anlegu tjóni.
Hann sagði einnig að hann myndi
hvetja önnur Arabaríki eindregið til
þess að taka höndum saman við hann
í þeirri viðleitni að stórminnka
olíuframleiðsluna. Hann sagði að
með þessu vonaðist hann til að viti
yrði komið fyrir forystumenn iðn
ríkja og að þau hættu að mergsjúga
olíuframleiðsluríkin.
Fréttir frá Vestur-Þýzkalandi
herma að utanríkisráðuneytið þar
hafi sagt í kvöld að það hafi ekki
fengið neina vitneskju um þetta né
neitt verið sagt sem benti til þess að
Libyumenn ætluðu að stöðva olíu
útflutning alveg á næstunni. Tals
maður Continental-olíufélagsins í
Bandaríkjunum sagði að mikið vafa
mál væri að Gaddafi léti verða af
þessum hótunum sínum og myndi
stjórn hans án efa rísa mjög öndverð
gegn því.
Fulltrúadeildin
samþykkti bann
Washington, 29. júnf, AP, Reuter.
FULLTRÚADEILDIN bandaríska
samþykkti með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða að halda áfram við-
skiptabanni á Zimbabwe, Ródesíu,
350 samþykktu áframhaldandi bann
en 37 voru á móti. Niðurstaða
fulltrúadeildarinnar er í beinni and-
stöðu við atkvæðagreiðslu öldunga-
deildarinnar, sem samþykkti með 52
gegn 41 atkvæði að aflétta viðskipta-
banni. Jimmy Carter fagnaði í dag
úrslitum atkvæðagreiðslunnar í full-
trúadeildinni.
Hillir undir ad
Times komi út
Lundúnum. 29. júní — Reuter
NÚ virðist hilla undir að hið
virta dagblað The Times komi út
aftur. Samtök prentara og útgef-
endur sögðu i dag, að samninga
viðræður hefðu komist á skrið.
The Times hefur ekki komið út í
sjö mánuði vegna deilu við prent-
ara.
Útgefendur ætluðu að koma á
hagræðingu með offsetprentun og
hefði það þýtt að fjölda prentara
hefði verið sagt upp. Nú hafa
útgefendur og prentarar ákveðið
að fresta viðræðum um hina nyju
tækni og einbeita sér þess í stað að
koma The Times út á ný.
Fyrir aðeins tæpri viku sagði
Þekktum and-
ófsmanni sleppt
MoNkvu. 29. júní. AP.
ZVIAD Gamaskhurdia, þekktur
andófsmaður frá Grúsíu sem var
dæmdur til nauðungarvinnubúða
vistar fyrir ári, hefur nú fengið
sakaruppgjöf og verið látinn laus
úr haldi, að því er Tass-fréttastof-
an skýrði frá í dag. Gamaskhurd-
ia hafði verið dæmdur í þriggja
ára fangabúðavist.
Hann hélt síðan heim til sín til
Tbilisi og Tass-fréttastofan sagði
að hann hefði verið vel á sig
kominn til líkama og sálar.
útgáfustjórnin að möguleikar á
því að The Times kæmi aftur út
væru hverfandi.
Flutningaskipið Emmanuel Delmas og ítalska olíuskipið Vera Berlingeri lentu í árekstri á
Miðjarðarhafinu og sökk ítalska skipið skömmu sfðar, eftir að björgunarmönnum hafði tekist að losa
skipin. 18 sjómenn, flestir af Emmanuel, fórust, þegar eldar loguðu stafna á milli á skipinu.
Hugðust smygla 15000
flóttamönnum fyrir um
820 milljónir króna
Singapore, 29. júní AP
YFIRVÖLD í Singapore segjast
hafa handtekið átta menn, sem
ætluðu að flytja 15000
fióttamenn frá Víetnam fyrir um
820 milljónir íslenzkra króna til
eyjarinnar Tonan Maru sem
tilheyrir Indónesíu og Singapore.
Stjórnvöld sögðu að þeir ménn,
sem hefðu verið handteknir,
hefðu áður staðið fyrir flutningi
flóttamanna frá Vfetnam. Það
var árið 1978. Þeirra á meðal er
finnskur skipstjóri, Olof
Ahlqvist.
Utanríkisráðherrar þjóða í
S-Austur Asíu sem nú funda á
Bali, Indónesíu fögnuðu í dag
tillögum Bandaríkjamanna um að
Bandaríkin tvöfaldi þá tölu flótta-
manna er heimilt verður að koma
til Bandaríkjanna. Nú er 7000
manns leyft að koma til USA á
mánuði en verða 14 þúsund. Þó var
einn ráðherranna óánægður, utan-
ríkisráðherra Singapore, sem
sagði að slík áætlun kallaði
einungis á fleiri flóttamenn frá
Víetnam.
Sérstakur fulltrúi Víetnams
ræddi við yfirvöld í Malasíu í dag
og sagði hann að „Kínverjar not-
uðu ástandið í Víetnam til að
senda fólk frá Kína í ýmsum
tilgangi," eins og hann orðaði það.
Hann sagði að yfirvöld í Víetnam
hefðu minnkað flóttamanna-
strauminn frá landinu um 50% í
júní, stöðvað 27 af 57 bátum, er
voru að yfirgefa landið. Þá sagði
hann, að flóttamannavandamálið
væri ýkt. Hann sagði einnig, að
stjórnvöld í Víetnam hefðu komist
að samkomulagi við flóttamanna;
stofnun Sameinuðu þjóðanna. í
þessu samkomulagi kveður á um,
að Víetnamar muni takmarka
þann fjölda, sem fer úr landi við
þá tölu sem þjóðir heims muni
taka við.
í Hong Kong þustu hundruð
flóttamanna frá skipi, sem hafði
komið með þá til nýlendunnar.
Skipsmenn hjuggu á ankeri skips-
ins svo það rak upp. Fólkið komst
ekki undan.
Franska lögreglan
réðst gegn ólöglegu
útvarpi sósíalista
París, 29. júní - AP
FRANSKA lögreglan réðst í
gærkvöldi til atlögu gegn ólöglegu
útvarpi sósíalista I Frakklandi og
notaði lögreglan táragas til að
flæma nokkra af leiðtogum
sósíalista út úr útvarpshúsinu,
þeirra á meðal þrjá þingmenn
flokksins. Rfkið hefur einkarétt á
útvarpi og sjónvarpi í Frakklandi.
Viðureign þessi endurspeglar deilur
Giscards d'Estaings Frakklandsfor-
seta, og sósíalista í landinu.
Árás lögreglunnar hefur vakið
mikla athygli í Frakklandi og slógu
frönsku blöðin álinu upp á forsíðum.
Þar á meðal myndum af því þegar
franska lögreglan hindraði tvo þing-
Þetta gerðist
1976 — Myndir bandarísks
geimfars sýng að vatn hefur
verið á Mars.
1971 — Þrír sovézkir geimfarar
finnast látnir við lendingu eftir
þriggja vikna geimferð.
1970 — Viðræður um aðild
Breta að EBE hefjast.
1968 — Rússar neyða banda-
ríska þotu með 214 bandarískum
hermönnum að lenda á Kúríleyj-
um.
1965 — Vopnahlé milii Indverja
og Pakistana.
1964 — Hernaðaraðgerðum SÞ í
Kongó lýkur.
1963 - Páll VI krýndur 262.
páfi.
1960 — Kongó fær sjálfstæði.
1936 — Franski fasistaflokkur-
ínn bældur niður — Haile
Selassie keisari biður um hjálp
gegn ítölum á fundi Þjóðabanda-
lagsins.
1934 — „Nótt hinna löngu
hnífa“ markar upphaf hreinsana
nazista.
1930 — Bretar viðurkenna sjálf-
stæði íraks.
1913 — Síðara Balkanstríðið
hefst með árásum Búlgara á
Serba og Grikki.
1876 — Serbar segja Tyrkjum
stríð á hendur.
1959 — Emile Blondin gengur á
línu yfir Níagarafossa.
1852 — Nýja Sjáland fær sjálf-
stjórn.
1845 — Ensk-franskur leiðang-
ursher sendur til Madagaskar.
1708 — Orrustan um Oudenarde
hefst.
1652 — Englendingar segja Hol-
lendingum stríð á hendur.
Afmæli: Paul Francois Nicolas
Barras, franskur stjórnmálaleið-
togi (1755-1829) - George
Duhamel, franskur rithöfundur
(1884-1966) - Harold Laski,
brezkur stjórnvísindamaður
(1893—1950) — Susan Hayward
(1919-1975).
Andlát: Elizabeth Barrett
Browning, skáld, 1861.
Innlent: Kristján Eldjárn kos-
inn forseti 1968 — Stóridómur
1564 — Skipadómur 1545 —
Isleifur Árnason háyfirdómari
handtekinn 1809 — Steinunn
Árnadóttir dæmd til lífsláts
fyrir að bera út barn sitt 1802 —
Jerome Napoleon prins kemur til
íslands 1856 — Eldgos í Dyngju-
fjöllum 1862 — f. Jón Vigfússon
biskup 1690 — d. Jón Guðmunds-
son ritstjóri 1875 - Jósef
Skaptason læknir 1875 — f. Jón
Helgason. prófessor 1899 —
Sigurbjörn Einarsson biskup
1911 — Útfærsla í 12 mílur
undirrituð 1958 - Sigur stjórn-
arflokka í Alþingiskosningum
1946 — Sigur Sjálfstæðisflokks í
Alþingiskosningum 1974.
Orð dagsins: Eg trúi á þagnar-
aga, og ég get talað um hann
klukkutímum saman — George
Bernard Shaw, írsk-ættaður rit-
höfundur (1856-1950).
menn sósíalista að komast leiðar
sinnar. Leiðtogi sósíalista, Francois
Mitterand, var ekki viðstaddur þegar
árásin var gerð en skömmu áður en
lagt var til atlögu að húsinu hafði
Mitterand flutt ávarp af segulbandi.
Sósíalistar halda því fram, að þeir
hafi ekki sömu tækifæri til að koma
skoðunum sínum á framfæri í ríkis-
reknum fjölmiðlum og stjórnar-
flokkarnir. í yfirlýsingu, sem þeir
birtu ásamt kommúnistum mót-
mæltu þeir árásinni harðlega og
meðferð frönsku lögreglunnar á
tveimur þingmönnum flokksins. Öll
helstu blöð Frakklands birtu leiðara
um málið. Þannig dró Le Figaro í efa
staðhæfingu sósíalista á einokun
stjórnarflokkanna á ríkisreknum
fjölmiðlum en gagnrýndi einnig
aðgerðir stjórnarinnar. „Herra
Mitterand veit að hann og félagar
hans geta komið skoðunum sínum á
framfæri, en satt er, að það er
erfiðara fyrir það en stjórnarflokk-
ana,“ sagði blaðið.
France-Soir spurði í leiðara á
forsíðu:
„Til hvaða bragðs eiga stjórnvöld
að taka þegar stjórnmálaflokkur
brýtur lögin?“. Le Matin, er styður
sósíalista, sagði málið „alvarlegt" og
reyndi að hrekja staðhæfingu
Raymonds Barres, forsætisráðherra,
að „allir Frakkar væru jafnir fyrir
lögunum".
Tveir flóttamenn
hurfu sporlaust
Eisenstadt, 29. júní, AP.
TVEIR ungverskir hermenn, sem
flúðu yfir landamærin til Austur-
ríkis á föstudag, hafa horfið spor-
laust. Þeir skildu vopn sín og ein-
kennisbúninga eftir í bíl og fóru
síðan áfram á „puttanum". En þeir
eru gersamlega horfnir. Álitið var,
að þeir hefðu ætlað að biðja austur-
rísk stjórnvöld um hæli sem póli-
tískir flóttamenn. Svo virðist, sem
þeir hafi ætlað til flóttamannabúða í
Traiskirchen. Flóttamennirnir eru
báðir um tvítugt.