Morgunblaðið - 30.06.1979, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 1979
23
Tólfta þing L.Í.F.
Frímerki 79
Ungir sem gamlir virða barmmerkin fyrir sér.
Sunnudaginn 10. júní var þing
Landssambands íslenzkra frí-
merkjasafnara haldið í Álfta-
mýrarskóla, og hófst það kl. 9.
Setti formaður þess, Sigurður P.
Gestsson, það og bauð þingfull-
trúa velkomna, en þeir voru
samtals 25, aðalmenn og vara-
menn. Minntist formaður í upp-
hafi nýlátins ágæts félaga og
stjórnarmanns um árabil, Sig-
urðar Ágústssonar, en hann var
einmitt jarðsunginn sama dag
og frímerkjasýningin FRI-
MERKI 79 var opnuð 7. júní.
Þótti mörgum það merkileg til-
viljun, þar sem hinn látni hafði
ævinlega verið einn hinna ötul-
ustu félagsmanna við undirbún-
ing frímerkjasýninga hér á landi
frá upphafi þeirra árið 1958.
Fundarstjóri var kjörinn Sig-
urður H. Þorsteinsson og fund-
arritari Hartvig Ingólfsson. Fyr-
ir þinginu lágu allmörg mál, og
verður minnzt á hin helztu hér á
eftir.
Fráfarandi formaður gerði
grein fyrir störfum stjórnarinn-
ar á liðnu starfsári í stuttu máli,
enda má segja, að fátt hafi gerzt
frásagnarvert nema undirbún-
ingur að nýjum lögum. Var þetta
í reynd aðalmál landsþingsins að
þessu sinni. Reifaði Jón Aðal-
steinn Jónsson það fyrir hönd
stjórnarinnar grein fyrir grein.
Lagafrumvarp þetta hlaut góðar
undirtektir þingfulltrúa og var
samþykkt samhljóða með nokkr-
um breytingum, sem ég hygg, að
hafi flestar verið til bóta.
Gjaldkeri L.Í.F., Páll Ásgeirs-
son, gerði grein fyrir reikningum
sambandsins. Örlítill halli varð
á rekstrarreikningi, en ekki um-
talsverður, enda tekjur aðildar-
félaga af árgjöldum félags-
manna auðsæilega allt of lágar í
okkar verðbólguþjóðfélagi. Var
því einróma samþykkt að hækka
árgjaldið upp í 300 kr. Að mínum
dómi þyrfti það að vera til muna
hærra, ef nokkuð á að vera hægt
að framkvæma innan sambands-
ins.
Sigurður R. Pétursson hafði
annazt rekstur tímaritsins
Grúsks síðastliðið ár, og komu út
þrjú tölublöð. Gerði hann grein
fyrir rekstri þess, en hann hafði
gengið til muna betur en áður
hafði verið. Þrátt fyrir það stóð
allt í járnum. Var því ákveðið að
framvegis yrði gjald hvers fé-
laga L.Í.F. fyrir hvert hefði
miðað við söluverð Vikunnar, en
það er nú 850 kr.
Tillaga kom fram á þinginu
eða áskorun til væntanlegrar
stjórnar að hún ynni að því að
L.Í.F. fengi tvo menn í frí-
merkjaútgáfunefnd Póstmála-
stofnunarinnar, þegar hún verð-
ur endurskipuð á næsta ári. Er
enginn efi á, að seta safnara í
þeirri nefnd getur ekki síður
orðið Póstmálastofnuninni til
góðs en söfnurum sjálfum. Ekki
tel ég nokkurn vafa geta leikið á
því, að þessu máli verði vel tekið
af hálfu póstyfirvalda, jafngóð
samvinna og hefur ríkt milli
þeirra og frímerkjasafnara síð-
ustu áratugi. Er þessi þróun
mála einnig í fullu samræmi við
það, sem tíðkazt hefur í ná-
grannalöndum okkar.
Þá var einróma samþykkt
tillaga um það, að nú verði þess
enn freistað að fá söluskatt af
frímerkjum felldan niður. Eins
og ég og ýmsir aðrir hafa oft
bent á, er innheimta hans af sölu
notaðra frímerkja ósanngjörn og
framkvæmdin fáránleg að mín-
um dómi. Má þar enn minna á,
að útlendingar, sem hér kaupa
frímerki, sleppa við að greiða
hann. Getur hér því orðið um
verulega mismunun milli inn-
lendra og erlendra safnara að
ræða — og það svo, að heima-
menn treysti sér ekki til að etja
kappi við erlenda „kollega" sína.
Fyrir bragðið er hætta á, að
margt gott frímerkjaefni fari út
úr landinu.
Nokkrar breytingar urðu á
stjórn L.Í.F. að þessu sinni og
stjórnarmönnum fjölgað upp í
níu. Formaður var kjörinn Sig-
urður R. Pétursson og varafor-
maður Sigurður P. Gestsson,
báðir til eins árs, sem og aðrir
stjórnarmenn. Ritari var endur-
kjörinn Hálfdan Helgason, en
gjaldkeri er nýr, Gunnar Rafn
Einarsson. Þá var Jón Aðal-
steinn Jónsson kosinn blaðafull-
trúi sambandsins, en því emb-
ætti hefur enginn gengt um
hríð. Má í rauninni segja, að það
sé nýtt embætti innan stjórnar-
innar. Meðstjórnendur voru
kjörnir fjórir, þeir Hartvig Ing-
ólfsson og Páll Ásgeirsson, sem
áttu báðir sæti í fráfarandi
stjórn, Sveinn Jónsson, sem áður
sat í varastjórn, og Sverrir
Einarsson, sem er nýr í stjórn-
inni. Varamenn voru kjörnir
Þórður Reykdal (endurkjörinn)
og Finnur Kolbeinsson. Þá var
gerð sú breyting á lögum L.Í.F.,
að fulltrúi Islands á alþjóðasýn-
ingum hefði seturétt í stjórn, en
því embætti gegnir Sigurður H.
Þorsteinsson til ársloka 1981. Þá
tekur við því embætti Sigurður
R. Pétursson samkv. ákvörðun
síðasta landsþings. Loks voru
Guðmundur Ingimundarson og
Óskar Jónatansson kosnir end-
urskoðendur reikninga Lands-
sambandsins.
Frímerki 79
Ég hef áður minnzt á það, að
sú stefna er ríkjandi innan L.Í.F.
að halda frímerkjasýningar í
sambandi við þing þess, og var
vikið nokkuð að væntanlegri
sýningu, FRÍMERKI 79, í síð-
asta þætti, sem kom einmitt út
sama dag og hún var opnuð 7.
júní.
Frlmerki
eftir JÓN AÐAL-
STEIN JÓNSSON
Vissulega var þessi frímerkja-
sýning ekki stór í sniðum eða
samtals 88 rammar. Af þeim
voru 58 í svonefndri samkeppn-
isdeild, en 30 í kynningardeild.
Ekki var sýningunni samt skipt í
tvær deildir, svo sem oft er
venja, heldur var römmum raðað
upp í einni deild í töluröð. Um þá
niðurskipan má vitaskuld deila,
en einhvern veginn kann ég
betur við að hafa hvora deild sér.
Þá geta skoðendur safnanna
auðveldlega áttað sig á, hvaða
efni er sýnt til þess að hljóta
dóm dómnefndar og hvaða efni
er einkum sýnt til að kynna
sýningargestum, hverju má
safna og hvernig. Er þá oft
brotið upp á nýjungum, sem eru
utan við alfaraleið, ef svo má
segja.
Auk frímerkjaefnis sýndi Jón
Halldórsson hluta af póstkorta-
safni sínu og safni af gömlum
myndum úr vindlingapökkum
(sígarettumyndir), en þær voru
algengar hér á landi fyrir og
eftir 1930, svo sem margur man.
Þá sýndi Ólafur Jónsson hluta af
barmmerkjasafni sínu, en ég
hygg, að það sé einstætt í sinni
röð hér á landi a.m.k. Var og vel
ljóst af þeim fjölda gesta, sem
stanzaði við sýningarborð hans,
að menn kunnu vel að meta
þetta sérstæða safn. Það var líka
sett upp á skemmtilegan og
smekklegan hátt, svo sem vel má
sjá á mynd þeirri, sem fylgir
þessum þætti.
Þar sem segja má, að frí-
merkjasýning þessi hafi verið
lítil, varð ekkert því til trafala,
að hægt væri að skoða hana
nákvæmlega. En í sannleika sagt
er það svo, að á stórum sýning-
um vill margt sýningarefni
verða útundan, því að ógerlegt er
að grandskoða allt, þar sem
rammafjöldi skiptir þúsundum.
Litlar sýningar verða þess vegna
um margt bæði viðráðanlegri og
notadrýgri en stórsýningar.
Þá var sérstakt pósthús opið á
sýningunni, og virtist þó nokkuð
að gera, einkum fyrstu dagana,
enda var notaður sérstimpiU,
sem menn sóttust eftir að fá á
póstsendingar. Sýningarnefnd
hafði látið útbúa sérstök umslög
með merki sýningarinnar, bæði
tölusett og ótölusétt. Eins var
prentuð sýningarblokk. Þetta
hvort tveggja mun hafa selzt
mjög vel og jafnvel alveg upp.
Þar sem of langt mál er að
segja nú frá Frímerki 79 og því
efni, sem þar var að sjá, verður
geymt að minnast á það og
niðurstöður dómnefndar þar til í
næsta þætti, en hann verður
jafnframt hinn síðasti að sinni.
Ný frímerki
3. júlí
Loksins verða frímerki þau úr
flokknum Merkir íslendingar,
sem út áttu að koma í marz
síðastliðnum, sett í umferð
næstkomandi þriðjudag. Verður
ekki annað sagt en það sé bæði
eftir dúk og disk, því að mánað-
argömul hækkun póstburðar-
gjalda gerir það að verkum, að
nafnverð þeirra hentar ekki
neinum töxtum. Því miður er
þetta svo sem ekki í fyrsta
skipti, sem þannig tekst til, en
ekki verður unnt að skella þar
allri skuld á póststjórnina, þótt
ekki verði annað sagt en hún sé
oft ærið svifasein í útgáfumálum
sínum.
Lægra verðgildið, 80 kr., er
rauðbrúnt að lit, og er á því
mynd af Ingibjörgu H. Bjarna-
son (1867—1941). Hún var skóla-
stjóri Kvennaskólans í Reykja-
vík frá 1906 til dauðadags 1941
og alþingismaður 1923—1930.
Varð hún fyrsta íslenzka konan
til að taka sæti á Alþingi. Auk
þess gegndi hún mörgum öðrum
trúnaðarstörfum og varð m.a.
formaður Landspítalasjóðs-
nefndar frá upphafi 1915 til
æviloka.
Hærra verðgildið er 170 kr. og
dökkrautt að lit. Hefur skáld-
konan Torfhildur Þorsteinsdótt-
ir Hólm verið valin á það merki.
Var hún fædd 1845 og lézt 1918.
Er hún fyrsta íslenzka konan,
sem hafði ritstörf að atvinnu og
gaf út sögulegar skáldsögur.
Eins gaf hún út bæði ársrit,
Draupni, og mánaðarblað, Dvöl,
svo að eitthvað sé nefnt.
Bæði þessi frímerki eru prent-
uð í Frímerkjaprentsmiðju
frönsku póstþjónustunnar með
svonefndri djúpprentun, en svo
hefur verið með öll frímerki í
þessum flokki, ef ég man rétt.
Enginn vafi leikur á því, að
báðar þessar konur hafa með
ævistarfi sínu unnið til þess að
komast í þennan frímerkjaflokk
íslenzku póststjórnarinnar. Hins
vegar hlýtur að vera nokkur
vandi fyrir útgáfunefnd Póst- og
símamálastofnunarinnar að
ákveða, hvaða menn og í hvaða
röð þeir skuli fylla þennan flokk.
Ég er örugglega ekki einn um þá
skoðun, að óhæfilega lengi hafi
dregizt að velja í þennan flokk.
Jón Guðmundsson, ritstjóra
Þjóðólfs og alþingismann, en
hann var sem kurinugt er einn
helzti stuðningsmaður Jóns Sig-
urðssonar hér á landi. Ef miðað
er við fæðingaár og áhrif hans í
sjálfstæðismálum íslendinga,
hefði hann fyrir löngu átt að
vera kominn á íslenzkt frímerki,
því að hann var uppi frá 1807 til
1875. Vil ég vænta þess, að
póststjórnin og nefnd hennar
bæti hér úr, áður en langt um
líður.
Sumarspila-
mennska TBK
Spilað var í tveimur riðlum sl.
fimmtudag, 16 og 10 para.
Úrslit í A-riðli:
Sigtryggur — Gunnlaugur 270
Guðmundur A. — Jóhann J. 232
Karl — Haukur 230
Baldur B. — Gunnar B. 230
Meðalárangur 210.
Úrslit í B-riðli:
Eiríkur — Valur 137
Ólafur Á. — Sigurður E. 124
Stefán — Ægir 119
Gissur — Óskar 114
Meðalárangur: 108.
Staðan í hcildarstigakeppn-
inni:
Valur Sigurðsson 14
Guðmundur Hermannsson 9
Gísli Tryggvason 9
Guðlaugur Nielsen 9
Brldge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgefélagið
Ásarnir Kópavogi
Tuttugu pör spiluðu sl. mánudag
og urðu úrslit þessi:
N-S-riðill:
Árni Alexandersson —
Ragnar Magnússon 277
Guðmundur P. Arnarsson —
Sverrir Ármannsson 262
Haukur Ingason —
Hjörleifur Jakobsson 250
Sigríður Pálsdóttir —
Sigrún Ólafsdóttir 236
A-V-riðill:
Hrólfur Hjaltason —
Skafti Jónsson 271
Sveinn Helgason —
Guðríður Guðmundsdóttir 245
Ármann J. Lárusson —
Sævin Bjarnason 232
Albert Þorsteinsson —
Kristófer Magnússon 221
^leðalárangur 216.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiöar, Jeppabifreið, sendibifreið og
Pick-up bifreiö með framhjóladrifi og húsi. Ennfremur
nokkrar ógangfærar bifreiðar er veröa sýndar að Grensás-
vegi 9 þriöjudaginn 3. júlí kl. 12—3.
Tilboðin verða opnuö í Bifreiöasal aö Grensásvegi 9 kl. 5.
Sala Varnaliðseigna.
Lokun
Verkstæöi okkar er lokaö vegna sumarleyfa
frá 16. júlí til 7. ágúst.
RÆSIR HF.