Morgunblaðið - 30.06.1979, Side 26

Morgunblaðið - 30.06.1979, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ1979 Rœttvið Á rna Stefánsson ogAlbert Eimundsson áHornafirði Úr vinnslusal hins myndarlcga hraðfrystihúss KASK á Ilöfn, en það var tekið í notkun fyrir nokkrum árum. Bœði kostir og gafíar samfara hinrú öru fjölguii íbtía á Höfn skemmtilegasti Kolfvöllur lands- ins, þó svo að enn sé þar talsvert starf óunnið. Árni er formaður Golfklúbbsins á Höfn og einn snjallasti kylfingurinn á staðnum og Albert hefur í tæpt ár dundað sér við að rölta á eftir hvíta boltanum í góðum félagsskap. Sumarið 1972 var byrjað að vinna landið fyrir golfvöll, en völlurinn er á ræktunarlandi frá 1930, vel gróinn á töngunum fram í sjó. Frá því að byrjað var að slá völlinn af áhugamönnum um golf 1972 hefur markvisst verið unnið að uppbyggingunni, teigar og flat- ir hafa verið ræktuð og byggð upp, en í raun er vallarstæðið frá náttúrunnar hendi mjög hentugt þó að talsverða hugvitssemi hafi þurft við fyrirkomulag vallarins. Að sögn Árna eru um 40 manns virkir í golfklúbbnum og í þeim hópi er að finna fólk úr öllum stéttum. Börn og unglingar á Höfn hafa sinnt golfinu af áhuga á síðustu árum og nokkur þeirra hafa náð góðum árangri. Þrjú stórmót verða haldin á Silfurnes- vellinum í sumar, bikarmeistara- mót, meistaramót klúbbsins og loks opið mót, sem haldið verður í haust. Kylfingar alls staðar að af landinu hafa í auknum mæli sótt ATVINNA flestra íhúa á Iliifn í Ilornafirði tengist meira eða minna fiski og fiskvinnslu. en langt er þó í frá að lífið sé hara fiskur á þessum stað þar sem mest fjölgun hefur að meðaltali orðið á landinu á undanfiirnum árum. Ungt fólk byggir þennan stað að miklu leyti og það liggur ekki á liði sínu í hinu félagslega starfi þegar stund er á milli stríða í brauðstriti og húsbyggingum. Fegurð er einstök á Ilöfn og sérstæð á flestan hátt. en mannh'fið er einnig iiðru vísi þarna en annars staðar og sá andi sem þar svífur yfir viitnum er annar en víða. einhvernveginn jákva'ðari en á svo miirgum stöðum. h’élagslíf stendur með miklum blóma á Höfn og þar eru þeir framarlega í flokki Árni Stefáns- son, hótelhaldari með meiru og fyrrum skólastjóri barnaskólans á staðnum, og Albert Eymundsson arftaki Árna í skólastjórastöð- unni. Morgunblaðsmenn heim- sóttu Höfn á dögunum og var þá m.a. rætt við þá félaga Árna og Albert. Kostir <>k tíallar iirrar fjöljíunar Þeir Albert og Árni segja okkur að hin öra uppbygging á Höfn hafi bæði kosti og galla í för með sér. — Þannig fjölgaði hér á staðnum um 70 manns á síðasta ári eða um 5'/r og meðalfjolgun nemenda á skólaskyldualdri hefur undanfarin ár verið 10 á ári, segja þeir. — Vegna hinnar örru fjölgunar hér hefst ekki undan við þær þjónustuframkvæmdir, sem bæjarfélagið þarf að annast. í þessu sambandi ber fyrst að nefna varanlega gatnagerð og vatns- veitu. Helztu framkvæmdir bæj- arins í ár, auk þeirra, sem fyrr er minnst á, eru bygging 2. áfanga gagnfræðaskóla með serkennslu- stofum og dagheimilis, sem tekið verður í notkun í sumar, segir ALbert. Strax á næsta ári verður úthlut- að lóðum á leirunni niilli Lyngeyj- ar og Fiskhóls, en það hefði einhvern tímann þótt í frásögur færandi ef íbúðarhús yrðu byggð á þessum stað. Landið þarna verður hækkað verulega með þeim hætti að fyrst verður leiran fergð með þykkum malarpúða, en hann síðan þynntur út þegar sig hefur fengist. Þessar framkvæmdir eru hugsað- ar til að þétta byggðina, auk þess sem þetta svæði er mjög nálægt öllum þjónustumiðstöðvum og lagnir verða Iitlar og ekki eins kostnaðarsamar. Onnur svæði í landi Hafnarhrepps eru ekki eins ákjósanleg vegna fjarlægðar. Nú er unnið að undirbúningi fjarvarmaveitu fyrir Höfn í Hornafirði, en hún á fyrst og fremst að þjóna gamla bænum á Knattspyrna og aðrar íþróttir Albert Eymundsson er formað- ur Ungmennafélagsins Sindra og það er allsérstætt að með honum í stjórn félagsins eru aðeins ung- lingar, sem liggja ekki á liði sínu í starfinu. Albert segir okkur að fyir sumartímann sé lítið um aðrar íþróttagreinar en knatt- spyrnuna og í þeirri íþróttagrein hefur verið unnið markvisst upp- byggingarstarf síðan 1976. Þá settust menn niður og ræddu málin, hvernig væri heppilegast aÖ byggja upp svo árangur mætti nást á knattspurnusviðinu. Menn komust að þeirri niðurstöðu að nú skyldi byrjað algjörlega upp á nýtt. Höfn, eða þeim hluta bæjarins sem ekki hefur rafhitun. Vonast er til, að farið verði i framkvæmd- ir á þessu ári. Hornfirðingar líta björtum augum á þessa fram- kvæmd og flestir telja að þarna sé um mikið framfaraspor að ræða. Báöir sitja þeir Arni og Albert í hreppsnefnd fyrir Sjálfstæðis- flokkinn, en þegar við spyrjum þá hvort ekki sé erfitt fyrir Sjálf- stæðismenn að búa á stað eins og Höfn, þar sem Framsóknarflokk- urinn sé eins sterkur og raun ber vitni verður Árni fyrir svörum: — Það er langt í frá að það sé einkaréttur Framsóknarmanna að vera samvinnumenn og þó að kaupfélagið sé sterkt hér, þarf það ekkert að segja um fylgi Fram- sóknar. Ég tel mig vera samvinnu- mann og samvinnuhreyfingin er jákvæð þegar hún er rekin fyrir byggðarlagið og þjónar hagsmun- um þess. — Kaupfélag A-Skaftfellinga á fiskverkunaraðstöðuna her að miklu leyti, sömuleiðis mikinn hlúta verzlunar og sér um þjón- ustu fyrir landbúnaðinn. Hins vegar er nær öll útgerð á vegum einstaklinga. Menn taka sig sam- an 2—3 og gera út bát, menn vinna fyrir sjálfa sig og hér hefur ávallt verið rekin mjög farsæl útgerð. Stemma er í eigu einstakl- inga, byggingarverktakarnir hafa meira en nóg að gera sem og aðrir iðnaðarmenn, einstaklingar eru með ýmiss konar þjónustu, t.d. margar sérverzlanir. Þannig mætti áfram telja og kaupfélagið og einstaklingar sinna hvert sínu Fyrrverandi og núverandi skólastjóri barnaskólans á Höfn, Árni Stefánsson og Albert Eymundsson ræða málin yfir bolla af kaffi. hlutverki hér í Hornafirði árekst- ralítið, segir Árni. Golfvöllurinn Golfvöllur þeirra Hornfirðinga, Silfurnesvöllurinn, hefur á undan- förnum árum vakið mikla athygli og verið viðurkenndur sem einn það mót og í haust má reikna með fleiri aðkomumönnum en áður. Þá fór fyrir skömmu fram bæjarkeppni milli Hornfirðinga og Eskfirðinga og lauk þeirri viðureign með öruggum sigri heimamanna, en Eskfirðingar byrjuðu síðar á iðkun þessarar ágætu íþróttar. Þetta mót er vísir að Austurlandsmóti í golfi, en á Austfjörðum eru áhugamenn á fleiri stöðum farnir að huga að golfvallargerð og slíku. Ileimsmálin krufin í löndun úr Ilornafjarðarbát. í stað þess að leggja allt kapp á elzta flokkinn og leggja mikla fjármuni í hann var ákveðið að yngstu flokkarnir hefðu algjöran forgang. Árangurinn hefur heldur ekki látið á sér standa, því síðan 1976 hefur Sindri ekki tapað leik fyrir öðrum Austfjarðaliðum í 5., 4. og 3. flokki í knattspyrnu. Nú er meistaraflokkurinn með í keppn- inni í þriðju deild, og var reyndar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.