Morgunblaðið - 30.06.1979, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.06.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ1979 29 Pottasleikir Gqðir hálsar! (hásir eða heilbrigðir) — Þakka fyrir síðast. Sendið mér nú mynd af því, þegar þið eruð að matreiða! (eldhúsið allt í reyk, gluggarnir upp á gátt, þið hóstandi og stynjandi og mamma á harðahlaupum að bjarga því, sem bjargað verður — eða pabbinn, ef hann er heima!!) — Ég vona sem sagt, að þessar fáu línur hitti ykkur ykkur heil og hress, svo að þið getið tekið til við næstu uppskrift. Nú er íslenska grænmetið eins ódýrt og mögulegt er á þesum árstíma. Það er um að gera að borða þessa hollu og góðu fæðu ekki síst á þessum tíma, þegar hún er fersk og ný og auðug af vítamínum, sem gefa ykkur aukinn kraft og viðnámsþrek. Reynið við grænmetis- súpuna. — Gefist ekki upp. EF hún heppnast vel, er hún herramannsmatur (passar einmitt fyrir þig!) — Verði þér að góðu — og gleymdu ekki að senda okkur teikningu! Þinn einlægur Pottasleikir og allir hinir. Grænmetissúpa 2 kartöflur 1 gulrót 1 lítill hvítkálsbiti 1 lítil Kulrófa Vi blaðlaukur Nukkur strá af graslauk steinseija 1 1. vatn 2 tsk. salt 1 súputeningur Svona býrðu til súpuna: Þvoðu og hreinsaðu grænmetið, flysjaðu kartöflur og rófur, skafðu guirótina og þvoðu kálið, laukinn og steinseljuna. Skerðu grænmetið í litla bita eða rífðu það á rifjárni. Best að klippa graslauk og steinselju. Láttu suðuna koma upp á vatninu. Settu salt og súputening út í. Láttu grænmetið í pottinn, allt nema graslauk og steinselju. Sjóddu grænmetið við vægan hita, þangað til það er meyrt. Hafðu hlemm á pottinum. Klipptu þá graslauk og steinselju út í súpuna. Aths. Þú mátt bæta örlitlu vatni í súpuna ef hún verður of þykk eða sölt — og meira af súputeningi sé hún of bragðdauf. Gættu þess að hafa hlemm á pottinum og að sjóða súp- una ckki of lcngi, þá eyði- ieggst C-vítamínið. Teikning: Ulrika, Kópavogi. spor- vagn- inum Hershöfðingi einn steig eitt sinn upp í sporvagn og settist alveg aftur við dyr. En svo komu undirforingj- ar og óbreyttir hermenn og fylltu smámsaman hin sætin. Skömmu seinna steig gömul kona inn í vagninn. Þá var ekkert sæti eftir handa henni, og enginn stóð upp. Gamla konan gekk hægt aftur eftir vagninum og nam staðar aftur við dyr. Óðar er hershöfðinginn sá hana, stóð hann upp og bauð henni sæti sitt. Þá varð hermönnunum skyndilega órótt innan- brjósts. Þeir stóðu nú upp hver á fætur öðrum og buðu hershöfðingjanum sæti sín. Hershöfðinginn hristi höfuðið og sagði. — Nei, þakka yður fyrir. Fyrst gamla konan gat ekki fengið sæti, þá er ekkert sæti heldur til handa mér. Hnappa-keppni Þetta er einfaldur og ódýr leikur, sem þið getið leikið ykkur í hvar sem er — hvort sem þið eruð heima eða á ferðalagi (þið megið samt ekki rífa tölurnar af fötun- um ykkar!). — Fáið ykkur umbúðapappír og teiknið hringi á hann eins og mynd- in sýnir og merkið með tölustöfum. Leggið síðan hnapp eða tölu á miðju hringsins og reynið svo að hitta þennan hnapp með öðrum og ýta honum út úr miðjunni. Hver keppandi getur reynt þrisvar t.d. og eru þá stigin hans lögð saman ef honum hefur tek- ist að ýta miðju-hnappinum úr sínu sæti. — Þið getið einnig merkt hringinn öðru vísi, með hæstu töluna í miðjunni og minnstu út við rendurnar, og reynt síðan að hitta sem næst miðjunni líkt og í pílukasti. Reynið að vera hug- myndarík og finnið ykkur verkefni sjálf í sumar — og gleymið ekki að bjóða hjálp ykkar og aðstoð! Spaklega mœlt Afglapinn smáir aga föður síns, en sá, sem tekur umvöndun verður hygginn. Vegur hins óguðlega er Drottni andstyggilegur, en þann, sem stundar réttlæti, elskar hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.