Morgunblaðið - 30.06.1979, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 30.06.1979, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ1979 39 i THþrlfalítill lelkur á Akureyrl KA~ 1—1 Fram KA OG Fram gerftu jafntefli í jöfnum leik liðanna sem fram fór á Akureyri í gærkvöldi. Þetta var fyrsti leikurinn á grasvellinum fyrir norðan, og fór hann fram vift hinar ákjósanlegustu aðstæft- ur. Fyrri hálfleikur var heldur tíðindalítill, fyrir utan mark KA manna, sem kom á 10. mínútu leiksins. KA-menn léku vel saman og gaf Njáll boltann inn í teiginn til öskars Ingimundarsonar sem gat skorað úr þröngu færi, óverj- andi fyrir Guðmund markvörft. Þetta mark verður að skrifast á vörn Frammara, en hún var svifasein og fékk óskar nægan tíma til að athafna sig. Fyrstu 20 mínútur leiksins var jafnræði með liðunum en það sem eftir lifði hálfleiksins voru Frammarar öllu betri. Án þess þó að skapa sér umtalsverð mark- tækifæri. Utan einu sinni er Ásgeir Elías- son skallaði framhjá stönginni. Strax á 8. mínútu síðari hálf- leiks tókst Fram að jafna leikinn, og var þar Ásgeir Elíasson að verki. Pétur Ormslev skaut á mark KA, Aðalsteinn markvörður varði skotið en missti boltann klaufalega frá sér og Ásgeir fylgdi vel á eftir og potaði boltanum í netið. Margir vildu meina að Aðal- steinn hefði komið hönd á boltann er Ásgeir skaut, en góður dómari leiksins, Arnþór'Óskarsson, var á öðru máli. Eftir markið varð leikurinn sem spegilmynd af fyrri hálfleiknum. En þó voru færin fleiri. Besta færi Frammara átti Pétur Ormslev er hann komst einn innfyrir vörn KA, lék á markvörðinn en varnar- menn KA bægðu hættunni frá á elleftu stundu. Litlu síðar komst Elmar innfyr- ir vörn Fram, en Guðmundur markvörður bjargaði með út- hlaupi. Einnig varði Guðmundur vel skot frá Eyjólfi Ágústssyni sem var skyndilega einn á auðum sjó, eftir varnarmistök Framm- ara. Eyjólfur kom inn á sem varamaður, en hann hefur átt við þrálát meiðsli að stríða og ekki geta leikið með fyrr en nú. Ekki voru Frammarar sannfær- andi í þessum leik, eftir góða leiki að undanförnu. Ásgeir var bestur þeirra, og dreifði hann spilinu mjög vel. Lið KA virkaði mjög jafnt, í þessum leik og skar sig þar enginn sérstaklega úr. Leikinn dæmdi Arnþór Óskarsson og gerði hann honum góð skil. Ásgeir Elíasson skoraði mark Fram og var bezti maður liðsins. í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild Akureyr- arvöllur. KA-Fram 1—1 (1—0). Mark KA. Óskar Ingimundarson á 8. mínútu. Mark Fram: Ásgeir Elíasson á 53. mínútu. Áminning: Engin Áhorfendur 1053. Isiandsmðllð 1. delld — Reynir „KR-ingar áttu refsingu skilið—þeirvoru orðnir of roggnir með sig“ Fylkir sigraði á Selfossi Selfoss — Fylkir FYLKIR gerði góða ferð á Sel foss í gærkvöldi, þeir komu, sáu og sigruðu heimanenn 2—0. Var það mjög sanngjarn sigur eftir gangi leiksins. Fylkismenn léku mun betur allan tímann og voru fljótari á boltann og ákveðnaðir í öllum sóknaraðgerðum sfnum. Lið Selfoss lék ekki vel, og baráttuvilja vantaði f leikmenn. Voru þeir flestir sem léku undir getu. Fyrsta mark leiksins kom á 35. mínútu, og var þar bakvörðurinn Kristinn Guðmundsson að verki. Gott skot hans hafnaði í netinu án þess að markvörður Selfoss ætti möguleika á að verja. Á síðustu mínútu fyrri hálfleiksins skoraði svo Hilmar Sighvatsson annað mark Fylkis. Staðan í hálfleik var því 2—0. Og ekki voru fleiri mörk skoruð í ieiknum. Bestu menn Fylkis voru Grettir og Hilmar. Hjá Selfyssingum var það einna helst Sumarliði sem eitthvað sýndi. kp/þr. I ísiandsmðBB 2. delid I Knattspyrnan um helgina ÞAÐ kennir margra grasa í knattspyrnunni um helgina að venju og leikir í fullum gangi í 1., 2. og 3. deild. Leikir helgarinnar eru eftirfarandi. LAUGARDAGUR 1. deild Laugardalsvöllur KR — ÍBK kl. 14.00. Dómari: Rafn Hjaltalfn. 1. deild Vestmannaeyjar ÍBV — ÍA kl. 15.00. Dómari: Magnús V. Pétursson. 2. deild Grenivík Magni — Reynir kl. 14.00. 3. deild B-riðiIl Þór — óðinn kl. 16.00 í Þorlákshöfn. 3. deild B-riðill Leiknir - Katla kl. 16.00 á Fellavelli. 3. deild C-riftill Stefnir — Bolungarvík kl. 16.00 á Suðureyri. 3. deild C-riðill Skallagrfmur — Snæfell kl. 14.00 í Borgarnesi. 3. deild D-riðill Höfðstr. - Tindastóll kl. 16.00 á Sauðárkróki. 3. deild D-riðill Svarfdælir — KS kl. 16.00 á Dalvík. SUNNUDAGUR: 1. deild Laugardalsvöllur Valur — Þróttur kl. 20.00. Dómari: Arnþór óskarsson. 1. deild Hvaleyrarvöllur Haukar — Víkingur kl. 16.00. Dómari: Þorvarður Björnsson. - ÚRSLITIN á móti KR voru sanngjörn. Og fyrir mig var það stórkostleg reynsla að skora þrjú mörk f sama leiknum. Það er ofsa tilfinning sem fylgir því. Mér fannst þetta vera góð refsing fyrir KR-inga að tapa svona stórt — þeir voru nefnilega orðnir svo roggnir með sig. Svo mælti Halldór Arason Þrótti er blm. Mbl. ræddi við hann um íslandsmótið f knatt- spyrnu og bað hann að spá um leiki vikunnar sem framundan er. Halldór átti mjög góðan leik með liði sfnu Þrótti er það vann stórsigur á KR á dögunum. Og náði þá Halldór að skora „Hat trick“, það sem alla knattspyrnu- menn dreymir um á ferli sfnum. Þróttarar mæta Val á morgun, sunnudag, og við skulum sjá hvað Halldór hefur um þann leik að segja. — Valsmenn hafa alltaf átt erfitt með Þrótt. Og við komum til með að standa í þeim og meir en það, við skulum segja að við sigrum 2—1. Ég hef fulla trú á að þetta fari nú allt að koma hjá okkur. Liðið hefur átt við meiðsli að stríða, og það hefur dregið úr okkur mátt. Það eina sem ég er hræddur við er að oft hefur okkur gengið illa eftir stórleiki. Vonandi snýst dæmið nú við. Ég vona að mér takist að skora á móti Val, nú verða gerðar meiri kröfur til mín en áður, ég geri mér það ljóst. Hvað með liðin í deildinni, hvert þeirra er best að þinum dómi? Það er ekkert lið áberandi best. Mótið er þar af leiðandi mik’u skemmtilegra en áður og áhorf- endur streyma á völlinn, enda fá þeir að sjá spennandi og vel leikna leiki. Mér finnst verst að leika á móti ' Fram. Þeir leika svo sterka vörn. Leika stíft maður á mann. Þá er liðFramara jafnast. IBK hefur verið mjög heppið í mótinu til þessa, þeim hlýtur að fara að fatast flugið. En mark- vörður þeirra, Þorsteinn Ólafsson, er frábær. Hann er bókstaflega hálft liðið. Lið ÍA er skemmtilegt, en of misjafnt. Það er ekki nógu gott hversu þeir fá marga útileiki fyrst. Og svo í lokin alla heima- leikina, það gæti nefnilega komið þeim til góða. Að mínum dómi verða liðin í þessari röð þegar mótinu lýkur: Fram, Valur, IBK, Þróttur, ÍA, ÍBV, Víkingur, KR, KA, Haukar. Eigið þið dygga stuðningsmenn í Þrótti sem fylgja ykkur á völl- inn? Já, það er kjarni sem fylgir okkur vel eftir, en því miður vilja margir hverfa ef illa gengur. Nú svo bregður alltaf fyrir nýjum andlitum þegar velgengnin er mikil. - Þr. Spá Halldórs Arasonar: 1. deild KR - ÍBK 1:1 ÍBV - ÍA 2:1 Valur — Þróttur 1:2 Haukar — Víkingur 1:1 2. deild Magni — Reynir 1:3 Bikarkeppni KSÍ Víkingur — Valur 0:2 UBK - Fylkir 3:0 ÍA — Austri 5:0 Haukar — Þróttur 1:3 KR - KS 3:1 Þór - ÍBV 1:1 ÍBK - ÍBÍ 2:0 Ljósmynd Kristján. • Halldór Arason Þrótti skoraði þrennu á móti KR í fyrrakvöld. Hér sést kappinn brjótast í gegn um vörn KR og skora sitt þriðja mark í leiknum. Það eru KR-ingarnir Sigurður Indriðason til vinstri og örn Guðmundsson til hægri sem þjarma að Halldóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.