Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 17 Árni stendur hér hjá flosmyndinni af œttarmerkinu, er hann útbjó sjálfur. Ljósm. Mbl. Kristján Hefur aldrei kennt sér meins - vinnur enn fulla vinnu mjög gaman af — það er mitt aðaláhugamál. Ég á á milli 40—50 ættfræðibækur og hef skráð nokkr- ar ættartölur." Hann hefur útbúið sitt eigið skjaldarmerki og er það samansett úr gömlum skjaldar- merkjum ætta hans. „Fálkann í merkinu tók ég úr Skarðsættar- skjaldarmerkinu, nema þar er fálk- inn með útbreidda vængi og högg- ormur er þar sem ég tók út. Hesturinn er úr skjaldarmerki Eggerts Eggertssonar lögm. í Vík- inni í Noregi, sem ég rek hina ætt mína til. Mér finnst gaman að eiga mitt eigið ættarmerki og hef látið teikna það sérstaklega og flosa." — En notar þú merkið? „Ég merki t.d. allar bækur mínar með því, en mest er þetta mér til ánægju og tengist ættfræðiáhug- anum.“ — Nú hefur þú áreiðanlega kom- ið víða við, Árni, og þú ert kenndur við Stykkishólm þó svo það séu liðin mörg ár síðan þú fluttist þaðan. Hvað er þér minnisstæðast frá dvöl þinni þar? „Ég fór ungur með systur minni til Bandaríkjanna og dvaldi þar í nokkur ár, reyndi síðan fyrir mér í tvö ár í bændahlutverki hér heima en það átti ekki við mig, þannig að ég fluttist til Stykkishólms 1939 og hóf störf innanbúðar hjá Sigurði Ágústssyni alþingismanni. Það var góður maður og gott að vinna hjá honum. Síðar setti ég upp mína eigin verzlun, sem ég rak allt fram til áramóta 1957—58, en varð þá að hætta vegna atvinnuleysis og þrenginga. Seldi ég þá lagerinn og fluttist til Reykjavíkur. Ég hóf fljótlega afskipti af stjórnmálum í Stykkishólmi og fékk inngöngu í verkalýðsfélagið vegna þess að ég vann í eitt ár sem verkamaður, en það stóð nú styr um þá inngöngu. Það var spennandi pólitík þar á þessum árum. Ég átti sæti í hreppsnefnd Stykkishólms í 15 ár og ég er svolítið upp með mér af því, að á meðan ég sat þar komst aldrei kommúnisti inn. Ég vann mikið að félagsmálum þarna, stofnaði m.a. málfundafélagið Þór og var for- maður þess í áratugi, auk annars félagsstarfs. Eftir að ég kom til Reykjavíkur vann ég um tíma við fasteigna- og bílasölu á Spítalastíg. Mér bauðst síðan atvinna á Keflavíkurflugvelli og hef unnið þar síðan sem birgða- tæknifræðingur. Þar er gott að vera og þar er enginn rekinn úr vinnu, þó hann nái einhverju ákveðnu aldursmarki." — Hvað er þér efst í huga á þessum merkisdegi í lífi þínu? „Ég fylgist nú enn með stjórn- málunum þó að ég sé að mestu hættur afskiptum. Mér er nú efst í huga hversu landsmálin eru gjör- samlega úr böndum. Mín ósk er sú, að núverandi ríkisstjórn fari frá, og því fyrr því betra. Ég er á því, að Sjálfstæðisflokkurinn fengi meiri- hluta ef kosið yrði nú og styð það þeirri staðreynd að hægri sveifla á sér nú stað um alla V-Evrópu. Þetta er mér nú efst í huga.“ Árni bað um í lok viðtalsins að það kæmi fram, að hann tæki á móti vinum og vandamönnum á heimili dóttur sinnar að Köldukinn 29 í Hafnarfirði í dag á milli kl. 14-19. Áttræður: Arni Ketilbjarnar frá Stykkishólmi Það má ekki minna vera en ég sendi þessum ágæta og trygga vini mínum kveðju- og afmælisóskir á merkum tímamótum í blaðinu okkar. Á honum sér enginn, að svona mörg ár séu að baki og þó hefir hann unnið hörðum höndum, kynnst erfiðri lífsbaráttu og löng- um vinnudegi og þurft stundum að leggja nótt með degi. En það sér ekki á. Enn vinnur hann hvern dag og ekur sínum bíl á vinnustað 50 km leið úr Breiðholtinu til Keflavíkur og í tómstundum legg- ur hann mikið starf í ættfræði sem honum er hugleiknari eftir því sem árin líða. Árni var í Hólminum þegar ég kom þangað og við Hólminn kennir hann sig, það sést þegar gluggað er í síma- skrána. Það sýnir vissa tryggð. Árni var hér mikið í félagsmálum og unnum við bæði saman í stúk- unni okkar og eins í sjálfstæðisfé- laginu svo nokkuð sé nefnt. Þau mál, sem honum fannst ekki mega bíða, fengu allan huga hans og því ekki hugsað um annað en að koma þeim í höfn. Óskiptur var hann. Það fór líka þannig að mér fannst mikið hverfa hér úr félagslífi þegar hann var hér ekki lengur. Þá var kona hans, frú Lára, ekki síður virk í félagsmálum hér. En þótt bil hafi orðið milli okkar hefir það engin áhrif haft á vináttuna nema síður sé. Sam- bandið hefir frekar styrkst en hitt. Árni er nefnilega þannig, að hann er hreinn og beinn, aldrei hikandi og maður veit alltaf hvar maður hefir hann. Þessa alls vil ég minnast á þessum tímamótum. Hluti af hans sumarleyfum fer líka í átthagana. Þau eru ekki mörg árin sem hann kemur ekki vestur í vinahóp og þá verða margir fagnaðarfundir. Og enn heldur þessi ungi maður áfram í vinnunni. Hann þarf ekki að beygja sig fyrir aldursmarki ríkisstarfsmanna, því á vellinum má hann vera á meðan hann heldur velli og það er vissulega hans hamingja. Þar er hann met- inn að verðleikum og þau störf sem hann vinnur. I dag fær hann marga góða kveðjuna að vestan og víðar. Ég óska honum allrar blessunar í komandi framtíð um leið og ég þakka litríka samferð og trausta vináttu. Árni Helgason kenningu sem snjall þýðandi. BHB nýtur hvarvetna mikils álits. Geta má þess að Alþingi íslendinga hefur veitt forlaginu nokkurn fjárhagsleg- an stuðning og Norræni þýðingar- sjóðurinn hefur styrkt útgáfu flestra bóka forlagsins. BHB mun hafa gefið út bækur sex eða sjö íslenskra höfunda og þannig unnið ómetanlegt starf í kynningu ísl. bókmennta erlendis og þá fyrst og fremst í Danmörku. Á síðast liðnu ári dundi reiðar- slagið yfir er Birgitte Hövring lést, aðeins 48 ára að aldri. Þorsteinn hefur síðan einn haldið áfram starf- semi forlagsins. Á þann hátt finnst honum eflaust best varðveitt minn- ing hinnar mikilhæfu konu. En útgefandanum hefur ekki fundist það nóg. Söknuðurinn nísti hjartað og hann verður skáldinu kveikjan að ljóðunum í „Du, som kom“. Nýja ljóðabókin er 126 bls. að stærð og skiptist í 13 kafla. Bókin hefur þegar hlotið góðar viðtökur í Danmörku og gagnrýnendur lokið á hana lofsorði. Freistandi væri að vitna til ljóðanna, en það bíður þeirra sem skrifa um bókina. Þessar fáu línur eru aðeins frétt um útkomu hinnar nýju ljóðabókar Þorsteins Stefánssonar „Du, som kom“, og jafnframt getið hins þýðingarmikla verkefnis sem Birgitte Hövrings Biblioteksforlag hefur tekist á hend- ur í þágu íslenskra bókmennta. Á.E. LESTU ÞETTA Ódýrustu 20 litasjónvörpin — og þau eru japönsk gæöavara í kaupbæti. VERÐIÐ ER sjonvorp sameina myndgæði, frábæra liti. Bilana- tíðni í algjöru lágmarki. ■ / sjonvorp búa yfir bestu kost- um sjónvarpa. unnax Sfyzeiióóon h.$. SudurlitnHftKroiii 498.500- Takmarkað magn Suðurlandsbraut 16. Sími 35200.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.