Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 UIHHORP Umsjón: Anders Hansen. Skafti Harðarson. NýstjórnSUS kjörin á Húsavík XXV. þing SUS var haldið á Húsavík dagana 14. tii 16. æptember siðastliðinn, eins og rækilega hefur verið skýrt frá í fréttum. Þingið var haldið á Hótel Húsavík, en þar er öll aðstaða mjög til fyrirmyndar og tókst þing- hald með ágætum. Á annað hundrað manns sóttu þing- ið, ungir sjálfstæðismenn úr öllum kjördæmum landsins. Stjórnarkjör fór fram á sunnudag. Jón Magnússon var einróma endurkjörinn formaður Sambandsins, en hann var fyrst kjörinn for- maður SUS á þinginu í Vest- mannaeyjum fyrir tveimur árum. Á þinginu voru sam- þykktar breytingar á lögum SUS, sem fela það í sér að tala stjórnarmanna verður eftirleiðis óbreytt, án kjör- fylgis Sjálfstæðisflokksins í næstu kosningum til Alþingis á undan. í samræmi við þessa lagabreytingu voru eftirtalin kjörin í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna til næstu tveggja ára: Úr Vest- urlandskjördæmi: Þorkell Fjeldsted. Vestfjarðakjör- dæmi: Guðmundur Þórðar- son. Norðurlandskjördæmi vestra: Karl Pálsson. Norður- iandskjördæmi eystra: Björn Jósef Árnviðarson og Gunn- laugur Jón Magnússon. Aust- urlandskjördæmi: Rúnar Pálsson. Suðurlandskjör- dæmi: Ólafur Helgi Kjart- ansson og Magnús Kristins- son. Reykjaneskjördæmi: Fríða Proppé, Margrét Geirs- dóttir, Þórunn Lúðvíksdóttir og Júlíus Rafnsson. Reykja- víkurkjördæmi: Árni Bergur Eiríksson, Bessí Jóhanns- dóttir, Erlendur Kristjáns- son, Björn Hermannsson, Kjartan Jónsson, Jón 0. Halldórsson, Sverrir Bern- höft, Gísli Baldvinsson og Gústaf Níelsson. Hin nýkjörna stjórn hefur enn ekki skipt með sér verk- um, en gerir það væntanlega á fyrsta fundi sínum í dag. Formaður, fyrsti og annar varaformaður, ritari og gjaldkeri stjórnarinnar mynda framkvæmdastjórn. Miklar breytingar urðu á stjórn SUS að þessu sinni, en eftirtaldir sátu í síðustu stjórn en gáfu ekki kost á sér til endurkjörs: Inga Jóna Þórðardóttir, Björn Jónas- son, Anders Hansen, Hilmar Jónasson, Sigurður Jónsson, Sigurpáll Einarsson, örn Kærnested, Baldur Guð- laugsson, Þorvaldur Mawby, Haraldur Blöndal, Sveinn Guðjónsson, Hreinn Loftsson og Tryggvi Gunnarsson. Frá störfum SUS-þingsins á Húsavík: Einar K. Guðfinnsson i ræðustól, og aðrir á myndinni, talið frá vinstri: Gísii Baldvinsson fundarritari, Jón Magnússon formaður SUS, og Ililmar Jónsson fundarstjóri. Tímaritið Stefnir komið út Stefnir, 4. tölublað 1979, er nú nýkomið út, og á nú um það bil að vera að berast áskrif- endum. Nokkur brögð hafa verið að því að undanförnu að ritið hefur ekki komist á áfangastað, og eru þeir áskrifendur sem ekki hafa fengið blaðið því vinsamlega beðnir um að hafa samband við skrifstofu Stefnis í Val- höll, sími 81900. Nýir áskrifendur geta einnig gerst áskrifendur með því að hafa samband við Stefán H. Stefáns- son í síma 82900, eða Andres Hansen rit- stjóra í síma 77556. STEFNIR Forsíða siðasta tölublaðs Stefnis. Forsíðumyndin er eftir Emiliu Björnsdóttur, ljósmyndara. Síðasta tölublað Stefnis hefur að geyma greinar eftir ýmsa unga sjálfstæðismenn, auk annars efnis. Þeir sem rita greinar í ritið að þessu sinni eru þeir Jón Magnússon, Jón Halldórsson, Inga Jóna Þórðardóttir, Vilhjálm- ur Egilsson, Kjartan Gunnarsson og Róbert T. Árnason. Þá er í ritinu ritstjórnargrein eftir Andres Hansen, smásaga eftir Hrafn Gunnlaugsson rithöf- und og viðtöl eru við þá Svein Guðjónsson gjaldkera ÆSÍ og Frið- rik Friðriksson for- mann Félags frjáls- hyggjumanna, auk margvíslegs annars efnis. Mikil gróska í starfi Bókaklúbbs áhugamanna um frjálshyggju Frá því að Félag frjáls- hyggjumanna var stofnað i maí sl. hefur verið starf- ræktur á þess vegum bóka- klúbbur, Bókaklúbbur áhugamanna um frjáls- huggju. Við höfðum samband við Skafta Harðarson, umsjón- armann bókaklúbbsins og spurðum hann hvernig starfsemi klúbbsins hefði gengið. „Frá því að við gáfum út fyrsta fréttabréf okkar í júní sl. höfum við selt fleiri titla, en við nokkurn tímann höfð- um gert okkur vonir um,“ sagði Skafti „og nú er svo komið að við höfum selt hátt í þrjú hundruð bækur og bæklinga. Þetta sýnir ljós- lega hversu mikil þörf var orðin fyrir þjónustu eins og þessa, þar sem bókabúðir hér á landi eiga mjög lítið úrval af bókum um frjálshyggju og má t.d. nefna að hægur vandi er að fara hér í bókabúðir og afla sér bóka eftir hagfræð- inginn John Kenneth Gal- braith, sem nýtur lítillar virðingar fræðimanna, en hins vegar verður að sér- panta rit eins og Capitalism and Freedom eftir nóbels- verðlaunahafann í hagfræði, Milton Friedman. Bók Fried- mans buðum við í síðasta fréttabréfi og hefur hún selst með eindæmum vel ásamt bókum eins og t.d. The Road to Serfdom og The Constitution of Liberty eftir F.A.Hayek, The Open Society and Its Enemies eftir Karl R. Popper og The Collapse of Democracy eftir Robert Moss.“ — En hvað um framhald á starfi klúbbsins? „Við höfum einsett okkur að koma út nýju fréttabréfi nú í byrjun október og verður fréttabréfið sent út til allra félaga í Félagi frjálshyggju: manna, sem nú eru um 200. í þessu fréttabréfi verður eftir sem áður boðið upp á bækur eftir Milton Friedman, F.A. Hayek og Ludwig von Mises, en ennfremur má nefna að á boðstólum verða bækur, sem vafalaust hafa lítið sést hér áður, þar sem þær eru nýút- komnar. Þar á meðal eru t.d. bók franska nýheimspekings- ins Bernard Henry-Levi, Barbarism with a Human Face, To Build a Castle eftir Valdimir Bukovsky og The Conservative Intellectual Movement in America eftir Georg H. Nash." Áhugamenn geta skrifað Bókaklúbbnum og beðið um bækur, eða haft samband við Skafta Harðarson í síma 85298 á kvöldin. Bréf til. póstsins skulu stíluð á Bókaklúbbur áhugamanna um frjálshyggju, Pósthólf 1334 121 Reykjavik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.