Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 34
34 Guðmundur Sveinsson: Góðir áheyrendur, nemendur, kennarar og annað starfsfólk Fjölbrautaskólans í Breiðholti. I Eg býð ykkur öll hjartanlega velkomin til skólasetningarinnar hér í Bústaðakirkju, laugardaginn 1. september 1979. Upphaf skólastarfs er alltaf sérstæður og merkur atburður. Miklar vonir eru bundnar við tímann sem í hönd fer, að hann gefi uppskeru sem erfiði, í skólan- um takist okkur öllum sameigin- lega að skapa þann hug er til átaka hvetur, þann vilja að sigrast verði á tregðu og torfærar leiðir reynist greiðar. I skólanum okkar verði það eggjun og hvatning sem betur hefur en úrtölur og undan- sláttur, að litið verði á starfið sem sérstætt tækifæri að þroskast, vitkast og göfgast. Vafalaust á hún að vissu leyti samsvörun við upphaf skólastarfs hverju sinni sagan alkunna um ungmennin þrjú sem héldu í för og lögðu af stað í örlagaríka leit. Eitt þeirra fór til þess að leita gleðinn- ar, fagnaðarins. Annað fór til að leita ávinnings, gengis eða far- sældar. Hið þriðja leit öðrum augum á stefnumið fararinnar. Það hugðist leita skyldunnar, skyldunnar við ættjörð, sjálft sig og þjóð sína. Við þekkjum öll eða flest þessa sögu og vitum að leitin að gleðinni virtist óráðin og mark- miðið hverfult, leitin að ávinningi í velgengni og farsæld varð fyrr en varir að blindgötu. Það reyndist vera leitin ein að skyldunni, sem bjó yfir velgengni og tryggði árangur og það sem meira var fól einnig í sér gleði og farsæld. Þess hefur verið óskað sérstak- lega að nýnemendur Fjölbrauta- skólans í Breiðholti kæmu til þessarar skóiasetningar. Hvort tveggja er að nýnemahópurinn er mjög fjölmennur og eins hitt að gera á þeim sérstaklega grein fyrir skólastofnuninni er þau nú hefja nám við. Nýnemar Fjöl- brautaskólans í Breiðholti eru ekki allir að hefja nám á fram- haldsskólastigi. Sumir eiga þar lengri eða skemmri námsferil að baki sem þeir fá að fullu metinn til áfanga og eininga eins og þetta er kallað í námskerfi skólans okkar. Nýnemar eru eftir því sem næst verður komist á milli 500 og 600. í byrjun júnímánaðar höfðu 720 nýnemar sótt um inngöngu í Fjöl- brautaskólann í Breiðholti. Var þá hætt að taka á móti frekari umsóknum, en áætla má að nær 200 til viðbótar hafi leitað eftir vist í skólanum. Ég sé ekki ástæðu til að ræða hér ítarlega um þenn- an vanda skólans svo serstæður sem hann þó er og athyglisverður. Hitt ætla ég að sé nýnemum skólans ríkara í hug við upphaf námsferils síns á nýjum stað að vita hvers eðlis skólastofnun sú er sem þeir hafa innritast í. Ég mun því víkja nokkrum orðum að Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti sem menntastofnun og gera um leið örstutta grein fyrir sérstöðu skól- ans. Fjölbrautaskólinn i Breiðholti var stofnaður árið 1973 eða fyrir rúmum sex árum. Skólastarfið var undirbúið í tvö ár eftir að ákvörð- un hafði verið tekin um skóla- stofnunina. Haustið 1975 hóf skól- inn starf, var settur 4. október það ár sem fyrsti og eini fjölbrauta- skóli landsins. Skólinn starfaði þá á fjórum námssviðum og voru námsbrautirnar 28. Ég mun síðar gera námssviðum og námsbraut- MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 Fyrsti stúdentahópurinn frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti mÉT WpM i g&*k nffrfjnHn ,% P JB A*, 1| V-J ' Hugs jónir — K vídi—Frelsun um skil í þessari skólasetningar- ræðu. Hitt ætla ég að nýnemar telji forvitnilegra að fá vitneskju um hversu marga nemendur skól- inn hefur leitt fram að mismun- andi lokamarki á þeim fjórum árum sem liðin eru frá því reglu- bundið skólastarf hófst. Ég mun leitast við að gera nokkra grein fyrir þessum atriðum, enda ætla ég að þau muni um leið gefa nýnemum hugboð um námsmögu- leika og að nokkru um námsskip- an. Ég mun taka námssviðin í stafrófsröð, enda þótt það komi nokkuð þvert á byggingu námsins í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti þar sem finna má eins árs grunn- námsbrautir, tveggja ára brautir, þriggja ára brautir og loks fjög- urra ára brautir til stúdentsprófs. Þá eru hugtökin eins — tveggja — þriggja og fjögurra ára brautir einnig villandi, þar sem áfanga- kerfi skólans skapar nemendum möguleika að hraða námi, ljúka tilskyldum einingurti á skemmri tíma svo og að ætla sér lengri tíma til að ljúka áföngum og hljóta tilskyldar einingar. Á almennu bóknámssviði eoa menntaskólasviði hefur skólinn tvívegis brautskráð stúdenta á þrem námsbrautum til þessa, eðlisfræðibraut, náttúrufræði- braut og tungumálabraut. Enn hafa stúdentar ekki verið braut- skráðir á þrem námsbrautum sviðsins, félagsfræðibraut, tónlist- arbraut og tæknibraut. Standa vonir til að svo verði í lok haust- annar í desembermánuði næst- komandi. Á heilbrigðissviði hefur skólinn tvívegis brautskráð sjúkraliða á heilsugæslubraut og munu nú um 40 þeirra hafa hlotið starfsrétt- indi heilbrigðisráðuneytisins. Þá hefur skólinn brautskráð snyrti- sérfræðinga á snyrti- og heilbrigð- isbraut. Loks hafa tvívegis verið Ræða við skóla- setningu Fjöl- brautaskólans í Breiðholti, flutt í Bústaðakirkju, laugardaginn 1. september Guðmundur Sveinsson brautskráðir stúdentar á heil- brigðissviði, heilsugæslubraut. Allir stúdentar skólans hafa sam- eiginlegan 87 eininga bóknáms- kjarna og verða auk þess að hafa kjörgreinar brauta sem tryggja rétt til framhaldsnáms á háskóla- stigi. Á hússtjórnarsviði hefur skól- inn brautskráð nemendur eftir eins árs grunnnám á matvæla- tæknibraut, sem skipulögð var í samráði við Hótel- og veitinga- skóla íslands undir forsjá menntamálaráðuneytisins að nám þetta verði metið til styttingar á samningsbundnu námi í fram- reiðslu og matreiðslu. Enn hefur skólinn brautskráð nemendur eft- ir tveggja ára hússtjórnarnám, en það er nú að breytast yfir í framhaldsnám á matvælatækni- braut skipulagt í samvinnu við forráðamenn sjúkrastofnana í höfuðborginni að undirbúa undir störf á mötuneytum sjúkrahús- anna eftir 34 vikna verkþjálfun. Skipulagslega verður þessi mennt- un algeriega hliðstæð sjúkraliða- náminu og er þess að vænta að hér verði brotið blað í námi í mat- vælatæknifræðum með sérþarfir sjúkrastofnananna og stærri mötuneyta landsins í huga. í desembermánuði næstkomandi mun Fjölbrautaskólinn í Breið- holti brautskrá fyrstu stúdentana á hússtjórnarsviði. Á listasviði hefur skólinn braut- skráð nemendur í tveggja ára grunnnámi myndlistar- og hand- íðabrautar, sem svarar til forskóla Myndlistar- og handíðaskóla ís- lands með mun meira bóknámi þó. Þá brautskráði skólinn á síðasta vori nemendur eftir tveggja ára framhaldsmenntun í auglýsinga- teikningu og almennum listgrein- um og enn við sama tækifæri fyrstu stúdenta sem brautskráðir hafa verið á íslandi á listasviði með fullgildan stúdentsppfs- kjarna ásamt kjörgreinum. Á tæknisviði hefur skólinn á iðnfræðslubrautum brautskráð nemendur sem hér segir: Á eins árs grunnnámsbrautum málm- iðna, rafiðna og tréiðna alls um 100 nemendur. Á eins árs fram- haldsbrautum iðnfræðslu hafa lokið tilskyldum einingafjölda, 25 á húsasmíðabraut, 14 á rafvirkja- braut og 20 á vélsmíðabraut, en á síðustu brautinni stunda nám bæði vélvirkjar og rennismiðir. Tveggja ára námi á iðnfræðslu- brautum hafa þannig lokið eftir kröfum Iðnfræðsluráðs til áfanga, eininga og verknámstíma samtals 59 nemendur. Á tveggja ára fram- haldsbrautum iðnfræðslu sem lýk- ur með sveinsprófi eftir ákvarðað- an verknámstíma hafa nú þegar lokið námi, sjö húsasmiðir með sveinsréttindum, fjórir vélvirkjar sem einmitt í dag fá afhent sveinsprófsskilríki sín. Þá ljúka ef Guð lofar fjórir rafvirkjar sveinsprófi í nóvembermánuði næstkomandi, en þeir hafa tafist vegna erfiðleika í skipulagsmálum skóiastofnunarinnar í Breiðholti. Fyrstu stúdentar á tæknisviði verða brautskráðir í desember- mánuði næstkomandi. Þeir ljúka stúdentsprófi áður en þeir hafa lokið verknámstíma og gengið undir sveinspróf í iðngreinum sínum. Uppeldissvið er yngsta náms- svið Fjölbrautaskólans í Breið- holti, var raunverulega fyrst stofnað á síðasta skólaári, 1978— 1979. Þar sem nemendur með almenna bóknámsáfanga hófu nám á uppeldissviði síðastliðið haust, tókst að brautskrá 10 nem- endur á tveggja ára námsbrautum á vetrinum. Námssviðið var skipu- iagt frá grunni á síðasta ári og margt sem bendir til að það verði mjög vinsælt námssvið með þrem brautum. Á viðskiptasviði Fjölbrautaskól- ans í Breiðholti hafa flestir nem- endur lokið prófum til þessa. Almennt verslunarpróf sem taka má á þrem tveggja ára náms- brautum hafa nú þegar hátt á annað hundrað nemendur lokið. Sérhæfðu verslunarprófi, einnig á þrem námsbrautum hafa 40 nem- endur lokið. Sérhæfðu brautirnar eru sjálfstæðar og harla mark- vissar, brautir í tölvufræðum, stjórnunarfræðum og sölufræð- um. Stúdentar hafa tvívegis verið brautskráðir á viðskiptasviði. Ný

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.