Morgunblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 11 Myndlist eftir VALTÝ PÉTURSSON Norræn menningarvika stendur nú yfir í Norræna húsinu, sú fyrsta sinnar teg- undar, og að ég held afkvæmi Listahátíðar í breiðri merkingu. Þar er ýmislegt á boðstólum, og skal það ekki tínt til hér, en myndlistin á þarna mikinn þátt, og eru tvær sýningar af henni, sem hvor um sig eru merkilegar. Hér verður fjallað um þá veiga- meiri þeirra, það er að segja um því mikla virðingu, vegna þess að mér var kunnugt um, að þarna voru á ferð samherjar Svavars Guðnasonar úr COBRA-hópnum, sem hafði gríðarleg áhrif strax að lokinni heimsstyrjöldinni síðari og hefur haft allt fram á líðandi stund. Því hefur jafnvel verið haldið fram á prenti, að fáar eða engar hreyfingar í listum hafi haft eins víðtæk áhrif og cubisminn á sínum tíma og Cobra á sínum. Ekki skal ég ganga í ábyrgð fyrir þessari skoðun, en eitt er víst, að við hér á íslandi eigum þessu fólki ýmislegt upp að unna á sviði myndlistar. Það má jafnvel full- yrða, að fátt hafi ýtt eins undir listsköpun hér á landi eftir að friður komst á og COBRA-hreyf- Carl- Henning Pedersen Merkileg sýning íNorrœna htísinu sýningu á verkum málarans CARL—HENNING PEDER- SEN, sem sýnir í öllum kjall- aranum. CARL—HENNING PEDER- SEN er einn af þekktustu málurum Dana, en heldur fannst mér tekið djúpt í árinni er sagt var hér á dögunum í fjölmiðlum, að hann væri þekktasti málari Dana um þessar mundir. Að vísu skal ekki dregið úr frægð Carls—Henning hér, en hvað um menn eins og RICHARD MORT- ENSEN og ROBERT JACOB- SEN? En sá er þekktastur var þeirra allra, ASGER JORN, er nýlátinn og kom svolítið við sögu hérlendis á sínum tíma eins og raunar allir hinir. Carl—Henning Pedersen og kona hans, Else Alfelt, dvöldu hér á landi sumarlangt fyrir mörgum árum og höfðu þá dætur sínar í för með sér. Ég man þetta fólk vel og bar fyrir ingin, enda áttum við okkar fulltrúa í hópnum, SVAVAR GUÐNASON, sem verður sjöt- ugur á næstunni, og vonandi verður munað eftir því af þeim aðilum, sem næst stendur að veita honum verðuga viðurkenn- ingu. Það er engin nýjung fyrir okkur að sjá hér sýningu á verkum CARL—HENNING PEDERSEN. Hann hefur oftar en einu sinni sýnt verk sín hér á samsýningum og ætíð vakið verðskuldaða eftirtekt. Á stundum hefur hann þótt heldur litglaður og jafnvel óþægilegur. í verkum hans er að finna mikinn og undarlegan heim, sem er fullur af skáldskap, óháðum veruleikanum en því meir tengdum dulúð og hinni norrænu þjóðsögu. Það eru sterk augu, sem ætíð skjóta gneistum í hinum expressionustísku verkum Carl-Henning Peder- sens. Fuglinn er víða tengdur grímu mannsins. Hvort það boðar gott eða vont, skal ekki krufið hér. Það er mikil náttúra í þessum verkum. Hefði Kjarval sagt. Flest þessi verk eru gerð í sérstökum litatón, síðan eru andstæður látnar skapa spennu, sem verkar eins og af öðrum heimi. Liturinn er stundum lagður léttilega og þunnt á léreftið, en svo eru þarna verk, sem eru mjög þykkt máluð og hafa persónulega áferð, sem gefa sumum verkanna aukið gildi. Ég hef séð sum þessara verka áður, og einkum man ég eitt verk á þessari sýningu, er ég sá sýningu í Helsingfors fyrir mörgum árum. Þá var ég beðinn um að velja eitt verk fyrir sjónvarpið í Helsingfors til að sýna, sem þverskurð af norrænni list. Þá valdi ég þetta verk, og það urðu sannarlega fagnaðarfundir, er ég léit aftur þetta málverk í sölum Norræna hússins. CARL—HENNING PEDER- SEN er nokkuð misjafn málari að mínum dómi, en hefur töfrandi vald yfir myndum sínum, sem seiðir mann inn í þann heim, er hann hefur skapað hverju sinni. Ég nefni aðeins No. 12, 18, 20, 21 og 34 þessu til sönnunar. Hann hefur sjálfur skrifað formála í sýningarskrá, og vísa ég til hans hér. Carl—Henning hefur átt mikið við Ijóðagerð og gefið út ljóða- bækur. Það fer heldur ekki milli mála, að lengi verður leitað til að finna ljóðrænni málara en hann. Það eru ætíð mikil tíðindi í listaheiminum, er CARL—HENNING PEDERSEN heldur sýningar. Maður sér það stundum í stórblöðum bæði vestan hafs og austan, er það skeður. Gallery de France í París og álíka þekkt fyrirtæki í New York auglýsa sérstaklega, þegar CARL—HENNING heldur sýningu. Það er af sem áður var, er þau hjónin voru hér í Laugar- nesinu, og fáir eða engir vildu líta við myndum þeirra. Nú er Else Alfelt látin, en maður hennar CARL HENNING hefur gefið bænum Herning í Danmörku um 4000 verk eftir þau hjón. Þar hefur verið byggt skemmtilegt safn yfir þessa miklu gjöf, og hefur CARL—HENNING skreytt safnhúsið með mikilli frísu. Ég held, að þau verk, sem nú eru í Norræna húsinu, séu úr þessari gjöf. Það er auðsætt við nánari athugun, að fagmaður hefur valið þessi verk. Þetta er vönduð sýning, sem allir ættu að sjá, sem annars hafa yndi af mynd- list. Þessi fyrsta menningarvika hjá Norræna húsinu fer verulega vel af stað. Þakkir fyrir ágætt framtak. Frískandi og gott á fímm sekúnaum. Það er Fountain. Engin venjuleg kaffívél Fountain drykkjavélin er engin venjuleg kafíivél, því að þú getur valið um sex kafFitegundir, fjórar tetegundir, þrjár súkkulaði- tegundir, sjö súputegundir og fjóra ávaxtadrykki. Þú getur fengið vél með tveim, fjórum eða sex fyllingum í einu, með eða án sjálfsala. Fimm sekúndur Það tekur þig aðeins fimm sekúndur að fá frískan og góðan drykk úr Fountain. Fountain hentar alls staðar Fountain hentar vel fyrir fyrirtæki, stór eða smá, söluskála og heimili. Einning eru fáanlegar 24volta vélar fyrir skip, báta og langferða- bíla. Ath! Ókeypis hiáefni l.sept.-l.des. Kaupir þú Fountain nú, færðu fyrstu fyllingamar ókeypis. Síðan er hráefninu ekið til þín, án endurgjalds, hálfsmánaðarlega eða eftir samkomulagi. Ég óska eftir að fá senda Fountain drykkjavél fyrir: □ 2 fyllingar □ 4 fyllingar □ 6 fyllingar - gegn póstkröfu. □ Ég óska eftir að fá senda mynd- og verðlista. □ Ég óska eftir að fá sölumann í heimsókn. Nafn Heimili Sími Pósthólf 7032 127 Reykjavík Sími 16463

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.