Morgunblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 29 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og skrifstofur Auglýsingar Afgreiósla hf. Árvakur, Reykiavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aöalstræti 6, sími 10100. Aóalstræti 6, sími 22480. Sími83033 Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 200 kr. eintakiö. Versnandi kjör undir vinstri stjóm Það fór óneitanlega vel á því, að Verkamannasamband íslands skyldi þinga um sl. helgi á Akureyri til þess að þeir Guðmundur J. Guðmundsson og Karl Steinar Guðnason skyldu geta veitt svokallaðri „ríkisstjórn vinnandi stétta“ nábjargirnar í viðeigandi umhverfi eða á svipuðum slóðum og þeir vöktu hana upp í fyrra. Það fer einnig vel á því, að í ályktun frá þessu þingi Verkamanna- sambandsins skuli umfram allt lögð áherzla á það, að kaupmátturinn komist í sama horf og hann var áður en þessi nýfallna ríkisstjórn fór að njóta sín í ráðherra stólunum. Nú er sem sagt búið að draga upp baráttufán- ann fyrir „samningunum í gildi“, sem legið hefur kruklaður niðri í kistu svikinna loforða og falskra fyrirheita í nær þrjú misseri. Það er fróðlegt að virða fyrir sér þróunina á kaupmætti verkamanns í valdatíð ríkisstjórnarinnar sálugu. Það kemur sem sé í ljós, að honum hefur verið að hraka fram að þessu og eftir nýgerðri þjóðhagsspá á kaupmáttur verkamanns að halda áfram að minnka á þessu ári og því næsta. Þá var það lagt til grundvallar í efnahagsstefnu hinnar nýföllnu ríkisstjórnar, að grunnkaup yrði óbreytt allt næsta ár og kaupgjaldsvísitalan skert enn frekar. Þannig hefur þetta verið síðustu misserin. Af veikum burðum hefur ríkisstjórnin reynt að hamla gegn verð- bólgunni einungis með því að krukka í launakjörin. Um skeið virtist hún að vísu hafa haft stefnu í vaxtamálum, en það er liðin tíð og aðrir þættir efnahagsmálanna hafa allir farið úr böndum eins og meðferð ríkisfjármála er gott dæmi um. Afleiðingin hefur orðið sú, að verðbólgan hefur magnast og er að nálgast 60% markið, kaupmáttur hefur minnkað og launamismunur farið vaxandi. Hinn 7. apríl sl. samþykktu stjórnarflokkarnir þáver- andi lög frá Alþingi um stjórn efnahagsmála, sem höfðu það að meginmarkmiði „að halda verðhækkunum í skefjum“ og stuðla að „bættum lífskjörum alls almenn- ings“. Siðan hafa lífskjörin verið að versna jafnt og þétt og launamismunur orðið meiri en áður. Og nú hinn 1. desember er svo ákveðið í lögum þessum, að hátekju- og miðlungstekjufólk skuli fá hlutfallslega meiri kaup- hækkanir en láglaunafólk. Þetta er afleiðingin af þeirri launamálastefnu, sem svokölluð „ríkisstjórn vinnandi stétta“ hefur verið að marka síðasta árið í sérstöku samráði við forystumenn Verkamannasambands íslands. Það er því ekki að furða, þótt ýmsir launamenn séu orðnir næsta hvekktir á þeim mönnum, sem sérstaklega telja sér það til gildis að vera úr svokölluðum „verkalýðsflokkum". Reynslan hefur kennt þeim, að úr þeirri átt er allra veðra von og altítt, að austan nepjan leiki um verkamanninn á eyrinni. Á vordögum 1978 reyndu A-flokkarnir að halda því að fólki, að engu skipti, hvaða laun væru greidd í landinu í sambandi við verðbólguna. Á því var hamrað, að það væri einungis illgirni og vont innræti þáverandi valdhafa sem ylli því, að sólstööusamningarnir væru ekki settir í gildi. Með mönnum eins og Svavari Gestssyni eða Kjartani Jóhannssyni myndi þetta allt saman breytast og lagast. Nú hafa menn um tveggja missera skeið kynnst góðsemi valdhafanna, sem við tóku. í hvert skipti sem þeir hafa tekið til máls hafa þeir lýst j)ví yfir, að þeir bæru hag launþega einna fyrir brjósti. Ávallt, þegar eitthvað hefur bjátað á, hafa þeir líka klipið af kaupgjaldsvísitölunni eitthvað, stundum mikið stundum minna. Og allt þetta síðasta ár höfum við fjarlægst það meir og meir, að kaupmáttur sólstöðusamninganna yrði að raunveruleika. Samt erum við verr undir það búin en áður að takast á við verðbólguna og ráða niðurlögum hennar, af því að landinu hefur verið illa stjórnað og efnahagsmálum þess alls ekki stjórnað. Af því súpa menn seyðið nú, — launþegar sem aðrir. Prófkjör krata í Reykjavík: Alþýðuflokkurinn íNorður- landskjördæmi eystra: Jón Ármann á móti Braga JÓN Ármann Héðinsson, fyrrverandi alþingismaður Álþýðuflokksins á Reykja- nesi, hefur ákveðið að gefa kost á sér til prófkjörs Al- þýðuflokksins á Norðurlandi eystra. Jón Ármann sagði í gær, að hann yrði þátttak- andi í væntanlegu prófkjöri flokksins í Norðurlandskjör- dæmi eystra og myndi gefa kost á sér í 1. og 2. sæti. Bragi Sigurjónsson skipaði efsta sæti listans við síðustu Al- þingiskosningar og sagði hann í gær, að hann ætlaði að fara fram í fyrsta sæti ef hann fengi fylgi hjá sínu flokksfólki. Jón Ármann er fæddur og uppalinn á Húsavík og sagðist hafa tekið ákvörðun um að fara fram í prófkjör nyrðra eftir að margir ágætir menn í héraðinu, ungir og gamlir, hefðu lagt að honum að gera slíkt. Árni Gunnarsson skipaði 2. sæti á lista flokksins í Norður- landskjördæmi eystra við síðustu Alþingiskosningar. Ekki náðist í Árna Gunnars- son í gærkvöldi til að inna hann eftir því hvort hann gæfi kost á sér til prófkjörs og þá í hvaða sæti. Jóhanna Sigurðardóttir enn óráðin í því að hvaða sæti hún sækir ÞAU fjögur, sem skipuðu efstu sætin á framboðslista Alþýðu- flokksins í Reykjavík við síðustu Alþýðubandalagið íReykjavík: Prófkjör ekkiákveð- ið ennþá PRÓFKJÖR hefur enn ekki verið ákveðið hjá Alþýðubandalaginu í Reykjavik að sögn Guðmundar Magnússonar formanns Alþýðu- bandalagsfélagsins í Reykjavík, en samkvæmt lögum félagsins skal prófkjör haldið. Ákvörðun um málið verður tek- in á fundi fulltrúaráðs félagsins n.k. miðvikudagskvöld og verður þar skipuð sérstök kjörnefnd sem síðar mun ákveða hvenær próf- kjörið verður haldið og í hvaða formi það verður. Alþingiskosningar, hafa öll ákveðið að gefa kost á sér til prófkjörs flokksins. Benekikt Gröndal formaður flokk- sins var í efsta sæti listans við síðustu kosningar og hefur ákveð- ið að gefa kost á sér í frófkjöri til 1. sætis. Dr. Bragi Jósepsson, sem var í kjorða sæti á lista Alþýðu- flokksins síðast, lýsti því yfir í samtali við Dagblaðið í gær, að hann myndi gefa kost á sér í fyrsta sæti listans og fer því fram á móti Benedikt. Vilmundur Gylfason, sem var í 2. sæti listans, sagði í gær, að hann stefndi áfram á annað sæti listans. Jóhanna Sigurðardóttir, sem var í 3ja sætinu, sagði hins vegar, að hún myndi taka þátt í prófkjörinu, en hún hefði ekki enn ákveðið í hvaða sæti hún gæfi kost á sér. Morgunblaðið hafði og samband við þau Bjarna Guðnason og Sjöfn Sigurbjörnsdóttur og innti þau eftir því hvort þau hygðu á framboð til prófkjörs. — Bjarni Guðnason, sem var í efsta sæti flokksins á Austfjörðum síðast, baðst undan því að svara þessari spurningu. Sjöfn hins vegar sagð- ist ekki hafa ákveðið neitt í þessum efnum á þessari stundu. Framsókn: Ekkert prófkjör á Norðurlandi vestra FRAMSÓKNARFLOKKURINN mun ekki halda próíkjör í Norð- urlandskjördæmi vestra fyrir Al- þingiskosningarnar að þessu sinni, að sögn Guttorms Óskars- sonar formanns fulltrúaráðs flokksins nyrðra. „Það er ein- faldlega svo stutt síðan síðasta prófkjör var haldið að við teljum ekki ástæðu til þess að endurtaka það,“ sagði Guttormur. Aðspurður um hvort Ólafur Jóhannesson fráfarandi forsætis- ráðherra yrði í fyrsta sæti á lista Framsóknar eins og við síðustu kosningar sagði Guttormur, að engin ákvörðun hefði verið tekin um það. Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík: Sjálfstæðis- flokkurinn: Fjölmenni var á fundi fulltrúaráðsins í Reykjavik á sunnudaginn í Sigtúni, er ákvörðun var tekin um prófkjör til undirbúnings kosningunum til Alþingis í desember næstkomandi. Ljósm. Mbl. Ól.K. Magnússon. Sjálfstæðismenn ákveða prófkjör í Reykjavík: SJÁLFSTÆÐISMENN í Reykjavik hafa ákveðið að efna til prófkjörs vegna kosninganna til Alþingis sem verða í desember næstkomandi, eins og skýrt er frá á öðrum stað i Morgunblað- inu i dag.Prófkjörið fer fram sunnudaginn 28. október og mánudaginn 29. október, en framboðsfrestur rennur út klukkan 17 fimmtudaginn 18. október. Morgunblaðið leitaði í gær til nokkurra frambjóðenda flokksins í síðustu kosningum, og leitaði staðfestingar á framboðum þeirra. Alþingismennirnir Geir Hall- grímsson, Ragnhildur Helgadótt- ir, Ellert B. Schram, Gunnar Thoroddsen og Friðrik Sophusson kváðust allir hafa ákveðið að gefa kost á sér í prófkjörinu. Albert Guðmundsson alþingismaður sagði hins vegar er hann var spurður: „Ég svara engu um það, ég hef ekki hugsað um það ennþá.“ Morgunblaðið hafði einnig sam- band við þá sem skipuðu næstu sæti á eftir þingsætum. Guðmund- ur H. Garðarsson formaður Versl- unarmannafélags Reykjavíkur, Pétur Sigurðsson formaður Sjó- mannadagsráðs, Elín Pálmadóttir blaðamaður og Haraldur Blöndal lögmaður kváðust gefa kost á sér. Geirþrúður Hildur Bernhöft elli- málafulltrúi sem var í níunda sæti framboðslistans við síðustu kosn- ingar kvaðst hins vegar hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér, en ekki tókst að ná í Gunnlaug Ljósm: Ól.K.Mag. Flokksráð samþykkti Flokksráð Sjálfstæðis- flokksins samþykkti á fundi sínum á.sunnudag- inn að styðja þá ákvörð- un þingflokks sjálfstæð- ismanna að verja minni- hlutastjórn Alþýðu- flokksins falli að full- nægðum ákveðnum skil- yrðum. Samþykkt Flokksráðs var einróma. Kosið verður dagana 28. og 29. október næstkomandi Snædal lækni sem var í ellefta sæti framboðslistans 1978. Að öðrum sem rætt hefur verið um í framboð má nefna Birgi ísleif Gunnarsson borgarfulltrúa, Ólaf B. Thors borgarfulltrúa og Sigurð Líndal prófessor, en í gær kváðust þeir allir eiga eftir að taka endanlega ákvörðun, og hið sama sagði dr. Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur. Jón Magnús- son, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, kvaðst hins vegar hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér, og ekki tókst að ná í Þorstein Pálsson framkvæmda- stjóra Vinnuveitendasambands íslands, en heyrst hefur, að hann hyggi á að gefa kost á sér í prófkjörinu. Frá fundi Flokksráðs Sjálfstæðisflokksins í Valhöll á sunnudaginn. talin kosningu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 228 at- kvæði, Hannes Þ. Sigurðs- son 204, Markús Örn Ant- osson 204,Valgarð Briem 204, Bessí Jóhannsdóttir 184, Anders Hansen 151, Þorvaldur Mawby 144, og Guttormur Einarsson 137. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins féllu at- kvæði í næsta sæti þannig: Ludvig Hjálmtýsson 136 atkvæði, Arnar Ingólfsson 123, Garðar Þorsteinsson 103 og Gísli Baldvinsson 102. Einnig fengu eftirtalin atkvæði: Bogi Ingimarsson, Haukur Hjaltason, Helga Gröndal Björnsson, Sig- ríður Valdimarsdóttir, Hafsteinn Baldvinsson, Sigurður Angantýsson, Ragnheiður Eggertsdóttir, Kristján Guðbjörnsson og Guðmundur Borgþórsson. Áður lágu fyrir tilnefn- ingar sjálfstæðisfélaganna: Landsmálafelagið Vörður: Edgar Guðmundsson og Björgúlfur Guðmundsson. Óðinn: Þorvaldur Þor- valdsson. Heimdallur: Pét- ur Rafnsson. Hvöt: Björg Einarsdóttir. Fulltrúarráð: Gunnar Helgason og Sól- veig Pálmadóttir. FULLTRÚ ARRÁÐ sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík ákvað á fundi sínum á sunnudaginn að efnt skuli til prófkjörs í Reykjavík til að velja frambjóðendur flokksins við Alþingiskosningarnar í desember næstkomandi. Allnokkrar umræður urðu á fundinum, um það hvort til prófkjörs skyldi efnt, en við atkvæðagreiðslu var yfirgnæfandi meirihluti félaga fulltrúarraðsins meðmæltur prófkjöri. Þær breytingar hafa ver- ið gerðar á framkvæmd prófkjörsins, að nú skal kjósa frambjoðendur í ákveðin sæti. Raða kjós- endur því frambjóðendum upp í númeraröð í stað þess að áður hefur verið krossað við nöfn frambjóðenda. Prófkjörsdagar hafa verið ákveðnir 28. og 29. október næstkomandi. Einnig hefur lágmarksfjöldi frambjóð- enda verið lækkaður úr 32 í 18. Þátttaka er heimil öll- um stuðningsmönnum flokksins 18 ára og eldri og einnig þeim félögum sjálf- stæðisfélaganna sem eru á aldrinum 16 til 19 ára. Á fundinum á sunnudag- inn voru kjörnir átta full- trúar í kjörnefnnd Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík, og hlutu eftir- Bragi gegn Benedikt Alþýðuflokkurinn á Vestfjörðum: Karvel stof nar flokksfélag og ætlar í prófk jör NÝTT Alþýðuflokksfélag var stofnað á Bolungarvík í gær- kvöldi og stóð Karvel Pálma- son, fyrrum þingmaður Sam- taka frjálslyndra og vinstri manna, að stofnun þess. Karvel sagði í samtali við Morgunblaðið, að vel gæti hugsast að fleiri slík félög yrðu stofnuð á Vestfjörðum á næstunni. Hann sagðist ætla í prófkjör til Alþingiskosninga fyrir Alþýðuflokkinn, en sagði að á þessu stigi málsins væri ekki ástæða til að gefa upp að hvaða sæti hann keppti. Sighvatur Björgvinsson, formaður þingflokks Alþýðu- flokksins, var í 1. sæti flokks- ins í Vestfjarðakjördæmi fyrir síðustu Alþingiskosningar. Hann var spurður að því í gær hvort hann óttaðist að fá Karvel Pálmason sem and- stæðing. Sighvatur svaraði þessari spurningu neitandi, en sagði að það væri mikill akkur fyrir Alþýðuflokkinn að fá Karvel til liðs við flokkinn. Jón Baldvin Hannibalsson, rit- stjóri Alþýðublaðsins, sem var í 2. sæti á Vestfjörðum síðast mun ekki ætla að gefa kost á sér í prófkjör að þessu sinni. Hver jir hygg ja á framboð? —H ver jir ætla að hætta?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.