Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 45
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979
25
m,
Valsmenn ekki í erfið-
leikum með nýliða Fram
Nýbakaðir Reykjavíkurmeist-
arar Vals áttu ekki í erfiðleikum
með að sigra nýliðana í úrvals-
deildinni, Fram. Öruggur sigur
Vals, 106—97. Fram náði aldrei
að ógna sigri Vals, greinilega að
nýliðarnir verða verulega að
taka á hinum stóra sínum vilji
þeir blanda sér í toppbaráttuna í
deildinni. Það sem fyrst og
fremst skorti hjá Fram var að
barátta, samvinna leikmanna var
alls ekki nógu mikil, uppgjafar-
bragur á öllum leik liðsins.
Um 200 áhorfendur fylgdust
með viðureign liðanna í Haga-
skóla á laugardag. Valsmenn
mættu mjög ákveðnir til leiks og
náðu þegar frumkvæðinu. Með
Bandaríkjamanninn Tim Dwyer í
broddi fylkingar gáfu Valsmenn
aldrei þumlung eftir. Vel studdir
af þeim bræðrum, Torfa Magnús-
syni og Þóri Magnússyni náði
Valur þegar forystu og hélt henni
út. I leikhléi skildu níu stig og
sami stigafjöldi þegar upp var
staðið — 106—97. Mestur varð
munurinn 15 stig í síðari hálfleik,
102—87. Þá fór Dwayer útaf,
ásamt Þóri, Ríkharði og Kristjáni.
Fram tók þegar að saxa á forust-
una og þegar tæp mínúta var eftir
skildu átta stig, 102—94. Þá hins
vegar sá Dwyer sitt óvænna og fór
inná og leiddi lið sitt til sigurs,
106—97.
Það var fátt hinum 200
áhorfendum augnayndi í Hagask-
óla. Sá körfuknattleikur sem liðin
sýndu var ákaflega þungur, hraði
sáralítill enda má segja að bæði
Hættu áður en
keppnin
SNÆFELL frá Stykkishólmi og
ÍV úr Eyjum hafa dregið lið sín
út úr keppninni í 1. deildinni í
körfuknattleik. Ástæðan fyrir
því að Eyjamenn hætta áður en
keppnin byrjar mun vera sú, að
þeir fengu ekki húsnæði fyrir
bandariskan leikmann, sem þeir
höfðu fengið til að þjálfa liðið og
spila með. Sá var sagður frábær
körfuknattleiksmaður, en sög-
urnar um getu hans verða sem sé
að duga í vetur. Ýmislegt annað
byrjaði
hefur gert körfuknattleiks-
mönnum í Eyjum erfitt fyrir, svo
að þeir drógu sig út úr mótinu.
Snæfellingar hafa misst mikið af
góðum mönnum undanfarin ár
og nú var svo komið að þeir áttu
ekki í lið sjálfir. Þeir hættu þvi
við, en munu ætla að leggja alla
áherzlu á yngri flokkana í vetur.
Næsta vetur munu bæði þessi lið
hyggja á þátttöku í 2. deild
körfuknattleiksins.
- áij
KR-stúlkurnar
unnu stúdínur
KR-stúlkurnar unnu öruggan
sigur á kvennaliði ÍS í Hagaskóla
á sunnudagskvöldið. Urslitin
urðu 59:35 fyrir KR og er það
meiri munur en undanfarin ár
hefur verið í leikjum þessara liða.
Einar Bollason hafði á orði að
þessum leik loknum, að þetta
væri aðeins forsmekkurinn að
því sem síðan myndi gerast hjá
körlunum. Svo fór þó ekki, því að
i seinni leiknum var karlalið KR
í hlutverki stúdínanna í fyrri
leiknum. Linda var í miklum
ham í þessum leik og skoraði
bróðurpartinn af stigum
KR-stúIknanna i þessum leik.
-áij
Spjöldin endast
illa í Njarðvík
ER LEIKMENN liða UMFN og
IR voru að hita upp fyrir fyrsta
leikinn í íslandsmótinu i körfu-
knattleik í Njarðvíkum á laugar-
daginn gerðist sá óvenjulegi
atburður að Mark Christiansen
braut körfuspjaldið. Um tíma leit
út fyrir að fresta þyrfti leiknum
af þessum sökum. Handlagnir
menn Njarðvíkinga með Brynjar
Sigmundsson leikmann UMFM
og smið m.m. björguðu málum
svo að leikurinn gat farið fram.
Var þetta i annað skiptið á
þremur dögum, sem þetta gerðist
í Njarðvík, en hvert slíkt spjald
kostar drjúgan skilding.
—gíg
liðin séu mjög „þung“. Stórir
leikmenn í báðum liðum — þeir
Dwyer, Þórir og Torfi hjá Val og
Símon Ólafsson, Björn Magnússon
og Þorvaldur Geirsson hjá Fram.
Leikmenn Fram náðu aldrei að
vinna sem heild, hvort heldur var
í vörn eða sókn. Mest einstaklings-
framtak. Fram hefur vissulega á
að skipa mörgum efnilegum leik-
mönnum, sem eiga að geta þegar
fram líða stundir, ógnað hvaða liði
sem er. Eins og sakir standa
virðist stund Fram ekki runnin
upp.
Valsmenn hins vegar unnu vel
sem heild. Þó Tim Dwyer hafi
verið iðinn við að skora, gerði
tæplega helming stiga liðsins, þá
var hann aldrei eigingjarn heldur
lék fyrst og fremst fyrir lið sitt.
Hann var drjúgur í fráköstum,
hvort heldur var í vörn eða sókn.
Ósjaldan skoraði hann eftir að
hafa hirt sóknarfrákast. Þá voru
þeir Torfi og Þórir sterkir —
þessir þrír leikmenn báru nokkuð
af. Ásamt þessum þremur leik-
mönnum mynda þeir Kristján
Ágústsson og Ríkharður Hrafn-
kelsson kjarna liðsins. Tim Dwyer
skoraði 42 stig fyrir Val, Þórir
Magnússon og Torfi Magnússon
17, Ríkharður Hrafnkelsson,
Kristján Magnússon og Jóhann
Magnússon 8 hver, Sigurður
Hjörleifsson 6.
Hjá Fram skoraði Bandaríkja-
maðurinn John Johnsson að
sjálfsögðu mest — 38 stig. Símon
Ólafsson skoraði 25 stig, Þorvald-
ur Geirsson 15, Björn Magnússon
16. Það háir Fram mjög að segja
má að fimmta leikmanninn vanti í
liðið — þessir fjórir leikmenn
mynda kjarna liðsins en illa vant-
ar frambærilegan mann til að
fylla upp í töluna. Þeir Guðmund-
ur Hafsteinsson og Ómar Þráins-
son skoruðu eitt stig hvor.
Þeir Þráinn Skúlason og Steinn
Sveinsson dæmdu leikinn — og
fórst það vel úr hendi þegar á
heildina er litið. jj. Halls.
Ljósm. Emilía.
• Torfi Magnússon mundar knöttinn, en Framarinn að baki honum
virðist annað hvort vera að leita að knettinum við fætur dómarans
Steins Steinssonar, eða vera hreinlega að stanga hann. Myndin er úr
leik Vals og Fram í Hagaskólanum um helgina, en Valsmenn sigruðu
örugglega í leiknum.
ElnKunnagjðfln
V-.. , __:. .-.. ...
UMFN:
Árni Lírusson 1
Brynjar Sigmundss. 1
Guösteinn Ingimarss. 4
Gunnar Þorvaröars. 4
Jón V. Matthíass. 2
Jónas Jóhannesson 3
Júlíus Valgeirss. 2
Sturla Örlygsson 1
Valur Ingimundars. 2
ÍR:
Erlendur Markúss. 2
Guðmundur Guöm.ss. 2
Jón B. Indriöason 2
Jón Jðrundsson 3
Kolbeínn Kristínss. 4
Kristinn Jörundss. 4
Stefén Kristjénss. 2
KR.
Jón Sigurösson 3
Garöar Jóhannsson 2
Geir Þorsteinsson 3
Eirfkur Jóhanness. 1
Birgir Guöbjörnss. 1
Bjarni Jóhanness. 2
Ágúst Lfndal 2
Gunnar Jóakimsson 1
Þröstur Guöjónsson 2
Árni Guömundsson 2
ÍS:
Gísli Gíslason 4
Bjarni G. Sveinsson 3
Atli Arason 3
Jón Héöinsson 3
Jón Björgvinsson 1
Gunnar Halldórsson 2
Ólafur Thorarensen 2
Albert Guömundss. 2
FRAM:
Sfmon Ólafsson 3
Björn Jónsson 1
Hilmar Gunnarsson 1
Ómar Þréinsson 1
Björn Magnússon 3
Þorvaidur Geirsson 3
Ágúst Jóhanness. 1
Guömundur Hafsteinss. 1
Guöbrandur Siguröss. 1
VALUR:
Kristjén Ágústss. 2
Torfi Magnússon 3
Þórir Magnússon 3
Rfkharöur Hrafnkelss. 2
Jón Steingrímsson 1
Jóhannes Magnúss. 2
Sigurður Hjörleifss. 2
Óskar Baldursson 1
Guðmundur Jóhanness. 1
í
• Liði Ásgeirs Sigurvinssonar gekk ekki sem best i leik sinum um
helgina, og tapaði á heimavelli fyrir Brugge 2-1. Hér sést Ásgeir sækja að
markmanni i einum leik i deildinni nú fyrir skömmu.
Arnór braut ísinn
- átti stórleik með
liði sínu Lokeren
Frá Sigtryggi Sigtryggssyni blm. Mbl. í Belgíu
Arnór Guðjohnsen var í sviðs-
ljósinu i Belgiu um helgina,
þegar lið hans Lokeren sigraði
Charleroi 2—0 og skaust í efsta
sæti belgísku deildarinnar. Arn-
ór var með frá fyrstu spyrnu
leiksins og átti stórgóðan leik,
var mikið með boltann og gerði
oft usla i vörn Charleroi, liðinu
sem Guðgeir Leifsson lék með á
sinum tima.
Arnór var potturinn og pannan
í sóknarleik Lokeren og átti upp-
hafið að flestum hættulegustu
sóknum liðsins. Honum tókst að
vísu ekki að skora í leiknum, en í
fyrri hálfleik átti hann eitt
þrumuskot í stöng og þaðan rúll-
aði knötturinn eftir marklínunni
og út af hinum megin. Lubanski
skoraði fyrra mark Lokeren úr víti
í fyrri hálfleik. James Bett hefur
verið fastamaður í liði Lokeren
það sem af er hausti og vakið
athygli. Hann átti þó ekkert sér-
stakan leik að þessu sinni, var
sískjótandi og alltaf fram hjá.
Arnór hefur ekki verið fasta-
maður í liði Lokeren það sem af er
haustinu, en það er mál manna
hér í Belgíu, að hann hafi fest sig í
liðinu með góðum leik sínum gegn
Charleroi.
Standard Liege lék sinn lakasta
leik í manna minnum þegar liðið
tapaði á heimavelli fyrir FC
Brugge, lokatölur urðu 2—1.
Brugge skoraði tvö fyrstu mörk
leiksins og það var ekki fyrr en
langt var liðið á leikinn, að Ralf
Edström skoraði eina mark
Standard. Ásgeir Sigurvinsson
átti þokkalegan leik fyrir Stand-
ard, en er örugglega að öllu jöfnu
mörgum sinnum betri, eins og
liðið sjálft, annars væri það ekki
við topp deildarinnar. 42.000
manns sneru vonsviknir heim,
nema náttúrlega þeir sem fylgdu
Brugge hingað til Liege.
La Louviere gerði jafntefli í leik
sínum um helgina, 1—1, en hefur
ekki staðið sig sérlega vel í haust,
er fyrir neðan miðju í 2. deild.
Karl Þórðarson hefur staðið sig
mjög vel með liðinu, en lék ekki
með að þessu sinni, er meiddur.
Þorsteinn Bjarnason hefur ekki
leikið með liðinu í haust, ekki einu
sinni sem varamaður.
Searing, lið Ólafs Sigurvinsson-
ar í 3. deild, vann leik sinn um
helgina, en Olafur var ekki með
sökum meiðsla sem hann hlaut
fyrir rúmri viku. Searing hefur
hlotið 13 stig í 7 fyrstu leikjunum
í haust og á því góðan möguleiká á
að flytjast upp í 2. deild í vor ef
framhald verður á velgengninni.
Stórmerkilegt atvik átti sér stað
í leik Beerschot og Molenbeek hér
á laugardaginn. Beerschot lék á
heimavelli, en Molenbeek hafði
töglin og hagldirnar í leiknum og
þegar örfáar sekúndur voru til
leiksloka var staðan 1—0 fyrir
liðið. í marki Beerschot stendur
jafnan kunnur kappi, Pólverjinn
Jan Tomaschewski. Hann hafði
haldið liði sínu á floti með undra-
verðri markvörslu og var farið að
hitna í honum undir lokin. Þannig
að þegar lið hans fékk óvænt
hornspyrnu á síðustu sekúndum
leiksins, geystist hann upp í víta-
teig Molenbeek, stökk þar hærra
en aðrir og skallaði fyrir fæturna
á samherja sínum sem skoraði
jöfnunarmark Beerschot!! Braust
út tryllingslegur fögnuður meðal
áhangenda Beerschot og atvikið
var sýnt mörgum sinnum í sjón-
varpinu.
Af öðrum leikjum í Belgíu má
geta 5—1 sigurs Anderlecht gegn
sjálfu meistaraliðinu Beveren.
Ánnars er staðan í Belgíu þannig,
að Lokeren hefur forystuna með
15 stig, Molenbeek hefur 14 stig,
en Standard ásamt einu öðru liði
hefur hlotið 13 stig.
- SS.
Stúdentar öruggir
gegn meisturum KR
Vörn KR-inga á íslandsmeist-
aratitli sinum i körfuknattleik
byrjaði ekki gæfulega er þeir
mættu stúdentum í sinum fyrsta
leik i Hagaskólanum á sunnu-
dagskvöldið. Segja má að ÍS hafi
haft leikinn í hendi sér frá
upphafi til enda, lokatölur urðu
80:70 fyrir ÍS, en í leikhléi var
staðan 44:27. Mestur var munur-
inn 24 stig, 65:41 þegar 11
minútur voru eftir, en þá varð
langbezti maður vallarins, Trent
Smock, að fara út af með fimm
villur. Eftir það söxuðu KR-ingar
nokkuð á forskot ÍS, en sigur
þeirra var þó aldrei í hættu.
Það var létt yfir stúdentum eftir
þennan tiltölulega auðvelda sigur.
Birgir Örn Birgis, þjálfari IS, var
að vonum ánægður með sigurinn
og sagði að vonandi yrði fram-
haldið í sama dúr. Hann sagði að
lið stúdenta ætti þó eftir að verða
enn betra, því að enn væri lítið
farið að æfa leikaðferðir og slíkt. í
klefa stúdenta var góð stemmning
eftir leikinn og Bjarni Gunnar
Sveinsson hafði á orði, að svona
sigurleikir ættu að vera á laugar-
dögum, en ekki sunnudagskvöld-
um.
Leikur KR og ÍS var í heildina
séð ekki sérstakur, en stúdentar
höfðu Trent Smock fram yfir
KR-inga, þeir hittu mun betur,
þeir börðust um hvern einasta
bolta og nokkrum sinnum var
heppnisstimpill á aðgerðum
þeirra, en lukkuhjólið rúllaði hins
vegar nær aldrei með KR-ingum í
þessum leik.
Jón Sigurðsson lék nú að nýju
með KR-ingum og var að vanda
drjúgur. Það er þó greinilegt að
hann er ekki fyllilega búinn að ná
sér og sömuleiðis vantar hann
meiri leikæfingu. Þessi atriði gera
þó ekki hlut Gísla Gíslasonar
minni, hann fylgdi Jóni eins og
skugginn allan leikinn og skoraði
Jón aðeins 4 stig í fyrri hálfleikn-
um. Er leið á seinni hálfleikinn fór
gæzlan að nokkru leyti úr böndun-
um, en dugnaður Gísla í vörn og
sókn gera hann að bezta íslenzka
leikmanninum í þessari viðureign.
Þessi gamli KR-ingur naut þess
greinilega að taka þátt í því að
leggja sína gömlu félaga að velli.
. KR-ingar eiga nokkuð í land að
ná sinni raunverulegu getu og
þegar Bandaríkjamaðurinn Jack-
son bætist í hópinn verður KR-lið-
ið ekki auðsigrað, en þeir verða að
taka sig saman í andlitinu ætli
þeir ekki líka að tapa fyrir Fram í
úrvalsdeildinni áður en Jackson
kemur til liðs við þá.
Óþarft er að rekja gang leiksins
nákvæmlega. Stúdentar komust
fljótlega yfir í leiknum, en munur-
inn á liðunum varð þó ekki
verulegur fyrr en síðustu fjórar
mínútur fyrri hálfleiksins. Þá
breyttist staðan úr 30:25 í 44:27 í
leikhléi. Frábær leikur stúdenta
fyrri hluta seinni hálfleiksins jók
muninn 65:41, en þá fór Trent
Smock útaf með 5 villur. Þó
KR-ingar kröfsuðu hetjulega í
bakkann það sem eftir var, nægði
það ekki til sigurs.
Beztur í þessum leik var Trent
Smock, sem er miklu betri leik-
maður nú en í fyrra. Gísla Gísla-
sonar er áður getið, en auk
þessara tveggja áttu þeir Atli
Arason og Jón Héðinsson báðir
mjög góðan leik. Jón Sigurðsson
var einna drýgstur KR-inga þrátt
fyrir allt, en Geir Þorsteinsson
átti einnig þokkalegan leik.
Dómarar voru þeir Kristbjörn
Albertsson og Guðbrandur Sig-
urðsson og dæmdu vel.
Stig ÍS: Trent Smock 26, Gísli
Gíslason 13, Atli Arason 12,
Bjarni Gunnar Sveinsson 10, Jón
Héðinsson 10, Albert Guðmunds-
son 5, Gunnar Halldórsson 2,
Ólafur Thorarensen 2.
Stig KR: Jón Sigurðsson 27,
Geir Þorsteinsson 13, Garðar Jó-
hannsson 7, Bjarni Jóhannesson 5,
Ágúst Líndal 4, Árni Guðmunds-
son 4, Þröstur Guðjónsson 4,
Eiríkur Jóhannesson 4, Birgir
Guðbjörnsson 2.
- áij.
• John Johnson æðir upp völlinn og hefur knöttinn með sér.
— Ljósm. Emilia
ÞAÐ er óhætt að segja að úrvals-
deildin í körfuknattleik hafi far-
ið af stað með látum nú á
laugardaginn, er Njarðvíkingar
fengu ÍR-inga í heimsókn. Þegar
1 mínúta var til leiksloka höfðu
Njarðvíkingar yfir, 71—68. Leit
þvi allt út fyrir sanngjarnan
sigur heimamanna. ÍR-ingar, sem
þekktir eru fyrir allt annað en að
gefast upp þótt stutt sé til
leiksloka, skoruðu 4 stig á
siðustu mínútunni, en Njarðvík-
ingar fóru illa að ráði sinu i
sókninni og því héldu kátir
ÍR-ingar heim á leið að leik
loknum. Það var Kolbeinn Krist-
insson, sem var hetja dagsins,
átti skínandi leik og það var
hann sem skoraði 4 síðustu stig
ÍR g úrslitakörfuna þegar að-
eins 3 sekúndur voru til leiks-
loka.
Þegar leikmenn liðanna voru að
hita upp gerðist sá óvenjulegi
atburður, að Mark Christiansen
braut körfuspjaldið og leit því um
tíma út fyrir, að fresta yrði
leiknum. Var þetta í annað skiptið
á þremur dögum sem þetta gerðist
í Njarðvík og drjúgur skildingur
fe sem hvert slíkt spjald kostar. En
handlagnir menn Njarðvíkur, með
Njarðvíkurleikmanninn og smið-
inn Brynjar Sigmundsson í farar-
broddi, björguðu málunum og
leikurinn gat farið fram.
Njarðvíkingar byrjuðu vel og
komust strax í 14—6. Má segja að
leikurinn hafi verið í jafnvægi
fram undir miðjan hálfleikinn, en
þá sóttu ÍR-ingar í sig veðrið og
jöfnuðu leikinn 34—34 og komust
svo yfir þegar skammt var til
hálfleiks og héldu þeirri forystu,
en í leikhléi leiddu IR-ingar,
43-39.
Njarðvíkingar voru ekki seinir
að snúa leiknum sér í hag í
upphafi síðari hálfleiks og var
Guðsteinn Ingimarsson þá í aðal-
hlutverki. Um miðjan seinni hálf-
leik var staðan 67—59 Njarðvík í
vil. Þegar 5 mínútur voru til
leiksloka var staðan 69—63 UMFN
í vil. Þá bað Guðsteinn Ingimars-
son um, að sér yrði skipt út af
vegna þreytu. Þetta reyndist af-
drifaríkt, því að erfitt reyndist að
skipta Guðsteini inn á aftur og
ÍR-ingar minnkuðu muninn í eitt
stig, 68—69. Þá loks komst Guð-
steinn í leikinn aftur, en aðeins
ein mínúta til leiksloka og
ÍR-ingar komnir í sinn versta
ham. Það var síðan Kolbeinn
Kristinsson, sem skoraði úrslita-
körfuna þegar 3 sekúndur voru til
leiksloka með þá Jónas Jóhannes-
son og Gunnar Þorvarðarson
gnæfandi yfir sér. Það má rétt
ímynda sér að IR-ingar hafi verið
kátir að leik loknum, en Njarðvík-
ingar að sama skapi niðurbrotnir.
Það verður hins vegar að segjast
að við slíku má búast oftar að lið
ræni sigrum á síðustu sekúndum
leiks í hinni hörðu og jöfnu
úrvalsdeild.
Kolbeinn Kristinsson var maður
leiksins í Njarðvík. Auk sigurkörf-
unnar átti Kolbeinn góðan dag og
setti vörn Njarðvíkinga sífellt í
vandræði með hraða sínum og
tækni. Kristinn Jörundsson átti
einnig mjög góðan leik, en Mark
Christiansen hefur oft verið betri.
Reyndar var Mark geysilega
sterkur í vörninni, en var vel gætt
í sókninni.
Hjá Njarðvíkingum var Guð-
steinn Ingimarsson bestur og hitti
mjög vel á kafla í seinni hálfleik.
Gunnar Þorvarðarson var þá einn-
ig sterkur, svo og Jónas Jóhann-
esson. Ted Bee lék með Njarðvík-
ingum þrátt fyrir að hann væri
með brotna hönd. Þetta háði
honum augsýnilega mjög og gal
hann lítið beitt sér í leiknum. Að
vísu reyndi hann mikið að brjótast
inn í vörn ÍR-inga, en hefði e.t.v
fremur átt að reyna að spila
samherja sína upp. Aðrir Njarð-
víkingar voru frískir að venju, en
komust lítið áleiðis gegn sterkr
vörn ÍR-inga.
Þegar á allt er litið, verður að
segja, að þessi leikur hafi verið ve
leikinn af báðum aðilum. Hann
einkenndi mikill hraði, sterkar
varnir og óhemju spenna. Útlit er
því fyrir gott körfuboltaár.
Stig Njarðvíkur skoruðu: Guð
steinn Ingimarsson 20, Gunna
Þorvarðarson 18, Jónas Jóhann
esson 10, Jón V. Matthíasson 9
Júlíus Valgeirsson 6, Ted Bee 4
Árni Lárusson og Valur Ingi
mundarson 2 stig hvor.
Stig ÍR skoruðu: Kristinn Jör
undsson 22, Kolbeinn Kristinsson
17, Mark Christiansen 14, Jón
Jörundsson 8, Jón Birkir Indriða
son 4, Guðmundur Guðmundsson
3, Erlendur Markússon og Stefán
Kristjánsson 2 stig hvor.
Dómarar voru Jón Otti Ólafsson
og Gísli Gíslason. gíg