Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 26

Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 í þriðju grein sinni um kennslubókina Samfélagió eftir Joachim Israel og Auói Styrkórsdóttur, sem staöfærói, rœddi Hannes H. Gissurarson sagnfrsaðingur um „rök“ höfundanna fyrir ríkisafskiptum, kenningu þeirra um ríkiö, atvinnuleysió, verðbólgu og kjarabaráttu. Israel gerir allt of mikiö úr áhrifum fjölmiöla, því að hann skilur þaö ekki, aö neytendur geta valið og velja um þá. Hannes H. Gissurarson: Um kenwlubókina Samfélagið eftir Joachim Israel og Auði Styrkársdóttur 4. grein Ruglandi um valdið Israel notar langt mál um valdið. Hann segir (bls. 185): Vald er eitthvaö sem einn maður hefur fram yfir annan, þannig að hann getur fengið annan mann til að gera eitthvað eöa látið vera að gera það. Hann gerir greinarmun á efna- hagsvaldi, þvingunarvaldi, stjórn- málavaldi og hugmyndafræöivaldi. Orðin eru reyndar klaufaleg og stofn- analeg, ekki enn notuð eölilegri og íslenzkulegri orð eins og „hagvald", „ofbeldi," „máttur," „stjórn", „ríkis- vald" og „áhrif". En öll greining Israels á valdshugtökunum er hrein ruglandi. Hvað er hagvald? Israel segir (bls. 186). Verksmiðjueigandi get- ur ráðið til sín launafólk og hann getur líka rekið það. Hann ákveð- ur hvaö þetta fólk gerir í vinnu- tímanum. Verksmiöjueigandinn hefur efnahagsvald yfir þeim sem vinna hjá honum. Hann á fram- leiöslutækin og því getur hann ráðið. Hvað er að segja um þetta? Auövitaö hefur vinnuveitandi vald, því að starfsmenn hans eru háðir honum um afkomu sína. En vald hans takmarkast af mörgu. í fyrsta lagi getur hann misst starfsmann, ef sá maður kýs að starfa hjá öðrum, og missirinn er mikill, ef starfsmaöurinn er vel þjálfaöur, enda er keppt um hæfa og vel þjálfaða starfsmenn. Starfsmaður velur um vinnuveitend- ur. í öðru lagi er hann háður starfsmönnum sínum um afkomu sína, ánægðir menn starfa betur en óánægðir, og þeir hafa því vald yfir honum. Afköst starfsmanns skipta vinnuveitandann máli. í þriðja lagi gætir ríkið (eða á að gæta) réttra reglna í viðskiptum vinnuveitenda og launþega. En Israel bendir á þaö eitt, aö í fjórða lagi gætir verkalýðsfélagið (eöa á að gæta) hagsmuna félaga sinna. Takmarkanir hagvaldsins eru mjög umhugsunarverðar, þó að Israel ræði ekki um þær. Hvað gerist, ef vinnu- veitandinn er einungis einn? Vinnu- veitandinn er einungis einn í óska- landi sameignarsinna, ein stofnun hefur allt hagvaldiö — miðstjórnin eða ríkisstjórnin. Hagvaldiö er þann- ig næstum því ótakmarkað í þessu óskalandi, óánægöir menn eiga næstum því engan kost. Ónákvæmni í orðavali er ein helzta synd „samfélagsfræðinga", eins og bent hefur verið á, þótt hún sé sennilega ekki alltaf ásetningssynd. Israel segir til dæmis (bls. 187): Við getum sagt að vald spretti af samfélaginu. Menn öðlast ekki vald í krafti sinnar persónu einnar saman. Er þetta rétt? Öðru nær. Einstak- lingur getur sem einstaklingur haft vald yfir öðrum einstaklingi. Kona, sem maöur er mjög ástfanginn af, hefur mikið vald yfir honum. Fræði- maður, sem aðrir bera djúpa viröingu fyrir, hefur kennivald (authority), til dæmis Sigurður Nordal í íslenzkum fræðum. Stjórnmálamaður, sem get- ur hrifið aðra með sér, safnaö um sig liöi, hefur áhrif (eða „náðarvald" sem Max Weber kallaði svo). Og getur sú staöa, sem menn komast í, í hugum annarra — það vald, sem þeir fá yfir öðrum — ekki eins verið afleiöing af einstaklingseöli þeirra og orsök þess? Áhrif fjölmiðla Hvað er „hugmyndafræðivald"? Israel segir (bls. 189): Það vald felst í því að menn geta fengið aðra til þess að hugsa á ákveðinn hátt og hafa ákveönar hugmyndir um veruleikann. Þetta kallast hugmyndafræóivald. Þessu valdi beita blöðin, sjónvarpið og út- varpið, þ.e.a.s. fjöldafjölmiðlarnir. En þetta vald kemur einnig fram í skólunum. En er þetta „hugmyndfræöivald" til í einhverjum skynsamlegum skiln- ingi? Fellur það undir skilgreiningu Israels? Hún var þessi: „Vald er eitthvað sem einn maður hefur fram yfir annan, þannig að hann getur fengið annan mann til að gera eitthvað eða látið vera að gera það." Það fellur ekki undir skilgreininguna, þvi að samkvæmt henni hafði maður valdið, en fjölmiðlarnir og skólarnir eru ekki menn. Afsaka má þó þessa ónákvæmni og segja, aö Israel hafi átt viö þá menn, sem stjórni fjölmiöl- unum og skólunum. Þeir velji þær skoðanir, sem séu boðaðar í þessum fjölmiölum. En þeir menn, sem stjórna fjölmiölunum, eru margir og ólíkir, því að fjölmiðlarnir eru sem betur fer margir og ólíkir. Kemur einhverjum í hug, að sömu skoðanir séu boðaðar í Morgunblaöinu og Þjóðviljanum? Eða í Alþýöublaðinu og Tímanum? Neytendurnir geta valiö um dagblöö, þeir kaupa þau blöð, sem eru þeim að skapi, full- nægja þörfum þeirra bezt. (Það er rangt, að ný blöð geti ekki unniö markaö. Til dæmis má taka þann mikla árangur, sem Dagblaðið hefur náð síðustu árin. Hvers vegna selst það í um 20 þús. eintökum, en Þjóðviljinn í um 5 þús. eintökum? Vegna þess að þaö fullnægir þörfum 20. þús. manna, en Þjóðviljinn þörf- um 5 þús. manna.) Fjölmiðlarnir verða að laga sig að óskum neytend- anna, ef þeir keppa að því að seljast. Er vald neytendanna yfir fjölmiölum, sem keppa hver við annan, ekki meira en vald fjölmiðlanna yfir neyt- endunum? Israel spyr ekki þeirrar spurningar. Forsenda mín er að sjálfsögðu samkeppni fjölmiðlanna um hylli neytendanna. En til eru fjölmiðlar, sem eru í rauninni ekki að keppa að sölu, heldur eru einungis til þess að boða einhverja trú eða skoðun. Þjóöviljinn er slíkur fjölmiðill, og hann getur leyft sér meira en Dag- blaðið. Til dæmis má taka, að fyrir skömmu birtist ádeila á borgarfull- trúa Alþýðubandalagsins í Reykjavík á „jafnréttissíðu" Þjóðviljans. Menn- irnir, sem stjórnuöu blaðinu, reiddust þessu svo, að umsjónarmenn „jafn- réttissíðunnar" voru reknir, en að lokum var sætzt á þaö, aö einn blaöamaöur Þjóðviljans liti eftir efn- inu á síðunni, ritskoðaði með öðrum orðum. Ríkisfjölmiðlarnir keppa ekki heldur við neina, því að öðrum en þeim er bannaö að útvarpa og sjónvarpa. Menn geta ekki valið um útvarpsefni á íslandi, þeim er skammtað það (þótt rekstur út- varpsstööva sé mjög auöveldur frá tæknilegu og fjárhagslegu sjónarmiöi og margir séu tilbúnir til þess aö reka slíkar stöðvar). Ég held, að áhrif slíkra einokunarfyrirtækja sé miklu hættulegri en áhrif fjölmiöla, sem menn geta valið um, en Israel ræðir alls ekki um það. Vald fjölmiðlanna er miklu tak- markaöra en Israel segir, því að þeir eru margir og ólíkir og almenningur er ekki deigur leir, sem fjölmiðlung- arnir geta mótað að sínum óskum (en sú skoöun á almenningi gægist alltaf fram í máli Israels). En þó má ekki gera of lítið úr áhrifum fjölmiöla. í orðavali og efnisvali þeirra felst alltaf einhver skoðun. Staöfærandinn (Auður Styrkársdóttir) tekur frásagn- ir frá stríöinu í Indó-Kína til dæmis. hann segir (bls. 192): Víetnamar höfðu ekki sama að- gang að útvarpsstöðvum og Bandaríkjamenn.;8. . Víetnamar voru kallaöir Víet-Kong skæruliö- ar í íslenska útvarpinu . .. en Víetnamar kölluöu her sinn þjóö- frelsisherinn. Það er auövitað rétt, að annar blær er á oröinu „skæruliðar" (á orðinu „Viet-Kong" er enginn blær, því að þaö hefur enga merkingu í íslenzku, þannig að aðfinnsla að því missir marks) en á orðinu „þjóðfrels- isher". Um það var þó ekki deilt, að mótherjar Suðurvíetnamstjórnar voru skæruliöar (þangað til þeir sigruöu í borgarastríöinu), en um hitt var deilt, hvort þeir væru þjóðfrels- issinnar eða ekki. Orðið „skæruliöar" var því eölilegra en orðiö „þjóðfrels- isherinn". Það, sem sannfærandinn tekur til dæmis um hlutdrægni í fjölmiölum má reyndar taka til dæmis um hlutdrægni hans sjálfs í kennslubók. Reynslan hefur sýnt þaö, að mótherj- ar suöurvíetnamstjórnar eru grimmdarseggir, sem hafa reist lög- regluríki, hálfu verra en suðurvíet- namska ríkiö var, og að stjórn þeirra er ógnarstjórn. Er það „þjóöfrelsi"? Ég er hissa á því, að vestrænir róttæklingar vogi sér aö nefna harm- leikinn í Indó-Kína, en þeir gegndu miklu hlutverki í honum. í frásögninni í kennslubókinni felst ekki einungis skoðun, heldur er hún einnig röng. Víetnamstríðið var ekki meö Banda- ríkjamönnum öðrum megin og Víetn- ömum hinum megin. Það var með uppreisnarmönnum í Suðurvíetnam, sm nutu aöstoöar Norðurvíetnama, öðrum megin og ríkisstjórninni í Suðurvíetnam, sem naut aðstoöar Bandaríkjamanna, hinum megin: Stríöiö var borgarstríö. Ekkert er hægt að segja um það, hvor hafi meira fylgi, uppreisnarmenn eða stjórnin, en minna verður á það, að milljónir Suðurvítnama voru flótta- menn frá Norðurvíetnam. Sþyrja má, hvernig vald ríkisfjölmiðlanna væri notað, ef Joachim Israel og Auöur Styrkársdóttir stjórnuðu þeim. Viðskiptafrelsi eöa ofbeldisstjórn? Gagnrýnd hafa veriö „efnahags- valds"- og „hugmyndafræðivalds"- hugtök Israels. En hvað er að segja um „stjórnmálavaldið" og „þvingun- arvaldið"? Israel segir (bls. 187): Ríkiö hefur eitt leyfi til aö eiga og nota vopn sem ætluð eru til að neyöa fólkið til hlýðni. Þessi tegund valds kallast þvingunar- vald. Og hann segir (bls. 188—189): í lýöræðisþjóðfélögum er stjórn- málavaldið í höndum þeirra sem þjóöin hefur gefið umboð til aö fara með þetta vald. . . Lögreglu- stjórar og herforingjar geta ekki eða eiga ekki aö geta gefiö ríkisstjórninni fyrirskipanir. Ef þeir geta það er lýöræðið úr sögunni og búið að koma á lögregluríki eða herræöi. Mörg ríki búa við herræöi, einkum í S-Ameríku: Chile, Brasilía, Argentína, Uruguay, Perú, Bóli- vía. Slík ríki eru einnig mörg í Afríku. Benda má á þaö, að Israel nefnir ekki lögregluríkin í austri: Ráðstjórn- arríkin, Kína, Viétnam, Júgóslavíu og fleiri ríki. En er greinarmunur hans á „þvingunarvaldi" og „stjórnmála- valdi" eðlilegur? Einungis er taliö leyfilegt, eins og hann segir, að nota ofbeldi í nafni ríkisins. Segja má, aö munurinn á réttarríkinu og lögreglu- ríkinu sé sá, aö í réttarríkinu er fengiö leyfi eöa umboö til þess (í frjálsum kosningum) frá almenningi, en ekki í lögregluríkinu. Ég held þess vegna, að eölilegasti greinarmunur- inn sé á réttmætu ofbeldi og órétt- mætu. Israel ruglar máliö, en skýrir ekki, með hugtökum sinum. Málinu er ekki lokiö með því að gera greinarmun á réttmætu ofbeldi og óréttmætu. Hvað felst í því? Vald meirihlutans (eða öllu heldur fulltrúa hans) má ekki vera ótakmarkað, ríkisstjórn hefur ekki leyfi til alls. Ríkisstjórn hefur til dæmis ekki leyfi til þess að ræna minni hlutann trúfrelsi, þótt fulltrúar meiri hlutans kjósi þaö. Mestu máli skiptir aö ekki sé brotinn réttur einstaklinganna til þess að velja og hafna. Jafnrangt er að brjóta þennan rétt í nafni meiri- hlutans og aö brjóta hann í nafni „guös" eins og einvaldir kóngar fyrri alda eða „stéttarinnar" eins og sam- eignarsinnar (kommúnístar) eöa „þjóðarsinnar" eins og þjóöernis- sinnar (fasistar). Lýðræði má ekki vera ótakmarkaö meirihlutaræöi, það veröur að vera innan marka almennra mannréttinda. Þetta mál ræðir Israel ekki, enda hefur hann engan áhuga á því, það er óþægilegt ríkisrekstrarsinnum, og stundum kemst hann nálægt því að vera meirihlutatrúar. Hann segir til dæmis (bls. 178): Hin ástæðan fyrir því aö hafa umsvifamikinn opinberan vett- vang er einfaldlega sú að þannig vilja margir hafa þaö. Þessi „rök" eru ekki einungis ógild, heldur einnig hættuleg. Meiri- hlutinn er ekki bezti dómarinn um

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.