Alþýðublaðið - 27.03.1931, Síða 8
A L-Þ ÝÐUBLAÐIÐ
8
hér á landi voru mjög ófullkomin
og léleg. Enda hafið pér sjálfur
sagt svo frá, að pér gætuð ekki
eimx sinni smiðaö skeifu, hvað
pá meira. Þegar [)ér voruð búinn
að vera nægilega lengi við járn-
smíðakákið til þess að geta kom-
ist í vélstjóraskóiami, þá fóruð
þér þangað, tókuð þaðan próf,
ekki meira en í meðallagi gott,
þótt í þá daga væru ekki próf-
skilyrði sérlega ströng, þar sem
mjög mikill skortur var vélstjóra
í landinu, svo að sem sagt hvaða
kálfur sem var gat flotið í gegn-
um iskólann. Þér hafiö mjög
stutta reynslu sem vélstjóri og
hafið aldrei svo mikið sem kom-
ið nálægt neins konar diekkvinnu
á skipum. Að þessu athuguðu
sést það, að þér hvorki hafið
þekkingu eða reynslu til að bera
til þess að geta Leyst af hendi
jafn-vandasamt verk eins og
skipaeftirlitsstarfið er, sem iþér
að undanförnu hafið verið við.
Enda hafið þér gert svo herfileg
glappaskot og bakað skipafélög-
unum oft og einatt stórkostieg
aukin útgjöld að óþörfu, að
merkilegt má heita hve útgerðar-
menn eru blindir, að þeir skuli
ekki enn hafa séð þetta. Er hægt
að benda yður á mörg dæmi
þessu til sönnunar, og mun verða
gert i§íðar.
Hvað er það þá, sem gerir það
að verkum, að þér hafið orðiö
skipaeftirlitsmaður? Ekki er [)að
vegna kosta yðar eða hæfiileika.
það hefi ég sýnt ýður fram á hér
að framan. Það hlýtur þá að \æra
vegna vankosta yðar, aö þér er-
uð við þetta starf. Og þessir van-
kostir yðar eru það, sem hafa alt
af sérstaklega au’ðkent yður. En
þeir eru aðallega þessir: Þér er-
uð frámunalega framhLeypinn og
blandið yður í allan fjandann.
sem yður kemur ekki nokkra
ögn við. Yður er ákafiega liöugt
um málbeinið, sérstaklega þegar
þér eruð að koma yður í mjúk-
inn hjá útgerðarmönnunu'm og
hrósa hæfileikum og þekkingu
sjálfs yðar. Þá eruð þér ekki sér-
lega nærgætinn þegar þér talið
um náungann að baki honum.
Þetta hefir komið sér vel fyrir
yður, en ekki að sama skapi fyr-
ir aðra. Af þessu háfið þér haft
tekjur yðar. Otgerðíarmenn hafa
borgað brúsann, en nokkriir, og
þeir helzt til margir, sem hafa
mist atvinnu sína fyrir yðar að-
gerðir. Það er þó sérstaklega ein
stétt manna, sem á yður grátt að
gjal-da. Það eru undanþáguvél-
stjórarnir. Þótt þér hafið farið
illa að við flesta, sem þér hafið
átt viðskifti við, hefir þó enginn
verið eins illa leikimi af yður
ein,s og þeir (nema ef vera skyldi
útgerðarmenn?). Þá hafið þér
haít fyrir hornrekur þar sem þér
hafið möguiega koniið því við.
Er það skiljanlegt þegar þess er
gætt, að það hefir verið yður a!l-
álitlegur tekjuauki, að þessir
menn hefðu sem oftast skifíi um
sldþ. Þegar vélstjóra vantar á
skip, er yður venjulega falið að
útvega hann. Nú hefir á undan-
förnum árum \ærið mjög mikil
vöntun á [)essarar stéttar mönn-
um. Það hefir því verið svo, að
næstum því allir aðrir vélstjórar
á togurunum hafa haft undan-
þágu frá gildandi lögum, til þess
að mega sigla sem vélstjórar. Þér
hafið notað yður aðstöðu yðar til
þess að gera þetta að tekjuauka
fyrir yður. Otgeröarfélögin, sem
*iga að útvega undanþáguna.
[haía í flestum tilfellum falið yð-
ur að gera það. Þér hafið svo
notfært yður þetta og selt þeim.
sem undanþágan hefir gilt fyrir,
hana með 3/5 hærra verði en
hún kostaði yður. Enginn þeirra
manna, sem ég veit um, hefir vit-
að um það, að þér tækjuð nolck-
urn hlut fyrir þetta sjálfur.
Hvorki- útgerðarmenn eða þeir,
sem veitt hefir verið undanþága.
Hið raunverulega 'verö þessa
„plaggs" er kr. 20,00 — tuttugu
krón.ur —, sem rennur til ríkis-
sjóðs tíu krónur og til styrktar-
sjóðs VélstjóraféLags Islands tíu
krónur. Þér hafið til skamms tíma
selt plagg þetta úr yðar höndum
fyrir kr. 50,00 — fimmtíu krónur
—. M. ö. o.: þ,ér hafið drec/id
í ij d ar v asn pr j á t í u k r ó n-
ur í hvert einasta sinni er þér
hafið útvegað undanþágu fyrir
vélstjóra. Get ég tæplega hugsað
mér auðvirðiiegri atvinnugrein en
að hafa það sem einn þátt at-
vinnu sinnar, að okra á atvinnu
fátækra, frekar ilia launaðra sjó-
manna með því að taka ])essa
upphæð, sem þér hafið gert, og
líklega alt af án þeirra vitund-
ar. Get ég ekki annað en sagt,
að þér með þessu hafið notað
aðstöðu yðar sem eftirlitsmaður
á frekar slæman hátt til að afla
yður tekna, sem þér höfðuð enga
heimild tiL, því síður rétt á.
Fyrir nokkru kom til mín mað-
ur, ,sem verið hefir að undanförnu
vélstjóri á ýmsum skipum hér.
Hann sagði mér eftirfarandi sögu
af viðskiftum sínum við yður.
Ég tek hana hér sem sýnishom,
því margar þessu líkar eru til,
og mun ég síðar við tækifæri
skýra yður frá þeim, ef vera
skyldi a‘5 það gæti orðið tii að
opna augu yðar fyrir, hve ó-
-sæmileg þessi tekjugrein yðar er
fyrir yóur: „Fyrir nokkrum ár-
um réði G. J. mig sem vélstjóra
á ,skip hér frá Reykjavík. Hann
tók það rækileg fram við mig.
er ég réðist, að það væri að eins
fyrir þessa einu ferð, sem ég væri
ráöinn, því að henni lokinni ^æmi
lannar maður í iminn stað. Ég var
atvinnulaus og varð auövitað feg-
inn að fá atvinnu, þó ekki væri
nema um stundarsakir. G. J. fékk
undanþáguna fyrir mig, og borg-
aði ég honum íinuntíu krónur
fyrir. Kaupið var þá f jögur hund-
ruð og fjörutíu krónur á mán-
uði. Ég var þama 14 daga, að
því er mig mmnir, fékk ég því
í kaup yfir tímann kr. 205,33.
Af því borgaði ég fyrir undan-
þágu kr. 50,00. Voru þá eftir kr.
155,33, sem ég fékk í minn hlut.
Að ferð skipsins lokinni varð ég
svo að fara, en annar undanþágu-
maður kom í minn stað, en ég
fór skömmu siðar á annað skip
og varð þá að fá nýja undan-
þágu og borga aðrar kr. 50,00.“
Hyað var það nú ínikill hluti af
kaupi þessa manns, sem rann j
yðar vasa? Þótt þér hefðuð nú
ekkert tekið fyrir yðar fyrirhöfn,
varð maðurinn samt að greiða
tuttugu krónur fyrir undanþág-
una. Ef þér hefðuð nú ekkert tek-.
ið fyrir yð,af fyrirhöfn, þá gat
vel komið til mála, að maður
þessi hefði orðið lengur á skip-
inu, því þá var yður það ekkert'
áhugamái að skifta um menn á
skipunum. En það var tæplega
við því að bfiast, að maður eins
og þér eruð vildi hafa hanu lengi
þarna, þar sem þér urðuð þrjátíu
krónum ríkari næst þegar hann
þurfti að fá atvinnu, og auk þess
fenguö sömu upphæð frá þeim
manni, sem kom í hans stað. Nú
skulum við reikna út hvað mik-
í 11 hlúti af kaupi þessa manns
rann í yðar vasa fyrir þessa einu
ferð. Maðurinn fékk kr. 205,33.
Þér fenguð kr. 30,00, eða rúm-
lega sjöunda hlutann af kaupi
hans. M. ö. o. fyrir verk, sem
tók yður í hæsta Lagi 15—20 mín-
útur, tókuð þér rúmliega 7. hluta
af kaupi mannsins í háifan mán-
uð. Ég get nú tæplega kallað
þetta betra nafni en ósvífni, sér-
staklega þegar þess er gætt, að
þér tókuð 'þessa upphæð án þess
að maðurinn hefði hugmynd um,
að þér tækjuö einn eyri sjálfur,
og I í k.a þegar þess er gætt, að
þér gerðuð þetta eftir beiðni
skipseiganda og í hans þágu, og
voruö því raunverulega skyldur
að annast þetta borgunarlaust,
þar sem þér voruð eftirlitsmaður
skipsins og höfðuð tekið að yðiur
að útvega manninn á skipið. Því
iniður verð ég að ’áta hér staðar
numiö, því það er ógerningur að
tína til allar yðar syndir í stuttu
bréfi. Ef skrifuð væri æfisaga
yðar, myndi það verða stærsta
æfisaga, sem nokkru sinni hefði
verið gefin út, þótt ekki væri
tekið meira en þegar er liðið af
æfi yðar, en hvort hún væri að
sama skapi fögur, skal ósagt lát-
ið. Það er venja þegar maður
skrifar öðrum iítt persónulega
kunnugum manni, að setja „virð-
Sokktu<, Sokkma*. Sokkaa1
frá prjónastófunni Malin eru Is-
lenzkir, endingarbeztir, hlýjastir,
Vandlátar Msmæðnr
nofa eingöngu
Van Hontens
heimsins bezta
sntoðkbnlaði.
Fæst í ölium verziunum.
Spariö peninga. Forðist ó-
pægindi. Mnnið þvi eftír, að
vanti ykbur rúður i giugga,
hringið í sima 1738, og verða
þær strax iátnar i. — Sann-
gjarnt verð.
XXX)OOCWOO<X
Nýkomið mikið úrval
af Blóma og Jurtafræi
í verzlun
Vaiti. Pouisen,
Klapparstíg 29. Sími 24.
xx>oooooooooc
ALÞYÐUPRENTSMIÐJAN,
Hverflsgötu 8, simi 1294,
tekur að sér alls kon-
ar tækifærisprentuH,
svo sem erfiljóð, að-
göngumiða, kvittanir,
reikninga, bréf o. s
frv., og afgreiðis
rinnuna fljótt og við
réttu verði.
Miæiiii#, að ijölbreyttasta úr-
valið af veggmyndum og spor-
öskjurömmum er á Freyjugöto
11, sími 2105.
F. F. F.
Fell Fyrir Fátæka.
Fell Fyrir Fjáða.
Fell Fyrir Fjöldann.
Sími 22 85.
ingarfyllst" undir bréfið. Ég
þekki yður nægilega vel til þess,
að varast að setja slíkt undir
þetta bréf, því ég ber enga virð-
ingu iyrir yður, heldur þvert á
móti. Fyrir því kveð ég yður hér
með því loforði, að þér munuð
fá annað bréf frá mér áður langt
um iíðiur.
Jens Pálsson.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Ólafur Friðriksson.
Alþýðuprentsmiðjan.