Morgunblaðið - 19.01.1980, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK
15. tbl. 67. árg.
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
— bílarnir sem keyrðu fram af brúnni
Símamyndir AP.
Brúarstöplar og hluti brúarinnar hrundu yfir norska skipið eftir áreksturinn. Yfirlit yfir slysstað
hröpuðu 40 metra niður áður en þeir skullu í sjónum.
Paul f ær ekki
að spila á
gítarinn sinn
Tokyo, 18. janúar. AP.
PAUL McCartney, hefur nú dval-
ið í 3 daga í japönsku fangelsi.
Hann hefur verið úrskurðaður í
11 daga gæzluvarðhald. Paul
McCartney er nú 37 ára gamall.
Sagt er að hann sé í góðu skapi í
japanska fangelsinu, jafnvel þó
að honum hafi verið neitað um að
spila á gítar í fangaklefa sínum.
Yfirvöld segja, að Paul sé með-
höndlaður eins og hver annar
fangi. Hann er í eins manns klefa
og sefur á japanskri dýnu á
gólfinu.
Félagar hans hafa fengið að
færa honum teppi, auk þess að
klæðum og heitum mat hefur
verið komið til hans en hann er
grænmetisæta. Bítillinn Paul var
handtekinn fyrir að vera með 219
grömm af maríhúana.
Einn af öðrum óku bílamir
fram af 40 m hárri brúnni
— í svartaþoku og náttmyrkri — hluti brúarinnar hrundi eftir að norskt skip sigldi á hana
kolsvart hyldýpið. Rétt eftir miðnætti sigldi norskt 16
Stokkhólmi — 18. janúar — AP.
„SKYNDILEGA var bara tóm framundan og ég
hemlaði. Ég sat góða stund í bílnum og áttaði mig á að
ég hafði stöðvað um 10 metra frá hyldýpinu. Þá sá ég
bílljós hinuin megin. Skyndilega svifu þau niður og
hurfu svo. Ég var alveg miður mín,“ sagði Jan
Rosenberg vöruflutningabílstjóri við fréttamenn eftir
að hafa sloppið svo naumlega við að keyra ofan í
Einn af öðrum óku bílarnir
fram af brúnni og niður í hyldýpið
— hröpuðu 40 metra niður áður en
þeir skullu á haffletinum. í AP-
fréttum segir að minnsta kosti 7
bílar hafi farið fram af brúnni
niður í hyldýpið. Ekki er vitað hve
margra er saknað, en að minnsta
kosti 10 manns voru í bílunum.
Engar líkur eru taldar á að
nokkur þeirra hafi komist lífs af.
Þegar skipið hafði siglt á brúar-
stöpulinn og hluti brúarinnar fall-
ið yfir það hafði skipið þegar
samband við lögregluyfirvöld.
Lögreglan kom á staðinn 14
þúsund lesta vöruflutningaskip á einn af undirstöðu-
stöplum Almobrúarinnar út í eyna Tjörn á vestur-
strönd Svíþjóðar, um 50 kílómetra fyrir norðan
Gautaborg. Brúin er 532 metra löng, gífurlegt
mannvirki og hún féll niður á 278 metra löngum kafla.
Svartamyrkur og þoka var þegar þetta varð.
mínútum síðar og stöðvaði alla
umferð. Um borð í skipinu var
hafnsögumaður og var hann í
yfirheyrslu í dag ásamt skipstjór-
anum. Skipið mun hafa siglt of
nærri landi. Það var á leið inn til
Ullevalla. „I sænskum fjölmiðlum
hefur verið rætt um að a.m.k. 6
bílar hafi farið fram af brúnni,
þar af 2—3 flutningabílar. Engin
vissa er um hve margir voru í
bifreiðunum en talið að ekki færri
en 10 manns hafi verið í þeim,“
sagði Stefán Halldórsson, en hann
býr í nágrenni Gautaborgar.
Kafarar hafa kafað niður en
þeir sjá ekkert fram fyrir sig. Það
er allt svart og að sögn yfirmanns
björgunaraðgerða verður farið
með röntgentæki yfir svæðið til að
reyna að finna út hvar bílarnir
liggja,“ sagði Stefán ennfremur.
Þá sagði Stefán að missir brúar-
innar myndi valda íbúum á Tjörn-
eyju miklum vandræðum þar sem
flestir þeirra sæktu vinnu upp á
meginlandið. Að vísu er önnur brú
sem tengir eyjuna við meginlandið
til Gautaborgar en fólk verður þá
að fara um 100 kílómetra auka-
krók. Á degi hverjum hafa á milli
sjö og átta þúsund bílar ekið um
brúna.
Pakistanar með mikinn
viðbúnað við landamærin
Kabúl — Karachi — Teheran — 18. janúar — AP
SPÆNSKUR fréttamaður, sem ér nýkominn frá suðurhéruðum
Afghanistans, sagði í dag, að Sovétmenn hefðu hrakið uppreisnar-
menn upp í afskekkt fjallahéruð. Ilann sagði, að Sovétmenn hefðu
uppreisnarmenn í hendi sér við pakistönsku landamærin. Uppreisnar-
menn virtust skelfdir yfir því hve Sovétmenn hafa beitt fullkomnum
vopnum í baráttunni við þá, m.a. vopnuðum þyrlum og skriðdrekum
og orrustuþotum. Uppreisnarmenn megi sín lítils gegn fullkomnustu
vopnum úr vopnabúri sovéska hersins. Þeir hafi engin sjálfvirk vopn,
aðeins úreit og megi sín lítils. Þeir hafi hörfað upp í snæviþökt
fjallahérúðin. Þessar fréttir hafa ekki fengist staðfestar frá Kabúl og
almennt eru fréttir frá landinu mjög óijósar.
Þá berast fréttir um að afgh-
anskir uppreisnarmenn hrekist
undan sókn Sovétmanna yfir
landamærin til Pakistans. Þús-
undir pakistanskra hermanna
hafa verið sendir til landamær-
anna og herinn er sagður í við-
bragðsstöðu. Alls eru nú sjö her-
fylki við landamærin. Fréttir ber-
ast um mikla vopnaflutninga
Kínverja til Pakistans yfir Kara-
koram-skarðið. Þá sagði frétta-
maður indversku fréttastofunnar
UNI, að Sovétmenn hefðu nú
nánast alveg afvopnað afghanska
herinn, en fjölmargir afghanskir
hermenn hafa gengið í lið upp-
reisnarmanna í landinu.
Zia Ul-Haq, forseti Pakistans,
kallaði boð Jimmy Carters Banda-
ríkjaforseta, um 400 milljón doll-
ara aðstoð við Pakistan, smámuni.
Hann sagðist vera mjög vonsvik-
inn með boð Bandaríkjamanna.
„Pakistan mun ekki kaupa sér
óvild Sovétmanna fyrir litlar 400
milljónir dollara. Sovétmenn hafa
mun sterkari ítök á þessu svæði en
Bandaríkin," sagði Zia við banda-
ríska fréttamenn. Hann tók ekki
fram hvað hann vildi mikla aðstoð
en sagði að hann þarfnaðist orr-
ustuþotna, flugskeyta, skriðdreka
og fjarskiptakerfis til að styrkja
varnir við landamærin að Afghan-
istan. Hann sagði, að Bandaríkin
myndu ekki fá land undir her-
stöðvar í landinu. „Pakistanar
munu verja sig sjálfir," sagði
hann.
Flugvellinum í Kabúl var lokað í
dag en þaðan ætluðu fjölmargir
bandarískir fréttamenn. Fréttir
frá Nýju Delhi sögðu að flugvell-
inum hafi verið lokað vegna mik-
illar snjókomu í höfuðborginni.
Sovéski ambassadorinn í Brasilíu
fór í dag á fund utanríkisráðu-
neytisins og þakkaði Brasilíu-
mönnum fyrir að hafa ekki tekið
þátt í kornsölubanni á Sovétríkin.
Hann sagði að sú ákvörðun hefði
verið rétt.
Sadeq Gotbzadeh utanríkisráð-
herra sagði í dag að írönsk
stjórnvöld rannsökuðu riú sögu-
sagnir um herflutninga Sovét-
manna að landamærum írans.
„Við getum ekki látið sem ekkert
sé ef sovéskir hermenn eru við
landamæri okkar. Við erum við-
kvæmir fyrir þessu og munum
mótmæla kröftuglega," sagði
Qotbzarieh í viðtali við íranska
útvarpið.
Heilsu Titos
fer hrakandi
Bcl);rad. 18. janúar. AP.
LÆKNAR sem stunda Josip
Broz Tito, hinn aldraða for-
seta Júgóslavíu, gáfu i dag í
skyn að liðan hans hafði
versnað. í opinberri tilkynn-
ingu i dag sagði að líðan Titos
væri óbreytt. Læknar sögðu í
gær, að vegna blóðtappa í fæti
forsetans, væri það erfiðlcik-
um bundið að halda eðlilegri
blóðrás.
Talsmaður utanríkisráðu-
neytisins í Belgrad gagnrýndi
vestræna fjölmiðla fyrir til-
raunir til að skapa spennu um
Júgóslavíu, eins og hann orðaði
það. Hann átti þar greiniiega
við fréttir, sem hafa birst um
sovéskar áætlanir um íhlutan í
Júgóslavíu þegar Tito væri all-
ur. Orðrómur er á kreiki um að
júgóslavneska hernum hefði
verið skipað í viðbragðstöðu og
stöðuga fundi helstu leiðtoga
landsins vegna veikinda Títos.
Aðspurður sagði talsmaðurinn
að fréttir um viðbragðstöðu
hersins væru út í hött og um
stöðuga fundi leiðtoga landsins
sagði hann að eins væri um
árlega fundi að ræða og ekkert'
óvenjulegt við þá.