Morgunblaðið - 19.01.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1980
„VIÐ vitum til þess, að á
vorin og sumrin er alltaf
einhver eftirspurn eftir
íslenzkum peningum er-
lendis, til dæmis í Þýzka-
fyrir
Strandaði
utan
Þorlákshöfn
I>orlákshófn. 18. janúar.
JÓN Sturlaugsson ÁR
7 strandaði laust eftir
klukkan 18 í dag rétt
utan við höfnina, eða
sunnan við svokallað
Sambandshús. Háflóð
var þegar þetta vildi
til og mikil hrímþoka.
Fjaran þarna er grýtt.
Björgunarsveitin hér kom
þegar á vettvang og haft var
samband við Landhelgisgæzl-
una til að fá varðskip til að
draga bátinn á flot eins fljótt
og auðið er. Engan mann
sakaði og sjór var ekki kom-
inn í bátinn, þegar síðast
fréttist. Agætt veður er og
því von til að allt fari vel.
Eigandi bátsins er Guðni
Sturlaugsson útgerðarmaður,
skipstjóri er Jakob Guðna-
son.
Ragnheiður
landi, og þannig skapa
erlendir ferðamenn mark-
að fyrir íslenzka peninga,“
sagði Björn Tryggvason
aðstoðarbankastjóri Seðla-
bankans í samtali við Mbl.
í gær. Björn sagði, að
erlendir bankar tækju
íslenzka peningaseðla,
1000 króna seðla stærsta,
og væru afföllin að
minnsta kosti 10—12% frá
reglulegu gengi. Hins veg-
ar hefðu þeir einnig haft
spurnir af því að bankar
tækju 5000 króna seðla og
væri þá um allt að 50%
afföll að ræða.
Frá 6. september sl. mega
íslendingar taka með sér úr landi
30.000 krónur í íslenzkum seðlum,
stærstu seðlar þó 1000 króna
seðlar. Hins vegar er alltaf eitt-
hvað um það að fólk taki með sér
varasjóð og þá jafnvel einnig 5000
króna seðla, sem dæmi eru um að
bankar erlendis taka til að selja
svo þeim mönnum þar í landi, sem
hyggja á Islandsferðir.
Björn sagði því, er Mbl. spurðist
fyrir um það vegna handtöku
Júgóslava á Spáni fyrir nokkru,
sem hafði íslenzka peninga undir
höndum, að það væri út af fyrir
sig ekki erfitt að fá þá keypta
erlendis. Og alltaf væru einhver
brögð að því að menn reyndu að
selja íslenzkar krónur sem norsk-
ar, sænskar eða danskar. Sagðist
Björn vita til þess, einkum í
Austur-Evrópulöndum, að menn
þar gerðu ekki greinarmun á
íslenzkum krónum og öðrum
Norðurlandakrónum.
Ljósm.: Kristján.
Frá viðræðufundi ASÍ og VSÍ í húsakynnum hins fyrrnefnda í gær.
Fyrsti viöræðufundur ASÍ og VSÍ:
Ræddust við í 2 stundir
FYRSTI viðræðufundur Alþýðu-
sambands íslands og Vinnuveit-
endasambands íslands um gerð
heildarkjarasamninga var hald-
inn í gær í húsakynnum ASÍ á
horni Fellsmúla og Grensásveg-
ar. Fundurinn stóð i tvær
klukkustundir og i lok hans var
ákveðið að menn hittust að nýju á
miðvikudag klukkan 15, og þá í
húsakynnum VSÍ í Garðastræti.
Samkvæmt upplýsingum Þor-
steins Pálssonar, framkvæmda-
stjóra Vinnuveitendasambands-
ins, þá lýstu báðir aðilar tillögum
sínum til nýrrar samningsgerðar
og einstökum atriðum þeirra. Að-
ilarnir urðu sammála um að vísa
kjaradeilunni ekki til sáttasemj-
ara ríkisins að svo stöddu.
Bæjarstjórn Seltjarnarness:
10% útsvar og 20% af-
sláttur af fasteignagjöldum
- hjá hjónum, sem eru ellilífeyrisþegar með 350 þús. kr.
mánaðartekjur, falla fasteignagjöldin alveg niður
BÆJARSTJÓRN Seltjarnarnes-
kaupstaðar samþykkti á fundi
sínum s.l. miðvikudag fjárhags-
áætlun fyrir árið 1980. Áætlunin
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins á fundi um fiskverðið í gær, fulltrúar seljenda vinstra megin,
kaupendur til hægri og oddamaður við borðsendann. Frá vinstri: Ingólfur Ingólfsson, Kristján
Ragnarsson, Jón Sigurðsson, Eyjóifur Martinsson, Árni Benediktsson og Sveinn Finnsson framkvæmda-
stjóri Verðlagsráðsins. (Ljósm. Mbi. Emiiía)
Fundir í yfirnefndum um almennt fiskverð og loðnuverð í gær:
20% af útflutnings-
gjaldi í verðuppbætur
YFIRNEFNDIR Verðlagsráðs
sjávarútvegsins um almennt fisk-
verð og loðnuverð sátu á fundum
í gær og er jafnvel búist við
fundarhöldum um helgina. Yfir-
nefndin, sem fjallar um almennt
fiskverð, hefur fengið frest fram
á föstudag í næstu viku, 25.
janúar, til að ákveða fiskverð, en
fyrri frestur rann út í gær.
Þingflokkarnir hafa nú til með-
ferðar frumvörp um útflutnings-
gjald og aflatryggingasjóð, en
enn er unnið að gerð frumvarps
um olíugjald.
Sjávarútvegsráðherra hefur
sent þingflokkunum drög að frum-
vörpum til laga um breytingar á
aflatryggingasjóði og útflutnings-
gjaldi. Meginefnin eru lækkun
útflutningsgjalds úr 6% í 5,5% og
að 20% útflutningsgjalds renni til
sérstakrar deildar aflatrygginga-
sjóðs, sem greiði verðuppbætur á
vannýttar fisktegundir, en verð-
lagsráð sjávarútvegsins geri til-
lögur um skiptingu verðuppbót-
anna eftir tegundum.
Útflutningsgjaldið var í fyrra
lækkað úr 6 í 5%, en hækkaði
aftur upp í 6% um áramót, þegar
olíugjaldið féll úr gildi. Verðupp-
bætur á vannýttar fisktegundir, er
nú rætt um í því sambandi karfa,
ufsa, grálúðu og kolmunna, voru
áður teknar úr aflatryggingasjóði
og tryggingasjóði fiskiskipa, en
frumvarpsdrögin nú miða að því
að koma föstu skipulagi á fyrir-
komulag greiðslnanna. Verðupp-
bætur á karfa og ufsa munu hafa
numið um 1600 milljónum króna
var samþykkt með 5 atkvæðum
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins en
báðir fulltrúar vinstri flokkanna
sátu hjá. í áætluninni er aðeins
gert ráð fyrir 10% útsvarsálagn-
ingu. Þá sagði Magnús Erlends-
son forseti bæjarstjórnar Sel-
tjarnarness í samtali við Mbl. i
gær, að bæjarfélagið gæfi íbúðar-
eigendum 20% afslátt af fast-
eignagjöldum og einnig sagði
hann, að hjá hjónum, sem eru
ellilifeyrisþegar og hafi þau haft
í laun á siðasta ári 4,1 milljón
króna eða minna, falli fasteigna-
gjöldin alveg niður.
Magnús sagði í samtali við Mbl.,
að til samanburðar á almennum
fasteignagjöldum mætti taka ann-
ars vegar 140 fermetra raðhús í
Háaleitishverfi í Reykjavík, sem
greiða ætti um 300 þúsund krónur
af á þessu ári, en einbýlishúsaeig-
andi á Seltjarnarnesi þarf hins
vegar að greiða um 216 þúsund
krónur.
Magnús Erlendsson sagði:
„Það hefur um árabil verið
ákveðin stefna okkar Sjálfstæð-
ismanna í meirihluta bæjarstjórn-
ar að standa fast með þeim
einstaklingum sem þora, viija og
geta staðið á eigin fótum, og við
teljum okkur gera það besta með
því að efla svo rauntekjur ein-
staklinganna að þeir hafi eitthvað
eftir til eigin þarfa, í stað þess að
skattpína og kreista hverja þá
krónu úr vasa þeirra sem tekju-
stofnalög heimila. Slíkt dregur úr
sj álf sbj argarviðleitni einstakl-
inganna og á móti því viljum við
vinna — ekki aðeins með fögrum
orðum fyrir kosningar'— heldur
og áþreifanlega í reynd. Vissulega
verða tekjur bæjarfélagsins minni
og hraði framkvæmda eftir því, en
í óðaverðbólguþjóðfélagi ber hinu
opinbera, hvort sem það er ríkið
sjálft eða sveitarfélögin að ganga
fram fyrir skjöldu með því að
draga úr þenslu, og hvað varðar
útsvarsálagningu má geta þess að
fasteignaeigendur hér í bæ gátu
margir hverjir greitt allt að %
fasteignagjalda sinna á síðasta ári
með þeim fjármunum sem bæjar-
félagið gaf þeim eftir með lægstu
útsvarsálagningu á landinu öllu.
Þessari stefnu munum við Sjálf-
stæðismenn hér í bæ halda, svo
lengi sem íbúarnir gefa okkur völd
þar til.“
Bræla á
loðnumiðunum
NÍU SKIP höfðu tilkynnt um afla
til Loðnunefndar þegar Mbl.
hafði síðast samband við Loðnu-
nefnd i gærkvöldi og voru þau
með 6140 lestir. Siðdegis í gær
var komið vonzkuveður af norð-
austan á loðnumiðunum og ekki
var útlit fyrir að veiðiveður yrði í
nótt.
Þeir bátar, sem fengu afla
síðasta sólarhring, landa flestir í
Grindavík, Þorlákshöfn og Vest-
mannaeyjum. Eldborgin úr Hafn-
arfirði átti í erfiðleikum á miðun-
um í fyrrinótt, en skipið fékk
nótina í skrúfuna og dró Goðinn
hana í landvar, þar sem skera átti
úr skrúfunni. Þau skip, sem til-
kynntu Loðnunefnd um afla í gær
voru: Keflvíkingur 520, Húnaröst,
620, Hafrún 650, Fífill 580, Faxi
350, Magnús 520, Sigurður 1300,
Bjarni Ólafsson 1100 og Grindvík-
ingur 500.
Fjögur tilboð í
flóðgáttir Hraun-
ey jaf ossvirk j unar
FJÖGUR tilboð bárust Landsvirkjun
í byggingu flóðgátta í aðalstíflu og
inntaks í aðveituskurð Hrauneyja-
fossvirkjunar, en hér er um stein-
steypt mannvirki að ræða, og á að
framkvæma verk þetta að mestu á
þessu ári. Tilboðin eru: Aðalbraut
h.f., kr. 979.425.000, Fossvirki, kr.
1.557.480.000, Hraunvirki h.f., kr.
1.546.850.000, Smiður h.f. og Vörðu-
fell h.f., kr. 1.002.432.000.
Áætlun ráðunauta Landsvirkjun-
ar nam kr. 1.165.000.00.
Tilboðin verða nú könnuð nánar
með tilliti til útboðsgagna og borin
endanlega saman. Að því búnu mun
stjórn Landsvirkjunar taka afstöðu
til þeirra.
Ferðamannamark-
aður með íslenzka
peninga erlendis
i