Morgunblaðið - 19.01.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1980
3
Reglugerðin án lagastoðar:
Ahöfnum einnig óheim-
ill innflutningur bjórs
- skv. túlkun lögfræðings á
áfengis- og tollskrárlögum
SAMKVÆMT túlkun lögfræðinga, sem Mbl. leitaði til
í gær, er reglugerð sú, er heimilar áhöfnum flugvéla
og skipa innflutning á áfengum bjór, án lagastoðar
og ætti því að teljast ógild. Væntanleg málshöfðun
vegna bjórkaupa Davíðs Sch. Thorsteinsson mun
væntanlega leiða hið rétta í ljós í máli þessu.
Mbl. ræddi í tilefni þessa í gær við fjármálaráð-
herra, Sighvat Björgvinsson, Jón Steinar Gunnlaugs-
son lögfræðing og Davíð. Einnig var leitað svara við,
hvort vinsældir hins áfenga öls væru miklar og í því
sambandi rætt við Jón Grétar Sigurðsson fulltrúa
tollgæzlustjóra.
Jón Steinar Gunn-
laugs-
son lögfræðingur:
Hvorki Davíð
né áhafnirnar
hafa lagalegan
rétt til að
flytja inn bjór
„LAGALEGA heíur hvorki
Davíð né áhafnir flugvéla og
skipa heimild til innflutnings
áfengs öls,“ sagði Jón Steinar
Gunnlaugsson lögfræðingur, er
Mbl. spurði hann álits á laga-
legri hlið þessa máls.
„I fyrsta lagi er í áfengislögum
fortakslaust bann við því að
flytja til landsins öl, sem hefur
inni að halda meira en 214 %
vínanda að rúmmáli. Þá er að
athuga, hvort í einhverjum öðr-
um lögum sé heimild til þess að
flytja inn umræddan bjór, þ.e.
heimild til handa flugáhöfnum
og sjómönnum. Þessi innflutn-
ingur, sem nú á sér stað, er
byggður á reglugerð, sem fjár-
málaráðuneytið hefur sett um
tollfrjálsan farangur farmanna
við komu frá útlöndum. í þeirri
reglugerð er beinlínis tekið
fram, að þessir aðilar megi
flytja inn með sér tiltekið magn
af áfengu öli.
Spurningin er þá sú, hvort
þessi heimild hefur lagastoð.
Reglugerðin er sett eftir heimild
í tollskrárlögum og í tollskrár-
lögum er einungis gert ráð fyrir
því, að veittar séu undanþágur
frá greiðslu tolla af venjulegum
farangri, s.s. fatnaði og öðrum
ferðanauðsynjum. Og síðan er
sagt í lögunum að fjármálaráðu-
neytið geti sett nánari reglur um
tollfrelsi skv. þessari grein. Á
öðrum stað í tollskránni er
fjármálaráðuneytinu heimilað
að fella niður gjöld af varningi
allt að ákveðnu hámarki hverju
sinni, sem farmenn og ferða-
menn hafa með sér frá útlönd-
um.
Það er hvergi að finna neina
heimild í lögunum til þess að
flytja til landsins áfengt öl, þ.e.
hér er engin heimild sem breytir
fortakslausu banni í áfengislög-
unum gegn innflutningi á öli.
Hvort þetta brýtur í bága við
stjórnarskrána kemur fyrst til
athugunar að mínu mati, ef
reglugerð fjármálaráðuneytisins
hefði næga lagastoð, sem hún
hefur engan veginn".
Þetta mun knýja
á um einhverj-
ar breytingar
- segir f jármálaráðherra
Sighvatur Björgvinsson
„I áfengislögunum stendur
skýrum stöfum, að allur inn-
flutningur og framleiðsla á bjór
yfir vissum styrkleika eru bönn-
uð,“ sagði Sighvatur Björgvins-
son fjármálaráðherra, er hann
var spurður álits. „Annað hef ég
ekki að segja á þessu stigi. Þetta
er allt í athugun hér í ráðuneyt-
inu. Það að Davíð fékk ekki að
flytja inn ölið mun að mínu áliti
knýja á um einhvers konar
breytingar, en í hvaða átt þær
verða vil ég ekkert segja á þessu
stigi.“
Davíð Sch.
Thorsteinsson:
Ég held
mínu striki
— hvort sem allir
fá að flytja inn
bjór eða enginn
„ÞAÐ breytir engu fyrir mig,
þó að það sé rétt, að reglugerð-
in hafi ekki lagastoð. Ég bíð nú
eftir stefnu frá ríkisvaldinu, ef
hún kemur ekki fyrir mánaða-
mótin þá mun ég leita réttar
míns til að endurheimta eigur
mínar, þ.e. bjórinn, sem ég hef
greitt að fullu,“ sagði Davíð
Sch. Thorsteinsson, er Mbl.
spurði hann, hvort túlkun Jóns
Steinars á lagahlið þessa máls
breytti í einhverju hans áætlun.
Skv. túlkun Jóns Steinars
Gunnlaugssonar lögfræðings er
engin lagastoð fyrir reglugerð-
arheiinild fjármálaráðuneytis-
ins sem heimilar áhöfnum
flugvéla og skipa að flytja
áfengt öl inn í landið. Ef
lögunum yrði framfylgt gæti
enginn teygað slíkan mjöð hér-
lendis án þess að afla hans eftir
„krókaleiðum“.
„Ég er ekki lögfræðingur og
það getur vel verið, að Jón
Steinar hafi rétt fyrir sér. Hér
er að mínu áliti verið að mis-
muna þegnunum og ég álít að
það sé ekki leyfilegt að gera það.
Og ég vil ekki að slíkt sé gert
með einhverjum stjórnvaldsað-
gerðum eða á annan hátt. Þess
vegna skiptir mig engu, hvort
niðurstaðan verður sú, að aliir
þeir sem koma til landsins fái að
koma með bjór eða enginn.
Málið er það, að það eiga að
gilda ein lög í einu landi og sömu
lög og reglur fyrir alla þegna
þessa lands. Sem dæmi um
fáránleikann í þessu máli, þá er
flugliða heimilt að taka með sér
bjór inn í landið, er hann kemur
frá vinnu. Ef sá sami aðili, sem
hlotið hefur þetta traust að fá að
meðhöndla áfengan bjór, kemur
til landsins sem farþegi úr
sumarleyfi, þá fær hann ekki að
koma með bjór. Ég skil eiginlega
ekki hvernig þetta getur hafa
viögengist öll þessi ár.
Ég held mínu striki, og ef ég
fæ fólk, og ég tala nú ekki um
yfirvöld, til að hugleiða málið,
þá er árangri náð,“ sagði Davíð í
lokin.
Jón Grétar Sigurðsson
fulltrúi tollgæzlustjóra:
Verð frekar var
við aukna ásókn
í bjórinn
„Við lögðum hald á svipað
magn á s.l. ári og árið þar áður,“
sagði Jón Grétar Sigurðsson
fulltrúi tollgæzlustjóra, er Mbl.
spurði hann, hvort vinsældir
bjórsins væru miklar og hvort
mikið væri reynt að smygla bjór
inn í landið. „Ég verð nú frekar
var við aukna ásókn í bjórinn, en
þó er sú breyting ekki mikil." —
Hvaða leiðir eru helzt notaðar til
að koma bjórnum inn í landið?
„Það er mest með skipum en þó í
einstaka tilfellum með flugvél-
um.“
Eiður Guðnason Hörður Einarsson Jón Sigurðsson
Hádegisfundur
Varðbergs í dag
VARÐBERG, félag ungra áhuga-
manna um vestræna samvinnu,
heldur í dag, laugardag, hádegis-
verðarfund um ísland og Afganist-
ari. Fer fundurinn fram á Hótel Esju
og er opinn öllum félagsmönnum
Varðbergs, Samtökum um vestræna
samvinnu og gestum þeirra.
Framsögumenn verða þeir Eiður
Guðnason alþingismaður, Hörður
Einarsson ritstjóri Vísis og Jón
Sigurðsson ritstjóri Tímans.
A helgutti bjóðum við á Aski
Suðurlandsbraut, stórgóða þjónustu við
afgreiðslu á frönskum kartöflum, rnargs-
konar sósum og salötum.
Hér er um að rceða algjörlega sjálf-
stœða afgreiðslueiningu sem sinnir þessari
þjónustu eingöngu.
Aukamannskapur sér til þess að
afgreiðslan gangi fljótt og vél fyrir sig.
Þú setur aðeins steikina t ofninn og
scekir svo afganginn til okkar.
FRANSKAR SÓSUR.
KARTÖFLUR: Cockteil-sósa:
1/2 poki (ca Í00 g) Kr. 1.400 títið box Kr. 5J
1/lpoki (ca 800 g) Kr. 2J00 mið box Kr. 120
stór fioki (ca 1000 g)Kr. 3M0+ stórt box Kr. 2.00
SKAMMTAR: Beamaise-sósa:
títið box ca 120 g títið box Kr. 87
mið box ca 275 g mið box Kr. 2.00
stórt box Kr. 2.000 * Karry-sósa:
títið box Kr. 620 mið box
mið box Kr. 1.450 stórt box
stórt box Kr. 2350 * Tilboð