Morgunblaðið - 19.01.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1980
5
Endurskoðun á mnra skipu-
lagi hjá Eimskip lokið
A UNDANFÖRNUM mán-
uðum hefur verið unnið að
endurskoðun á innra
skipulagi Eimskipafélags-
ins. Hefur nýtt skipulag
nú verið mótað, og teknar
ákvarðanir um þær breyt-
ingar, sem það hefur í för
með sér. Hið nýja skipuleg
tekur gildi í öllum aðalat-
riðum 21. janúar 1980.
Starfsemi félagsins
skiptist samkvæmt hinu
nýja skipulagi aðallega í
þrennt, þ.e. flutningasvið,
fjármálasvið og tækni-
deild.
- Starfsmannafjöldi
félagsins breytist
ekki við þessar
skipulagsbreytingar
Starfsfólk flutningadeildanna
mun halda uppi nánu sambandi
við inn- og útflytjendur og láta í té
aðstoð og leiðbeiningar vegna
sérhæfðra flutninga, framhalds-
flutninga og flutningamála yfir-
leitt.
Viðskiptaþjónustudeild sér um
stefnumótun í markaðsmálum og
samvinnu við forstöðumenn flutn-
ingadeilda og framkvæmdastjóra
flutningasviðs.
Til þæginda og samræmingar
hefur verið leitast við að fram-
angreindar deildir flutningasviðs
yrðu allar á sama stað í Eimskipa-
félagshúsinu. Eru flutningadeild-
irnar allar á 2. hæð, en auk þess
eru á þeirri hæð skrifstofa vöru-
afgreiðslustjóra ásamt forstöðu-
mönnum viðskiptaþjónustudeildar
og fraktsamræmingar. Almenn
afgreiðsla viðskiptaþjónustudeild-
ar mun í mars flytja í nýjan
afgreiðslusal á jarðhæð hússins og
mun það hafa í för með sér bætta
aðstöðu fyrir viðskiptavini og
starfsfólk.
Þess má geta að starfsmanna-
fjöldi Eimskips breyttist ekki
vegna þessara skipulagsbreytinga,
sem hér hefur verið greint frá.
Meginbreytingarnar, eins og
þær snúa að viðskipamönnum
félagsins eru þær, að starfandi
verða þrjár flutningadeildir, sem
hver um sig annast ákveðnar
flutningaleiðir. Koma þær í stað
einnar deildar áður. Að auki er
komið á fót sérstakri viðskipta-
þjónustudeild. Frá og með 21.
janúar er fyrra deildarskipulag
lagt niður, þ.e. innflutningsdeild,
útflutningsdeild og strandflutn-
ingadeild. Færist starfsemi þess-
ara deilda að mestu til flutninga-
deildanna þriggja. Starfssvið
flutningadeildanna nýju verður
því mun víðtækara, en verið hefur
í fyrri flutningadeild.
Viðskiptaþjónustudeild annast
m.a. alla almenna afgreiðslu
vegna innflutnings á svipaðan
hátt og verið hefur. Hún mun
einnig á svipaðan hátt nú annast
alla afgreiðslu vegna útflutnings.
Hver flutningadeild er rekin
sem sjálfstæð rekstrareining og er
forstöðumaður fyrir hverri deild
sem annast allan daglegan rekstur
hennar og tekur ákvarðanir um
flutninga og siglingar á þeim
flutningaleiðum, sem deildin ann-
ast. Hefur hver deild ákveðin skip
til umráða og annast rekstur
þeirra. Verða sex starfsmenn í
hverri flutningadeild.
Forstöðumaður og aðstoðarfor-
stöðumaður í hverri flutninga-
deild sjá um bókanir í skip á sínu
flutningasvæði og semja þeir við
viðskiptamenn um vöruflutninga
að öllu leyti. Jafnframt munu
flutningadeildirnar leysa úr vand-
kvæðum, sem upp kunna að koma
vegna flutninga á þeirra flutn-
ingaleiðum.
INNLENT
L. _A
SKIPURIT
F|á(málssvið
Stjóm
ForstjOri
ilanarteild
| rvl
EIMSKIP
I I Fragisamraammg — ViðskiplabiOnuslu- deild
Voruatgraiösla Raykiavlk Hafnartirði Norður Amarika Störtlutningar I Norðurlond Eystrasalt 8 Bratland ■ Maginland Evröpu
Yfirlitssýning á verkum
Einars Baldvinssonar
EINAR Baldvinsson opnar í dag
yfirlitssýningu á málverkum
sínum á Kjarvalsstöðum. Einar
sýnir þar 130 myndir frá 20 ára
tímabili, 90 olíumálverk og 40
olíukrítarmyndir.
Flestar mynd-
anna eru í einkaeign en nokkrar
eru til sölu, m.a. allar krítarmynd-
irnar. Sýningin verður opin til 27.
janúar n.k. frá kl. 14—22 alla
daga.
Einar Baldvinsson var við nám í
Myndlista- og handíðaskólanum í
3 ár og var síðan 4 vetur í
listaakademíunni í Kaupmanna-
höfn. Hann hefur áður haldið 5
einkasýningar hér á landi og tekið
þátt í ýmsum samsýningum bæði
innan lands og utan.
Einar Baldvinsson við eitt verka sinna.
Ljósm. Kristján.
Séra Gylfi i Bjarnarnesi, Ingibjörg, Hrefna, Gunnhiidur, Herdis og Hafdis.
Röskar stelpur
á Hornafirði
Höfn. Hornafirði. 15. januar.
HINN 14. janúar sl. héldu 5
telpur hér á Höfn hlutaveltu til
ágóða fyrir söfnunina „Brauð
handa hungruðum heimi“. Hluta-
veltan gekk mjög vel og var
ágóðinn 47.700 krónur. I gær
heimsóttu þær stöllur prestinn
okkar, séra Gylfa Jónsson i Bjarn-
arnesi, sem veitti söfnunarfénu
móttöku fyrir hönd Hjálparstofn-
unar kirkjunnar.
Nöfn þessara duglegu telpna,
sem allar eru á aldrinum 10—12
ára, eru Hrefna Guðnadóttir,
Gunnhildur Gísladóttir, Herdís
Ingólfsdóttir, Hafdís Eiríksdóttir
og Ingibjörg Björnsdóttir. Sam-
kvæmt upplýsingum Guðmundar
Einarssonar framkvæmdastjóra
Hjálparstofnunar kirkjunnar mun
þessi söfnun hjá telpunum hér á
Höfn vera með þeim stærstu, sem
börn hafa staðið fyrir í þessari
söfnunarherferð.
Einnig lét Guðmundur þess get-
ið, að mjög mikið hefði borizt af
framlögum með gíró-sendingum
héðan frá Höfn og nágrenni, auk
þeirra framlaga, sem séra Gylfi
Jónsson í Bjarnarnesi hefur tekið á
móti og sent Hjálparstofnuninni.
Guðmundur lýsti ánægju sinni
með þann áhuga, sem íbúar í
A-Skaftafellssýslu hefðu sýnt
þessu málefni. — Einar
1. tonleikar
Kristjáns
í Reykjavík
Akureyringurinn Kristján Jóhannsson, tenór
heldur í dag sína fyrstu tónleika
í Gamla bíói. Fjölbreytt efnisskrá. —
Einleikari: Thomas Jackman.
Tónleikarnir hefjast kl. 15.00
Miöasala frá kl. 13.00.
lÍJtsalan hefst á mánudag
þcrnhard laxdal
KJÖRGARÐI