Morgunblaðið - 19.01.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1980
7
Utanþings-
stjórn
Jón Sigurðsson, rit-
stjóri Tímans, ræðir í for-
ystugrein í gær um
stjórnarkreppuna og
veitir bersýnilega fyrir
sér þeim möguleika, að
grípa veröi til þess að
mynda utanþingsstjórn.
Hann segir:
„Við aðstæður sem
þessar þarf sterka stjórn
sem veit hvað hún vill og
knýr fram vilja sinn. Slík
stjórn veröur að styðjast
við meirihluta ó Alþingi,
því að augljóst er að
jafnan þarf tilstyrk Al-
þingis að koma fram lög-
um og öllum mikilvæg-
ustu ákvörðunum stjórn-
valda.
Eftir því sem lengra
líður á tilraunir flokkanna
til stjórnarmyndunar
verða vandamálin örö-
ugri og erfiöleikarnir
meiri. Ábyrgir stjórn-
málamenn hljóta að
sama skapi að leggja
fleiri ágreiningsmál til
hliðar, en einbeita sér
þeim mun frekar að þeim
sjónarmiðum sem sam-
eina sem allra flesta.
Takist ekki meö neinu
móti aö mynda ríkis-
stjórn sem styðst beinlín-
is og formlega viö meiri-
hlutafylgi á Alþingi, eru
góö ráö dýr. Svo er ráö
fyrir gert í stjórnar-
skránni aö forseti Islands
geti tekiö þaö ráð aö
kveðja hverja þá menn
sem hann sjálfur kýs til
að mynda ríkisstjórn, og
á sínum tíma valdi
Sveinn Björnsson, þáver-
andi forseti, þennan kost.
í reynd verður aö telj-
ast lítill efnislegur munur
ó því hvort að völdum
situr ríkisstjórn sem á
uppruna sinn í einhverj-
um þingflokki, en er í
minnihluta á Alþingi, eöa
ríkisstjórn landsins er
skipuð öðrum aðilum án
beinna tengsla við þing-
ið. Aðalatriöið er í slíkri
stöðu hitt: Hverja kosti
hefur slík stjórn á því aö
koma fram málum sín-
um? Nýtur hún skitnings
eða jafnvel trausts meðal
verulegs hluta Alþingis
eða ekki?
Allar hugleiðingar
manna um slík neyðar-
úrræði sem minnihluta-
stjórn á Alþingi eða utan-
þingsstjórn hljóta að
miðast við þetta megin-
atriði. Enda þótt þing-
ræðisreglunni yrði vikið
til hliðar um stund, sem
verður í báðum slíkum
atvikum, þá verður ekki
fram hjá Alþingi komist
og afstaða þess mun
ráða öllum úrslitum,
hvort sem ráðherrar eru
úr hópi þingmanna og
flokksbundnir eða ekki.“
Vandi Alþýöu-
bandalagsins
Árni Bergmann, rit-
stjóri Þjóðviljans, ræðir í
forystugrein í gær um
þann vanda, sem Alþýðu-
bandalagið stendur
frammi fyrir, þegar taka
þarf ákvöröun um aðild
að rfkisstjórn. Um þetta
segir ritstjórinn:
„Hitt er svo annað mál,
að flokkur sem vill meiri-
háttar breytingar á gerð
þjóðfélagsins er í nokk-
urri klemmu að því er
varöar samsteypustjórn-
ir. Hann gengur til sam-
starfs við önnur pólitísk
öfl, sem a.m.k. nú um
stundir hafa engan áhuga
á tiiraunastarfsemi í
þjóðfélagsmálum og
hugsa ekki út fyrir þann
ramma sem efnahagslífi
og efnahagslegum ráð-
stöfunum eru nú settar.
Þessi sömu öfl gera litlar
sem engar athugasemdir
við sjálfar þær forsendur
sem efnahagsdæmin eru
reiknuð út frá. Vinstri-
flokkur er tilneyddur til
að taka þátt í að reikna
slík dæmi — því ekki er
boðið upp á aðra kosti.
En ef hann ætlar sér
annað og stærra hlutverk
en hefðbundið sósíal-
demókratí þá þarf hann í
leiöinni að taka miö af
langtímamarkmíðum, af
sérstööu sinni, af því, að
það eru reyndar ekki
sósíalistar sem hafa
skapað það samfélag
sem nú er í kreppu.
í sjáfri þessari stöðu
eru merkileg ágreinings-
efni fólgin, sem hollt er
að horfast í augu við. Þeir
sem neita að taka þátt í
því, með fáanlegum
bandamönnum, aö leysa
brýnan vanda sem
brennur á öllu alþýðu-
fólki, þeir eiga þaö á
hættu aö einangrast í
sjálfumglöðum
stofusósíalisma. En þeir
sem týna öllum áttum í
hversdagsleika mála-
miðlananna eiga á hættu
örlög hægrikratismans.
Hér er um að ræða vanda
sem er sameiginlegur öll-
um vinstrihreyfingum
Evrópu: Að finna skyn-
samlegt jafnvægi milla
lausna á dægurverkefn-
um og róttækra hug-
sjóna. Virk og málefnaleg
umræða um þá hluti er
eitt af því sem Alþýðu-
bandalagið fær ekki
skorast undan — hvernig
sem þær stjórnarmynd-
unarviöræöur enda sem
nú fara fram.“
Svarthöföi
og Svavar
Svarthöfði Vísis fjallar í
gær um tilraun Svavars
Gestssonar til stjórnar-
myndunar og telur, aö
umræður um „sögulegar
sættir“ valdi því að lítið
verði um mótmæli gegn
því að Svavar Gestsson
taki að sér stjórnarmynd-
un. Um þetta segir
Svarthöfði m.a.:
„Beiðnin 1978 vakti
engu að síður mikla at-
hygli erlendis meðal
þeirra þjóða, sem við
teljum okkur þurfa aö
hafa samneyti við vegna
líkra stjórnarhátta. Þá
voru líka gleðidagar af
því þá voru kommar í
fréttum. Nú hefur hins
vegar skipt um skreiö.
Enginn er þess megnug-
ur lengur aö andmæla
núvernaid ráðstöfun,
enda hafa í millitíðinni
komið upp kenningar um
sögulegar sættir og fleira
þvílíkt, og fyrst svo er
komið er alveg sjálfsagt
fyrir hina fáu andmæl-
endur aö lofa hinum vitru
og stjórnvísu að teyga
sinn bikar í botn ...
„Hin meira og minna
duldu átök, sem urðu út
af samskonar máli 1978
uröu mörgum manninum
nóg lexía. Kenningin um
sögulegar sættir slitu líka
samhengi gagnrýninnar.
Þar féllu göt á gamalt
virki.“
Ályktun SÍNE:
Námslán nægi til fram-
færslu námsmanna
Samband íslenskra námsmanna
erlendis samþykkti á fundi
sínum snemma i janúar tillögur
þar sem er m.a. skorað á þing-
menn að samþykkja frumvarp til
breytinga á lögum um námslán
og námsstyrki og skorað er á
stjórnvöld að þau sjái til þess að
Lánasjóður isl. námsmanna fái
það sem hann fer fram á í
fjárhagsáætlun 1980.
í ályktunum SÍNE segir m.a.:
„Allar götur síðan lögin um
námslán voru sett, hafa náms-
menn sett þá kröfu á oddinn að
staðið yrði við stefnuákvæði lag-
anna þess efnis að námslán nægi
til framfærslu námsmanna. Sú
barátta hefur staðið í u.þ.b. 12 ár
án árangurs, þótt stjórnmála-
flokkarnir hafi verið ósparir á
stuðning sinn fyrir þingkosningar
þegar þeir hafa þurft á atkvæðum
námsmanna að halda.“
Þá er í einni ályktun SÍNE
mótmælt niðurskurði sem fram
kemur í fjárlagafrumvarpinu
og skorað er á stjórnvöld að þau
sjái til þess að allt nám að loknum
grunnskóla njóti aðstoðar LÍN og
skorað er á stjórnvöld að veita
námsmönnum meirihlutavald í
stjórn Lánasjóðsins.
Veitum alhliða þjónustu og ráögjöf
um bókhald og eignaumsýslu
fyrirtækja og einstaklinga.
Ðókhaldsþjónusta
Sölu- og vörugjaldsskýrslur,
viöskiptamannabókhald,
launabókhald,
fjárhagsbókhald og reikningsskil.
Eignaumsýsla
Fjármála- og eignaumsjón.
Framtalsaðstoð
Skattframtöl fyrir einstaklinga
og félög.
Skrifstofuþjónusta
Getum annast almenna
skrifstofuþjónustu.
Tölvuvinnsla og vélabókhald.
Armúli 21, símar 84700 og 83383
íbúð óskast
til leigu strax
Helst þarf íbúöin aö vera minnst 80 ferm. og æskilegt
aö íbúðin sé í Teigahverfi.
Uppl. í síma 37299.
Hestamenn
Hver tók bleikálóttan hest í misgripum frá Ragnheiö-
arstööum (landi Fáks) í desember?
Er meö annan bleikálóttan í óskilum.
Uppl. í síma 13212.
Til sölu
Flugvélin TF-DGA c 172 árgerö 1962, meö nýjum mótor,
u.þ.b. 130 tímar búnir. Tæki: ADF, VOR, ILS Transponder.
Upplýsingar gefur Kjartan Þ. Emilsson. Símar 33672 eða
17430 (Ext. 43).
Einn franskur
fyrir fimm
PEUGEOT 504 GL
96 DIN ha vél. Afturhjóladrifinn. Sjálfstæð
fjöðrun á öllum hjólum. Aflhemlar og tvöfalt
bremsukerfi. 4 gírar áfram og altir samhæföir.
Gólfskipting. Jafnaðareyðsla á hverja 100 km
10,2 Itr. Hámarkshraði 164 km á klst. 5
manna með ökumanni.
Peugeot hefur unniö fleiri
Þolaksturskeppnir en nokkur
önnur gerð bíla.
HfíRMíU fff|
Húa sí
VAGNHÖFÐA 7 — SÍMI 85211
UMBOÐ A AKUREYRI I
FURUVÖLLUM 11 — SÍMI 21670
EFÞAÐERFRÉTT- Wrr f/ næmtþáerþaðí MORGUNBLAÐINU