Morgunblaðið - 19.01.1980, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1980
11
Helgi Hálfdanarson:
Áskorun
Um tveggja vikna skeið hefur
Indriði G. Þorsteinsson þulið í
útvarpi sögu sína, Þjóf í Paradís,
og er nú þeim flutningi lokið.
Svo sem kunnugt er, olli saga
þessi hneykslun, þegar hún birtist,
og allhvössum deilum, þegar til
greina kom, að hún yrði valin til
útvarpsflutnings. Þar lagði undir-
ritaður nokkur orð í belg á sínum
tíma, og skulu þau ekki rifjuð upp
að sinni.
Fyrirlitning manna á sögu þess-
ari spratt af því, hve ósmekklega
þar var rakið dómsmál nýlátins
manns, svo að hlaut að valda
nánustu vandamönnum hans
djúptækum sársauka og harmi.
Slík aðför að saklausu fólki er sem
betur fer með fádæmum á þeim
vettvangi, sem kenndur er við
bókmenntir. Um sambærilega
óhæfu er mér ekki kunnugt.
Ekki fríkkaði leikurinn, þegar
flokkur manna, sem sjálfir kalla
sig listamenn, rauk upp og krafð-
ist með drembilátum þjósti óskor-
aðs réttar til að vaða inn í vé
mannhelginnar eftir geðþótta í
nafni ritfrelsis og sannleiksástar.
Af því sem gerzt hefur, síðan
útvarpsflutningur þessarar sögu
kom fyrst til orða, mætti Útvarps-
ráð hafa skilið, hvílík ábyrgð
fylgir afstöðu þess. Eigi að síður
gerist það, að píslartólin eru tekin
fram að nýju í Útvarpsráði, og
hvað sem til gekk, lét ráðið sig
hafa það að samþykkja flutning
sögunnar. Af öllum þeim hundruð-
um og þúsundum sagna, íslenzkra
og erlendra, sem til greina kæmi
að flytja, þótti nauðsynlegt að
velja einmitt þessa, sem vitað er,
að hlyti að særa varnarlaust fólk
grimmilega, börn sem fullorðna.
Þess skal getið og því á loft
haldið, að þrír útvarpsráðsmenn
af sjö greiddu atkvæði gegn þess-
um flutningi, en það voru þeir
Árni Gunnarsson, Ellert B.
Schram og Þórarinn Þórarinsson.
Dr. Broddi Jóhannesson:
Fjölmiðlar
og lítilmagni
Enginn er verri maður af því
einu að vera sterkur, heldur hinu
að láta kenna aflsmunar að þarf-
lausu.
Enginn er betri maður af því
einu að vera lítilmagni og gjalda
aflsmunar, heldur hinu að leita
réttar síns með sæmilegum hætti.
Dæmdur maður er lítilmagni.
Dómari og þjónn hans ræða hlut-
skipti dæmds manns í umboði
samfélags. Hlutverk beggja og
embættistitlar breytast með hátt-
um samfélags, svipmóti og inntaki
menningar.
Látinn maður er lítilmagni, þó
verndar gröfin hann með sínum
hætti. Barn hins látna, dæmda
manns, — sem og sérhver ástvinur
hans, — er lítilmagninn meiri, ef
lífið og samfélagið leggjast á það
eða synja því um vernd sína.
Ekki tjóa lög, ef siðgæðisvitund
alþjóðar hafnar þeim, og einhvers
staðar hljóta að verða jaðrar þess
sviðs, er lög skulu taka til að beztu
manna yfirsýn. Þar sem umdæmi
lagastarfs þrýtur, tekur við æðsti
réttur hins viti gædda manns.
Sérhverjum þegni er fengið óskor-
að og ódeilt vald í æðsta rétti.
Alþýða manna kallar hann sam-
vizku.
Ekki er samvizka manna undan-
þegin áhrifum umhverfis fremur
en annað í náttúrunnar ríki. I
þessari umræðu hef ég ekki sízt í
huga ópersónulegt eðli fjölmiðla
og takmarkalausa seilingu þeirra,
er fylgt hefur í kjölfar tækni-
þróunar.
Að fullnægðum dómi hefur
samfélagið jafnað sakir sínar við
hinn dæmda mann. Lífið hefur
gert upp reikningana við hinn
látna í gröfinni. Hver mundi þá
hafa umboð til þess að gernýta
harmleik hans: Fjölmiðlar ríkis?
Listamenn? Kaupsýslumenn?
Vestræn samtíðarmenning hef-
ur að kjörorðum frelsi, jafnrétti
og mannúð. Rík áherzla er lögð á
tjáningarfrelsi. í umræðu er það
mjög tengt jafnréttishugtakinu,
kallað hyrningarsteinn annars
frelsis og fjöregg lýðræðis. Líking
af fjöreggi er notuð um það eitt, er
ekki skyldi gálauslega með farið.
Tölvum búnir fjölmiðlar sam-
tíðar eru að einu leyti áþekkir
fjarstýrðum vopnum á atómöld:
Skyttan þarf ekki að hafa nokkurn
ávæning af því, hvern usla skeytið
gerir. Skiptir þar engu máli, hvort
hún er að leika sér eða hlýða
skipun. Viðskipti geranda og þol-
anda eru leyst úr þeim skorpum,
sem þeim voru settar af persónu-
legu návígi fyrir fjarskiptaöld.
Þau eru ofurseld freistingum
markaðstorgsins og valda þrá-
faldlega óbærilegum sársauka
undir álagi síendurtekinnar ert-
ingar.
Það er margt kerfið. En hvert
sem það er, forskriftir þess og
skipulag, munu sumir neyta þess,
sumir njóta þess og sumir gjalda
þess. Og hversu þokukenndar sem
hugmyndir manna eru um kerfið,
þá er virkni þess öll og hátterni
undir ákvörðunum mennskra
manna komin.
Allur þorri manna nýtur fjöl-
miðla, margir neyta þeirra, sumir
gjalda þeirra. Mundi vera unnt að
ákvarða rétt þeirra hvers og eins?
Huga má að þremur afbrigðum
eða þrepum fjölmiðla, lesmáli,
hljóðmáli og myndmáli. Á fyrsta
þrepi skipar bókin hvað virðu-
legast sæti. — Ef einhver telur sig
gjalda fjölmiðils, hversu má hann
sín í vörninni?
Ef bók hreyfir við einkamálum
hans, þeim er sárastan harminn
geyma, þá mun hann tíðast leiða
það hjá sér í veikri von um að þar
við verði látið sitja. Freistingar
sölutorgsins munu þó ekki láta að
sér hæða, og á næsta þrepi verður
harmsefni hans e.t.v. selt fjölmiðl-
um eyrans og kynni að verða falið
lifandi myndum um það er lýkur.
Einhvers staðar á þeirri leið
segir lögmál endurtekinnar ert-
ingar til sín, sársaukinn verður
óbærilegur og leitað er fulls rétt-
ar. Lítilmagninn veit það ekki
ennþá, hversu lítils hann má sín,
og þótt hann vissi það fyrir, mundi
það í engu breyta viðleitni hans í
ofrauninni.
Trúnaðarmenn þeir, er löggjaf-'
inn hefur sett til að ráða flutningi
efnis í fjölmiðlum ríkisins, en láta
kenna aflsmunar að þarflausu, eru
annað tveggja ókunnugir mála-
vöxtum eða þeir setja óskorað
tjáningarfrelsi ofar rétti og þján-
ingu lítilmagna. Sakarefni hans
gerast á jaðarsviði, sem selur
hann undir náð æðsta réttar
voldugrar stofnunar.
í þessari skímu má greina,
hvernig hlaðin eru ættfest vörðu-
brot á ferli lítilmagna:
Drengileg framkoma þeirra skal í
minnum höfð og þeim til sæmdar.
En mér og öðrum er spurn:
Hvað gekk hinum til? Hver var sú
nauðsyn, sem þar vó þyngra en
velsæmis-mat venjulegs fólks? Á
Ríkisútvarpið að hylla þá hugsjón
í athöfn, að allt skuli sæmilegt
talið, sem lög ná ekki að banna?
Skal framvegis gert ráð fyrir því,
að áhrifamesta menningarstofnun
þjóðarinnar telji sér skylt að hella
yfir landslýð áreitnum miskaverk-
um, hvenær sem ófyrirleitnir höf-
undar ryðjast þar um bekki með
ritfrelsið í blóra? Skal því trúað,
að Útvarpsráð sé að meiri hluta til
skipað mönnum, sem skilja ekki
svo augljóst mál, að þessi sam-
þykkt er Ríkisútvarpinu til van-
virðu? Hvers vegna urðu fjórir
útvarpsmenn af sjö til þess að
valda þessu hneyksli? Hvað gekk.
þeim til? Ég skora á einhvern
þeirra að gera grein fyrir atkvæði
sínu opinberlega. Útvarpsráð er
stofnun, sem verður að geta varið
gerðir sínar gagnvart almenningi.
Og birtist ekki fullnægjandi svar
við áskorun þessari innan eins
mánaðar héðan, verður framferði
þessara manna túlkað sem frekleg
misnotkun á lögvernduðu tján-
ingafrelsi af óskiljanlegum hvöt-
um:
Helgi Hálfdanarson.
í æsku kynnist hann lögmætum
aðgerðum dómsvald og löggæzlu,
þar sem grandvarir embættis:
menn gera skyldu sína eina. í
ófennta slóð þeirra koma viðskot
ungra sem aldinna gáleysingja í
heimahögum. Næstu áfangaskil
kunna að verða á markaðstorginu,
og er þá skammt ófarið leiðar til
þess er ríkisfjölmiðlar sinna
neyzluþörf samfélagsins. Gerast
þá horfur góðar á því að misgjörða
feðranna verði vitjað frá vöggu til
grafar í þriðja og fjórða lið.
Einhverju sinni var ég á því
þingi, að orðið var hiklaust af mér
tekið, er ég lét þess getið, að
fámenn þjóð væri jafnoki stór-
þjóðar í einu: Samvizka hennar
væri jafngild.
Líkt trúi ég sé farið samvizku
einstaklinga. Hún á ekki kost á að
skjóta máli sínu til æðri réttar,
því að hann fyrirfinnst ekki,
hvorki hjá dómara, listamanni né
kaupsýslumanni, hvað þá þrýsti-
hópi, enda þótt hann hyggi sig
vera kjörinn til að fara með
umboð smælingjanna. Og góð-
gjarnir og skynugir löggjafar
munu ávallt kunna sér hóf í
lagasetningu. Því verður sérhver
maður, enn sem fyrr, að fara að
boði og lögum síns æðsta réttar, ef
á reynir í daglegu starfi eða á
úrslitastund, og hann mun ekki
komast undan því óskaddur að
meta ný tæki og tækifæri með
hliðsjón af þeim, en lítilmagninn á
því meira undir slíku mati sem
þjálfaðra hugvit og hrikalegra afl
þenur seilingu tækjanna inn á
næmustu svið vits og geðs.
Broddi Jóhannesson.
I>i»n i. Sloöitj. Konoe. i>js«l Mruii'i'r.
tiniijibtll. Roarf Wales. Koniiin .(íkuömik. Svcn ÍKiugi'
Mál og máltaka
Riirört KcHHurahúsköiii isiaiuís oj« löminiir
Málog
máltaka
ÚT er komin bókin Mál og mál-
taka, safn greina eftir ýmsa erl-
enda fræðimenn. íslensku útgáfuna
önnuðust Indriði Gíslason og Jón
Gunnarsson. Bókin er hin fjórða í
ritröð Kennaraháskóla Islands og
Iðunnar. í henni eru eftirtaldar
átta ritgerðir:
Sálfræðilegar málrannsóknir og
Forsendur málkerfisþróunar eftir
Dan I. Slobin; Kenningar um mál-
töku og Mál barna mótast af
umhverfinu eftir Mette Kunoe;
Tvær kenningar um mál og nám
eftir David Stringer; Rannsóknir á
máltöku eftir Robin Campbell og
Roger Wales; Hljóðkerfisþróun
barnamáls og almenn hljóðfræði
eftir Roman Jakobson og Er til
gallað mál? eftir Sven Lange. —
Þýðendur ritgerðanna eru Guð-
mundur Sæmundsson, Guðrún Sól-
ey Guðjónsdóttir og Jón Gunnars-
son. Sá síðastnefndi ritar formála
að bókinni og segir þar meðal
annars:
„Val greina í bókina réðst einkum
af tvennu. Annars vegar þótti
æskilegt að reyna að gefa sem
fjölþættasta mynd af þeim viðhorf-
um til máltöku sem menn í ólíkum
fræðigreinum hafa sett fram. Hins
vegar þótti ekki síður æskilegt að
kynna sem gleggst aðferðir þær og
hugmyndir sem einkum hefur verið
beitt með árangri í máltökurann—
sóknum á síðari árum“. — Enn-
fremur segir í formála að efni
bókarinnar sé í meginatriðum fjór-
skipt: Kynnig á aðferðum máltöku-
rannsókna, helstu fræðikenningum
um eðli máltöku; kynníng á máltök-
urannsóknum sem varða afmark-
aða þætti tungunnar, og loks greint
frá hugmyndum um áhrif umhverf-
is á framvindu máltökunnar.
Mál og máltaka er 178 blaðsíður.
Prisma prentaði. — Áður eru út
komnar í þessari ritröð: Drög að
almennri og islenskri hljóðfræði
og Drög að hljóðkerfisfræði eftir
Magnús Pétursson; svo og Móður-
mál eftir Baldur Ragnarsson.
Flugslysin á Mosfellssheiði:
Fjögur liggja enn
á sjúkrahúsum
FJÖGUR þeirra sem lentu í flugslysunum á Mosfellsheiði í desember
siðastliðinum liggja enn á sjúkrahúsum. Magnús Guðmundsson
læknir liggur á Grensásdeild Borgarspitalans þar sem hann er til
endurhæfingar. Finnsku stúlkurnar tvær, Maria Falkenberg og Tuula
Hywarenen, liggja enn á Borgarspitalanum. Þá liggur einn
bandaríksu björgunarmannanna enn á sjúkrahúsi. Það er Romie
Brown, liðsþjálfi, en hann hlaut slæmt lærbrot. Hann liggur á
Landspitalanum.
Gerard Delavault, flugmaður
Cessnunnar sem fórst hefur verið
útskrifaður af Landspítalanum. Þá
hefur John Russel verið útskrifaður
af Landakoti. Fjórir bandarísku
varnarliðsmannanna eru allir suður
á Keflavíkurflugvelli og hafa verið
útskrifaðir af sjúkrahúsinu þar.
Michael Davis hefur þegar hafið
vinnu að nýju, og eins hefur Sing-
elton, flugstjóri hafið vinnu að
hluta til. Tveir varnarliðsmann-
anna liggja heima. Þeir eru Thomas
Berry og Manuel Fernandez. Viðtöl
við bandarísku varnarliðsmennina
verða ekki leyfð fyrr en að lokinni
rannsókn þyrluslyssins.
f ,tiL
Islands
*
ferma skipin
sem hér
ANTWERP
Reykjafoss 24. jan.
Skógafoss 31. jan.
Bifröst 6. feb.
Reykjafoss 14. feb.
ROTTERDAM
Bifröst 21. jan.
Reykjafoss 23. jan.
Skógafoss 30. jan.
Bifröst 7. feb.
Reykjafoss 13. feb.
FELIXSTOWE
Dettifoss 21. jan.
Mánafoss 28. jan.
Dettifoss 4. feb.
Mánafoss 11. feb.
Dettifoss 18. feb.
Mánafoss 25. feb.
HAMBORG
Mánafoss 20. jan.
Dettifoss 24. jan.
Mánafoss 31. jan.
Dettifoss 7. feb.
Mánafoss 14. feb.
Dettifoss 21. feb.
Mánafoss 28. feb.
PORTSMOUTH
Bakkafoss 7. feb.
Selfoss 8. feb.
Goöafoss 18. feb.
Brúarfoss 26. feb.
Bakkafoss 28. feb.
HELSINGBORG
Laxfoss 22. jan.
Háifoss 29. jan.
Laxfoss 5. feb.
Háifoss 12. feb.
Laxfoss 19. feb.
KAUPMANNAHÖFN
Laxfoss 23. jan.
Háifoss 30. jan.
Laxfoss 6. feb.
Háifoss 13. feb.
Laxfoss 20. feb.
GAUTABORG
Tungufoss 23. jan.
Úöafoss 30. jan.
Álafoss 6. feb.
Tungufoss 13. feb.
MOSS
Tungufoss 25. jan.
Úöafoss 31. jan.
Álafoss 8. feb.
Tungufoss 15. feb.
BERGEN
Tungufoss 21. jan.
Álafoss 4. feb.
Úöafoss 18. feb.
KRISTIANSAND
Úöafoss 1. feb.
Tungufoss 12. feb.
GDYNIA
Lagarfoss 1. feb.
írafoss 7. feb.
Múlafoss 26. feb.
HELSINKI
Lagarfoss 28. jan.
írafoss 4. feb.
Múlafoss 21. feb.
VALKOM
Lagarfoss 29. jan.
írafoss 5. feb.
Múlafoss 22. feb.
RIGA
Múlafoss 24. feb.
WESTON POINT
Kljáfoss 30. jan.
Kljáfoss 13. feb.
á mánudögumtil
AKUREYRAR
ÍSAFJARÐAR
á miðvikudögum tii
logi
VESTMANNAEYJA
EIMSKIP