Morgunblaðið - 19.01.1980, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1980
HLAÐVARPINN
VERÐILJÓS
Tæplega 15 þúsund
ljósastaurar lýsa
upp í skammdeginu
I SKAMMDEGINU væri borgin okkar heldur drungaleg ef ekki nyti við birtunnar, sem
perur ljósastauranna senda frá sér. Um þetta leyti árs kvikna ljósin milli 4 og 5 á daginn
eftir því hve dimmt er úti hverju sinni, en þar er sjálfvirkur rofi, sem stjórnar kerfinu
og birtumagnið er mælt með sjálfvirkum mæli. Götuljósin loga síðan fram til 9—10 á
morgnana eftir birtunni hvern dag. Yfirleitt logar á götuljósunum einhvern tíma
dagsins allan ársins hring,
dag.
Ef ekkert kemur fyrir per-
urnar endast þær 2—3 ár, en
missa birtumagn eftir því sem
þær verða eldri. Því hefur ekki
verið unnt að koma við að
endurnýja perur á 2—3 ára
fresti og því er birtumagn
sumra peranna í götuljósunum
jafnvel komið niður í 50% af
upprunalegri birtu.
A Reykjavíkursvæðinu eru
frá 20. maí og fram í ágúst
nú tæplega 15 þúsund ljósa-
staurar og perurnar í þeim
mjög missterkar, allt frá 125
voltum og upp í 2000 volt, en þá
eru 2—3 perur í hverjum ljósa-
búnaði. Mesta lýsing er á
nokkrum ákveðnum svæðum,
t.d. við Vesturlandsveg, við
Höfnina í Reykjavík og t.d. á
stæði lögreglunnar við Hverf-
isgötu.
aðeins skamma stund hvern
Rafmagnsveita Reykjavíkur
sér um götulýsingu í
Reykjavík, Kópavogi, Garða-
bæ, Mosfellssveit, Seltjarnar-
nesi, Kjalarnesi og í Hveradöl-
um og Bláfjöllum. Kostnaði er
síðan skipt niður á þessi sveit-
arfélög í hlutfalli við notkun og
viðhald.
Fossvogurinn væri ekki árennilegur í kolniðamyrkri og erfiðri færð án þessarar götulýsingar.
Sigurþór Jakobsson teiknari er hér með bókina um Heinesen, en
hann sá um útlit hennar og var hún að mestu leyti unnin hérlendis.
Ljósm. Kristján.
Auglýsingateikn-
un og myndsköp-
un tvennt ólíkt
í VIKUNNI kom á markað í
Danmörku og Færeyjum bók
um myndlist William Heinesens.
Það hefur vakið athygli að bók
þessi hefur að mestu leyti
verið unnin hérlendis og hefur
Sigurþór Jakobsson auglýsinga-
teiknari og myndlistarmaður
séð um útlit hennar.
Sigurþór opnaði í sumar
sem leið teiknistofu að Veltu-
sundi 1, en áður hafði hann
unnið á stofu hjá öðrum. Við
litum inn til hans og spjölluð-
um við hann stutta stund.
Hvernig stóð á því að þú
varst beðinn að sjá um útlit
bókar Heinesens ?
—Þeir hjá
Prentsmiðjunni
Odda höfðu
samband við mig,
en þeir hafa
undanfarin ár
prentað flestar
eða allar bækur
fyrir bókaútgáfu Emils
Thomsen, Bókagarð. Kynntu
þeir mig fyrir honum og samdist
okkur um að ég tæki að mér að
sjá um allt útlit á bók um
færeyska myndlist allt frá
byrjun og fram á þennan dag.
Síðar kom í ljós að hann hafði
hug á að gefa út fleiri bækur
á þessu sviði, um einstaka
færeyska myndlistarmenn og
var ákveðið að Heinesen yrði
tekinn fyrir fyrstur, m.a.
vegna afmælis hans 15. janúar
sl.
Hvað finnst þér sem
fnyndlistarmanni um þennan
bókaflokk ?
—Ég hafði mjög gaman af
því að vinna við bók þessa,
einkum þar sem öll samvinna
þeirra, sem lögðu hönd á plóg-
inn, var með ágætum. Þetta
starf Emils er mikilsvert
brautryðjendastarf og vænti ég
þess að bókin um færeyska
myndlist, sem væntanlega
kemur úr í vor á öllum Norður-
landamálum, muni sýna hve
mikið smáþjóð getur gert til
kynningar á myndlist sinni
þegar hún á mann á borð við
Emil. Hann hefur gert stórkost-
lega hluti fyrir Færeyjar og
líki ég starfi hans helst við
brautryðjendastarf Ragnars í
Smára þegar hann gaf út bæk-
urnar um íslenska myndlist-
armenn. Þarna held ég að
hljóti að liggja sömu hugsjónir
að baki.
Nú starfar þú sem auglýs-
ingateiknari jafnframt því að
sinna þinni eigin
myndlist, er
ekki erfitt að
sameina þetta?
—Jú, en ég
sætti mig við
þetta meðan
ástandið er eins
og það er í dag gagnvart mýnd-
listarmönnum og öðrum lista-
mönnum. Ég þekki fáa lista-
menn, sem eru á annað borð
búnir að ljúka námi, sem ekki
þurfa að skila fullum vinnu-
degi til að sjá sér og sínum
farborða, en hafa aðeins kvöld
og helgar til að sinna hugðarefn-
um sínum, nema ef vera skyldi
þeir sem eru svo heppnir eða
óheppnir að framleiða verk,
sem lúta hinum almennu mark-
aðslögmálum. Þó vona ég að
þetta standi til bóta. En
varðandi það hvort auglýs-
ingateiknunin hefur áhrif á
myndsköpun þá lít ég þannig á
að þetta séu tveir gjörólíkir
hlutir og því auðvelt að halda
þeim aðskildum. Það eina sem
tengir þetta tvennt er teikni-
kunnáttan, sem ég tel að
verði að vera til staðar í báðum
tilfellum.
Spjallað við
Sigurþór
Jakobsson
STALDRAÐ VIÐ í BLÓÐBANKANUM
„Þeir halda læknarnir að það
þurfi bara
„Halló.“
„Góðan dag, þetta er Blóðbank-
inn%“
„Já, góðan dag.“ (Það var svo
sem ágætt að þetta var ekki
einhver hinna hankanna að
iumbra á manni fyrir gúmmí-
tékka! En Blóðbankinn er ekki
sem verstur.)
„Geturðu komið og gefið blóð,
okkur vantar þinn flokk?“
„Minn flokk. já, ætli ég komist
ekki eftir nærri klukkustund.“
„Það er gott, við treystum því.“
Minn flokk. Það er ekki ónýtt
að vera í eftirsóttum flokki, ætli
stjórnmálaflokkarnir mættu ekki
vel við una ef bankastjórarnir
tækju upp á þvi að kalla fulltrúa
þeirra til sín utan úr bæ? En
að skrúf a
hvað um það. Eftir tilsettan tíma
var undirritaður með hálfann
hugann kominn, tilbúinn til að
láta stinga sig í puttann og síðan
handlegginn til að einhver gæti
hugsanlega fengið þennan dökk-
rauða vökva, sem við þolum helst
ekki að sjá.
Komumaður tilkynnti sig,
skráð var i bækur og siðan lá
leiðin í herbergið þar sem blóðið
rennur. Glas af ávaxtasafa er rétt
að mér og síðan er athugað
sýnishorn af blóðinu. Stungið
eldsnöggt í litla putta (liklega til
að láta okkur halda að við
meiðum okkur ekki, enda þóttist
ég ekkert finna).
„Sjáum til, 17 ,5%, það er
ágætt.“
frá krana“
Ágætt, hvaða prósent sem þar
skyldu vera. A.m.k, greiðir Blóð-
bankinn ekki vexti, en þegar
þetta var búið þá var ekki eftir
neinu að bíða með að leggjast á
bekkinn og láta mæla blóðþrýst-
inginn. Ekki var hann afleitur og
þá var stundin runnin upp: Lítill
blettur á handleggnum var vætt-
ur spritti og síðan stungið á. Allt
í einu birtist í gættinni hjúkrun-
arkona... hjúkrunarfræðingur
heitir það víst:
„Eru B-mínusarnir ekki tilbún-
ir?“
„Annar er þegar til, hinn
verður það rétt bráðum,“ segir
blóðtökuhjúkrunarfræðingurinn.
„Eftir hvað langan tíma? Það á
að senda þá „akút“ á Borgarspít-
alann.“
„Það á bara eftir að renna í
pokann og þá eru tveir B-mínus-
ar tilbúnir.“ (Við mig): „Þeir
virðast halda læknarnir að það
þurfi ekkert annað en skrúfa frá
krana, það er nú meira hvað
liggur á.“
Og fumlaust og hratt heldur
hún áfram störfum sínum. Nú
hefur blóðskammtur minn runn-
ið i plastskjóðuna, slöngunni er
kippt úr sambandi, lokað fyrir og
pokinn er tilbúinn til sendingar.
Þar með hafa verið afgreidáir á
örskömmum tíma nokkrir pokar
af blóði til þeirra er þurfa þeirra
við hið bráðasta. En einnig þarf
Blóðbankinn að útvega sér tals-
vert af blóði til að haía til
helgarinnar ef grípa þyrfti til
þess, því það geymist ekki mjög
lengi. Það þýðir ekki að stimpla á
pokann einhvern síðasta söludag
eins og Mjólkursamsalan, ef ég
skildi rétt þá er það mælt í