Morgunblaðið - 19.01.1980, Page 22
2 2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1980
Lóðir undir iðnaðar- og atvinnustarfsemi: 1 ...................
Engar úthlutanir
næstu þrjú árin
— segir Birgir Isl. Gunnarsson
ENGUM lódum undir atvinnu-
húsnæði á nýjum svæðum verður
úthlutað í Reykjavík á þessu
kjörtímabili. Þetta kom fram í
máli Birgis ísl. Gunnarssonar
borgarfulltrúa, er fjallað var í
borgarstjórn um fyrirspurnir
hans um þessi mál.
Raunar taldi Birgir, að engum
lóðum, ætluðum undir atvinnu-
húsnæði, yrði úthlutað á næstu
þremur árum og lýsti hann
áhyggjum sínum vegna þessa.
Hann sagði ekki við því að búast,
að iðnaður ykist í borginni, þegar
svona væri á málum haldið.
Ástæðuna taldi Birgir þá, að
ekkert hefði verið gert til að koma
skipulaginu frá árinu 1977 til
framkvæmda, en í því skipulagi
hefði verið gert ráð fyrir lóðum
undir iðnaðar- og atvinnustarf-
semi.
Við gatnamót Holtavegar og Elliðavogs:
Rís þar 8 þæða
stórhýsi SIS?
SAMBAND íslenskra samvinnu-
félaga hefur sótt um að fá að
byggja átta til tíu hæða stórhýsi,
sem ætlað er fyrir skrifstofur, á
óbyggðu svæði sem er fyrir neðan
gatnamót Hoitavegar og Elliða-
vogs (Kleppsvegar). Verði þessi
umsókn Sambandsins samþykkt i
skipulagsnefnd en hún er þar til
umfjöllunar. mun því rísa stór-
hýsi fyrir framan íbúðarhúsin
scm eru á mótum þessara gatna.
Þetta kom fram á borgarstjórn-
arfundi í gærkvöldi, þegar fjallað
var um fyrirspurnir frá Birgi ísl.
Gunnarssyni borgarfulltrúa, sem
lutu að því hvort einhverjum
lóðum undir atvinnuhúsnæði væri
óúthlutað í borginni.
Nýr bátur til
Fáskrúðsfjarðar
Fáskrúósfirði. 18. janúar.
NÝR bátur hefur bæzt í flota
Fáskrúðsfirðinga, Tjaldur SU
115, sem er 17 lesta trébátur,
smíðaður hjá Trésmiðju Austur-
lands á Fáskrúðsfirði. Eigendur
eru Framfari hf., en aðalhluthafar
þar eru Jóhann Árnason og Rúd-
olf Midjord.
Heildarbolfiskafli Fáskrúðs-
fjarðarbáta á árinu 1979 var 8.052
lestir. Þar af er afli skuttogaranna
tveggja 5.870 lestir, sem skiptast
þannig, að Hoffell SU 80 fékk 3.055
lestir, aflaverðmæti 452 milljónir
576 þúsund krónur, og Ljósafell
fékk 2.815 lestir, aflaverðmæti 438
milljónir 882 þúsund krónur. Báta-
fiskur var því 2.182 lestir.
Saltað var í 14.500 tunnur hér i
fyrra og um 100 lestir af síld voru
frystar.
Um 20.000 lestir af loðnu bárust
hingað í fyrra.
Bátar og togarar hófu róðra
strax eftir áramót, en afli hefur
verið fremur tregur, enda miklar
ógæftir.
Fréttaritari.
Leikendur í Rauðhettu og leikstjórinn. Myndin er tekin að lokinni
æfingu.
Rauðhetta sýnd
í Ólafsvík
Ólaísvík, 18. janúar
LEIKFELAG Ólafsvíkur frum-
sýndi á föstudagskvöldið ævin-
týraleikinn Rauðhettu eftir
Jewgeni Schwarz í þýðingu
Stefáns BaJdurssonar. Leik-
stjóri er Ingólfur Björn Sig-
urðsson og er þetta frumraun
hans við Ieikstjórn.
Leikendur eru allir ungir að
árum, frá 11 til 17 ára, og stíga
nú á fjalirnar í fyrsta sinn.
Leikfélag Ólafsvíkur hefur á
hverjum vetri sett upp leikrit og
sýnt hér og farið með í ná-
grannabyggðir. Vonast er til að í
vetur verði einnig unnt að fara í
leikferð.
Núverandi formaður leikfé-
lagsins er Svala Thomsen.
— Helgi.
Nýja brúin yfir Eldvatn fullgerð.
Ný brú yfir Eldvatn
í V-Skaftafellssýslu
Ilnausum i Meóallandi.
V-Skaft., 29. des.
í ÁR lauk framkvæmdum
vegna brúargerðar á Eldvatni
hér í Meðallandi, Brúin var
byggð 1978, en vegagerðinni,
um 3 kílómetrum, var lokið á
þessu ári. Það var sögulegt við
þá vegagerð að fyrst ákváðu
karlmenn vegarstæðið og
mældu fyrir því. Lentu þeir á
Klappahrauni þeim versta
stað sem hægt var að hitta á.
Er vegagerðarmönnum litust
aðstæður þessar heldur
skuggalegar fóru stúlkur til
sem þá voru hér í vegamæling-
um og færðu veginn. Er hann
nú svo vel staðsettur sem hann
var illa áður. Mætti vera, skv.
þessu, að betur færi ef kven-
fólkið réði meiru í þjóðfélag-
inu.
Brúin er úr steinsteypu bor-
in uppi af stálbitum. Hún er
50m löng og aðeins einn stöp-
ull í miðju. Stöplarnir eru
steyptir niður á hraunklappir
sem þarna eru á botni árinnar.
Framkvæmd þessi ætti því að
verða mjög varanleg og það
svo að þurfa mundi nýja
Skaftárelda til að ríða á slig.
Yfirmaður við brúarsmíðina
var Jón Valmundsson en hann
vann einnig við gömlu tré-
brúna sem áður var á Eld-
vatni, þá hjá föður sínum. Sú
brú var byggð 1942 og var
löngu orðin óviðunandi þar
sem bílar fara alltaf stækk-
andi. Var og erfitt með efni þá
í stríðinu.
Hér hafa verið hvít jól og
gott veður.
Vilhjálmur
Byggingarþjónust-
an í nýju húsnæði
Byggingarþjónustan
sem rekin hefur veriö að
Grensásvegi 11, í
Reykjavík undanfarin ár
hefur nú flutt starfsemi
sína að Hallveigarstíg 1, í
hús iðnaðarins. Er hún í
kjallara hússins og hluta
1. hæðar á alls um 540
fermetra gólffleti.
Byggingarþjónustuna hóf Arki-
tektafélag Islands að reka og síðar
komu til liðs við félagið Húsnæð-
ismálastofnun ríkisins og Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðar-
ins og er Byggingarþjónustan nú
sjálfseignarstofnun og hafa fleiri
aðilar enn bæst við: Akureyrar-
bær, Félag ísl. iðnrekenda, Iðn-
tæknistofnun íslands, Lands-
samband iðnaðarmanna og
Reykj avíkurborg.
Megin starfsemi Byggingar-
þjónustunnar er m.a. fólgin í því
að hafa daglega sýningu á úrvali
byggingarefna, véla, verkfæra,
heimilistækja, innréttinga og til-
heyrandi fylgihluta og er hún
ókeypis fyrir almenning og haldin
eru jafnan námskeið og ráðstefn-
ur víðs vegar um landið til kynn-
ingar á húsnæðis- og byggingar-
málefnum. í frétt frá Byggingar-
þjónustunni segir m.a. svo um
starfsemina:
Sýningarfyrirkomulagi verður
breytt frá því sem verið hefur
þannig að sýnishorn byggingar-
efna og tækja verða flokkuð eftir
SFB alþjóðlegu flokkunarkerfi,
þannig að auðveldara verður fyrir
hönnuði og almenning að gera
samanburð hinna einstöku efna,
þ.e.a.s. öll gólfefni verða í sérdeild,
þakefni í annarri o.s.frv. Lögð
verður áhersla á að innflytjendur
og framleiðendur kynni allar nýj-
ungar sérstaklega og verður sér-
stakt rými ætlað til þess, sem
verður miðdepill í sýningarsaln-
um. Ennfremur verður kappkost-
að að alltaf verði eitthvað um að
vera á þessu svæði, svo sem
myndasýningar, kynning á bygg-
ingarefnum og meðhöndlun
þeirra, skipulagsuppdrættir og
líkön o.þ.h.
Tæknirit og bækur verða til sölu
og lestraraðstaða verður í tengsl-
um við aðalsýningarsvæðið. Stefnt
er að því að aðsókn verði um
35—45 þúsund manns á næstu
árum á hinum nýja stað.