Morgunblaðið - 19.01.1980, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1980
37
Það minnsta sem við getum gert
fyrir gamla fólkið okkar er að
leyfa því að vinna eins lengi og
það vill ef það hefur heilsu til. Það
á að fá greitt úr lífeyrissjóðum og
tryggingum við ákveðinn aldur, en
ekki skipa því að hætta að vinna.
Jafnframt myndi ég ekki vilja
skattleggja þá aura, sem það
vinnur sér fyrir umfram trygga—
og lífeyrisfé, nema að það sé því
hærri upphæð, því gamla fólkið
hefur gaman af að geta veitt sér
eitt og annað eins og við yngri.
Höfum það í huga að við verðum
líka gömul og hver aldur hefur
sinn „sjarma."
Búum betur í haginn fyrir
gamla fólkið okkar í dag, höfum í
huga að við verðum vonandi göm-
ul og viljum lifa góða elli.
8519- 8904.“
„Ég get ekki orða bundist yfir
þeirri ónáttúru í sumu fólki að
geta ekki látið eigur og muni
annarra óáreitta. Þó tekur út yfir
allan þjófabálk þegar kirkjugarð-
ar og eða ljós á leiðum fá ekki að
vera í friði.
Hvers konar fólk er það sem
gengur um kirkjugarða og eyði-
leggur eða stelur ljósum, sem eru
sett á leiði horfins ástvinar ?
Hvað er á bak við slíkan verkn-
að?
Það skyldi þó ekki vera sú
hugsun að eyðileggja þá umhugs-
un, sem auðsýnd er, þegar þeir,
sem eftir lifa, kveikja á kerti við
leiði ástvinar síns, sem horfinn er
af þessu tilverustigi er við köllum
líf.
Getur nokkur mannvera verið
með svo sjúka hugsun eða er engin
hugsun til í þeim er framkvæma
slíka hluti?
I því tilfelli er að mér snýr er
búið að eyðileggja einu sinni lukt
og var það gert fyrir rúmu ári
síðan. Rétt fyrir jól var sett önnur
lukt og hefur hún verið til friðs
þar til rétt eftir þrettándann, að
hún var tekin og að því er virðist
hefur sá eða þeir, sem voru að
verki þar, tekið fleiri luktir þetta
sama skipti, a.m.k. er mér kunn-
ugt um eina sem vantar.
Það er ekki peningaskaðinn,
sem máli skiptir, heldur finnst
manni sem verið sé að traðka á
tilfinningum og minningum um
horfinn ástvin sem svíður.
P.S. Ég vona að þær manneskj-
ur, er leggja sig niður við slíka
auvirðu, sjái að sér og reyni að
bæta fyrir á annan hátt þannig að
sómi sé fyrir þá og aðra er næst
þeim standa.
Kristinn A. Sig.
Hafnarfirði.“
Þessir hringdu . . .
• Spurningar um
stjórnmálin
Aldraður vildi koma eftirfar-
andi spurningum á framfæri með
þeirri ósk að einhver stjórnmála-
fróður fáist til að fjalla um þær og
skal svörum að sjálfsögðu ljáð
rúm hér í dálkunum:
Til hvels var þing rofið?
Til hvers voru nýjar kosningar?
Til hvers voru þingmenn kosn-
ir?
Hvaða hlutverki gegnir Alþýðu-
flokkurinn?
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti í Sovétríkjunum í
fyrra kom þessi staða upp í skák
þeirra Ageichenkos og Butnoris,
sem hafði svart og átti leik.
33. Rxg2! (Skemmtilegur leikur.
Nú gengur 34. Rxg2 ekki vegna
Rg3 mát og 34. Kxg2 ekki vegna
Rf4+. Hvítur reyndi því gagnsókn,
sem var þó dæmd til að mistakast)
34. Bxf7+ - Kxf7, 35. Dd5+ -
Ke7, 36. De6+ - Kd8, 37. Rd5
Rxel, 38. Dg8 Rg3+, 39. Kxel Dgl+
og hvítur gafst upp.
HÖGNI HREKKVISI
6erem urriQap&<?.mrau<^a&uk
Bridgefélag
Akureyrar
Brldge
l___:_________a
Einni umferð er ólokið í aðal-
sveitakeppni félagsins og hefir
sveit Alfreðs Pálssonar nú þegar
tryggt sér sigur í keppninni.
Crslit síðustu umferðar:
Sigurður V. — Sigfús 20—0
Páll — Stefán 14—6
Alfreð — Stefán 18—2
Stefán — Trausti 20—5
Þórarinn — Gissur 15—5
Örn — Gunnar 16—4
Sveinbjörn — Jón 15—5
Staða efstu sveita:
Alfreð Pálsson 222
Stefán Ragnarsson 176
Páll Pálsson 168
Jón Stefánsson 160
Þórarinn B. Jónsson 157
Ingimundur Árnason 150
Sigurður Víglundsson 134
í síðustu umferð spila tvær
efstu sveitirnar saman. Næsta
keppni félagsins verður ein-
mennings- og firmakeppni og
hefst hún annan þriðjudag.
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Undankeppni
Rvíkur-móts
— sveitakeppni
Tveimur umferðum er lokið í
undankeppni fyrir Reykja-
víkurmót í sveitakeppni.
Staða efstu sveita:
Tryggvi Gíslason 40
Jón P. Sigurjónss. 34
Kristján Blöndal 29
Ragnar Magnússon 27
Ólafur Lárusson 24
Sveit Óðals 24
Helgi Jónsson 23
Hjalti Elíasson 23
Næst verður spilað í dag í
Hreyfilshúsinu og hefst keppnin
kl. 13.
Frá undankeppni Reykjavikurmótsins í bridge.
Bridgefélagið
Ásarnir, Kópavogi
Firmakeppni Ásanna 1980
hófst sl. mánudag og er keppnin
að þessu sinni með tvímenn-
ingssniði. Spilað er í tvö kvöld og
spilar sama parið bæði kvöldin
fyrir sama firmað.
Staða eftir fyrra kvöldið:
Tannlæknastofa Þórarins
Óli Már — Þórarinn 390
Auglýsingastofa Kristínar
Oddur — Egill 389
Blikksmiðjan Vogur
Haukur — Karl 387
Hárgreiðslu- og snyrtist. Eddu
Rúnar — Lárus 375
íspan
Guðbrandur — ísak 374
Aðalbraut hf.
Guðmundur — Skafti 365
Félagsheimili Kópavogs
Erla — Dröfn 364
Málning hf.
Ásmundur — Stefán 346
Alls mættu 22 pör til leiks.
Keppninni lýkur á mánudag.
Keppnisstjóri er Ólafur Lárus-
son.
Annan mánudag hefst svo
aðalsveitakeppni Ásanna.
Bridgefélag
Breiðholts
Sl. þriðjudag var spilaður eins
kvölds tvímenningur og var spil-
að í einum 16 para riðli.
Úrslit:
Guðmundur Aronsson
Sigurður Ámundason 277
Magnús Halldórsson
Olafur Guttormsson 259
Helgi Skúlason
Hjálmar Fornason 252
Sævar Sigurðsson
Gunnar Mosty 228
Meðalskor 210.
N.k. þriðjudag hefst aðal-
sveitakeppni félagsins. Skráning
í síma 45612 (Vilhjálmur) og
74762 (Kristinn).
Aðstoðað verður við að skipa í
sveitir ef óskað er en allir eru
velkomnir.
Spilað er í húsi Kjöts og fisks í
Seljahveríi og hefst keppnin kl.
19.30 stundvíslega. Keppnisstjóri
veiður Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Bridgedeild Skag-
firðingafélagsins.
Sjö sveitir taka þátt í hrað-
sveitakeppni hjá deildinni og er
einni umferð lokið.
Staðan:
Vilhjálmur Einarsson 602
Jón Hermannsson 594
Sigmar Jónsson 578
Tómas Þórhallsson 573
Maríus Sölvason 497
Ása Sverrisdóttir 479
Hafsteinn Pétursson 457
Meðalskor 540
Næst verður spilað á þriðju-
daginn í félagsheimili Skagfirð-
ingafélagsins og hefst keppnin
kl. 19.30.
BSR - Hreyfill -
Bæjarleiðir
Níu umferðum af 13 er lokið í
aðalsveitakeppninni og er staða
efstu sveita þessi:
Guðlaugur Nielsen 160
Rósant Hjörleifsson 129
Daníel Halldórsson 123
Þórður Elíasson 123
Kári Sigurjónsson 115
Birgir Sigurðsson 113
Gísli Sigurtryggvason 113
Næsta umferð verður spiluð á
mánudaginn í Hreyfilshúsinu og
hefst kl. 20.
Bridgedeild Breið-
firðingafélagsins
Átta umferðum er lokið í
sveitakeppninni og er staða efstu
sveita þessi:
Hans Nielsen 126
Þórarinn Alexandersson 116
Ingibjörg Halldórsd. 114
Jón Pálsson 112
Ólafur Gíslason . 110
Magnús Björnsson 99
Óskar Þráinsson 99
Kristján Jóhannesson 86
Erla Eyjólfsd. 86
Næstu tvær umferðir verða
spilaðar á fimmtudaginn kemur
í Hreyfilshúsinu og hefst keppn-
in kl. 19.30.