Morgunblaðið - 19.01.1980, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1980
íslandsmótiö í handknattleik
Spennan fyrst og
fremst í 2. deild
— Víkingur og Fram á grænni grein í
1. deild karla og kvenna
tréverkið. Þeir Ólafur Guðjónsson,
Haukum, Þórir Flosason, ÍR og
Einar Þorvarðarson, HK, hafa
varið flest, eða 6 hver. Kristján
Sigmundsson, Víkingi, hefur varið
fimm víti og Pétur Hjálmarsson,
KR, hefur 4 stykki á samviskunni.
Brynjar í Val hefur varið þrjú og
tvö víti hver hafa þeir Jens
Einarsson, Víkingi, Sverrir Krist-
insson, FH, Gissur Ágústsson,
Fram og Sigurður Þórarinsson,
Fram, varið. Eitt víti hver hafa
varið þeir Gísli F. Bjarnason, KR,
Magnús Ólafsson, FH, Birgir
Finnbogason, FH, Ásgrímur Frið-
riksson, ÍR og Gunnlaugur Gunn-
laugsson, Haukum.
Víkingar enn
grófastir
Víkingar hafa verið liða lengst
utan vallar það sem af er keppn-
istímabilinu, það kann að vera
skýringin á velgengni félagsins,
þ.e.a.s. að leikmenn taki meira á í
leikjum. Hvað um það, þá hafa
Víkingar verið utan vallar í 34
mínútur samanlagt. Þorbergur
Aðalsteinsson hefur ekki aðeins
verið Víkinga lengst utan vallar,
heldur á hann einnig metið í
deildinni. Þorbergur á 10 mínútur
að baki. Árni Indriðason er á
hælum hans með 8 mínútur í
brottrekstrum. KR-ingar ganga
næst Víkingum í mínútnafjölda,
en þeir hafa safnað 28 mínútum í
sarpinn. Jóhannes Stefánsson er
mesti jakinn með 8 mínútur.
HK og FH hafa bæði hlotið 24
brottrekstrarmínútur. Pétur Ing-
ólfsson og Valgarður Valgarðsson
eru nú með 6 mínútur hvor, en
fyrrum Víkingurinn Magnús Guð-
finnsson er harðhentur eins og
gömlu félagarnir og hann hefur
hvílt í 8 mínútur.
Fram, Haukar og Valur hafa
hvert félag um sig sankað að sér
20 mínútum. Andres Bridde er
kóngurinn í þessu tríói með 8
mínútur, Jón Karlsson hefur hvílt
í 6 mínútur, en þrír leikmenn
Hauka hafa sín á milli 12 og 20
mínútur, Hörður Harðarson, Stef-
án Jónsson og Sigurgeir Mar-
teinsson, hver um sig með 4
mínútur.
Árni Indriðason Vík.
Páll Björgvinsson Vík.
Haukur Ottesen KR
Sæmundur Stefánsson FH
Jens Einarsson Vík.
Steinar Birgisson Vík.
Bjarni BessasonÍR
Friðrik Þorbjörnsson KR
Jóhannes Stefánsson KR
Pétur Ingólfsson FH
leikir
20 6
15 5
18 6
18 6
17 6
17 6
17 6
16 6
16 6
16 6
Þarna er það Páll Björgvinsson markakóngur 1. deildar sem hefur
hafnað sjálfur i marknetinu en ekki knötturinn.
1. DEILD íslandsmótsins í handknattleik hefst á nýjan leik eftir
jólahlé og landslcikjasyrpu nú um helgina. Eins og sakir standa hefur
Víkingur örugga forystu í mótinu, liðið er enn með fullt hús stiga á
sama tíma og næsta lið hefur tapað 3 stigum. Var slíkan mun að sjá á
Víkingum og öðrum liðum í deildinni fyrir áramótin, að erfitt er að
ímynda sér að mótinu Ijúki á annan hátt en með sigri þeirra. En
ekkert skyldi fullyrða, því að auk þess sem langt hlé er nú á enda. er
ekki loku fyrir það skotið að margir landsliðsmannanna mæti þreyttir
til leiks og þar sem þeir eru gjarnan lykilmenn hjá liðunum, kann það
að hafa áhrif. En áður en lengra er haldið væri ekki úr vegi að
glöggva sig á stöðunni i 1. deild, en hún er þessi:
Víkingur 6 6 0 0 134-107 12
FH 6 4 1 1 135-125 9
KR 6 4 0 2 135-126 8
Valur 6 3 0 3 123-113 6
ÍR 6 2 1 3 122-123 5
Haukar 6 2 1 3 124-133 5
Fram 6 0 3 3 118-129 3
HK 6 0 0 6 96-131 0
Fjórir berjast um
markakóngstitilinn
Fjórir leikmenn hafa skorið sig
að nokkru úr skaranum í keppn-
inni um markakóngstitilinn, þeir
Páll Björgvinsson, Kristján Ára-
son, Ragnar Ólafsson og Bjarni
Bessason. Þetta á eftir að vera
tvísýnn slagur allt til loka keppn-
istímabilsins, en eftirtaldir leik-
menn hafa skorað mest það sem af
er:
Páll Björgvinsson Vík. 32/13
Kristján Arason FH 32/16
Ragnar Ólafsson HK 31/12
Bjarni Bessason ÍR 30
Ólafur Lárusson KR 27/11
Atli Hilmarsson Fram 25
Andrés Bridde Fram 25/19
Haukur Ottesen KR 25
Konráð Jónsson KR 23
Sigurður Gunnarsson Vík. 23/3
Þórir Gíslason Haukum 23/9
Steinar Birgisson Vík. 22
Sæmundur Stefánsson FH 22
Þorbjörn Guðmundsson Val 22/11
Pétur Ingólfsson FH 21
Björn Pétursson KR 18
Steindór Gunnarsson Val 17
Bjarni Guðmundsson Val 17
Guðmundur Magnússpn FH 16
Sigurður Svavarsson ÍR 16/8
Hörður Harðarson Haukum 16/10
Ólafur Jónsson Vík. 15
Þorbjörn Jensson Val 15
Andrés Kristjánsson Haukum 15
Hannes Leifsson Fram 15
Árni efstur í
einkunnagjöfinni
Árni Indriðason hefur góða for-
ystu í einkunnagjöf Morgunblaðs-
ins, eins og sjá má á töflunni yfir
efstu menn hér að neðan. Árni er
kjölfestan í frábæru liði Víkings
og er synd að hans skuli ekki njóta
við í hinu unga landsliði. En það
eru margir kallaðir og aðeins einn
útvalinn. Einn slakur leikur getur
orðið til þess að heill flokkur
manna skjótist upp fyrir, þannig
að að enn getur allt gerst. Efstu
menn í einkunnagjöfinni eru nú
þessir:
• Guðriður Guðjónsdóttir, enn
skæðari skytta en áður, og
markahæst í 1. deild kvenna.
Kristján Arason FH 16 6
Bjarni Guðmundsson Val 16 6
Stefán Jónsson Haukum 16 6
Atli Hilmarsson Fram 16 6
43 víti varin!
íslenskir markverðir hafa verið
iðnir við að verja vítaköst, alls 43
það sem af er. Auk þess hefur
fjölda annarra vítakasta verið
sóað með afbrennslum og skotum í
• Árni Indriðason úr Víkingi er stigahæstur í einkunnagjöf
Morgunblaðsins eftir sex umferðir. Á myndinni er kappinn milli
steins og sleggju, næstum því bókstaflega.
Þá er aðeins eftir að geta ÍR, en
leikmenn liðsins hafa aðeins verið
reknir af leikvelli í 16 mínútur
samanlagt, þar af Bjarnarnir Há-
konarson og Bessason í 4 mínútur
hvor.
Harpa Guðmundsdóttir Val 31
íris Þráinsdóttir Vík. 25
Hansína Melsted KR 25
Erna Lúðvíksdóttir Val 24
Eiríka Ásgrímsdóttir Vík. 23
Magnea Friðriksdóttir Þór 21
Dýrfinna Torfadóttir Þór 20
Allt í graut
í 2. deild
2.DEILDIN er öll í einum graut
og kemur þar helst til að ekkert
lið virðist bera þar af og reyta
allir stig af hver öðrum. Allir
þ.e.a.s. nema Þór frá Vestmanna-
eyjum, sem lætur alla reyta stigin
af sér. Óumdeilanlega standa
Fylkir og Þróttur best að vígi, en
eins og staðan er getur allt gerst.
Fram á grænni grein
Við blasir, að Fram vinni einn
öruggan sigurinn enn í 1. deild
kvenna. Eins og lið Víkings í
karlaflokki, hefur Fram-liðið enn
fullt hús stiga og hefur haft
augljósa yfirburði yfir önnur lið í
deildinni. Á botninum virðist fátt
geta bjargað Grindavík. En það lið
er mikið spurningamerki. í mörg-
um leikjum hefur liðið sýnt ákaf-
lega slakan leik, en þess á milli
hafa önnur lið mátt þakka fyrir
stigin gegn UMFG, eins og t.d.
Valur sem marði sigur með einu
marki um síðustu helgi. Segja má,
að slagurinn standi fyrst og
fremst um hvaða lið hafnar í næst
neðsta sæti deildarinnar og fellur.
Annars er lið Víkings það lið sem
komið hefur mest á óvart í vetur.
Á síðasta keppnistímabili var liðið
hvorki fugl né fiskur, en nú er hins
vegar kominn áberandi vísir að
mjög góðu liði á íslenskan mæli-
kvarða. Enn vantar þó festu í liðið,
en næsta keppnistímabil má Fram
fara að vara sig. Staðan í 1. deild
kvenna er nú þessi:
Fram
KR
Valur
Víkingur
Haukar
Þór
FH
UMFG
6 6 0 0 113- 64 12
6 4 0 2 98- 71 8
6 4 0 2 105-101 8
6 3 0 3 104- 86 6
6 3 0 3 88- 90 6
5 2 0 3 84- 85 4
6 2 0 4 95-118 4
7 0 0 7 84-156 0
Og markhæstu dömurnar eru
eftirfarandi:
Guðríður Guðjónsdóttir Fram 48
Margrét Theodórsd. Haukum 45
Sjöfn Ágústsdóttir UMFG 39
Kristjana Aradóttir FH 38
Ingunn Bernódusdóttir Vík. 31
Staðan i deildinni er nú þessi:
Fylkir 8 5 1 2 164-145 11
Þróttur 7 5 0 2 157-146 10
Ármann 8 3 2 3 191 — 174 8
UMFA 6 3 1 2 123-116 7
KA 6 3 1 2 90-113 7
Týr 5 2 1 2 99- 99 5
ÞórAk. 6 1 0 5 116-128 2
ÞórVe. 4 0 0 4 72-106 0
Og markhæstir eru þess-
ir:
Sigurður Sveinsson Þrótti 60
Friðrik Jóhannesson Ármanni 37
Alfreð Gíslason KA 32
Páll Ólafsson Þrótti 28
Guðni Hauksson Fylki 28
Þorleifur Ananíasson KA 28
Lárus Halldórsson UMFA 27
Steinar Tómasson UMFA 26
Gústaf Baldvinsson UMFA 26
Ragnar Hermannsson Fylki 25
Þráinn Ásmundsson Ármanni 25
Björn Jóhannesson Ármanni 24
Sigurður Sigurðsson Þór Ak. 20
-gg-
• Siguður Sveinsson, langmark-
hæstur i 2. deild.