Morgunblaðið - 19.01.1980, Side 40
á ritstjórn og skrifstofu:
10100
JH*r0unblabi&
Guðmundar- og
Geirfinnsmál:
.Verjendur
kref jast sýknu
Guðmundi Einarssyni hótað i sima
VERJENDUR í Guðmundar- 0»?
Geirfinnsmálinu hófu mál sitt í
gær. Þá töluðu Páll A. Pálsson hdl.,
verjandi Kristjáns Viðars Viðars-
sonar, og Jón Oddsson hrl., verj-
andi Sævars Marínós Ciesielskis.
Kröfðust þeir sýknu af ákærum um
manndráp, en í undirrétti voru þeir
Sævar og Kristján dæmdir í fang-
elsi til æviloka. Þá krafðist Páll
sýknu af ákæru um rangar sakar-
giftir til handa Kristjáni en Jón var
ekki búinn að lýsa kröfum um það
atriði ákærunnar er hlé var gert.
Til vara er krafist vægustu refs-
inga að lögum. Málflutningur hefst
að nýju á mánudaginn.
Áheyrendabekkir Hæstaréttar
hafa verið þéttsetnir undanfarna
Viðræður við Rússa:
Um lagmeti
og frystan fisk
FULLTRÚAR lagmetisiðn-
aðarins halda til Moskvu á
morgun, þar sem á þriðju-
dag hef jast samningaviðræð-
ur um sölu á gaffalbitum til
Rússlands í ár. í samninga-
nefndinni verða þeir Gylfi
Þór Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Sölustofnunar
lagmetis, Mikaei Jónsson,
frá K. Jónsson og á
Akureyri og Egill Thoraren-
sen frá Sigló-síld í Siglu-
firði.
Um mánaðamótin fara þeir
Árni Finnbjörnsson sölu-
stjóri Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og Sigurður
Markússon framkvæmda-
stjóri Sjávarafurðadeildar
Sambandsins til Moskvu til
samningaviðræðna um sölu á
frystum fiski héðan á árinu.
daga og hafa stundum færri komist
að en vildu. Tveir hinna ákærðu í
málinu, Sævar Marínó og Kristján
Viðar hafa verið viðstaddir allan
málaflutninginn. Aðrir sakborn-
ingar hafa ekki komið í Hæstarétt
nema hvað Erla Bolladóttir kom á
áheyrendapalla eftir kaffihlé í gær
og var þar í klukkutíma.
Það kom fram hjá Jóni Oddssyni í
gær að móðir Guðmundar Einars-
sonar hefði skýrt frá því við yfir-
heyrslu að eldri karlmaður að því er
talið var hefði hringt alloft í Guð-
mund um nokkurn tíma áður en
hann hvarf og haft í hótunum við
hann. Hafði móðir hans svarað
nokkrum símtölum þessa manns.
Sagði Jón að bróðir Guðmundar
hefði sett þessar hringingar í sam-
band við slys, sem varð við Elliða-
vatn. Taldi Jón að þetta atriði hefði
verið illa rannsakað.
Sjá: „Margt bendir til að aðrir
menn hafi hitt Geirfinn“
á bls. 18.
KAPPSIGLING hefur verið hjá skipunum i
sjálfsagt hafa þessir herramenn haft snör
þegar komið var til Reykjavíkur í gær.
löndunarplássin
handtök við að
síðustu daga og
binda sitt skip
Ljósm. Ragnar Axelsson.
Tómas Árnason, ritari Framsóknarflokksins:
Tillögumar ófullnægjandi
og leysa ekki vandamálið
„TILLÖGUR Alþýðubandalags-
ins eru ófullnægjandi og eru alls
ekki til þess fallnar að leysa
þann vanda, sem við er að glíma,“
sagði Tómas Árnason, alþingis-
maður og ritari Framsóknar-
flokksins í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Sighvatur Björg-
vinsson, formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins vildi ekkert tjá sig
um tillögurnar. en kvað alþýðu-
flokksmenn vinna að því að
brjóta þær til mergjar. Geir
Hallgrimsson fékk tillögurnar i
gær og er Morgunblaðið ræddi
við hann hafði honum ekki gefist
tóm til þess að kanna þær. Því
kvaðst hann ekki vilja tjá sig um
þær.
Tómas Árnason, kvað fram-
sóknarmenn nú athuga tillögur
Alþýðubandalagsins lið fyrir lið.
„Við erum að reyna að gera okkur
Innflutningur bjórs byggist ekki á lögum:
Bjórkaup Davíðs
knýja á um breytingu
BJÓRKAUP Davíðs Sch.
Thorsteinssonar í fríhöfninni á
Keflavíkurflugvelli, sem Mbl.
skýrði frá s.l. mánudag, og
neitun tollvarða. er hann tjáði
þeim að hann ætlaði að taka
bjórinn með sér inn í landið
hefur vakið almenna athygli og
umræðu. Mbl. ræddi í gær við
nokkra aðila um iagahlið þessa
máls og kom þar m.a. í ljós í
viðræðum við lögfræðinga, að
reglugerð sú, er heimilar áhöfn-
um flugvéla og skipa að flytja
inn í landið áfengan bjór, er án
lagastoðar og ætti því að teljast
ómerk. Fjármálaráðherra. Sig-
hvatur Björgvinsson, sagði mál
þetta i athugun í fjármálaráðu-
neytinu, en taldi bjórkaup
Davíðs knýja á um breytingar,
þó ekki vildi hann tjá sig um á
þessu stigi í hvaða átt þær
breytingar yrðu.
I áfengislögum er fortakslaust
bann við að flytja til landsins
- segir fjármálaráð-
herra, en ekki er
vitað í hvaða átt sú
breyting verður
áfengt öl og éngin heimild til
reglugerðarbreytinga á þeim
lagabókstaf. Umrædd reglugerð,
sem heimilar farmönnum inn-
flutning bjórs, er útgefin af
fjármálaráðuneytinu 1965. Hún
er byggð á tollskrárlögum, sem
fjalla aðeins um undanþágur frá
greiðslu tolla — þar er hvergi
getið um leyfi til innflutnings
áfengs öls.
Davíð sagði í viðtali við Mbl. í
gær, að þetta breytti í engu
afstöðu sinni né áformum. Hann
myndi halda sínu striki, hvort
sem niðurstaðan leiddi til þess
að allir fengju að flytja inn bjór
eða enginn. Davíð sagðist nú
bíða eftir stefnu frá dómsyfir-
völdum og ef stefna hefði ekki
borizt sér fyrir n.k. mánaðamót
þá myndi hann leita réttar síns
til endurheimtingar eigna sinna.
Sjá nánar „Áhöfnum einnig
óheimill innflutningur
bjórs“ á bls. 3.
grein fyrir, hvað í tillögunum er
skynsamlegt og hvað ekki. Mér
finnast þær alls ekki taka nægi-
lega vel á þeim vanda, sem við er
að glíma og tillögugerðin er í raun
og veru með þeim hætti, að svo
virðist sem menn líti svo á að ekki
sé fyrir hendi sá vandi sem
raunverulega er. Því eru þær ekki
líklegar til þess að leysa vandann,
sem við erum í, þ.e.a.s. verðbólg-
una og koma á sæmilegu ástandi í
efnahags- og atvinnumálum."
Morgunblaðið spurði Tómas,
hvort tillögurnar væru frábrugðn-
ar þeim tillögum, sem áður hefðu
komið frá Alþýðubandalaginu.
Hann sagði: „Þetta er miklu meira
mál allt saman, en þar er viss
tilhneiging til þess að reyna að
leysa viss vandamál með því að
skapa önnur, þ.e.a.s. reynt er að
leysa vandamál, er snúa að vinnu-
markaðinum með því að skapa
ríkisfjármálavanda. Þá vantar
ýmislegt í tiilögurnar, t.d. kemur
ekki fram nein launamálastefna,
sem er auðvitað útilokað. Ríkis-
stjórn, sem hefur störf nú, verður
að hafa launamálastefnu, vegna
þess að opinberir starfsmenn eru
með lausa samninga og hún verð-
ur að taka afstöðu til þeirra. Það
er tilgangslaust fyrir ríkisstjórn
að setja sér ákveðin stefnumið og
hafa alla þá enda lausa. Hún
verður að hafa skoðun á því, hvað
efnahagslífið þolir.“
Forsetakosningarnar:
„Þess vegna eru tillögurnar
ófullnægjandi," sagði Tómas.
Hann kvað úttekt Þjóðhagsstofn-
unar á tillögunum enn ekki hafa
borizt. Einnig hefði verið óskað
eftir áliti verðlagsskrifstofunnar á
niðurfærslu verðlags. Það væri
heldur ekki komið. Eftir þessum
álitsgerðum hefði verið óskað, því
að framsóknarmenn efuðust um
að þessar tillögur væru raunhæf-
ar.
Kvaðst Tómas vonast til þess
að álitsgerðirnar yrðu tilbúnar
fyrir viðræðufund vinstri flokk-
anna, sem hefst í dag klukkan 14.
Stórmeistarar
vilja vera með í
Rvíkurmótinu
SKÁKSAMBANDI íslands
hefur borizt skeyti frá þremur
stórmeisturum, þar sem þeir
láta í ljós ósk um að fá að vera
með á Reykjavíkurskákmót-
inu, sem hefst á Hótel Loft-
leiðum 23. febrúar n.k. Stór-
meistararnir eru Torre frá
Filipseyjum, Keene frá Bret-
landi og Byrne frá Bandaríkj-
unum. Er beiðni þeirra til
athugunar hjá stjórn Skák-
sambandsins, að sögn Einars
S. Einarssonar forseta þess.
Sigurjón Pétursson styð-
ur Guðlaug Þorvaldsson
SIGURJÓN Pétursson forseti
borgarstjórnar sagði í samtali við
Mbl. í gærkvöldi, að hann væri
stuðningsmaður Guðlaugs Þor-
valdssonar í embætti forseta
íslands.
„Ég tók þessa ákvörðun, þegar
ljóst var að Guðlaugur gæfi kost á
sér,“ sagði Sigurjón í samtalinu
við Mbl. „Ég tel hann falla lang-
bezt inn í þá mynd, sem ég geri
mér af þessu embætti."