Morgunblaðið - 16.04.1980, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. AÍ>RÍL 1980
*
Utvegsmenn
ráðgera iund
um þorsk-
veiðibannið
ÚTVEGSMENN á svokölluðu
bannsvæði, þ.e. á svæðinu frá
Höfn í Hornafirði vestur um
Suðurland að Snæfellsnesi,
eru að undirhúa fund mik-
inn. sem ráðgerður er næst-
komandi sunnudag, líklegast
í Hlégarði í Mosfellssveit. A
dagskrá fundarins verður
hannið, sem sjávarútvegsráð-
herra setti nýlega á þorsk-
veiðar, en mikil óánægja ér
með, að eitt skuli ekki yfir
alla landsmenn ganga.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun fulltrúum sjómanna
á þessu svæði boðið til fundarins,
en útvegsmenn munu safna gögn-
um, sem m.a. sýna að t.d. Norð-
lendingar eiga talsverðan hlut í
þeim afla, sem landað hefur verið
á bannsvæðinu og er bæði fjöldi
báta og aflamagn meira en menn
hefðu búizt við.
SNJÓFLÓÐ féll i fyrrnótt í Óshlíð, á leiðinni milli ísafjarðar og Bolungarvíkur. Gerði mikla hláku,
sem olli snjóflóðum á veginn en auk þess varð talsvert grjóthrun. Vegagerð ríkisins lauk við að ryðja
snjóinn af veginum um hádegisbil í gær.
Áður en tókst að opna vcginn tepptist umfcrð og urðu vegfarendur, sem erindi áttu á milli staðanna
að klöngrast yfir ófæruna. Myndin sýnir snjóflóðið og tvær ungar menntaskólastúikur úr
Bolungarvík, sem voru að sækja skólann inn á ísafjörð. ~ Wásm- Mbi.: Kristján.
1700 milljóna viðbótar-
skattur á Reykvíkinga
„Á BORGARRÁÐSFUNDI í dag var lögð fram tillaga
frá borgarráðsmönnum meirihlutans um að leggja 8%
álag á útsvörin, þannig að þau verða þá 11,88%“ sagði
Björgvin Guðmundsson, annar borgarfulltrúa Alþýðu-
flokksins, í samtali við hlaðamann Morgunblaðsins í
gær.
„Þessari tillögu, sem gerir ráð
fyrir að borgin nýti 8/10 af
heimildinni, var vísað til borgar-
stjórnar," sagði Björgvin enn-
fremur.
Björgvin sagði, að þegar fjár-
hagsáætlunin hefði verið lögð
fram til fyrri umræðu í desember
hefði verið eftir að gera ráð fyrir
framlagi vegna launahækkana
ársins. „Aðeins var tekið inn mjög
lítið, aðeins rúmlega 400 milljónir
króna vegna launahækkana, og sú
upphæð er þegar uppurin í þeim
Þær tillögur, sem fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í fjárhags- og
viðskiptanefnd efri deildar lögðu
fram í upphafi þingflokksfundarins
í fyrrakvöld fólu í sér 25% tekju-
skatt af fyrstu 3,5 milljónunum,
35% af næstu 3,5 og 45% skatt af
launahækkunum sem átt hafa sér
stað á árinu,“ sagði Björgvin
ennfremur. „En í áætluninni var
gat fyrir launahækkunum ársins
og öðrum kostnaðarhækkunum
sem verða á árinu og inn í
fjárhagsáætlunina núna var sett
framlag vegna kauphækkana árs-
ins.“
Þá sagði Björgvin einnig verða
gerðar ýmsar breytingar á ýmsum
framkvæmdahliðum borgarinnar,
svo sem skólabyggingum, bygg-
ingu sjúkrahúsa, dagvistarstofn-
skattgjaldstekjum umfram 7 millj-
ónir. Tillögur um persónuafslátt og
barnabætur, sem voru samþykktar
óbreyttar, eru samhljóða tillögum
stjórnarliðsins þar um. Sá skatt-
stigi, sem samþykktur var í lokin,
er hins vegar 25% af fyrstu 4
ana, íþróttamannvirkja og fleiri
framkvæmdum vegna verðbreyt-
inga sem átt hafa sér stað „og
munu eiga sér stað“. „Það var
algjörlega ókleift að loka þessari
fjárhagsáætlun nema með því að
nýta útsvarsálagið að þessum
hluta, verðbólgan er það rnikil,"
sagði Björgvin. Björgvin sagði
þessa tillögu um hækkun útsvars
vera tillögu allra flokkanna í
meirihlutasamstarfinu, og hann
SÁTTAFUNDUR var í gær haldinn
í kjaradeilu bókagerðarmanna, þ.e.
Hins íslenzka prentarafélags,
Grafíska sveinafélagsins og Bók-
bindarafélags tslands annars vegar
og Félags íslenzka prentiðnaðarins,
Ríkisprentsmiðjunnar Gutenbergs
og Vinnuveitendasambands íslands
hins vegar. Fundurinn, sem er hinn
fyrsti milli þessara aðila, fór í það
að stéttarfélögin kynntu kröfurnar
fyrir viðsemjendum sínum.
I dag klukkan 14 er boðaður
fundur í húsakynnum sáttasemjara
ríkisins milli flugmanna og viðsemj-
enda þeirra. Á föstudag hefur verið
boðaður fundur í kjaradeilu ASÍ og
VSÍ og mun 43ja manna nefnd ASI
koma saman hjá sáttasemjara
klukkan 14, en klukkan 16 er samn-
inganefnd VSI boðuð til fundarins
og hefst þá hinn eiginlegi sáttafund-
ur. Þetta er í annað sinn í þessari
kjaradeilu, sem fullskipuð samn-
inganefnd ASÍ kemur saman.
milljónunum, 35% af næstu 4 og
45% af skattgjaldstekjum umfram
8 milljónir króna.
Sigurður Óskarsson sagði, að á
fundi framkvæmdastjórnar verka-
lýðsmálaráðs Sjálfstæðisflokksins
í fyrradag hefði Halldór Blöndal
kynnt hugmyndir sínar varðandi
tekjuskattsstiga og hefði fram-
kvæmdastjórnin samþykkt stuðn-
ing við þær. Sagði Sigurður, að
hann hefði kynnt þessa samþykkt á
þingflokksfundinum og hefði hann
áskilið sér rétt til að framfylgja
henni á Alþingi. Hvorki Halldór
Blöndal né Pétur Sigurðsson gátu
sótt þingflokksfundinn.
kvaðst ekki vilja staðfesta eða
neita fréttum um að tillögur þess
efnis að ekki skyldi nýta alla
hækkunarheimildina væri komin
frá Alþýðuflokki, gegn mótmælum
framsóknarmanna og alþýðu-
bandalagsmanna sem viljað hafi
nýta alla hækkunarheimildina.
Björgvin sagði að lokum, að
talið væri að þessi hækkun myndi
færa borginni um 1700 milljónir
króna í tekjur á þessu ári.
Enginn sáttafundur hafði verið
boðaður í kjaradeilu farmanna í
gær, en hins vegar var ákveðið að
haldinn yrði sáttafundur í kjara-
deilu Sjómannafélags ísfirðinga og
Útvegsmannafélags Vestfjarða, en
óákveðið var á hvaða tíma og hvar
fundurinn yrði haldinn.
Helgi Ingvars-
son látinn
Ilelgi Ingvarsson íyrrum yfirlæknir á
Vífilsstaðaspítala er látinn. Hann var
fæddur í Gaulverjabæ í Flóa 10.
októbcr 1896.
Helgi varð stúdent í Reykjavík árið
1916 og Iauk prófi frá læknadeild
Háskólans 1922. Stundaði hann fram-
haldsnám og störf erlendis m.a. í
Danmörku og Þýzkalandi og varð
sérfræðingur í berklalækningum. Hann
varð aðstoðarlæknir á Vífilsstöðum
árið 1922 og yfirlæknir þar árin 1939 til
1967. Þá var hann lektor við Lækna-
deild H.í. frá 1959. Helgi Ingvarsson
ritaði ýmsar greinar um berklamál.
Kona hans er Guðrún Lárusdótti-
eignuðust þau 6 börn.
Ólafur G. Einarsson um þingflokksmálið:
„Einföld afgreiðsla þar
sem menn takast í hendur“
„ÉG átti ánægjulegt samtal við
Eggert Haukdal um afgreiðslu
á þingflokksmálinu og ég geri
ráð fyrir því að málið verði
afgreitt á þingflokksfundi á
morgun," sagði ólafur G. Ein-
arsson formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins í samtali
við Mbl. í gær en eftir að sættir
höfðu tekizt vegna framboðs-
mála í kjördæmisráði Sjálfstæð-
isflokksins í Suðurlandskjör-
dæmi tók þingflokkurinn málið
upp sl. mánudag.
Ólafur var spurður að því
hvort þingflokkurinn hefði boðið
Eggert í þingflokkinn eða hvort
Eggert hefði óskað eftir því.
„Hér er í rauninni hvorki um
boð né ósk að ræða. Hér er um
einfalda afgreiðslu að ræða þar
sem menn takast í hendur án
þess að fara á hnén.“
Framkvæmdastjórn verkalýðsmálaráðs Sjálfstæöisflokksins:
Hæsta tekjuskattsþrep sé 40%
FRAMKVÆMDASTJÓRN verkalýðsmálaráðs Sjálfstæðisflokksins
samþykkti á mánudag stuðning við hugmyndir um 20, 30 og 40%
tekjuskattsstiga, sem miðaði að því að heildartekjuskattaálagningin
fari ekki yfir 50%. Halldór Blöndal alþingismaður staðfesti í samtali
við Mbl. í gær að hann undirbyggi flutning breytingartillögu um
slíkan tekjuskattstiga, þegar málið kemur fyrir neðri deild Alþingis,
en tveir aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Pétur Sigurðsson og
Sigurður óskarsson, eiga sæti í framkvæmdastjórn verkalýðsmála-
ráðsins og er Sigurður, sem nú situr á þingi í fjarveru Steinþórs
Gestssonar, formaður þess.
Fyrsti sáttafundur með
bókagerðarmönnum
Cv " r.
Hvað segja
þeir um
Jan Mayen-
viðræð-
urnar?
Knut Frydenlund utan-
ríkisráðherra Noregs:
„Leggjum
áherzlu á að
ná samning-
um í Ósló“
„VERULEGA hefur miðað áfram í
þessum samningaviðræðum og það
hefur verið góð stemmning á þessum
fundum," sagði Knut Frydenlund
utanríkisráðherra Noregs í samtaii
við Mbl. í gærkvöldi. „Á árangursrík-
an hátt hefur verið fjallað um cin-
staka þætti og vandamál i þessari
deilu, en við höfðum fastlega vonast
til þess að samkomulag næðist i
þessum samningaviðræðum.
Við munum hins vegar leggja
mikla áherzlu á það að ná samning-
um i viðræðunum í Ósló í maíbyrjun."
Ólafur Ragnar Gríms-
son alþingismaður:
„Texti uppkasts-
ins á engan hátt
fullnægjandi“
„ÞAÐ VAR augljóst strax í upphafi
að Norðmenn ætluðu að koma i veg
fyrir að íslendingar gætu í þessum
samningum tryggt sér hafsbotns-
réttindin, því þeir komu til viðræðn-
anna án þess að hafa umboð til þess
að semja um þau." sagði Ólafur
Ragnar Grímsson alþingismaður og
fulltrúi Alþýðubandalagsins i við-
ræðunefndinni í Jan Mayen-deil-
unni, „þetta er furðuleg framkoma
að mæta tii milliríkjaviðræðna án
þess að hafa umboð til þess að ræða
Eiennan veigamikla þátt málsins.
slendingar hljóta því að gera þá
kröfu til norsku rikisstjórnarinnar
að hún veiti norsku viðræðunefnd-
inni fullt umboð til þess og verður
það að liggja ljóst fyrir áður en
næsti fundur verður haldinn.
Auk þess voru Norðmenn ekki
reiðubúnir til þess að veita íslending-
um viðhlítandi rétt til frambúðar-
veiða á Jan Mayen-svæðinu og þeir
voru aðeins til viðræðna um loðnu-
veiðarnar. Knnfremur neituðu þeir
sögulegum rökum Islendinga. í
síðustu viðræðum reyndu Norðmenn
hvað eftir að knýja Islendinga til