Morgunblaðið - 16.04.1980, Page 17

Morgunblaðið - 16.04.1980, Page 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1980 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1980 17 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.800.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 240 kr. eintakið. Sjö punktar Jónasar ár Aráðstefnu Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga fyrir skömmu gerði Jónas H. Haralz bankastjóri grein fyrir þeim úrræðum sem hann telur haldbest gegn verðbólgunni nú um stundir. Viðhorf Jónasar voru rakin í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag. Þar kemur fram sú skoðun, að við mótun efnahagsstefnunnar eigi að hverfa frá beinum aðgerð- Jim gegn verðbólgunni, að minnsta kosti um stundarsakir. Þess í stað skuli stefnt að aðlögun að verðbólgunni og í því efni ætti fyrst og fremst að leitast við að ná hagvexti þrátt fyrir verðbólguna og leggja jafnframt grunninn að samdrætti hennar. Jónas H. Haralz nefndi sjö atriði, sem leggja bæri áherslu á til að ná þessu markmiði. Þau verða ekki rakin í heild hér en nefnd nokkur lykilatriði: 1) Vaxtakjör verði á sem skemmstum tíma samræmd verðbólgunni. 2) Þegar í stað verði afnumin öll verðlagsákvæði fyrir utan þau, sem mæla gegn einokun. Ríkisstjórnin láti kjarasamninga afskiptalausa og móti ekki kjarastefnu til dæmis varðandi fiskverð. 3) Hætt verði að láta gengið fljóta og krónan verði þess í stað tengd einhverjum erlendum gjaldmiðli, þannig að utanaðkomandi hömlur verði viðurkenndar að nýju. Hömlum verði haldið á erlendum lántökum. 4) Seðlabankinn móti og framfylgi í samvinnu við viðskiptabankana stefnu í peningamálum til að halda aukningu peningamagns innan hæfilegra marka. 5) Jöfnuður verði í ríkisfjármálum og útgjöld og skattheimta ríkisins takmörkuð. Viðskiptaleg viðhorf og fjárhagsleg ábyrgð ráði við mat á opinberri þjónustu og framkvæmdum. 6) Orkufram- leiðsla verði eindregið aukin og nýjum orkufrekum iðnfyrir- tækjum komið á fót um leið og þau verði stækkuð, sem fyrir eru. Viðurkennd verði á þessu sviði nauðsyn samvinnu við erlenda aðila á viðunandi grundvelli. 7) Átak verði gert til að auka framleiðni í öllum greinum íslensks iðnaðar með auknum rannsóknum, ráðgjöf og lánveitingum. Til þessa verði fyrirtækjum skapaðar heilbrigðar ytri aðstæður og samvinnu- andi látinn ríkja innan þeirra. Menn þurfa ekki að hafa fylgst vel með störfum núverandi ríkisstjórnar til að átta sig á því, að ofangreind atriði stangast að verulegu leyti á við þá handahófskenndu efnahagsstefnu, sem hún hefur mótað. Raunar virðist ríkisstjórnin láta sér nægja að stjórna frá degi til dags, til dæmis hefur hún ekki enn gert sér neina grein fyrir því, hvaða afleiðingar síðustu ráðstafanir hennar hafa á kjaramálin. Afskiptaleysi af þeim málaflokki er ekki fólgið í því, að ríkisvaldið beiti sér fyrir ráðstöfunum, sem ganga þvert á hugmyndir aðila vinnumark- aðarins um lausn aðsteðjandi vanda. I erindi sínu nefndi Jónas H. Haralz nokkrar forsendur þess, að unnt yrði að móta skynsamlega stefnu í efnahagsmálum þjóðarinnar. Umbætur væru nauðsynlegar á vinnumarkaðnum og breytingar á kerfi launasamninga og gerð þeirra. Þá væri nauðsynlegt að breyta kosningalögum og kjördæmaskipan þannig að jafnrétti kjósenda væri tryggt. Um langan tíma hefur verið rætt um bæði þessi atriði án þess að nokkur niðurstaða hafi fengist. Verkalýðshreyfingin hefur hafnað öllum breytingum á vinnulöggjöfinni, síðán embætti ríkis- sáttasemjara var stofnað. Og svo virðist nú sem miðstýring hreyfingarinnar sé tekin að molna. Þá hafa stjórnmálaflokk- arnir ekki getað sameinast um nauðsynlegar breytingar á þeim reglum, sem gilda um kosningu manna á Alþingi. Er misréttið í því efni orðið svo hróplegt, að furöulegt er, hve lengi er látið þar við sitja. Eins og eðlilegt er gætir orðið þreytu í umræðum manna um verðbólguna og afleiðingar hennar. Þetta á ekki síst rætur að rekja til þess, að menn sjá, að þeir, sem með völdin fara, segja eitt og framkvæma annað. Ráðherrar segjast andvígir gengislækkun og framkvæma hana síðan í sömu andránni. Boðuð er niðurtalning verðlags um leið og hraðinn á verðbólguskrúfunni er aukinn. Hins vegar má ekki við svo búið standa, vilji menn bæta lífskjörin í stað þess að láta þjóðartekjur minnka eins og nú er. Jónas H. Haralz hefur sett fram hugmyndir, sem ættu að geta orðið hvati að endurnýjaðri baráttu þeirra, sem vilja ekki berast með straumnum heldur takast á við þann vanda að gera lífvænlegt að búa á íslandi. Helgi Hálfdanarson Sá er tilgangur málræktar að gera orð tungunnar og sambönd þeirra að sem greiðastri brú frá einum mannshuga til annars, gera talað og ritað mál að sem nákvæmustum miðli þeirra er- inda, sem við eigum hvert við annað. Til þess að málið megi sem bezt gegna því hlutverki, er einkum tvennt mikilvægt: ann- ars vegar sem mest fjölbreytni orðaforðans, og hins vegar traust varðveizla merkinganna. Því fjölskrúðugri sem orðaforð- inn er, þeim mun blæbrigðarík- ari hugsun getur hann túlkað. En því aðeins er orðum trúandi fyrir tiltekinni hugsun, að merking þeirra sé ekki á reiki, breytileg frá einum einstaklingi til annars eða frá einni kynslóð til annarrar. Um orðaforðann er tvennt sem öðru fremur skiptir máli: að leita sífellt nýrra fanga á hverri tíð með nýyrðum og tökuorðum, sem hæft geta nýjum viðfangs- efnum; og svo að gæta þess, að hin mikla auðlegð tungunnar varðveitist sem bezt og haldi gildi sínu í verki, en lokist ekki inni í skúmaskotum gleymdra daga, og týnist; kosta kapps um að sem mest af forða málsins sé jafnan á takteinum. Þegar hugað er að þeim þætti málverndar, sem að sjálfum orðaforðanum lýtur, blasir við ein hróplegasta gloppan í ís- lenzkri menningu, að ekki skuli vpra til íslenzk samheitabók. Sá skortur tekur drjúgan hluta málsins úr umferð, sviptir flesta íslendinga sýn yfir það kosta- land tungunnar, sem þeir tóku í arf, rænir þá nytjum þess og hagsæld. Ekki er ég í vafa um það, að samheitabók myndi stór- bæta málbragð og stíl flestra þeirra sem á íslenzku mæla, gera tungutak þeirra í senn litríkara og markvísara. Engin þjóð þyk- ist menn með mönnum nema eiga á tungu sinni samheitabók; að undan skildum íslendingum. Stundum þykir okkur lítið koma til málræktar frændþjóðanna á Norðurlöndum; en þær eiga sér samheitabækur, jafnvel margar. Auðvitað verður að bjargast eins og bezt gengur, þar til úr rætist. Við eigum þó alltjent Sigfúsar-orðabók, og hún er ein okkar dýrmætasta þjóðareign. Nytsemd hennar verður ekki metin á neina stiku. Samt get ég aldrei minnzt svo á orðabækur, að ég þurfi ekki að lofsyngja eina litla bók, sem þó er stærri en hún sýnist. En það er danska orðabókin hans Freysteins Gunnarssoar, sú gamla, sem kom út 1926. Kostir þeirrar bókar eru einkum í því fólgnir, hvað Freysteinn kunni vel ís- lenzku, og hafði gaman af orð- um. Fyrir bragðið er þetta sú orðabók, sem mun ganga næst því að vera nothæf sem e.k. íslenzk samheitabpk, svo langt sem hún nær. Það er eitt með öðru til marks um ræfildóm Islendinga, að þessi ágæta bók er ófáanleg á eðlilegum markaði. Ekki má gleyma orðabók Árna Böðvarssonar (Orðabók Menn- ingarsjóðs). En hún hefur ekki sízt það sér til ágætis umfram Sigfúsar-bók, hversu margt er þar að finna af orðum, sem ella þyrfti að leita uppi í svo kölluð- um „fornmáls“-orðabókum. Sigfús heldur sig, sem kunnugt er, á síðari öldum, svo að mikill sægur orða frá fyrri tíð hefur lent þar utan garðs. Sá er annar kostur Árna-bókar, hve þar er mikið af orðum sem yngri eru í máli en Sigfúsar-bók, þótt um það megi deila, hvort nógu glögg skil séu gerð milli tökuorða og slettna. Þegar kvartað er undan að- gerðaleysi í menningarmálum, er einatt skammt í þann ves- aldar-söng, að ekki sé grænn eyrir í sparibauknum. Stundum virðist örbirgðin jafnvel kær- komin afsökun fyrir slóðaskap. Nú er það kunnara en frá þurfi að segja, að þau mætu hjón Margrét og Þórbergur gáfu á sínum tíma rausnarlega fjár- fúlgu gagngert til þess að kosta gerð íslenzkrar samheitabókar. Þá var ekki lengur hægt að berja við auraleysi; lausn þessarar brýnu þarfar virtist á næsta leiti. Þó fór svo, að ýmsum þóttu framkvæmdir dragast um of á langinn; en sem betur fór hafði gjöfinni góðu verið komið fyrir í fasteign, svo að hún yrði ekki verðbólgunni að bráð, þótt verkið kynni að tefjast. En þar kom, að ráðinn var til starfs ágætur fræðimaður, Svav- ar Sigmundsson cand. mag. Því miður var honum þó ekki gert kleift að sinna þessu verki óskiptur, heldur varð hann að vinna það í hjáverkum samhliða aðalstarfi sem sendikennari í Kaupmannahöfn. Þó að eitthvað hafi honum áskotnazt af hjálp- arvinnu síðustu tvö árin eða svo, hefur þessi ráðstöfun að sjálf- sögðu orðið til að seinka útkomu bókarinnar meira en æskilegt er; og ekki væri höfundi hennar láandi, þótt hann hefði af þeim sökum reist henni þrengri skorð- ur en ella hefði orðið. í nýkomnu hefti Skímu, mál- gagns móðurmálskennara, gerir Svavar grein fyrir starfi sínu að samheitabókinni. Þar kveðst hann hafa farið yfir Orðabók Menningarsjóðs, tekið upp sam- heiti og gert millivísanir. Síðan segir hann: „Við söfnunina úr Orðabók Menningarsjóðs hef ég að mestu sleppt fornyrðum og orðum úr skáldamáli og hef ég þar að mestu farið eftir merkingum orðabókarinnar sjálfrar en hún auðkennir slík orð. Ég hef þó tekið með algengustu heiti úr skáldamáli sem enn eru til í málinu, t.d. fák og jó, en auðvit- að er álitamál hvað ber að taka af þessháttar orðum. En sam- heitaorðabókin á að vera orða- bók yfir íslenskt nútímamál, ekki söguleg samheitabók.“ Síðan segist Svavar hafa tekið til við orðabók Freysteins og fer um hana maklegum lofsorðum. Enn fremur hefur hann unnið úr samheitasafni Björns heitins Franzsonar, sem mér er kunnugt um að er bæði mikið og gott. Grein Svavars fylgir sýnishorn af uppkasti bókarinnar. Tekið er fram, að sú gerð sé ekki endan- leg; og ekki verður heldur ráðið af svo litlu sýnishorni allt sem máli skiptir um not bókarinnar. En vart verður annað séð en þar sé prýðilega að verki staðið. Sigfús Blöndal er furðu frakk- ur að merkja orð „úrelt“, jafnvel orð sem greinilega eru mjög þarfleg í nútímamáli. Þar tel ég merkingar Árna Böðvarssonar miklu réttmætari, þó að stund- um virðist mér hann láta Sigfús óþarflega miklu ráða. Það væri að vísu skrýtin samheitabók, sem dæmdi orðið „fákur“ í út- legð fyrir þá sök að hafa þjónað skáldum. Ætli skáldamál sé ekki íslenzka? Og svo þýðir fákur fleira en hestur. Flest orð, sem orðabækur merkja „úrelt“ eða „skáldamál" eiga einmitt sér- stakt erindi í samheitabók. Að sjálfsögðu yrðu þau ætíð notuð með allri gát, og vel mættu þau, einnig þar, vera auðkennd á þann veg sem glöggvaði tak- markað notagildi þeirra. En dauð eða úrelt íslenzk orð eru ekki til. íslenzk orð deyja ekki, þó að þau falli úr notkun að meira eða minna leyti. Þau geta einungis fengið annað notagildi, nýtt hlutverk í stíl. Ef íslenzk samheitabók á að rísa undir nafni og vera meira en smávegis málamyndaverk, sem lítið gagn yrði. að, þá skiptir öllu máli að þar séu saman komin sem flést orð frá öllum tímum íslenzkrar sögu. Sá á einmitt að vera megintilgangur slíkrar bók- ar að forða málinu frá þeirri tæringu, að orð þessi lendi unn- vörpum utan gátta og liggi þar gleymd og ónotuð þangað til einhver dægurspekingur dæmir þau dauð og ónothæf. Hún á einnig að blása lífi í margt af ágætum orðum, sem um skeið hafa sofið Þyrnirósar-svefni og beðið þess að verða vakin til starfa að nýju. Til samheitabók- ar eiga menn ekki sízt það erindi að sækja útfyrir þau mið máls- ins sem mest er róið á, til þess að leita uppi orð eða orðasambönd sem bezt hæfa tiltekinni ná- kvæmni, ýmist vegna beinnar merkingár eða stílgildis, hug- myndatengsla eða orðahljóms. Um stærð bókarinnar segir Svavar, að stefnt sé að 25 arka bók eða svo. Þetta þykja mér skuggaleg tíðindi. Það verð ég að segja, að mér er óskiljanlegt hvernig íslenzk samheitabók á að komast af með 25 arkir, ef hún á að verða barn í brók. Er svo að skilja, að fjárveiting til þessa þjóðþrifaverks, önnur en gjöfin, sé alls engin eða skorin svo við nögl, að árangur verði miklu rýrari en skyldi? Auðvitað er gert ráð fyrir endurskoðun bókarinnar eftir fyrstu útgáfu. En um bók af þessu tagi er afar mikilvægt að unnt sé að komast sem lengst í fyrstu lotu. Enda er hætt við, að niðurskurður efnis verði einmitt þar sem sízt skyldi. I grein Svavars segir: „I sam- heitaorðabókinni verður ekki sneitt hjá erlendum tökuorðum ..." Þó ekki væri! En á öðrum stað segir: „... hef ég lagt áherslu á að bókin sýni venjulegt nútímamál eins og það tíðkast í riti núna. Ekki verður þó komist hjá að taka eitthvað af orðum sem höfundar seinni tíma hafa notað og eru lifandi í bókmennt- um þó að dagblaðalesendur rek- ist sjaldan á þau.“ Ég vona að guð gefi, að ég misskilji það sem hér var sagt, því ef ég skil það rétt, er ég-hræddur um að gildi bókarinnar verði minna en boð- legt geti talizt. Enn segir: „Nýyrði verða tekin með ef þau hafa verið notuð síðustu ár eða áratugi af almenningi en ekki þau sem minni útbreiðslu hafa fengið þó að þau standi í nýyrða- söfnum." Ég verð að játa, að einnig þessi orð las ég með nokkrum ugg, sem ég vona í lengstu lög að sé ástæðulaus. Það væri hrapallegt slys, ef verki þessu yrði spillt með ná- nasarskap í fjármálum. Þegar til starfs hefur fengizt áhugasamur fræðimaður, sem sýnir að hann hefur til þess bæði kunnáttu og vandvirkni að leysa verkið vel af hendi, þá ætti að þykja skylt að sjá honum fyrir fé og vinnu- krafti, svo sem til þarf, að árangur verði sem beztur. Til þess er ekki sjálfsagt að þurr- ausa^ í fyrstu atrennnu sjóð "Margrétar og Þórbergs; þar mættu fleiri lindir saman renna. Fáir horfa í opinberan styrk á hverju ári til listasafns, þjóð- leikhúss eða simfóníusveitar. Allir viðurkenna menningargildi þessara stofnana. En skyldi ekki vera sá menningarauki að ís- lenzkri samheitabók, að hægt sé að sjá af nokkrum milljónum í fáein ár til þess að hún geti orðið sem nytsömust? Kannski væri fávísleg bjartsýni að vænta góðs af því fjárveitingarvaldi sem lætur sér sæma að svelta Islenzka málnefnd til bana. Þó skulu engar hrakspár uppi hafðar að óreyndu. Og ég lýk þessum orðum með því að óska Svavari Sigmundssyni til ham- ingju með verk sitt, sem ég vona að hvorki þurfi að valda honum sjálfum né öðrum vonbrigðum fyrir sinnuleysi á hærri stöðum. Samheitabók Nefndarálit sjálfstæðismanna um skattamál — fyrri hluti: Skæðadrífa nýrra og hækkaðra skatta hefur dunið yfir þjóðina Hér fer á eftir fyrri hluti nefndarálits þingmanna Sjálfstæðisflokksins í fjárhags- og viðskiptanefnd efri deildar um skattamál, sem lagt var fram á Alþingi í gær. í nefndaráliti þessu er gerð grein fyrir tillögum sjálfstæðismanna um skattstiga, sem Morgunblaðið skýrði frá í gær: Frv. til 1. um breyt. á 1. nr. 40 18. maí 1978, um tekjuskatt og eignarskatt, á þskj. 219, er þáttur í stórfelldum auknum skattaálög- um sem rikisstjórnin og sá þing- meirihluti, sem hana styður, standa að. Frv. gerir ráð fyrir að innheimta í ríkissjóð allan þann skattauka í tekju- og eignar- skatti, sem vinstri stjórnin lagði á sem afturvirka skatta haustið 1978. Því til viðbótar munu þær tillögur frá 1. minni hluta fjár- hags- og viðskiptanefndar, sem fluttar eru á þskj. 309, auka enn tekjuskatta einstaklinga um 2—3 milljarða kr. frá því sem fjárlög gerðu ráð fyrir, en forsenda tekjuáætlunar fjárlaga var sú, að vinstri stjórnarskattarnir skiluðu sér í ríkissjóð. í tekjuáætlun fjárlaga er miðað við að álagður tekjuskattur á einstaklinga nemi 43.500 millj. kr. Var þá gert ráð fyrir að meðaltekjur hækkuðu milli áranna 1978 og 1979 um 45%. Nýjustu upplýsingar Þjóð- hagsstofnunar benda til þess, að tekjubreytingin verði 47—48% (sjá fskj. 1). Skattstigatillögur 1. minni hl. fjárhags- og viðskipta- nefndar hafa því í för með sér 45.500—46.500 millj. kr., tekju- skattsálögur á einstaklinga í ár, þ.e. framangreinda skattahækk- un. Mikil skæðadrífa nýrra og hækkaðra skatta hefur dunið yfir þjóðina að undanförnu. Nú er svo komið, að heildarskattheimta ríkis og sveitarfélaga þyngist á yfirstandandi ári um 54 milljarða vegna aðgerða núverandi ríkis- stjórnar og fyrri vinstri stjórnar. Þessi aukna skattbyrði nemur hvorki meira né minna en 1.300 þús. kr. á hverja fimm manna fjölskyldu í landinu. Þetta fé hefðu heimilin handbært í ár ef sömu álagningarreglur skatta til ríkis og sveitarfélaga giltu eins og 1978, áður en vinstri stjórnin tók þá við völdum, þ.e. þegar sjálfstæðismenn réðu síðast ríkisfjármálunum. Hækkun beinna skatta Af þessari skattahækkun af völdum þessara tveggja ríkis- stjórna hækka beinir skattar um 25 milljarða kr. frá því sem verið hefði, ef sama hlutfall tekna gengi til greiðslu þeirra og á árinu 1978. Tekju- og eignar- skattar, sjúkratryggingagjald, útsvör og fasteignaskattar námu árið 1978 11.6% af brúttótekjum skattgreiðenda. Hér er átt við venjulega álagningu það ár áður en afturvirku sköttunum var bætt við. Þessir skattar eru að mati Þjóðhagsstofnunar í ár 14.2% af brúttótekjum yfirstand- andi árs (sjá þskj. II). I þeirri áætlun er einungis gert ráð fyrir að tekju- og eignarskattar verði í samræmi við tekjuáætlun fjár- lagafrumvarps, en ekki 2—3 milljörðum hærri, og að heimild til 10% hækkunar útsvars verði aðeins nýtt að hálfu. Raunsærra er því að gera ráð fyrir að þetta hlutfall verði í raun 14.6—14.8%. Þjóðhagsstofnun hefur áætlað brúttótekjur framteljenda 820 milljarða króna 1980 (miðað við 47% tekjubreytingu milli áranna 1978 og 1979). Beinir skattar, sem greiddust af þessum 820 milljörð- um (þ.e. í tekju- og eignarskatt, útsvar, sjúkratryggingagjald og fasteignaskatta), yrðu þá 11.6% af 820 milljörðum miðað við álagningarreglur 1978 og 14.7% 1980 eða: Skattar í ár miðað við mismun- andi álagningarreglur: 1978 1979 11.6% brúttó- 14.7% brúttó- Skatta- tekna m.kr. tekna m.kr. hækkun m.kr. 95.000 120.000 25.000 Með sama skatthlutfalli og 1978 hefðu borgararnir greitt 95 milljarða í beina skatta á þessu ári, en greiða nú nálægt 120 milljörðum skv. tillögum 1. minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar um tekju- og eignarskatta, sem hér liggja fyrir, og aukinni heim- ild til álagningar útsvara svo og gildandi lögum um sjúkratrygg- ingagjald og fasteignaskatta. Hækkun óbeinna skatta Óbeinir skattar í ár verða 31 milljarði króna þyngri vegna ákvarðana núv. ríkisstjórnar og vinstri stjórnarinnar síðan ha- ustið 1978. Þessi aukaskattreikningur ób- einna skatta sundurliðast þannig: 1. Hækkun söluskatts (í fyrrahaust) um 2% . . .10.300 2. Hækkun vörugjalds (sama tíma) um 6% . . . 7.715 3. Gjald á ferðalög til útlanda ..............1.700 4. Nýbyggingagjald 250 5. Skattur á verslunar- húsnæði...............1.700 6. Aðlögunargjald.......1.840 7. Hækkun verðjöfnunar- gjalds af raforku 1.220 8. Skattahækkun á bensín umfram verðlagshækkanir . . . .10.100 9. Nýtt „orku- jöfnunargjald" sem er í raun 1.5% söluskattur . 6.000 10. Markaðar tekjur auknar í ríkissjóð.............4.714 45.539 Frá dregst niðurfelling söluskatts af matvörum og tollalækkun..........14.500 31.039 Framangreindar tölur er að finna í fjárlögum og sumpart reiknað skv. upplýsingum frá Þjóðhagsstofnun, sem stuðst er við. Hækkun söluskatts og vöru- gjalds, sem ákveðin var í fyrra- haust af vinstri stjórninni, leggur í ár 18 milljarða skattaálögur á þjóðina, en í fyrra voru þessar skattahækkanir 2.7 milljarðar, vegna þess hversu seint hækkun- in kom til framkvæmda á árinu. Gjald á ferðalögum til útlanda, nýbyggingagjald, skattur á versl- unarhúsnæði og aðlögunargjald eru allt nýir skattar sem fyrst voru lagðir á af vinstri stjórn- inni. „Orkujöfnunargjald", sem er í raun almenn hækkun sölu- skatts, er uppfinning núv. ríkis- stjórnar og leggur nýja skatt- byrði á sem nemur 6 milljörðum í ár, en á 12 mánuðum tæpum 8 milljörðum. Skattaálögur á bensín hafa þrefaldast að krónutölu síðan 1978, og er nú svo komið að hvergi í veröldinni eru meiri skattar á rekstur og stofnkostnað bifreiða en á íslandi. Samtímis hafa bein framlög úr ríkissjóði til vegaframkvæmda verið skorin niður og verða 2 milljörðum minni að raungildi en 1978 og skattar á bensín renna í æ ríkara mæli í ríkissjóð. Rúmlega helm- ingur (51%) skatttekna af bensíni gekk til vegafram- kvæmda árið 1978, en svk. fjár- lögum 1980 fara einungis 38% af bensínsköttunum í Vegasjóð. Ef saman er borin skattlagning á bensín 1978 og skv. fjárlögum 1980 er samanburðurinn þannig: 1978 1980 M.kr. M.kr. Bensínftjald til vega 4.626 51% 11.000 38% Tollur or söluskattur 4.445 49%. 18.000 62% 9.071 29.000 Hækkunin er tæpir 20 millj- arðar eða 221%. Hér er um hækkun að ræða sem er 10.1 milljarði umfram verðlagshækk- anir, því byggingarvísitala er áætluð hækka um rúmlega 108% frá miðju ári 1978 og fram á mitt ár 1980. Ástæðan fyrir þessum gegndarlausu skattaálögum er sú, að innflutningsverð á bensíni hefur stórhækkað vegna orku- kreppunnar. Hvergi hefur þó ver- ið slakað á álagningu söluskatts og tolla sem bætast ofan á þessa verðhækkun, heldur þvert á móti hækkað hlutfall lagt á. Verð á bensínlítra hækkaði í dag um 60 kr. Þar af renna 42 kr. í ríkissjóð og er bensíngjald þó ekki nema rúmlega 20 kr. af því. Eftir þessa hækkun sundurliðast verð á bensíni þannig: Bensíngjald í vegasjóö . . 91.36 kr. af lítra Söluskattur og toliur .. .156.14 kr. af lítra Til olíufélaganna....182.50 kr. af lítra Samt. 430.00 kr. Til ríkisins ganga 247.50 af verði bensínlítra eða 57.6%, en 21.2% af verðinu fara til vega- framkvæmda. Öllum sæmilega viti bornum mönnum hlýtur að skiljast, að hér er stefnt út í algjöra ófæru. Eitt arðbærasta félagslega verk- efni, sem bíður úrlausnar með þjóðinni, er gerð varanlegra vega. Bundið olíumalarslitlag með 1000 bíla ársumferð er 6—7 ár að borga sig í sparnaði á viðhaldi vegarins. Slíkt slitlag sparar einnig: 21% af eldsneytiskostnaði, 170% í viðhaldi hjólbarða, 45% í viðhaldi bifreiða. Meðaltalsslit bifreiða er talið 63% meira á malarvegi en vegi með bundið slitlag. Vegagerð ríkisins telur að 2000—2500 km af íslenskum vegum séu með þeirri ársumferð að arðbært sé að leggja á þá varanlegt slitlag. Þegar slík félagsleg stórvirki bíða úrlausnar er það óskiljanleg fjar- stæða að auka sífellt skattaálög- ur til almennra þarfa ríkissjóðs á rekstur og stofnkostnað bifreiða — svo að heimsmet er slegið — og minnka samtímis framlög af því fé til vegamála. Lárus Jónsson, alþingismaður: 1300 þúsund króna aukaskattar á fimm manna f jölskyldu Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í fjárhags- og viðskiptanefnd efri deildar Alþingis hafa lagt fram breytingartillögur varðandi skatt- stiga. ásamt greinargerð. sem Morgunblaðið hefur gert fréttaleg skil í gær og dag. Lárus Jónsson mælti fyrir afstöðu sjálfstæðismanna í þingdeildinni í gær og sagði efnislega m.a. Efnisatriði breytingartillagna • 1. Að álagning tekju- og eigna- skatta hjá einstaklingum og félög- um 1980 verði hin sama og hún var 1978, eftir þeim lögum, sem sjálf- stæðismenn báru þá ábyrgð á. • 2. Að afnumdir verði afturvirkir skattar, sem vinstri stjórnin lagði á haustið 1978 og gilt hafa í einu eða öðru formi síðan. • 3. Að tekjuskattar ríkisins lækki að nokkru á móti þeirri hækkun útsvara, sem heimiluð var hér á hinu háa Alþingi fyrir forgöngu ríkisstjórnarinnar. Fulltrúar Sjálfstæðisfloxksins í fjárhags- og viðskiptanefnd efri deildar telja að allir þingmenn, sem kosnir voru á þing af listum Sjálfstæðisflokks, hafi skuldbundið sig til að fylgja slíkri meginstefnu * álagningu tekju- og eignaskatta. í tillögu okkar er lagt til að tekjuskattsstigar einstaklinga verði: 25% af fyrstu 4 m.kr.. 35% af næstu 4 m.kr. og 45% af hærri tekjum en 8 m.kr. Við gerum hins vegar ekki tillögur um breytingu barnabóta né persónuafsláttar eins og þessi atriði eru boðuð í tillögum stjórnarliða. Þessar tillögur okkar þýða 7.2 milljarða kr. lækkun á tekjuskatti einstaklinga frá tillög- um stjórnarliða. Hækkun fyrsta skattþrepsins léttir 5 milljörðum af skattbyrði einstaklinga en ann- að þrepið 2.2 milljörðum króna. Skattalækkun samkvæmt tillög- um sjálfstæðismanna verður að meðaltali 16,4%, hjá einstaklingum 12%, hjá hjónum 17% og hjá barnmörgum fjölskvldum allt að 33%. Afkomuáætlanir heimila i landinu Ef skattaáform núverandi ríkis- stjórnar ná fram að ganga, ofan á framlengingu vinstri stjórnar skattanna 1978 og 1979, þyngjast heildarskattar almennings um 54 milljarða króna. Hér er hvorki um meira né minna að ræða en 1300 þúsund krónur í auknar álögur á hverja 5 manna fjölskyldu í landinu þegar allt er tíundað, bæði í beinum sköttum og sköttum í vöruverði. Þetta fé myndu heimilin hafa í landinu til annarrar ráðstöfunar, ef skattastefna Sjálfstæðisflokksins væri framkvæmd, ef sama skatt- hlutfall af tekjum og eignum al- mennings og 1978 væri nú notað. Stjórnarstefnan . i skattamálum skerðir því kjarastöðu og ráðstöf- unartekjur þorra fólks verulega. Fjárhagsáætlanir heimilanna í landinu skipta verulegu máli ekki síður en fjárlög landssjóðsins. Á þessari stefnu bera stjórnarliðar ábyrgð, raunar einnig Alþýðuflokk- ur, sem átti sinn þátt í skattaukum vinstri stjórnar 1978/1979.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.