Morgunblaðið - 16.04.1980, Síða 4

Morgunblaðið - 16.04.1980, Síða 4
4 MORGUNBLAÐÍÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1980 Útvarpssagan kl. 21.45: Laxness les Guðsgjafaþulu í kvöld klukkan 21.45 les Halldór Laxness í útvarpi sjötta lestur út- varpssögu sinnar, Guðsgjafaþulu. Ástæðulaust er að kynna Laxness sérstaklega eða verk hans, svo kunn sem þau eru þjóðinni allri, en benda má á að nóbelsskáldið er ekki síður skemmtilegur upplesari eigin verka en hann er ritsnjall, eins og þeir muna glögglega sem hlýddu á hann lesa Paradísarheimt í útvarp um árið. Þættir um nám í Háskólanum í kvöld klukkan 20 er í útvarpi á dagskrá þáttur Kristjáns E. Guðmundssonar Úr skólalífinu. í þáttum þessum hefur Kristján tekið fyrir að undanförnu nám í hinum ýmsu greinum í Háskóla íslands, og er ekki að efa að þættirnir eru gagnlegir þeim er þar hyggja á nám á næstunni, svo sem menntaskólanemum. Þá eru þættirnir einnig, og ef til vill ekki síður, fróðlegir fyrir þá sem ekki hyggja á nám við þessa æðstu menntastofnun þjóðar- innar, því almenningur er ef til vill ekki ýkja fróður um það sem þar er kennt. I þættinum í kvöld verður sérstaklega fjallað um nám í tannlækningum við Háskólann. Margir Norðmenn flúðu yfir Kjöl til Svíþjóðar er Þjóðverjar hernámu landið, þar á meðal Gyðingar sem ofsóttir voru af þýska hernámsliðinu. Ferðin yfir Kjöl var hins vegar síður en svo nein skemmtiganga, og margir báru beinin í óbyggðum án þess að ná til byggða í Svíaríki. Sjónvarp í kvöld klukkan 22.05: Hörmungar her- námsáranna í sjónvarpinu í kvöld klukkan 22.05 verður sýndur annar þátt- urinn um hernámsárin í Noregi. I þættinum í kvöld verður sagt frá ofsóknum Þjóðverja á hend- ur Gyðingum í Noregi. Rétt rúmlega fjörutíu ár eru nú liðin frá því að Norðurlöndin drógust inn í styrjaldarátökin. Ekkert landanna slapp alveg við átök þessi, en líklega hafa Svíar þó skaðast minnst. Þá eru áhyggjur þær sem íslendingar höfðu af styrjöldinni og mann- skaðar sem þjóðin varð fyrir, ekki eins þungbærir eins og þær hörmungar sem Danir, Norð- menn og Finnar urðu að þola. Finnar lentu á milli stórveld- anna Sovétríkjanna og Þýska- lands, og landið varð vígvöllur Finna og Rússa í vetrarstríðinu. Þá urðu Norðmenn fyrir miklu mannfalli er Þjóðverjar hertóku landið, og nokkurt mannfall varð einnig í Danmörku. Danir veittu þó ekki eins mikla mótspyrnu í upphafi eins og Norðmenn, enda erfiðara um vik þar sem Dan- mörk á því sem næst opin landamæri að Þýzkalandi. Danir bættu hins vegar úr því síðar, því þegar leið á styrjöldina varð Danmörk eitt órólegasta her- námssvæði Hitlers og manna hans. Útvarp Reykjavík yHIDMIKUDKGUR 16. apríl MORGUNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn. 7.25 Morgunpósturinn. (8.00 Fréttir). 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tónleikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Jón Gunnarsson heldur áfram að Iesa söguna „A Hrauni“ eftir Bergþóru Páls- dóttur frá Veturhúsum (6). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Morguntónleikar. Manu- ela Wiesler, Sigurður I. Snorrason og Sinfóníu- hljómsveit íslands leika Noktúrnu fyrir flautu, klarínettu og strokhljóm- sveit eftir Hallgrim Helga- son; Páll P. Pálsson stj. / Búdapest-kvartettinn leikur Strengjakvartett nr. 11 í f-moll op. 95 eftir Ludwig van Beethoven. 11.00 „Með örðsins brandi“. Séra Bernharður Guð- mundsson les hugvekjuna um Tómas eftir Kaj Munk í þýðingu Sigurbjörns Ein- arssonar biskups. 11.20 Tónlist eftir Felix Mend- elssohn. a. Wolfgang Dallmann leik- ur Orgelsónötu nr. 1 í f-moll. b. Kór Söngskólans í Westphalen syngur þrjár mótettur við texta úr Davíðssálmum; Wilhelm Ehmann stj. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikasyrpa. Tónlist úr ýms- um áttum, þ.á m. létt- klassisk. SÍDDEGID 14.30 Miðdegissagan: „Helj- arslóðarhatturinn“ eftir Richard Brautigan. Hörður Kristjánsson þýddi. Guð- björg Guðmundsdóttir les (6). 15.00 Popp. Dóra Jónsdóttir kynnir. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Litli harnatíminn: Ýmis- Iegt um vorið. Stjórnandinn, Sigrún Björg Ingþórsdóttir, velur og flytur ásamt tveim- ur 7 ára telpum, Ragnheiði Davíðsdóttur og Hafrúnu ósk Sigurhansdóttur. 16.40 Útvarpssaga barnanna: „Glaumbæingar á ferð og flugi“ eftir Guðjón Sveins- son. Sigurður Sigurjónsson les (10). 17.00 Síðdegistónleikar. Sin- fóníuhljómsveit íslands leik- ur „Albumblatt“ eftir Þorkel Sigurbjörnsson; Karsten Andersen stj. / Blásara- kvintett félaga í Fílharmoníusveit Stokk- hólmsborgar leika „Fjögur 16. april 1980. 18.00 Börnin á eldfjallinu Fimmti þáttur. Þýðandi Guðni Koibeins- son. 18.25 Einu sinni var Þrettándi og síðasti þáttur. . Þýðandi Friðrik Páll Jónsson. Sögumenn Ómar Ragnarsson og Bryndis Schram. 18.50 Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Vaka Fjallað um norræna textíl- sýningu að Kjarvalsstöðum og stöðu íslenskrar texti!- listar. Umsjónarmaður Hrafn- hildur Schram. Stjórn upptöku Kristín Páisdóttir. 21.05 Ferðir Darwins Þriðji þáttur. Á slóðum viilimanna. Efni annars þáttar; Charl- es Darwin tekur þátt í rannsóknarleiðangri skips- tempo“, divertimento fyrir blásarakvintett eftir Lars- Erik Larsson / Sinfóníu- hljómsveit sænska útvarps- ins leikur Sinfóniu nr. 1 í f-moll op. 7 eftir Hugo Alf- ins Beagle, sem á að sigla kringum hnöttinn og gera sjómælingar. í Brasiliu kynnist hann 'breytilegri náttúru, sem vekur undrun hans og aðdáun. En á búgarði Ivans Lennons verður hann vitni að hörm- ungum þrælahaldsins, og það fær mjög á hann. Þeg- ar Darwin kemur um borð aftur, lendir hann í deiiu við FitzRoy skipstjóra út af stöðu svertingja i þjóðfél- aginu, og skipstjórinn rek- ur hann úr klefa sinum. Þýðandi óskar Ingimars- son. 22.05 Fióttinn yfir Kjöl Annar þáttur. Haustið 1942 hefja Þjóð- verjar herferð gegn norsk- um gyðingum. Rúmiega sjö hundruð manns eru send til útrýmingarbúða, en niu hundruð tókst að komast til Svíþjóðar. Þýðandi Jón Gunnarsson. (Nordvision — Norska og Sænska sjónvarpið). 22.55 Dagskráriok. vén; Stig Westerberg stj. 18.00 Tónleikar.Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÖLDID___________________ 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.35 Finnska söngkonan Taru Valjakka syngur lög eftir Rodrigo, Granados og Palmgren. Agnes Löve leik- ur á píanó. (Áður útv. 14. marz í fyrra). 20.00 Úr skólalífinu. Kristján E. Guðmundsson sér um þáttinn. Fjallað um nám i tannlækningum við Háskóla íslands. 20.45 Dómsmál. Björn Helga- son hæstaréttarritari segir frá máli til heimtu trygg- ingabóta fyrir flugvél, sem fórst. 21.05 Kammertónlist. Kvintett fyrir píanó. klarínettu, horn, selló og kontrabassa eftir Friedrich Kalkbrenner. Mary Louise Böhm, Arthur Bloom, Howard Howard, Fred Sherry og Jeffrey Lev- ine leika. 21.45 Útvarpssagan: „Guðs- gjafaþula“ eftir Halldór Laxness. Höfundur les (6). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.35 Það fer að vora. Jónas Guðmundsson rithöfundur spjallar við hlustendur. 23.00 Djass. Umsjónarmaður: Gerard Chinotti. Kynnir: Jórunn Tómasdóttir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.