Morgunblaðið - 16.04.1980, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1980
7
RMherrann sem talar GJG — í „bakkgír" kjara
ekki viö seglskip. baráttunnar.
Þögn ráöherra
lætur hátt í eyrum
Fyrir þremur vikum birtu
dagblöðin fimm spurningar
frá Ara T. Guðmundssyni,
menntaskólakennara, til
Ragnars Arnalds, fjármála-
ráðherra. Spurningarnar
vðru þessar:
• 1. „Telur þú rangt að
b»ta BSRB og BHM a.m.k.
10—15% kjararýrnun frá
síðustu samningum að
telja? Ég á við bætur á
árinu 1980 og til loka nýs
samningstímabils en ekki
ártuginn.“
• 2. „Hvernig getur þú
varið það að taxtar neðan
meðallags (ca. 450 þús. á
mán.) fái enga launahækk-
un þegar framfærsla með-
alfjölskyldu kostar um 450
þús. kr. á mánuði skv.
Hagstofunni? Ég bið ekki
um samanburð við verka-
mannalaun sem eru hrein
svívirða við fólk.“
• 3. „Viltu útskýra hvers
vegna minna „svigrúm" er
til launahækkana nú en
1978 þegar þú og flokkur
launafólks studduð kjara-
baráttu opinberra starfs-
manna?"
• 4. bú segist ætla að bíða
með ýmsa þætti kjaramála
þar til „frjálsir kjarasamn-
ingar hafa farið fram“. Eru
samningar BSRB og ríkis-
valdsins annars eðlis en
samningar t.d. ASÍ og
VSÍ?"
• 5. „Ert þú fylgjandi því
að BHM fái verkfalls- og
samningsrétt til jafns við
BSRB eða jafnvel ASÍ?“
Það hefur vakið athygli
að fjármálaráðherra víkur
sér gjörsamlega undan að
svara þessum spurningum
menntaskólakennarans,
sem þó eru fram settar á
málefnalegan hátt. Þaö að
virða samborgara sína
svars, þegar málefnalega
er spurt og um mál, sem
ráðherrann fór um mörgum
orðum á kosningaakrinum,
er þó lágmarks háttvísi af
hans hálfu. Þögn ráöherr-
ans er að vtsu svar út af
fyrir sig, svar valdahrok-
ans, lítilsvirðingar á hinum
almenna borgara og þess
að þurfa að standa við
„atkvæðabeitur" á heföar-
tindi stjórnsýslunnar.
Jakinn og
skattareiptogiö
Þau vóru stór orðin á
tungu Guðmundar J. Guð-
mundssonar á ríkisstjórn-
arárum Geirs Hall-
grímssonar og viðbrögð
hörð, útflutningsbann og
annað álíka, enda maður-
inn þá að brjóta á bak aftur
verðbólguhömlur, sem
líklegar vóru til aö koma á
jafnvægi í efnahagslífi
þjóðarbúsins. Nú er hann
annar, innfallinn og að-
gerðalaus, ef marka má
ályktun verkakvenna-
félagsins Snótar í Vest-
mannaeyjum og orð verka-
konunnar, sem beindi orö-
um sínum sérstaklega til
hans á sjónvarpsskjánum á
dögunum. Hún taldi jakann
kominn í nokkurs konar
eilífðarbakkgír í kjarabar-
áttunni, þó hún orðaði það
á annan veg.
Forsendur fjárlaga Al-
þýðubandalagsins gera ráð
fyrir minnkandi kaupmætti
launa 1980 — til viðbótar
kaupmáttarrýrnun 1979.
Kjarastaða fólks hefur ekki
sízt versnað vegna hækk-
andi skattheimtu stjórn-
valda, bæöi beinna skatta,
svo sem tekjuskatts og
útsvars, og óbeinna skatta,
sem stórhækka allt vöru-
verð í landinu, eins og
vörugjalds og söluskatts,
að ekki sé minnst á þá
verðhækkunarsköttun rík-
isstjórnar er meir en tvö-
faldar bensínverð í landinu.
Sjálfur flutti Guðmundur J.
Guðmundsson frumvarp til
laga um útsvarshækkun-
ina, ásamt nokkrum öörum
skatthækkunarpostulum,
sem eru eins og vörumerki
á þessari mestu skatta-
stjórn íslandssögunnar.
Þessi skatthækkunar-
tillaga Guðmundar J. Guð-
mundssonar fjallar um flat-
an brúttóskatt sem leggst
á vinnulaun allra, svo að
segja án nokkurs frádrátt-
ar, en þess háttar skattar
koma hvað þyngst niður á
þeim lægstlaunuðu í land-
inu. En „kosningar eru
kjarabarátta" sagði Guð-
mundur 1978, |>egar út-
flutningsbannið skók und-
irstööur þjóðarbúsins. Nú
er hann þungalóðið á
skattareipi ríkisstjórnar,
sem dregur hinn almenna
borgara lengra og lengra út
í skattpíningarfenið. Nú
„telur hann níður" verðlag
með söluskattshækkun og
bensíngjaldi og er Ijúfur
sem lamb og „ráðherra-
hollur" á stjórnarheimilinu.
Það nægír ÍYrir útborgun t nýja ameríska
ADC plötuspilaranum.
ADC 1500FG, sem er framleiddur af
ADC i Bandarikjunum, er óvenjulega ódýr
plötuspilari, þegar tillit er tekiö til bygging-
ar, nákvæmni og frágangs.
Hann er hálfsjálfvirkur, meö rafeinda-
stýrðri hraðastillingu (± 6%) og hámarks-
bjögun undir 0,05%.
Hann hefur vandaðan S-laga tónarm,
og er óhætt að fullyröa, að ADC 1500FG
sé með betri beltisdrifnum plötuspilurum á
markaðinum.
Með ADC 1500FG fylgi afar vandað
tónhöfuð (pick-up), einnig framleitt af
ADC (Qlm-34), og erþað innifalið iverðinu
(verðgildi kr. 19.600). ADC1500FG fæst
einvörðungu i svörtu.
Verð kr. 197.000. Útborgun kr. 62.000
eða kr. 13.800 staögreiðsluafsláttur.
LaugavegílO sími 27788
Píanóleikarinn EVA KNARDAHL frá Noregi heldur
tónleika í samkomusal Norræna hússins miöviku-
daginn 16. apríl kl. 20:30,og leikur verk eftir Grieg,
Oddvar Kvam, Hallvard Johnsen, Dag Wirén og Johs.
M. Rivertz.
Aðgöngumiöar í kaffistofu hússins og viö innganginn.
NORR€NA HUSIO POHjOLAN TAIO NORDENS HUS
Hestamannafélagiö
Myndakvöld
veröur n.k. fimmtudagskvöld í félagsheimili Fáks kl.
20.30.
Efni: Erlendar kvikmyndir af íslenzkum og enskum
hestum.
Fræösiunefndin.
rnmi^m^mm^m^mmm^mmmmKmm—mm*
LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER
Málning og
málningarvörur
Afsláttur
Kaupir þú fyrir: Kaupir þú umfram
30—50 þús. 50 þús.
veitum viö 10% veitum viö 15%
afslátt. afslátt.
Þetta er málningarefsláttur í Litaveri fyrir alla þá, sem eru
ad byggja, breyta eða bæta.
Líttu víð í Litaveri,
því það hefur ávaltt
borgaö sig.
r
UIIl
Heildsölubirgöir.
Davíö S. Jónsson & Co. hf.,
Þingholtsstræti 18 — sími 24-333.
VER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER