Morgunblaðið - 22.06.1980, Síða 1

Morgunblaðið - 22.06.1980, Síða 1
64 SÍÐUR 138. tbl. 67. árg. SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Furðar sig á Carter-bréfi Washington. 21. júní. AP. HELMUT Schmidt. kanzlari Vestur-Þjóðverja, „furðar sig“ á bréfi frá Jimmy Carter forseta. þar sem snúizt er gegn þvi að kanzlarinn leggi til, að frestað verði að koma fyrir eldflaugum i Evrópu, þegar hann hittir Leonid Brezhnev forseta að máli 30. júni. að sögn „Washington Post“ i dag. í viðtali við „Washington Post“ segir Schmidt kanzlari að tillaga sín um að frestað verði að koma fyrir meðaldrægum eldflaugum í þrjú ár, sé í samræmi við almenn vestræn sjónarmið. Talsmaður Hvíta hússins, Jody Powell, sagði að Bandaríkjastjórn teldi ekki að Schmidt mundi stinga upp á samkomulagi um „frystingu staðsetningar eld- flauga". En fregnir um, að Schmidt kynni að stinga upp á slíku, þrátt fyrir ákvörðun NATO um að tefla fram eldflaugunum, vöktu ugg í Bandaríkjunum og urðu til þess að Carter skrifaði Schmidt bréf til að gera grein fyrir andstöðu sinni. Talsmaður kanzlarans hefur síðan sagt, að Bonn-stjórnin styðji ákvörðun NATO. Schmidt segir í viðtalinu, að náið samstarf við vestræna sam- herja heyri undir vestur-þýzka þjóðarhagsmuni, en „við munum vissulega ekki láta af þeim vilja að hafa samstarf við“ Austur- Evrópuríkin. „Það er einnig röng hugmynd, að ríkisstjórnir í Evr- ópu hafi ekki rétt til að lýsa ugg sínum, að þær hafi ekki rétt til að leggja fram tillögur," sagði Schmidt. Carter kom í dag til Páfagarðs í Evrópuför sinni til að ræða við Jóhannes Pál páfa II og kirkju- BanKkok, 21. júni. AP. UM 50 thailenzkir fiskimenn munu hafa drukknað þegar viet- nömsk varðskip sökktu þremur togurum á Siam-flóa á þriðjudag- inn, að sögn „Bangkok Post“ í dag. Blaðið sagði, að átta varðskip hefðu hafið skothríð á flota thai- lenzkra togara, sem voru komnir í höfðingjar og svissneski lífvörður- inn tóku honum með mikilli við- höfn. Forsetinn kom við hjá minn- isvarða Aldo Moro á staðnum, þar sem hryðjuverkamenn Rauðu her- deildarinnar skildu lík hans eftir. Pínuhnetur handa Carter eru týndar Feneyjum, 21. júní. AP. FORRÁÐAMENN Cipriani- hótelsins í Feneyjum eru nú i öngum sinum. Þeir eiga von á Jimmy Carter, forseta Banda- rikjanna, til gistingar vegna sjö-Ianda ráðstefnunnar. Þar er þeir vissu hve hnetubónd- inn Jimmy Carter er hrifinn af pinuhnetum. þá pöntuðu þeir 50 kiló af pínuhnetum frá Georgíu — heimaríki forset- ans. En nú horfir til vandræða — pínuhneturnar eru ókomnar til Feneyja og enginn veit hvar þær eru niðurkomnar. „Við vitum hve forsetinn er hrifinn af pínuhnetum," sagði William Hamilton, talsmaður hótelsins við fréttamenn. „Því vildum við gleðja forsetann með ljúffengum pínuhnetum. En við erum nú úrkula vonar um, að þær komi í tíma,“ sagði Hamilton ennfremur. Því virð- ist flest benda til þess, að hnetubóndinn frá Georgíu verði af Georgíu-hnetum — nema hann sjálfur sé svo forsjáll að taka pakka með sér til Feneyja. 39,5 km fjarlægð frá víetnömsku eynni Thorn. Nokkrum hinna thailenzku fiskimanna mun seinna hafa verið bjargað um borð í víetnömsku bátana, að sögn blaðsins. Nokkrir svipaðir atburðir hafa gerzt á undanförnum árum. Thai- lenzkir fiskimenn veiða jafnan í landhelgi grannríkja, þar á meðal Burma, Kambódíu og Víetnam. Þrjár herflugvélar, þrjú varðskip og nokkur herskip hófu sameiginlegar aðgerðir gegn njósnabátnum þegar hann hafði laumazt inn í suður-kór- eska landhelgi, og honum var eytt á Gulahafi um 65 km. vestur af Sosan á vesturströnd- inni. Sosan er um 15 km. suðvestur á Seoul. Tveir suður-kóreskir sjóliðar særðust lítilsháttar í viðureign- inni að sögn yfirvalda. Shin Hyun-Soo hershöfðingi, yfirmaður gagnnjósnaþjónust- unnar, hélt því fram að bátur- inn hefði átt að setja á land norður-kóreska útsendara, sem hefðu átt að æsa til uppþota gegn stjórnvöldum í líkingu við hina blóðugu uppreisn í Kwangiu í síðasta mánuði þeg- ar 170 létu lífið. Hann sagði, að meðan á eltingarleiknum stóð hefðu Suður-Kóreumenn orðið varir við fimm herskip og 12 MIG- herflugvélar, sem Norður- Kóreumenn hefðu teflt fram til hugsanlegra aðgerða. Með „við- eigandi ráðstöfunum" sagði hann að komið hefði verið í veg fyrir að Norður-Kóreumenn sæktu yfir landamærin. í marz var njósnabáti frá Norður-Kóreu sökkt út af hafn- arborginni Pohans á austur- ströndinni. Norður-Kóreumenn neituðu því að bátnum hefði verið sökkt. í viðureigninni í dag hóf njósnabáturinn viðureignina þegar hann hafði neitað að hlýða stöðvunarmerkjum og tveimur viðvörunarskotum I hafði verið hleypt af að sögn yfirvalda. Yfirvöld hafa varað við aðgerðum af hálfu Norður- I Kóreu síðan í fyrra haust. Prestur iðrast Moskvu. 21. juni. AP. SÉRA Dmitri Dudko. sem verið hefur virkur i andstoóu sinni við sovésk yfirvöld kom í gær- kvöldi fram i sovéska sjónvarp- inu og sagðist iðrast gerða sinna. Hann hafnaði öllu sem hann hafði áður skrifað, sem „slúðri“ og hét sovéskum yfir- völdum hlýðni. Séra Dudko var handtekinn í janúar síðastliðnum og hefur verið í fangelsi síðan. „Eg iðrast gerða minna og viðurkenni, að svokölluð barátta mín gegn guð- leysi, var gegn yfirvöldum." Hann sagðist hafa verið undir áhrifum vestrænna áróðurs- meistara. Presturinn virtist afslappaður og brosti af og til. TASS-frétta- stofan sagði, að Dudko hafi verið handtekinn fyrir andsovéskan undirróður. Hins vegar segja heimildir, að saksóknarinn hafi verið að undirbúa ákæru á hend- ur séra Dudko, þar sem honum var borin kynvilla á brýn. Séra Dudko á konu og þrjú börn. I lok útsendingarinnar sagðist séra Dudko hafa „fundið sjálfan sig“. Ætla að gefa 50 til 100 manns Interferon Aætlaður kostnaður við tilraun- ina einn milljarður ísl. króna Lundúnum. 21. júní. AP. KONUNGLEGA krabbameins- félagið í samvinnu við Well- come lyfjafyrirtækið hefur ákveðið að hieypa af stokkun- um umfangsmikilum rannsókn- um á notagildi Interferonlyfs- ins. Á milli 50 og 100 krabba- meinssjúklingum verður gefið Interferon \ meðferð við sjúk- dómnum. Áætlaður kostnaður við tilraunina er einn milljarð- ur islenzkar krónur. Margir læknar álíta, að með Interferon sé að finna lausnina í baráttunni við krabbamein. Sá galli er á gjöf Njarðar að Interferon er feikilega dýrt og seinunnið í framleiðslu. Því verður að takmarka fjölda sjúkl- inga. Meðferð fyrstu sjúkl- inganna hefst í september. Int- erferon hefur verið beitt í með- ferð tveggja pilta á Bretlands- eyjum en þeir létust báðir, af völdum krabbameins, þrátt fyrir lyfjagjöfina. Togurum sökkt og 50 fórust Sumarsól ... .-^v -;>v ™ Nú þessa dagana eru sumarsólstööur, en það er þegar sól kemst lengst frá miðbaug og sólargangur er lengstur. Nafnið sólstöður mun visa til þess, að sólin stendur kyrr, þ.e. hættir að hækka og lækka á lofti. Næstkomandi þriðjudag er svo Jónsmessan, 24. júni, en það er fæðingardagur Jóhannesar skírara og eini fæðingardagur dýrlings. sem haldinn var helgur. Jónsmessan var helgidagur á tslandi fram tii 1770. Jónsmessur á lslandi eru annars þrjár, sú er áður er nefnd. en siðan er tii Jónsmessa Hólabiskups á föstu. 3. marz. haldin i minningu þess að þann dag árið 1200 voru bein Jóns Ögmundssonar tekin upp. Jónsmessa Hólabiskups um vorið, eða hin siðari, 23. apríl, er andlátsdagur Jóns Ögmundssonar 1121. Myndina tók Ijósmyndari Morgunblaðsins, ólafur K. Magnússon, af miðnætursólinni á Seltjarnarnesi. Njósnabáti Norður- Kóreumanna sökkt 8pouI. 21. luni. Ar . FLUGVÉLAR og herskip frá Suður-Kóreu sökktu njósnabáti frá Norður-Kóreu í morgun eftir 12 tíma eltingarleik og átta menn af bátnum biðu hana. en einn var tekinn til fanga. að sögn suður-kóresku gagnnjósnaþjónustunnar. Þetta er annar sjóbar- dagi Kóreurikjanna á þremur mánuðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.